Dagur - 13.12.1997, Blaðsíða 5
FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 13.DESEMBER 199 7 -5
Ríldss
nofi
sstjómtn á ystu
rÍKÍsfí ármálimi
77/ stendur að greiða atkvæði um fjárlagafrumvarpið eftir aðra umræðu í dag.
Á það er kominn talsverður halli og gagnrýnir Kristinn H. Gunnarsson, Alþýðu-
bandalagi, það harðlega.
Stj ómarandstæ ðingar
gagnrýndu harðlega á
Aljiingi í gær skort á
samræmdri efnahags-
stjóm ríldsstjómar-
innar og segja verð-
hólgudrauginn híða við
næsta húshom. Þeir
segja þenslutekjum
ríhissjóðs illa varið.
„Það sem við stjórnarandstæð-
ingar gagnrýnum í sambandi við
ijárlagafrumvarpið er skortur á
samræmdri efnahagsstjórn þegar
mikil þensla er í þjóðfélaginu.
Við teljum að gengið sé út á ystu
nöf við að stofna til nýrra út-
gjalda til að veija þeim miklu
tekjum sem ríkissjóður hefur af
þenslunni. Þær tekjur nema
milljörðum króna. Sem dæmi
má nefna að á síðustu 4 árum
hafa þær tekjur numið 44 millj-
örðum króna umfram það sem
annars hefði verið. Þessum tekj-
um öllum hefur verið varið í ný
útgjöld en engu til að greiða nið-
ur skuldir ríkissjóðs eða auka
sparnað eða til að styrkja innviði
samfélagsins. Þess vegna óttast
ég að ríkisstjórnin sé að keyra út
af beinu brautinni í efnahags-
málum," sagði Kristinn H.
Gunnarsson, aðal talsmaður
minnihluta fjárlaganefndar, í
samtali við Dag í gær þegar 2.
umræða um fjárlagafrumvarpið
hófst.
Hann sagði að í slíkri þenslu
sem nú væri í þjóðfélaginu væri
mikill þrýstingur á gengið, vexti
og verðbólguna. Þetta segir
hann allt geta farið úr böndun-
um á skömmum tíma.
„Þegar svo dregur úr þensl-
unni um leið og dregur úr stór-
iðjuframkvæmdum á næsta ári
og mun meira 1999, þá munu
tekjur ríkissjóðs skyndilega drag-
ast saman töluvert mikið. Þá um
leið verður ríkissjóður kominn
með fleiri milljarða í halla og
getur ekki brugðist við með því
að draga saman útgjöldin. Hvað
ætla menn að gera þá,“ sagði
Kristinn.
Minnihlutinn er gagnrjhidur
fyrir að leggja til 1,6 milljarðs út-
gjaldaaukningu í tjárlögunum?
„Það er rétt að stjórnarsinnar
gera það en við bendum á leiðir
til að afla ijár á móti. Við leggj-
um til að tryggingagjald, sem at-
vinnurekendur greiða, og er tæp-
lega 6%, hækki. Þetta gjald er
með því lægsta sem gerist í Evr-
ópu. Staðan í atvinnulífinu er
miklu betri nú en fyrir 4 árum
þegar 4 milljörðum króna af var
létt af atvinnulífinu. Atvinnurek-
endur geta því vel skilað til baka
1 til 2 milljörðum króna," sagði
Kristinn H. Gunnarsson.
Fjárlagaumræðan stóð yfir í
allan gærdag og boðaður er þing-
fundur í dag, laugardag. -S.DÓR
„Bygging barnaspítala er eitt það jákvæðasta sem á sér stað innan heilbrigðiskerfisins núna, “ segir Siv Friðleifsdóttir, en áætlað
er að nýr barnaspítali verði tekinn í notkun árið 2001.
Nyr hamaspítali
tilbúinn árid 2001
Átok hjá eldri
borgumm
Töluverður taugatitringur er
innan raða Félags eldri horgara
vegna kaupa á veitingahúsinu
Glæsibæ undir starfsemi félags-
ins. Skiptar skoðanir eru um
kaupin og m.a. er stjórnin gagn-
rýnd fyrir að reka málið af meira
kappi en forsjá. Tekist verður á
um húsakaupin á félagsfundi í
dag.
Pétur Ólafsson, stjórnarmað-
ur í Félagi eldri borgara, segir að
Glæsibær henti ekki undir starf-
semi þess. Hann vill að fleiri
kostir verði skoðaðir. Þá gagn-
rýnir hann stjórnina fyrir að
hafa ekki kynnt málið fyrir fé-
lagsfólki. Hann vill að málið
verði aðeins kynnt í dag en ekki
tekin ákvörðun um kaupin eins
og stefnt er að. Sjálfur telur
hann fýsilegri kost að skoða bet-
ur þann möguleika sem felst í
húsnæðinu sem verið er að byg-
gja fyrir neðan Hverfisgötu 105.
Ragnar Jörundsson, fram-
kvæmdastjóri Félags eldri borg-
ara, telur næsta víst að kaupin á
Glæsibæ verði samþykkt á
félagsfundi, þótt tillaga um að
hverfa frá kaupunum hafi verið
samþykkt á félagsfundi 22. nóv-
ember sl. Sú samþykkt var
ómerkt þegar í Ijós kom að
flutningsmaður hennar var ekki
£ félaginu, auk þess sem fáir
voru eftir á fundinum þegar at-
kvæði voru greidd. Allir sem
ætla á fundinn í dag verða krafð-
ir um félagsskírteini.
