Dagur - 13.12.1997, Page 8

Dagur - 13.12.1997, Page 8
8- LAUGARDAGVR 13 .DESEMRER 1997 LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 1997 - 9 Aðventan er tími iim- kaupa og ýmiss gleð- skapar sem tengist jól- um, svo sem litlu-jól- um, og því má víða fiiina um þessar mund- ir til borgar og sveita veislu í farangri lands- manna. Veisluföng nokkurra Akureyringa á miðvikudag og fimmtudag voru hins vegar með meira móti og ekki farið neinn smáspöl, eða allt austur til Neskaupstaðar þar sem „Nobbarar" héldu mikla veislu í nýja íþróttahúsinu í tilefni þess að 40 ár voru liðin frá því Lúðvík heitinn Jósefsson og fleiri Norð- firðingar stofnuðu félag um loðnu- og síldarbræðslu, Síldar- vinnsluna. Hvort fertugur er full- harðnaður skal ósagt látíð, en starfsfólk Síldarvinnslunnar getur horft fram á veginn, því fimmtug- ur getur betur. Veisluföng veitingastaðarins Bautans á Akureyri voru með stærra sniðinu, og til efs að meira magn veislufanga hafi farið um þjóðvegi Iandsins í eina veislu, og það þegar allra veðra er von í svartasta skammdeginu. Segja má að þetta hafi verið „veisla með öllu“, því frá Akureyri voru flutt tjöld til að tjalda af veggi salarins, dansgólf, loftljós, borð, stólar, mataráhöld, mörg þúsund glös, og síðast en ekki síst um hálft tonn af matvælum ofan í liðlega 600 gesti sem allir voru í boði Síldarvinnslunnar, bæði heima- menn og aðrir lengra að komnir, og skemmtu sér vel enda skemmtiatriðin ekkert „slor“. Þar tróðu á svið Sigrún Hjálmtýsdótt- ir (Diddú), leikararnir Edda Björgvinsdóttir, Guðlaug María Bjarnadóttir, Þórhallur Gunnars- son og Jóhann Sigurðarson og að sjálfsögðu var einnig heimatilbúið dansatriði sem fjallaði um síldar- söltun, hvað annað! Á eftir sá hljómsveit Björgvins Halldórsson- ar um dansmenntina. Skemmti- kraftamir komu með flugvél úr Beykjavík ásamt fjölda boðsgesta, svo þar var líka á ferðinni veisla í farangrinum, þó í minna mæli væri. Gjafir voru færðar, m.a. síld úr silfri frá Sölumiðstöð hrað- frystihúsanna og málverk frá Hraðfrystihúsi Eskifjarðar, en „Nobbarar“ hafa stundum nefnt Eskfirðinga í stríðni „Útsæðis- drengina" vegna þess að þeir munu eitt sinn í kartöflunauð hafa snætt útsæðiskartöflur í stað þess að setja þær niður. Hjá Síldarvinnslunni vinna lið- lega 60% þeirra sem eru á vinnu- markaðnum á Neskaupstað þann- ig að segja má að það hafi verið mikið að gera hjá ýmsum atvinnu- stéttum á Neskaupstað á fimmtu- dagskvöldið, ekki síst barnapíu- stéttinni. Á matseðlinum var m.a. inn- bakaður heitur lax, lúðumedalíur, sjávar- og grænmetishlaup, bayonskinka, kalkúnbringa með ávaxtafyllingu, svartfuglsbringur, moðsteikt lambalæri, kryddað með jurtum ásamt gratineruðum kartöflum, kryddjurtasósu ásamt ýmsum öðrum sósum og meðlæti. í eftirrétt var svo súkkulaðibolli með fromage og ferskum ávöxt- um. Bautúm með sérstöóu Fullyrða má að veitingastaðurinn Bautinn hafi algjöra sérstöðu hér- lendis hvað