Dagur - 17.12.1997, Síða 2
2 - MIÐVIKVDAGUR 17. DESEMBER 1997
Dggur
VÍKURBLAÐIÐ
Til allra sem voru á ættarmótinu í
Geitafelli 1.-3. ágústsl.:
í hvað á að nota vatnið?
Við sendum ykkur öllwn óskir um gleðilegjól ogfar-
sæld á nýju árí, um leið og við þökkum ógleymanleg-
arstundirheima í Geitafelli þessa daga og nætur,
við spjall og söng og dans, í hinum ágætustu veislu-
sölum. Lifið heil, kærkveðja.
BrynhildurL. Bjamadóttir,
Odd Hj. Folkedal.
Égsendi bömum mínum ogfjölskyldum þeirra,
ættingjum og vinum, mínarbestu óskirum
gleðilegjól ogfarsæld á komandi ári.
él Þakka liðin ár. Kærar kveðjur.
Helgafrá Bergsstóðum.
Sendurn ættingjum og vinum bestu óskir
umgleðileg jól ogfarsæltkomandi ár.
Þökkum liðið.
Sigurbjörg og Baldvin,
Miðhvammi
Hugheilar jóla- og nýárskveðjur til
ættingja minna og vina.
Guð blessi ykkur öll.
Kristjana Vigfúsdóttir,
Hvammi, Húsavík.
Sendi frændum og vinum bestu óskirum
gleðileg jól oggott nýár.
Þakka hið liðna.
Fanney Sigtryggsdóttir.
Sendum ættingjum okkarog vinum hugheilar
jóla- og nýársóskir með þakklæti
fyrir liðin ár.
Lifið heil.
Fanney og Haukur,
Hveragerði.
Innilegar óskir um gleðilegjól og gæfuríkt
komandi ár til allra vina og vandamanna.
Lifið heil.
Sigurveig og Þórarínn,
Skarðaborg.
Tryggvi Óskarsson á
Þverá veltir því fyrir
sér hvort heppilegt sé
að nota heita vatnið
frá Hveravöllum til
raforkuframleiðslu.
Umræða er r gangi um að nota
heita vatnið úr Reykjahverfi til
raforkuframleiðslu. Er það nógu
atvinnuskapandi? Höfum við
efni á að fórna því á þennan
hátt?
Mitt svar er að það höfum við
ekki. Við eigum að nota heita
vatnið til að skapa eins mörg
störf eins og hægt er, eins og nú
þegar er gert með garðrækt, fisk-
þurrkun, timburþurrkun o.fl.
Margir fleiri möguleikar eru til
staðar t.d. að þurrka hör og
framvinna hann. Hör er grasteg-
und sem hægt er að framleiða úr
ýmsa vöru sem nú eru fram-
leiddar úr plasti, næloni og öðr-
um mengandi gerviefnum.
En hvernig á að standa að
slíkri framleiðslu? Til dæmis
gætu margir bændur ræktað
hörinn, komið honum í þurrkun-
ar- og framleiðslustöð sem yrði
sem næst heita vatninu og svo
gæti frekari úrvinnsla verið á
öðrum stöðum.
Nú skulum við hætta að væla
og væla yfir því að allir séu að
fara suður, það er einfaldlega
ekki rétt. Það er fullt af fólki sem
vill vera í dreifbýlinu og njóta
hreina loftsins, við skulum láta
þá þarna fyrir sunnan um meng-
andi stóriðjur, það er margt ann-
að til.
Nú þurfum við að fara að und-
irbúa okkur undir að taka á móti
straumnum að sunnan með
margbreytilegri uppbyggingu á
atvinnufyrirtækjum. Kannski
verðum við bændur að sjá af
bletti og bletti handa innflytj-
endum. Við megum ekki Iáta
hrepparíg og innbyrðis átök
koma í veg fyrir eðlilega upp-
byggingu.
Tryggvi Oskarsson,
Þverá.
Um mernimgaruppákomu
þar sem góðan Inimor skorti
Vigfús B. Jónsson for-
dæmir nedanbeltis-
húmor meintra brand-
arakaUa á skemmtun
á Húsavík.
Sagt er að rætur íslenskrar
menningar liggi um allar byggðir
landsins og er mér ekki í hug að
rengja það, því hvar sem komið
er hérlendis finnur maður fyrir
hinni íslensku menningu í ein-
hverri mynd.