Heildarverðið á veitingahús-
inu er um 95 milljónir króna.
Þar af eru tæki og búnaður í eld-
húsi og sal metið á 10-15 millj-
ónir króna. Þá styrkir borgin
kaupin með 34 milljónum
króna. Það skiptist þannig að
borgin gefur eftir eignarhlut
sinn í Risinu að Hverfisgötu 105
sem er metin á 14 milljónir
króna og styrkveitingu uppá 20
miljónir króna, eða 5 milljónir á
Qórum árum. Gegn þessu fær
borgin aðstöðu í Glæsibæ. -GRH
Nýr bamaspítali
Hringsms verður tek-
inn í notkun árið
2001 en í gær voru
þrenn verðlaun veitt
fyrir hönnun
spítalans.
Arkitektarnir Sigrfður Magnús-
dóttir og Hans-Olav Andersen
sigruðu í samkeppni um hönnun
nýs barnaspítala og hljóta 2,3
milljónir í verðlaun. Önnur verð-
laun hlaut tillaga Guðna Páls-
sonar og þau þriðju tillaga arki-
tektanna Elínar Kjartansdóttur,
Haraldar Arnar Jónssonar og
Helgu Benediktsdóttur.
„Bygging barnaspítala er eitt
það jákvæðasta sem á sér stað
innan heilbrigðiskerfisins núna,“
sagði Siv Friðleifsdóttir alþingis-
maður, formaður dómnefndar.
Húsið, sem verður suðvestan við
núverandi Kvennadeild Land-
spítalans, verður um 5.800 m á
ijórum hæðum og á að vera til-
búið árið 2001. Kostnaðinn segir
Siv áætlaðan um milljarð. Lung-
inn af tækjum barnadeildar verði
fluttur í nýja spítalann, enda sé
ekki verið að bæta við nýrri starf-
semi að ráði, heldur fyrst og
fremst að hanna hentugri og
betri aðstöðu fyrir alla.
Álit starfsfólksins til
arkitektanna
„Þetta er mjög sérhæft verkefni,"
segir Siv. Menn hafi lagt sig í
líma við að búa til nýtt og betra
umhverfi fyrir sjúk börn, að-
standendur þeirra og starfsfólk.
Væri gaman að geta þess að
starfsfólk barnadeildar hafi
myndað starfshópa og unnið
greinargerðir um æskilega tilhög-
un. „Við gátum afhent keppend-
um ákveðin grundvallarplögg þar
sem fram kom álit starfsfólksins
á því hvernig, að þeirra mati,
best yrði búið að starfseminni."
- HEI
Grósku hafnað
Leiðtogar A-flokkanna og
Kvennalistans, Sighvatur Björg-
vinsson, Margrét Frímannsdótt-
ir og Guðný Guðbjörnsdóttir,
höfnuðu í gær beiðni Grósku
um formlega aðild að samein-
inganáðræðum flokkanna.
Stjórn Grósku vildi fá að taka
þátt í viðræðunum, en var hafn-
að á grundvelli þess að samtök-
in væru ekki stjórnmálaflokkur.
„Það er bullandi óánægja með
þessa afstöðu flokkanna innan
stjórnar Grósku. Þetta vekur um
leið upp spurningar um hlutverk
Grósku og hvort samtökin heíji
undirbúning kosninga á eigin
forsendum," sagði stjórnarmað-
ur í Grósku í samtali við Dag.
Hann vildi engu svara um hvort
stofnun stjórnmálaflokks kæmi
til greina og sérframboð í kom-
andi kosningum.
Brynja vann
Samkeppnis-
ráð beinir því
til mennta-
málaráðuneytis
að sjá til þess
að þeir sem
meta umsóknir
sjálfstæðu at-
vinnuleikhús-
anna um styrki
séu hlutlausir
aðilar, en ekki starfandi hjá
keppinautum eða öðrum þeim
sem hagsmuna eigi að gæta.
Brynja Benediktsdóttir leik-
sljóri kvartaði yfir því að starfs-
menn atvinnuleikhúsanna sætu
í framkvæmdastjórn Leiklistar-
ráðs, en í 3 manna stjórn sitja
leikhússtjóri hjá Þjóðleikhúsinu
og leiklistarráðunautur þess.
Brynja taldi þetta stangast á við
samkeppnislög og tekur Sam-
keppnisráð undir það.
Helgi ur leih
Helgi Áss
Grétarsson
tapað seinni
skák sinni gegn
Jusupov í ann-
arri umferð
heimsmeist-
aramótsins í
HoIIandi og er
úr leik.
Jóhann Hjartarsson gerði aftur
jafntefli við Alexandro og þarf að
sigra hann í bráðabana til þess
að komast áfram á mótinu.
Ráðist á pilt á
Akureyri
Til ryskinga kom milli nokkurra
drengja við Síðuskóla á Akureyri
í fyrrakvöld. Tildrögin voru þau
að hópur þrettán ára drengja
réðist að einum fjórtán ára, en
þeir töldu sig eiga harma að
hefna.
Beittu þeir heimatilbúnum
bareflum sem eru þekkt úr aust-
urlenskum bardagaíþróttum.
Bareflin eru þannig að tvær
spýtur eru tengdar með keðju á
milli og er annarri spýtunni
sveiflað meðan haldið er í hina.
Ryskingum piltanna lauk með
afskiptum lögreglu og voru
vopnin gerð upptæk. Pilturinn
sem veist var að tvíhandleggs-
brotnaði í átökunum.
Helgi Ass
Grétarsson.
Brynja Benedikts-
dóttir, leikstjóri.