Dagur - 11.12.1997, Qupperneq 8

Dagur - 11.12.1997, Qupperneq 8
8- FIMMTUDAGVR 11. DESEMBER 1997 Xfc^MT FIMMTUDAGUR ll.DESEMBER 1997 - 9 FRÉTTASKÝRING Kyoto: Samið iim frestun á heimsendi? SAMKEPPNI um útilistaverk við ■SuLtartangavirkjun í Kyoto ræddu menu um að koma í veg fyrir skelfilegar afleiðiugar aukinnar losunar gróðurMsaloftteg- unda, sem meðal ann- ars gæti fært Golf- strauminn frá íslands- ströndum. Sendinefndir ríkja heims sem hittust í Kyoto voru ekki að semja um léttvæga skiptingu á mengun- arkvóta eða ræða hvar mengun er mest og hvar minnst. Sendi- nefndirnar voru í raun að ræða um aðgerðir til að tryggja áfram- haldandi líf á jörð. Ahrif losunar gróðurhúsaloft- tegunda eru eitt alvarlegasta um- hverfisvandamál sem heims- byggðin stendur frammi fyrir. Af- Ieiðingar aðgerðaleysis geta orðið skelfilegar, m.a. vaxandi tíðni af- brigðilegrar veðráttu, aukin ofsa- veður, vindur og úrkoma. Hitastig á jörðu hækkar, en kólnar á viss- um svæðum. Jöklar hopa og haf- ið rís og setur þjóðir eins og Hol- land og Bangladesh í verulega hættu. Þessu fylgir t.d. að fjöldi dýrategunda deyr út, á sumum svæðum verður uppskerubrestur með hungursneyð og sníkjudýr og sjúkdómsberar breiðast út til nýrra staða. Golfstraumur kveður og fisk- urinn með Rétt er að skoða áhrifin á Island. Þar skiptir kannski meginmáli hvort almennt hækkandi hitastig muni breyta hafstraumum og þá færa Golfstrauminn til - þannig að hann hlýjar ekki lengur ís- lendingum. Þá kólnar hér all- verulega og Island verður ekki lengur réttu megin við mörk hins byggilega. Með breytingu á haf- straumum fylgir síðan breyting á fiskgengd, sem gæti rústað efna- hagskerfinu hér. Markmið loftslagssamninga er að draga úr losun gróðurhúsaloft- tegunda þannig að magn þeirra stöðvist við mörk sem koma í veg fyrir svona hættulegar breytingar á loftslagi af mannavöldum. I Kyoto hafa helstu stórveldi náð saman um að minnka losunina um 6%, en sérstaða ríkja á borð við ísland er viðurkennd og var talað um að ísland mætti auka losun sína um 10% frá því sem var 1990. íslendingum er þetta ekki nóg að mati stjórnvalda. Eins og allir vita eru uppi miklar ráðagerðir um aukna stóriðju hér á landi. Miðað við einungis þær stóriðju- framkvæmdir sem samþykktar hafa verið gera spár ráð fyrir því að miðað við 1990 aukist losunin hentar vel m.a. í salöt, sósur, ídýfur og með ávöxtum og tertum Betra bragð með líka á jólunum fllls árleg aukning vegna fyrirhugaðrar stóriðiu 3,140,0001 (108,28&) Þróun árlegrar losunar gróður- húsalofttegunda á íslandi Álver á Austurlandi Álver á Keilisnesi 620.0001(21,38%) Magnesfum verksmiðja 450.0001 (15,52%) Álver á Grundartanga 400.0001(13,80%) Stækkun Járnblendiverksmiðju 170,000 1(5,86%) Stækkun álvers i Straumsvík 150,0001 (5,17%) Á myndinni má sjá aukningu í útblæstri gróðurhúsaiofttegunda á ísiandi miðað við áform stjórnvalda um stóriðju. um 16% árið 2000, um 26% árið 2010, um 35% árið 2020 og um 40% árið 2025. Hér er aftur á móti ekki gert ráð íyrir aðgerðum til að draga úr losuninni. Þurfum 110% en ekkl 10%! I Kyoto hefur sendinefnd íslands einmitt bent á sérstöðu íslands. Bent er á að fyrir 1990 hafi losun- in minnkað allverulega með auk- inni jarðvarmanýtingu við hitun húsa, á þá bindingu gróðurs sem hafin er og stendur til að auka, þ.e. með jarðrækt (einkum með lúpínu) og skógrækt, á minnkandi metanlosun vegna samdráttar í landbúnaði, á hugmyndir um upptöku skatts á koldíoxíðút- streymi, á sölu á rafmagni til skipa í höfnum, á notkun endur- nýjanlegra orkugjafa, á aukna endurvinnslu og fleira. Talið er að húshitun með jarðvarma og raf- orku í stað olíu hafi minnkað los- un á íslandi um eina milljón tonna á ári. En burt séð frá þessu fela stór- iðjuáform íslendinga í sér aukn- ingu á losun sem er langt umfram 10% markið. Meðfylgjandi súlu- rit, sem byggt er á upplýsingum Hollustuverndar ríkisins, sýnir aukningu losunar vegna einstakra stóriðjuáforma. Niðurstaðan er að áform Islendinga muni auka los- unina um tæplega 110% til ársins 2010 og er þá olíuhreinsunarstöð ekki inni í myndinni. Aukningin er upp á rúmlega þrjár milljónir tonna árlega. - FÞG Sýning á tiUögum í ÁSMUNDARSAL Freyjugötu 41 11.-18. desember kl.14-18. Allirvelkomnir! D Landsvirkjun emnskúfa GfSTil Biórski I KanínusRmnskúfa Em Köflóttar tlerkúfur, margfir litir msf FINNSKU Æ5öp HUFURNAR ...bæjarins mesta úrval Höfum opið laugardaginn 13.12 frá 10-18 sunnudaginn 14.12 frá 13-18 AKUREYRI Sími: 462-3599 Einlitar ullar clerkúfur, kláar ogf grænar

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.