Það má telja til menningarvið-
burða að hinir snjöllu söng-
menn, bræðurnir frá Alftagerði í
Skagafirði, héldu konsert í Fé-
lagsheimili Húsavíkur þann 29.
nóvember sl. og sungu sig inn í
hjörtu allra þeirra sem fylltu
húsið þetta kvöld. Eigi skal
gleyma- hlut undirleikara bræðr-
anna, Stefáns ogjóns Gíslasona,
sem báru utan á sér bæði prúð-
mennsku og listfengi. Hótel
Húsavík hafði búið samkomu-
gestum jólahlaðborð sem sómi
var að, og naut fólk þess svo sem
til var ætlast.
Auglýst hafði verið að farið
yrði með gamanmál í samkvæmi
þessu og hugðu margir gott til að
heyra gamansögur og brandara
af besta tagi. Eg tala auðvitað
ekki fyrir aðra en sjálfan mig, en
„gamanmálin" urðu mér til von-
brigða, því þeim var að mestu
leyti haldið neðan við naflann og
það litla sem uppfyrir slapp var
vel merkt hinum svokallaða
„gálgahúmor.“
Snjallir húmoristar geta enda-
lítið sagt skemmtilega brandara
og gamansögur án þess að fara
niður fyrir beltið, en í þessu til-
felli var meginumfjöllunin þar.
Það er allt annað þótt einn og
einn tvíræður fljóti með, slíkt
ætti engan að hneyksla. Reyndar
kom þarna einn slíkur frá Oskari
Péturssyni sem var að svara fyrir
sig. Sá var aðeins meinlaus orða-
leikur sem færa mátti upp á
hvern sem er, enda slík orða-
skipti fólks trúlega næsta dagleg
í Iyftum hótela og annarra bygg-
inga.
Að sjálfsögðu eru gamanmál
vandmeðfarin, því mörgum þarf
að þóknast og helst engan
meiða. Það kann því að vera að
margir séu með of miklar vænt-
ingar og kröfur gagnvart þeim
sem með flutninginn fara.
Eg velti því samt fyrir mér
hvort þá skorti sanna kímnigáfu
sem fyrir þessum gamanmálum
stóðu, þótt ekki sé það líklegt.
Það er e.t.v. jafn líklegt að þeir
hafi haldið okkur, sem á hlýdd-
um, vera á því þroskastigi að
þetta hæfði okkur best, en í það
ætla ég ekki frekar að spá.
Hitt er svo annað mál að ég
vona að Skagfirðingarnir heim-
sæki okkur aftur sem fyrst og þá
verði betur á „gamanmálum“
haldið - sem sé meiri og betri
húmor.
Vigfús B. Jónsson.
Afmæli
í dag
I dag, 17. desember, eiga
eftirtaldir Húsvíkingar af-
mæli: Kristjana Guðrún
Benediktsdóttir, Ásgarðs-
vegi 20, f. 1927; Kristín
Jóna Kristjánsdóttir, Garð-
arsbraut 57, f. 1931; Ævar
Ákason, Garðarsbraut 43, f.
1955; Kjartan Þór Bjarna-
son, Baughóli 24, f. 1959;
Erla Sigurðardóttir,
Höfðavegi 22, f. 1964; Örv-
ar Þór Jónsson, Baldurs-
brekku 6, f. 1972; Heiðrún
Hreiðarsdóttir, Stórhóli
47, f. 1987.
Af merkisafmælum á
Húsavík til áramóta má
nefna: 21. desember verður
fimmtug Sigrún Sigur-
björnsdóttir, Holtagerði 6.
22. des. verður fertugur
Gunnar Birgir Gunnlaugs-
son, Stórhóli 17. 23. des.
verður áttræð Birna Herri-
itsdóttir, Hvammi. 30. des.
verður sjötug Sigrún
Hauksdóttir, Háagerði 1.
Þann sama dag verður
fimmtugur Guðmundur Ní-
elsson, Baughóli 34. Og 31.
des. (eða 1. janúar?) verður
75 ára Óli nokkur Kristins-
son, Höfðabrekku 11. BK/js
Víkurblaðið sendirlesendum sínum og
öðrum velunnurum um land allt hugheilar
jóla- og nýársóskir. Þökkum samfylgdina
á árinu sem erað líða.
VIKUR
BfyAÐIÐ
S&cl rffS mmmfvt/m
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og
afi,
HELGI KRISTJÁN VIGFÚSSON,
Höfðabrekku 10,
Húsavík
sem lést 12. desember sl. verður jarð-
sunginn frá Húsavíkurkirkju föstudaginn
19. desember kl. 14.
Unnur Jónsdóttir,
Jónas Reynir Helgason,
Nanna Þórhallsdóttir,
Bjarki Jónasson.