Dagur - 11.12.1997, Blaðsíða 10
10 -FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1997
rD^tr
FRÉTTTR
Ný gjaldskrá
heimaþj ónustu
Ný gjaldskrá fyrir félagslega heima-
þjónustu í Reykjavík hefur verið
samþykkt í borgarráði. Með breyt-
ingunni eykst innheimtuhlutfall í
heimaþjónustu úr 5,9% í 14%. Það
verður þó áfram hið lægsta miðað
við Garðabæ, Akureyri og Kópavog.
Gjald fyrir hverja klukkustund lækk-
ar úr 218 krónum í 175 og miðast
við 25-30% af kostnaði við hveria
vinnustund. Undanþegnir frá gjald-
inu verða þeir tekjulægstu sem hafa
ekki annað sér til framfærslu en elli-
og örorkulífeyri. Sjálfstæðismenn
létu hinsvegar bóka að með breyt-
ingunni sé verið að láta 1.600 heim-
ili aldraðra greiða 24 þúsund krón-
um meira að meðaltali fyrir þessa
þjónustu en áður. Því mótmæltu
borgarráðsfulltrúar R-lista.
GLÆSILEG nORBÆn
nönnvn
SöLUSTAÐIR; SuNNEVA DESIGN HVANNAVÖLLUM 14 AK.
Leðuriðjan Atson Laugavegi 15 Rvík. Veiðimaðurinn Hafnarstræti 5 Rvík.
Flytjum um helgina!
Opnum mánudaginn
15. desember
á nýjum stað að Hjalteyrargötu 2
| LÍMMIÐAR NORÐURLANDS
a( Hjalteyrargötu 2 • 600 Akureyri
A\ Simi 462 4166 • Fax 461 3035
Aðventusamvera
eldri borgara
verður í Glerárkirkju á morgun, fimmtudaginn 11. des. kl. 15.
Gestur verður Sverrir Pálsson. Barnakór kirkjunnar
mun syngja undir stjórn Hjartar Steinbergssonar.
Þá mun Kór Menntaskólans á Akureyri koma í heimsókn
og syngja nokkur lög undir stjórn
Guðmundar Óla Gunnarssonar.
Kaffiveitingar.
Allir velkomnir.
Vanþekktng flug-
ráðs furðuleg
Samgönguráðherra er
undrandi á að Flugráð
þekki ekki fyrirkomu-
lagið á innheimtu
eldsneytisgj alds.
Flugleiðir greiða
gjaldið af 30% notk-
unar sinnar.
„Mér finnst það furðulegt ef nú-
verandi fyrirkomulag með elds-
neytisgjaldið kemur flugráðs-
mönnum á óvart. Það getur eig-
inlega ekki verið, því þetta hefur
verið svo lengi í gildi og á að vera
öllum flugráðsmönnum kunn-
ugt. Þetta kemur mér mikið á
óvart," segir Halldór Blöndal,
samgönguráðherra, aðspurður
um fréttir Dags af ákvörðun
Flugráðs um rannsókn á fyrir-
komulagi innheimtu eldsneytis-
gjalds.
Halldór segir að undanþágan á
greiðslu eldsneytisgjalds vegna
Ameríkuflugs hafi nánast komið
fótunum undir Flugleiðir á sín-
um tíma og að lögum hafi verið
breytt í samræmi við þessar und-
anþágur.
„Þetta hefur verið framkvæmt
á þann veg að ef flugfélag á sjálft
sitt bensín þarf það ekki að
greiða eldsneytisgjald. Það hafa
Flugleiðir gert og það felur alls
ekki í sér mismunun, því þetta
geta allir gert sem vilja. Það er
enda í hæsta máta eðlilegt, þeg-
ar mikil viðskipti eiga sér stað, að
reynt er að hagræða þar sem
mikill kostnaður liggur fyrir,“
segir Halldór.