varðar að halda veislu „með öllu“ í íþróttahúsum, hvað þá að flytja hana milli landshluta í svartasta skammdeginu. Bautinn hefur á nokkurra ára tímabili komið sér upp þessum búnaði, og hefur haldið um sex tugi matar- veislna, bæði í iþróttahúsunum á Akureyri og i nágrannasveitarfé- lögunum. En það er ekki vandræðalaust að halda svona „norðfírska þjóð- hátíð“ í íþróttahúsi því þar má ekki reykja, en hins vegar má bergja á guðaveigum af ýmsum gerðum og styrkleika. Því var sleg- ið upp tjaldi miklu utandyra fyrir þá sem vildu fullnægja reykinga- þörfínni enda varð fljótt skugg- sýnt þar inni. Tjaldið varð Iíka fljótt athvarf þeirra, sérstaklega af yngri kynslóðinni, sem höfðu tak- markaða þolinmæði til að hlusta á allar þær ræður sem fluttar voru í salnum. Ekki er heldur grunlaust um að viðskipti fyrr um daginn með áfenga drykki við áhöfn flutningaskips hafí mótað nokkuð Gudbjörg Þórisdóttir, sem starfað hefur hjá SVN í nær fimm áratugi, kiippir á borða og vígir þar með nýtt frystihús félagins. Við hlið hennar stendur Svanbjörn Stefánsson, framleiðslustjóri. ■ jvj&F V<^1111ÍPÍ Mí,—áfc.* mt ..l Séð yftr veislusalinn I íþróttahúsinu á 40 ára afmæli Síldarvinnslunnar á Neskaupstað sl. fimmtudagskvöld. gleðskapinn í „reykhúsinu." Það munu því einhverjir hafa haft með sér litla veislu í farangrinum til viðbótar þeirri veislu sem þeim var boðið upp á í íþróttahúsinu. Starfað í nær hálfa öld Fyrr um daginn var hið glæsilega, nýja frystihús SVN vígt að við- stöddum gestum. Það gerði Guð- björg Þórisdóttir, innfæddur Norðfírðingur, sem allt frá 14 ára aldri hefur unnið hjá SVN, eða í 47 ár, með því að klippa á borða. SVN hefur á árinu brætt um 780 þúsund tonn af loðnu og síld, saltað hefur verið í 22 þúsund tunnur, fryst 7 þúsund tonn af síld og loðnu en afkastageta verk- smiðjunnar er um 300 tonn á sól- arhring. Sfldveiðitímabilið 1996/1997 var sett íslandsmet í síldarsöltun hjá SVN, þá var salt- að í 54 þúsund tunnur. Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjóri SVN, sagði m.a. í ræðu sinni að í upp- hafi hafi nokkrir hnökrar verið á síldarfrystingunni en með sam- stilltu átaki verktaka og starfs- manna hafi í nóvembermánuði sl. tekist að komast yfir þá byrjun- arörðugleika. Unnið er að undir- búningi á loðnufrystingu. „Við tókum í notkun fast bónus- kerfí með ákveðinni krónutölu og það hræddi mig nokkuð þar sem ég óttaðist að það væri ekki nógu mikill hvati fyrir starfsmennina til að ná hámarksafköstum en eftir á sé ég að það hefur verið rangt mat því starfsfólkið hefur verið sam- hent um að ná fram þeim afköst- um sem að var stefnt," sagði Finn- bogi Jónsson. Halldór Ásgrímsson, utanríkis- ráðherra, talaði fyrir hönd þing- manna Austurlandskjördæmis, sagði að við vígslu þessa húss væri stigið ákveðið gæfuspor í sögu og þróun Síldarvinnslunnar og í ís- lenskum sjávarútvegi, fyrstihús SVN væri eitt best búna frystihús í heimi. Reksturinn hefði