Dagur - 11.12.1997, Side 5

Dagur - 11.12.1997, Side 5
 FIMMTUDAGUR ll.DESEMBE R 1 9 97 - S FRÉTTIR Lííróöur til að halda fj árlögum hallalausuni Jón Kristjánsson. formaður fjárlaganefndar, segir stjórnarliða reyna hvað þeir geta til að afgreiða fjáriögin réttu megin við strikið. 300 milljónir króna til spítalanna í land- iuu eyða fyrirhuguð- um tekjnafgangi fjár- lagafrumvarpsins en fj árlaganefndarmenn óttast reiði þjóðar ef fjárlög verða afgreidd með halla í uppsveifl- nnni og góðærinu sem núríkir. „Við erum að keppast við að af- greiða fjárlög réttu megin við strikið þannig að fjárlög verði hallalaus. Það er markmið sem við höfum sett okkur og munum gera allt sem í okkar valdi stend- ur til þess að það takist,“ sagði Jón Kristjánsson, formaður fjár- laganefndar, í samtali við Dag í gær. Seinni hluta dags var ekki ljóst hvort fjárlög næsta árs yrðu afgreidd hallalaus. Einn fjárlaganefndarmanna orðaði það svo í samtali við Dag að menn óttuðust að hálf þjóðin myndi mæta á Austurvöll til að mótmæla ef íjárlög yrðu afgreidd með halla í góðærinu. Þess vegna væri róinn lífróður til að vera réttu megin við strikið. I fjárlagafrumvarpinu var gert ráð fyrir að fjárlög næsta árs verði afgreidd með um rúmlega 500 milljóna króna afgangi. Samkvæmt tillögum fjárlaga- nefndar á að veita 300 milljón- um króna, umfram það sem gert var ráð fyrir í fjárlögum, til spít- alanna í landinu. Sú útgjalda- auking og fleiri sem eru til um- ræðu hjá fjárlaganefnd munu leiða til þess að 500 milljóna króna afgangurinn er farinn og meira til. Og í gærkvöld var verið að fara yfir hvað hægt væri að skera frá svo ekki yrði halli á íjár- lögunum. Þessar 300 milljónir sem búið er að ákveða að fari til spítalanna í landinu renna til þeirra óskipt- ar. Jón Kristjánsson sagði að ekki hefði verið hjá því komist að spít- alarnir fengju þessa auka íjár- veitingu vegna hækkandi launa- kostnaðar og annars kostnaðar- auka. ,Á móti kemur að vísu að það á eftir að reikna upp tekjuhlið frumvarpsins og ég á von á því að það muni skila einhveijum við- bótartekjum og eins og ég sagði áðan er það ásetningur okkar að skila fjárlögum réttu megin við strikið,“. sagði Jón Kristjánsson. Sturla Böðvarsson, varaformað- ur fjárlaganefndar, tók í sama streng og Jón Kristjánsson að allt yrði gert sem hægt er til að ekki verði halli á fjárlögum. -S.DÓR Kristján Jóhannsson: uppselt á aukatónieika á klukkustund í gær! Kristján eftirsöttur Spurn eftir Kristjáni Jóhannssyni virðist geypileg fyrir þessi jól: að- eins tók eina kluldmstund að selja miða á fimmtu tónleika hans þegar sala hófst í gærmorg- un. Aður höfðu miðar selst á undraskjótum tíma á ferna tón- Icika, tvenna norðan lands og tvenna sunnan. I gærmorgun voru auglýstir fimmtu tónleik- arnir vegna mikillar eftirspurnar. Þeir miðar runnu út. Kristján kom til landsins í gær og var á æfingu í gærkvöld í Hallgríms- kirkju. -SJH. Jólasamkeppnm lækkar vísiiiíluiia Vísitala