Kári Kárason, forstöðumaður
innkaupa- og eldsneytísdeildar
Flugleiða, segir rangt að Flug-
leiðir greiði ekkert eldsneytis-
gjald. „Undanþágan með N-Atl-
antshagsflugið er kunn og flugið
til Luxemburg er skilgreint með
því. Þess fyrir utan er eina flugið
sem er undanskilið eldsneytis-
gjaldi hjá okkur flugið til Kaup-
mannahafnar. Við greiðum elds-
neytisgjald af því sem við kaup-
um af olíufélögunum vegna ann-
ars millilandaflugs eða sem nem-
ur um 30% af okkar eldsneytis-
notkun. Að öðru Ieyti notum við
eldsneyti sem við kaupum sjálfir,
flytjum til landsins með skipi og
geymum í olíubirgðastöð sem við
eigum með olíufélögunum," seg-
ir Kári. — FÞG
Nýr Tröllatimguvegur
eykur öryggi ísfLrðinga
í nýrri langtímavega-
áætlun til ársins
2010, sem nú liggur
fyrir Alþingi, er m.a.
stefnt að því aö
Ijyáája upp veg upp úr
Amkötludal sunnan
Steingrímsfj aröar
npp á Tröllatungu-
heiði.
Vegurinn mun þó ekki liggja um
núverandi vegstæði á TröIIa-
tunguheiði, heldur mun hann
koma niður skammt frá Króks-
Ijarðarnesi og þaðan um nýja
veginn yfir Gilsfjörð. Þessi veg-
arlagning mun auka mjög öryggi
þeirra sem fara þurfa landveginn
frá norðanverðum Vestíjörðum,
t.d. íbúa Isafjarðarbæjar. Þessi
vegur verður talsverð stytting frá
núverandi vegi um Strandasýslu
að Brú ef haldið er til höfuð-
borgarinnar, eða um 30 km.
Þessi leið er þó 17 km lengri en
ef haldið er suður af Steingríms-
fjarðarheiði um Þorskafjarðar-
heiði, en ætti að vera öruggari
samgönguleið fyrir vegfarendur.
Þess má geta í langtímavegaá-
ætluninni er gert ráð fyrir að all-
ir þéttbýlisstaðir með 200 íbúa
eða fleiri verði komnir með
bundið slitlag á þjóðvegum sem
tengjast hringveginum, þ.e.
þjóðvegi nr. 1.
„Vegarstæði upp úr Arnkötlu-
dal á verulegt fylgi meðal sveitar-
stjórnarmanna í Strandasýslu og
við erum fylgjandi allri styttiirgu,
en það sem við viljum hér á Isa-
firði er góður sumarvegur yfir
Þorskafjarðarheiði en vetrarleið
um Strandir. Þessi vegur yrði
einnig mikil tenging milli Reyk-
hólasveitar og Hólmavíkur, sem
beðið hefur verið eftir árum
saman," segir Kristinn Jón Jóns-
son, forseti bæjarstjórnar Isa-
fjarðarbæjar. - GG
Stefnt að kosningu á nýju ári
S veitarstj ómarmeim
á Árhorgarsvæðinu
verða að segja til iim
það fyrir jól hvort
kjósa skuli um sam-
eiuingu strax á nýju
ári.
Sveitarstjórnarmenn á Selfossi,
Eyrarbakka, Stokkseyri og í
Sandvíkurhreppi hafa fengið í
hendur greinargerð samráðs-
hóps sem vinnur að gerð tillagna
um sameiningu þessara sveitar-
félaga. Næstu daga munu menn
nota til að fara yfir málin gaum-
gæfilega.
Fyrir 20. desember verða
sveitarstjórnarmenn að gefa út
hvort vilji sé af þeirra hálfu fyrir
því að halda áfram á sömu braut.
Væri þá verið að miða við að kos-
ið yrði um sameiningu þessara
fjögurra sveitarfélaga um mán-
aðamót janúar og febrúar á
næsta ári. Viðmælendur blaðsins
segja þó að tíminn sé að verða
naumur því um það leyti hefur
Sjálfstæðisflokkurinn á Selfossi,
stærsta sveitarfélaginu, boðað til
prófkjörs - og þá eru ekki nema
um fjórir mánuðir til sveitar-
stjórnarkosninga. — SBS