Dagur - 09.12.1997, Page 10

Dagur - 09.12.1997, Page 10
26 - ÞRIÐJUDAGUR 9.DESEMBER 1997 íc9‘r LANDSPITALINN ...í þágu mannúðar og vísinda... Hjúkrunarfræðingar óskast á: 1) gjörgæsludeild I. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af gjörgæslu-, hand- eða lyflæknishjúkrun. Boðinn er aðlögunartími sem felur í sér fyrir- lestra og handleiðslu reyndra hjúkrunarfræðinga. Upplýsingar veitir Lovísa Baldursdóttir, sími 560 1000 og 560 1300. 2) skurðdeild kvenna í afleysingar frá og með 15. janúar til 30. september 1998. Upplýsingar veitir Sjöfn Eyfjörð í síma 560 1148. Meinatæknir óskast á tæknifrjóvgunardeild kvennadeildar frá 1. janúar 1998. Um er að ræða fullt starf sem felur m.a. í sér vinnu með kynfrumur og fósturvísa, ætagerð og frumuræktanir. Upplýsingar veitir Júlíus Gísli Hreinsson, líf- fræðingur, sími 560 1175. Umsóknir berist til Þórðar Óskarssonar yfir- læknis fyrir 23. desember nk. Ritari óskast á almenna göngudeild frá 1. janúar 1998. Um er að ræða 100% framtíðarstarf. Vinnutími er 8-16 virka daga. Umsóknarfrestur er til 19. des- ember nk. Umsóknir berist til Hildigunnar Friðjónsdóttur, deildarstjóra, sem einnig veitir upplýsingar í síma 560 1090. Móttökuritari óskast á sónardeild Kvennadeildar í 100% starf. Upplýsingar veitir María Hreinsdóttir, deildarstjóri, í síma 560 1158. Laun samkv. gildandi samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Umsóknareyðublöð fást hjá starfsmannahaldi Ríkisspítala, Pverholti 18 og í upplýsingum á Landspítala. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Stjórn listamannalauna Auglýsing um starfslaun listamanna árið 1998 Hér með eru auglýst til umsóknar starfslaun til handa listamönnum árið 1998, í samræmi við ákvæði laga nr. 35/1991 með áorðnum breytingum. Starfslaunin eru veitt úrfjórum sjóðum, þ.e.: 1. Launasjóði rithöfunda, 2. Launasjóði myndlistarmanna, 3. Tónskáldasjóði, 4. Listasjóði. Umsóknir einstaklinga skulu hafa borist Stjórn listamannalauna, menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, á þar til gerðum eyðublöðum fyrir kl. 16 mánudaginn 15. desember 1997. Umsóknir skulu auðkenndar „Starfslaun listamanna 1998“ og til- greina þann sjóð sem sótt er um laun til. Umsóknareyðublöð fást hjá menntamálaráðuneytinu. Heimilt er að veita starfslaun til stuðnings leikhópum enda verði þeim varið til greiðslu starfslauna til einstakra leikhúslistamanna. Umsóknir leikhópa skulu berast Stjórn listamannalauna, mennta- málaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, á þar til gerðum eyðublöðum fyrir kl. 16 mánudaginn 15. desember 1997. Umsókn- ir skulu auðkenndar „Starfslaun listamanna 1998 - leikhópar“. Um- sóknareyðublöð fást hjá menntamálaráðuneytinu. Ath. Hafi umsækjandi áður hlotið starfslaun verður umsókn hans því aðeins tekin til umfjöllunar að hann hafi skilað Stjórn lista- mannalauna skýrslu um störf sín í samræmi við ákvæði 4. gr. laga um listamannalaun nr. 35/1991 með áorðnum breytingum. Vakin er athygli á að hægt er að ná í umsóknareyðublöð á Internet- inu á heimasíðu Stjórnar listamannalauna. Slóðin er: http://www. m media. is/listalaun. Athygli er vakin á að umsóknarfrestur rennur út mánu- daginn 15. desember nk. Reykjavík, 5. desember 1997. Stjórn iistamannalauna. LÍFIÐ í LANDINU Lesandi, sem er bóndi í sveit, hringdi og vildi vekja athygli á því að það væri mjög erfitt að fá ráðskonur, eða bara konur til sveitastarfa. Hann sagði að um tíma hefði verið einhver ráðningarskrifstofa hjá Búnaðarsamband- inu sem hefði séð um þessi mál, en nú um nokk- urra ára skeið hefði bara varla fengist kvenmaður í Vigdís Stefánsdóttir skrifar sveit, nema því aðeins að viðkomandi