neysluverds lækkar nú annaii mánuðinn í röð. Ávextir, grænmeti og síminn lækka meira en gosið hækkar. Nánast ár\'iss lækkun neyslu- verðsvísitölunnar fyrir jólin brást ekki að þessu sinni. Miðað við verðlag í desemberbyrjun lækkar vísitalan um 0,2% frá byrjun nóv- ember, en þá hafði hún líka lækkað frá því í október. Skuldir heimilanna eru af þessum ástæð- um um 800 milljónum lægri en ella. Hlutfallslega mest varð breytingin á símakostnaði, sem lækkaði nú aftur eftir hækkun í síðasta mánuði. Að mati Hag- Árviss lækkun neysluverðsvísitölunnar hefur oröið vegna jólanna. stofunnar er símakostnaður „vísitölufjölskyldunnar" nú 2,4% lægri en fyrir allar breytingarnar. Avextir og kartöflur héldu áfram að lækka. Verðlag seig líka niður á við á eggjum og feitmeti og sætindum. Matvæli hafa nú að jafnaði Iækkað um 1% á tveim mánuðum. Verð hefur líka lækkað lítillega á raftækjum og öðrum hlutum til heimilishalds, tölvum og myndböndum og síð- ast en ekki sfst lyfjum. Verðhækkanir voru miklu minna áberandi, en þær helstu á (jóla)gosdrykkjum (tæp 2%) bíla- varahlutum og á þjónustu veit- ingahúsa (1%). Vísitala neysluverðs er nú 181,4 stig - næstum hin sama og í september, en 2% hærri cn - fyrir sléttu ári. - HEI Breyting á um- ferðarlögum Lagt hefur verið fram frumvarp til laga um tvennar breytingar á umferðarlögunum. Annars vegar eru Iagðar til breytingar á vá- tryggingafjárhæðum ábyrgðar- trygginga ökutækja og slysatrygg- ingar ökumanns. Hins vegar eru lagðar til nokkrar breytingar á slysatryggingunni. Gert er ráð fyrir að vátryggingafjárhæðir hækki umtalsvert. Veiðar í landhelgi Sjávarútvegsráð- herra hefur lagt fram frumvarp til laga um rétt til veiða og vinnslu afla í fiskveiði- landhelgi Is- Iands. Með frum- Þorsteinn varpinu er stefnt Pálsson. að því að sett verði heildstæð lög sem lúta að heimildum er- lendra skipa til veiða og vinnslu sjávarafla í landhelginni og heimildum þeirra til að leita þjónustu í höfnum hér á landi. Hjálmanotkun hestamanna Kristín Halldórs- dóttir, Guð- mundur Arni Stefánsson, Hjálmar Jónsson, ísólfur Gylfi Pálmason og Sig- ríður Jóhannes- dóttir hafa lagt fram frumvarp til laga um hjálma- notkun hestamanna. I greinar- gerð er bent á að hestamennska sé þjóðaríþrótt Islendinga og vin- sældir hennar fari vaxandi. Hún sé þó ekki hættulaus íþrótt og mörg dæmi þess að illa hafi farið vegna þess að fólk notaði ekki hjálma. -S.dór PERSÓNULEG ÞJÓNUSTA - FRÁBÆRT ÚRVAL I DAG FIMMTUDAG, A MILLI KL. 15.30 OG 17.00 ÁRITAR MAGNÚS SCHEVING NÝJU BÓKINA SÍNA "LATIBÆR í VANDRÆÐUM" A MORGUN FÖSTUDAG, A MILLI KL.13.00 OG 18.00 KYNNA HJÓNIN GUÐRÚN OG GULLI BERGMAN BÆKUR SÍNAR, "HVAÐ VILJA KONUR FÁ FRÁ KÖRLUM" "ÁSTARFÍKN" OG "SÖNN AUGNBLIK ELSKENDA" Á MORGUN FÖSTUDAG, MILLI KL. 14.00 OG 16.00 ÁRITAR ÓTTAR SVEINSSON NÝÚTKOMNA BÓK SÍNA, | "ÚTKALL TF-LÍF - SEXTÍU MENN í LÍFSHÆTTU" BÓKVÁ HAFNARSTRÆTI 91-93 - SÍMI 461 5050 sí/

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.