Dagur - 17.12.1997, Síða 1
V
VÍKUR BÍAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 17. desember 1997
19. árgangur- 48 Tölublað
Samstarf
í verka-
lýðs-
máliiin
Sl. sunnudag var undirritað
samkomulag milli skristoíu
Verkalýðsfélaganna á Húsavík
og Verkalýðsfélags Presthóla-
hrepps. Samkomulagið felur í
sér að skrifstofan tekur að sér
fjármál og rekstur Verkalýðsfé-
lags Presthólahrepps, þ.m.t.
bókhald og gerð ársreiknings,
daglega fjármálaumsýslu, um-
sjón félagatals ofl. Ennfremur
félags- og fræðslumál, m.a.
símaþjónustu og bréfaskriftir
vegna kaup- og kjaramála. Ymis
önnur ákvæði eru inni í samn-
ingnum sem samþykktur var
samhljóða á félagsfundi í Verka-
lýðsfélagi Presthólahrepps.
Aðalsteinn Baldursson, for-
maður VH, segir að á annað
hundrað manns séu í Verkalýðs-
félagi Presthólshrepps og á fé-
lagssvæðinu séu fjölmenn og
öflug atvinnufyrirtæki s.s. Gefla,
Silfurstjarnan, Fjallalamb og
Bifós. Með þessum samstarfs-
samningi verður skrifstofa
Verkalýðsfélaganna á Húsavík
með þjónustu allt frá Vaðlaheiði
austur í Oxarfjörð og að honum
meðtöldum. — JS
..
Jólaskreytmgakeppni
Dómnefnd hefur fellt úrskurð í keppni um fagurlegast jólaskreyttu húsin á Húsavik. Hlutskarpast í þessari fegurðarsamkeppni húsanna á Húsavík varð þetta hús, Lyng-
brekka 17. Meira um það i blaðopnu.
Siumudagaskólabom
taka dreng í fóstur
Lilja Skarphéðinsdóttir afhendir séra Sighvati Karlssyni guðskistuna.
Tekjuafgangur
lækkar um 10%
Siumudagaskólaböm
á Húsavík bafa tekið
ungan dreng á Ind-
landi í fóstur, með að-
stoð Kvenfélagsins.
Lilja Skarphéðinsdóttir kom fær-
andi hendi frá Kvenfélagi Húsa-
víkur í sunnudagskólann sl.
laugardagsmorgun. Hún hafði
meðferðis forláta kistil, glæsi-
lega útskorinn af hagleiksmann-
inum Ólafi Guðmundsyni á
Borgarhóli, og í kistlinum var
peningaupphæð sem dugir fyrir
framfærslu 11 ára drengs á Ind-
iandi í eitt ár. Krakkarnir í
sunnudagaskólanum hafa tekið
drenginn í fóstur og munu á
næstunni senda honum bréf og
myndir og hefja samskipti við
hann, en Hjálparstofnun kirkj-
unnar hefur fjármagnað fram-
færslu hans til þessa. Drengur-
inn er föðurlaus og móðir hans
er sjúklingur.
Kvenfélagið gaf kirkjunni
kistilinn í tilefni af 90 ára afmæli
Húsavíkurkirkju á þessu ári.
Hugmyndin kviknaði þegar í Ijós
kom að fyrir nákvæmlega 100
árum var sett upp svokölluð
guðskista við kirkjuna, en í hana
voru sett frjáls framlög til ekkna
og annarra sem áttu um sárt að
binda. Hin nýja guðskista mun
gegna svipuðu hlutverki. — JS
Fjárhagsáætlim Húsa-
víkurkaupstaðar fyrir
árið 1998 var tekin
tH fyrri uinræðu á
fundi Bæjarstjómar
Hiísavíkur í gær.
Helstu niðurstöður fjárhagsá-
ætlunar 1998 eru eftirfarandi:
Heildartekjur bæjarsjóðs og
bæjarfyrirtækja eru áætlaðar
616,6 milljónir og hafa hækkað
um 7,8 milljónir eða um 1,3%
frá síðustu áætlun.
Heildar rekstrargjöld bæjar-
sjóðs og bæjarfyrirtækja eru
áætluð 475,4 milljónir og hafa
hækkað um 24,7 milljónir eða
5,5% frá siðustu áætlun.
Tekjuafgangur til eignabreyt-
inga er samkvæmt þessari áætl-
un 141,2 milljónir en var 157,9
milljónir samkvæmt áætlun
1997 og hefur því lækkað um
10,6% milli ára. Tekjuafgangur
sem hlutfall af heildartekjum er
23% en var 26% á árinu 1997.
Til verklegra framkvæmda og
fjárfestinga hjá bæjarsjóði og
bæjaríyrirtækjum er áætlað að
verja 442,4 milljónum á móti
279,7 milljónum á yfirstand-
andi ári. Hækkunin nemur
162,6 milljónum eða 58%.
Heildarlántökur eru áætlaðar
44.5 milljónir sem er hækkun
frá áætlun 1997 um 17 milljón-
ir. Heildar afborganir lána eru
áætlaðar 47,5 milljónir og gert
er ráð fyrir að skuldir lækki á ár-
inu um 3 milljónir. I árslok
1998 eru langtímaskuldir bæj-
arsjóðs og bæjarfyrirtækja áætl-
aðar 333 milljónir eða 54% af
heildartekjum.
Hvað bæjarsjóð varðar sér-
staldega má geta þess að þar er
stærsti rekstrarliðurinn
fræðslumál sem tekur til sín um
135 miljónir. 44 milljónir eru
áætlaðir í félagsþjónustu, 37,6
milljónir í yfirstjórn bæjarins og
27.5 milljónir til æskulýðs- og
íþróttamála.
Reiknað er með arði af hluta-
bréfum á árinu að upphæð 12
milljónir og gert ráð fyrir 8%
arði af hlutabréfum í Fiskiðju-
samlagi Húsavíkur að nafnverði
1 50 milljónir. — JS