væri ófær til vinnu, mjög ung og óreynd eða bara einhver vandræðagripur. Hann var ekki sátt- ur við þessa þróun og vildi hvetja kvenfólk til að koma í sveitina, þó ekki væri til annars en að koma í veg fyrir að fólksfæð yrði meiri en orðið væri. HVAÐ A E G A Ð GERA Enginn er eins! Ég á í dálitlum vandræðum. Ég er frekar rólegur og þannig að ég vil hafa allt í föstum skorðum og vera búinn að ákveða fyrirfram hvernig ég ætla að eyða deginum eða fríinu. En konan mín er allt öðruvísi. Hún tekur ákvarðanir á augnabliki og skiptir stöðugt um skoðun á þvf hvað hún vill að við gerum. Þetta gerir mig óöruggan og ég verð stressaður. Hún skilur alls ekki hvað þetta er óþægilegt fyrir mig. Það eru skiptar skoðanir á þ í hvort eigi betur saman Iíkir eða ólíkir persónuleikar í sambúð. Gamla máltækið, Lík börn leika best, segir eitt og endurvarpar kannski reynslu kynslóðanna á meðan öðrum finnst að ólíkt fólk hljóti að bæta hvort annað upp. I fljótu bragði sé ég ekki aðra lausn en þá að þið semjið um það að annað ykkar ráði ferðum og skipulagi aðra vikuna/dag- inn/mánuðinn og hitt á móti. Það kostar að vísu streitu hjá þér öðru hvoru, en þú getur þá verið rólegur og skipulagður á milli. Það er mjög erfítt að temja sér háttu sem stangast á við eðli manns, svo mikið er víst og þó konan þín reyni sjálfsagt að fara eftir því sem þú biður hana um, þá er bara ekki víst að hún sé fær um það. Vigdís svarar í símann! Ertu með ráð, þarftu að spyrja, viltu gefa eða skipta? Vigdís svarar í símann kl. 9-12. Símiun er 563 1626 (beint) eða 800 7080 Póstfang: Þverholt 14 Rvk. eða Strandgata 31 Ak. Netfang: ritstjori@dagur.is FLÓAMARKAÐUR Jólasófa settið vantar Mynd úr myndasafni. \ Morgunverðarfundur Miðvikudaginn 10. desember 1997, kl. 8:00 - 9:30 á Hótel KEA, Akureyri LANDSBYGGÐIN 0G LIFSSTILL Getur atvinnulíf á landsbyggðinni boðið samkeppnishæf lífsgæði? • Skipta tekjumöguleikar og atvinnuöryggi minna máli en áður? • Hvemig geta íyrirtæki á landsbyggðinni keppt um sérhæft starfsfólk? • Hefur landsbyggðarfólk raunhæfa möguleika á að mennta bömin sín? • Er ekki lengur skemmtilegt að búa úti á landi? RÆÐUMENN:. L Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður Stefán Jón Hafstein, ritstjóri Bjarni Kristinsson, ffamkvæmdastjóri Iðnþróunarfélags Eyjafjaröar Fundargjald (morgunverður innifalinn) kr. 1.500,- Fundurinn er opinn en æskilegt er að tilkynna þátttöku fyrirfram í sima 588 6666 VERSLUNARRÁÐ ÍSLANDS Þetta bréf barst umsjónarmanni Flóamarkaðs.Þannig er mál með vexti, að á þessu ári skildum við hjónin og eiginmaðurinn flutti að heiman með sófasettið. Nú eru að koma jól og ég sit með 5 börn án sófasetts og vantar einnig 2-6 borðstofustóla til að sitja í á jólunum. Okkur þætti vænt um ef þið vilduð auglýsa á Flóamarkaðnum eftir notuðu sófasetti og borðstofustólum sem einhver vildi losna við. Kær kveðja og fyrirfram þakklæti. Sigrún.Síminn hjá okkur er 565 1125 Þessu er hér með komið á framfæri við lesendur Dags sem að vonum bregðast vel við. Uppskriftir Um jól er mikið hugsað um mat, mat- artilbúning og bakst- ur. Flestum þykir gott að fá kökur og fínan mat, en ýmsir hópar eiga við vand- kvæði að stríða. Þar má til dæmis nefna þá sem eru sykur- sjúkir og þjást af glutenof- næmi. Nú langar mig til að biðja lesendur um að senda mér uppskriftir sem henta þessum tveim hópum, kökur og eftirrétti. Húsráð og fleira er vel þegið líka. Heimilisfangið er: Svona er Iífið, Þverholt 14, 105 Reykja- vík. Faxnúmerið hjá okkur er: 551 6270 og beini síminn 563 1626. Svo er hægt að senda tölvupóst á: gsteinn@ff.is og merkja hann Svona er lífið.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.