Dagur - 13.12.1997, Blaðsíða 1
1
Laugardagur 13. desember 1997
Verð í lausasölu 200 kr.
80. og 81. árgangur - 237. tölublað
Skólatannlækningar
verða lagðar niður
Iiman vid þriðjimgur
6 ára bama leitar til
skólatannlækna og
telur Hagsýslan að
skólatannlækningar
hafi runnið sitt skeið
á enda. Undir það tek-
ur heilbrigðisráð-
herra.
„I þessari skýrslu, sem Hagsýslan
hefur unnið fyrir okkur, kemur
fram að það sé mikið umhugsun-
arefni hvort skólatannlækningar
eigi áfram að vera við lýði. Það er
meginniðurstaða skýrslunnar að
fyrirkomulag skólatannlækn-
inga, eins og það er í Reykjavík,
hafi runnið sitt skeið á enda. Eg
hef sjálf lengi efast um að skóla-
tannlækningar hafi jafn mikið
gildi í dag og þær höfðu. Þær
efasemdir mínar urðu til þess að
ég lét skoða málið,“ sagði Ingi-
björg Pálmadóttir, heilbrigðis- og
tryggingaráðherra, í samtali við
Dag um skýrslu um skólatann-
lækningar, sem hún hefur fengið
í hendur.
Helstu rökin sem færð eru fyr-
ir því að skólatannlækningar séu
tímaskekkja er minni ásókn f
þær en aukin ásókn í einkatann-
lækna. Það kemur til að mynda
í ljós að tæpur þriðjungur grunn-
skólanema í Reykjavík eru í skól-
um þar sem ekki eru tannlækna-
stofur. Þeir þurfi því að sækja í
aðra skóla samkvæmt boðun eða
til tannlæknadeildar Heilsu-
verndarstöðvarinnar.
Grunnskólanemum sem leita
til skólatannlækna hefur fækkað
úr tæplega 12 þúsundum árið
1993 í tæplega 5 þúsund árið
1996. Hlutfall 6 ára barna sem
leita til skólatannlækna er komið
niður fyrir 30%. Foreldrar kjósa
frekar að fara með börn sín til al-
mennra tannlækna. Þegar það er
gert greiðir ríkið 75% af kostnaði
en 80% af kostnaði hjá skóla-
tannlæknum.
„Avinningur fyrirkomulags
skólatannlækninga er því tak-
markaður fyrir þessa nemendur.
Stefna fræðsluyfirvalda í Reykja-
vík virðist vera í þá átt að ekki sé
gert ráð fyrir tannlæknastofum í
grunnskólum borgarinnar. Hið
tvöfalda skipulag á tannlækning-
um barna og unglinga í Reykja-
vík veldur erfiðleikum um heild-
stæða stefnumörkun á þessu
sviði,“ segir í skýrslu Hagsýslu-
stofnunar um skólatannlækning-
ar.
„Þess vegna telur Hagsýslan að
þetta tvöfalda kerfi sem er í
gangi hafi runnið sitt skeið á
enda. Um leið og skýrslan kom
fór starfshópur hér í ráðuneytinu
að vinna í þessu máli. Og í sam-
vinnu við yfirskólatannlækni er
verið að endurskoða þetta í heild
sinni. Niðurstöður hans liggja
ekki enn fyrir. Magnús L. Gísla-
son, yfirtannlæknir hjá heil-
brigðis- og tryggingaráðuneyt-
inu, segir mér að tannskemmd-
um barna hafi fækkað um 70%
hér á landi síðastliðin 15 ár.
Hann segir árangurinn góðan en
við séum þó ekki komin eins
langt í þessum efnum og Norð-
urlandaþjóðirnar, einkum hjá
forskólabörnum og eldri borgur-
um,“ segir Ingibjörg Pálmadóttir.
Hún segir að nú verði hafist
handa við að skoða málið ofan í
kjölinn í samvinnu við Reykjavík-
urborg, skólayfirvöld og tann-
lækna. — S.DÓR
Grunnskólanemum sem leita til skólatannlækna hefur fækkaö úr tæplega 12 þús-
undum 1993 i tæplega 5 þúsund 1996. Heilbrigðisráðherra efast um að skólatann-
lækningar eigi lengur rétt á sér.
Frækilegs
afreks
miirnst
Hálf öld er liðin frá því breski
togarinn Dhoon strandaði undan
Látrabjargi, en þá unnu íslenskir
björgunarsveitarmenn eitt
frækilegasta afrek slysavarnasög-
unnar. Eru þess fá dæmi að svo
margir björgunarmenn hafi lagt
eigið líf að veði og þegar áhöfn-
inni af Dhoon var bjargað upp á
brún Látrabjargs. Tólf skipverj-
um tókst að bjarga en þrír fórust.
Þessa verður minnst við hátíð-
lega athöfn á Látrabjargi á há-
degi í dag að viðstöddum meðal
annarra breska sendiherranum.
í íslendingaþáttum sem fylgja
Degi í dag er ítarlega fjallað um
þetta frækilega björgunarafrek í
máli og myndum.
Það á ekki að mismuna keppinautum í
flugi með þvi að veita Flugleiðum
undanþágu frá eldsneytisgjaldi, segir
Samkeppnisráð.
Raskar
samkeppiii
Samkeppnisráð hefur með álits-
gerð beint því til yfirvalda að við
innheimtu eldsneytisgjalds sé
samkeppnisaðilum ekki mis-
munað. Alitið er til komið vegna
erindis Cargolux, sem telur mis-
munun við innheimtu gjaldsins
ráða úrslitum um hvort frakt-
flutningar með viðkomu á ís-
landi beri sig eða ekki.
Samkeppnisráð bendir meðal
annars á yfirburðastöðu Flug-
leiða og telur að undanþága
vegna Ameríkuflugs sé eingöngu
ívilnun til Flugleiða. Það sé rösk-
un á samkeppni að einn aðili
greiði ekki gjaldið meðan aðrir
greiði það. Flugleiðir losnuðu við
25 milljóna króna útgjöld 1996
vegna sérstöðunnar. Þá bendir
ráðið á að yfirburðastaða Flug-
leiða á Keflavíkurflugvelli tak-
marki aðgang nýrra keppinauta
að markaði.
Samgönguráðuneytið taldi
vafamál að þetta heyrði undir
samkeppnislög, þar sem um út-
flutning væri að ræða. Sam-
keppnisráð hafnar þessari af-
stöðu eindregið og bendir sam-
gönguráðherra á að öll flutninga-
starfsemi til og frá Islandi falli
undir gildissvið samkeppnislaga.
„Þvert á móti eru slík kaup á að-
föngum nauðsynlegur þáttur í
flutningastarfsemi viðkomandi,“
segir í áliti ráðsins, sem um Ieið
slær á putta ráðherra og hans
manna í samgönguráðuneytinu.
- FÞG
Jólagjafahand-
bók fýlgix í dag
Helgarblaðið er óvenju mikið að
vöxtum í dag eða 60 síður. Sér-
stök tólf síðna jólagjafahandbók
fylgir blaðinu í dag, enda farið
að styttast í blessuð jóiin. I líf-
inu í landinu er að finna athygl-
isvert viðtal við Þorstein Gísla-
son, íýTrverandi fiskimálastjóra
og nýútskrifaðan handavinnu-
kennara, og einnig er spáð í
hverskonar jólapakkar ráðherrar
ríkisstjórnarinnar eru.
11
dagar tíl
f? jóla
5MI
BLACK&DECKER
Handverkfæri
SINDRI
-sterkur í verki
BORGARTUNI 31 • SIMI 562 7222 • BREFASIMI 562 1024