gegnum tíðina gengið misjafnlega eins og hjá flestöllum fyrirtækjum f sjáv- arútvegi, en það væri engin þurfalingur í dag. Síldarvinnslan hefði einnig borið gæfu til að hafa góða stjórnendur, sem hefðu alla tíð verið stuðningsmenn skynsam- legrar fískveiðistjórnunar. Það var oft margt um manninn I„reykkofanum". Hér sést hlutiþess norðfirska meyjafans sem var á hátíðinni. - myndír: gg 'æjarstjórinn Guðmundur Bjarnason og kona hans Klara ívarsdóttlr á góðri stund. Ól fflufrto -r.nkhíi 6at«i jngnfi! gil/l hiúa gt 4,ii,n is i íí.jjji.jí ,eaigt THE GAME Gjöfin sem enginn vill fá... Sýnd alla helgina HTTP://WWW.NET.IS/BORGARBÍÓ | CI I t rt Ai Hii □ | DIGITAL SOUND SYSTEM AKUREYRARBÆR Grunnskólar Akureyrar Starfsmenn vantar í eftirtaldar stöður: Giljaskóli, kennarar: Vegna veikindaforfalla vantar nú þegar sérkennara í 2/3 stöðuhlutfall. Um er að ræða fjölbreytilegt og krefjandi starf í skóla í uppbyggingu. Proskaþjálfa, leikskólakennara eða starfsmann með reynslu á uppeldissviði: Starfsmann vantar í stuðning í vistun vegna nemanda með greindar- og hreyfifötlun. Um er að ræða hlutastarf eftir hádegi. Staðan er laus frá áramótum. Giljaskóli er nýr skóli og eru nemendur nú 113 í 1 .-4. bekk. [ skólanum er einnig sérdeild umdæmisins fyrir nemendur með greindar- og fjölfötlun. Um áramót er stefnt að bví að flytja í pýtt skólahúsnæði. Upplýsingar um starfið gefa skólastjórnendur og forstöðu- maður vistunar í síma 462 4820. Brekkuskóli, kennarar: Grunnskólakennara vantar í handmenntakennslu (smíði) í 6.-10. bekk, heil staða. Grunnskólakennara vantar í íslensku-, ensku- og líffræðikennslu í 6,- 9. bekk og námsstuðning í 8.-10. bekk, heil staða. Grunnskólakennara/starfsmann vantar í forfallakennslu, heil staða. [ skólanum starfa 100 starfsmenn og 700 nemendur í 1.-10. bekk. Upplýsingar veitir: Sveinbjörn Markús skólastjóri í símum 462 4241, 899 3599 eða heimasíma 461 3658 og aðstoðar- skólastjórarnir, Birgir í heimasíma 462 6747 eða Magnús í heimasíma 462 3351. Glerárskóli, kennarar: Kennara vantar frá áramótum í 2/3 stöðu í 6. bekk (almenn kennsla) og að auki vantar kennara til að kenna íþróttir/sund (11 stundir á viku). Æskilegt er að sami kennari kenni hvoru tveggja en þó ekki skilyrði. Upplýsingar hjá skólastjóra í síma 461 2666 eða 462 1521 eða hjá aðstoðarskólastjóra í síma 462 6175. Síðuskóli: Bekkjarkennara vantar í 2. bekk. Bekkjarkennara vantar í 3. bekk. Bekkjarkennara vantar í 7. bekk. Einnig vantar bekkjarkennara í 6. bekk og í enskukennslu. Upplýsingar hjá skólastjóra eða aðstoðarskólastjóra f síma 462 2588 eða í heimasímum 461 2608 og 462 5123. Einnig veitir starfsmannadeild Akureyrarbæjar upplýsingar í síma 462 1000. Umsóknareyðublöð fást í starfsmannadeild Akureyrarbæj- ar, Geislagötu 9, og þeim á að skila á sama stað. Umsóknarfrestur er til 23. desember 1997. Starfsmannastjóri. ftMúl. .1 Ifit'i

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.