Dagur - 17.12.1997, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 1997 - 3
Oxgur_
V ÍKURBLAÐIÐ
Valið vafðist íyrir jólanefnd
Niðurstödur í vali á
fallegustu jólaskreyt-
ingum á Húsavík hafa
veriö kunongjördar.
1 íyrra voru veitt verðlaun fyrir
skemmtilegustu jólaskreyting-
arnar á húsum og fyrirtækjum á
Húsavík og vakti verðskuldaða
athygli. Jólaskreytinganefndin
ákvað að halda þessu áfram í ár
og hefur nú farið um bæinn og
lagt á sinn Salómonsdóm. Og
nefndarmenn sögðu að þó valið
hafi verið erfitt í fyrra, þá hafi
það verið enn erfiðara í ár, því
skreytilist bæjarbúa hefur mjög
fleygt fram og enn fleiri en áður
leggja metnað sinn í glæsifegar
skreytingar. Fyrirfram var ákveð-
ið að verðlauna eldd þá sem út-
nefndir voru fyrir jólin í fyrra, og
þó allir fyrri vinningshafar séu
ekki síður verðlaunahæfir nú en
þá, þá komu þeir ekki lil álita.
1. Verðlaun í skreytingum hý-
býla fengu þau Sigrún Erlings-
dóttir og Benedikt Kristjánsson,
Lyngbrekku 17. 2. verðlaun féllu
í hlut Birgittu Svavarsdóttur og
Geirs ívarssonar að Brúnagerði
9. 3.-4. verðlaun hlutu Jóhanna
Stefánsdóttir og Sigurgeir Harð-
arson, Lyngbrekku 1 og Elsa
Borgarsdóttir og Helgi Sigurðs-
son að Stórhóli 2.
I flokki fyrirtækja hlaut Bóka-
verslun Þórarins Stefánssonar 1.
verðlaun fyrir glæsilega glugga-
skreytingu. 2. verðlaun híaut
Borgarhólsskóli íyrir gluggalista-
verkin sem hafa raunar verið
verðlaunahæf til fjölda ára. Og 3.
verðlaun hlaut Öryggi fyrir stíl-
hreina og fallega skreytingu.
Þá var lokið sérstöku lofsorði á
íbúa í fjölbýlishúsinu Garðars-
braut 67-71 fyrir samstilltar
skreytingar á húsinu. — js
Hátíðarguðsþjónustur um jól og áramót
Aðfangadagur 24. desember:
Aftansöngur kl. 18.00.
Miðnæturguðsþjónusta kl. 23.30:
Á meðal dagskráratriða eru: Almennur söngur
kirkjugesta; Sigurður Hallmarsson les ljóð og jóla-
sögu; Lazlo og Marton Czcnek leika á hom; Lára
Sólcy Jóhannsdóttir leikur á fiðlu.
Jóladagur 25. desember:
Hátíðarguðsþjónusta kl. 14.00.
Hátíðarguðsþjónusta í Miðlivainini kl. 15.30.
Hátíðarguðsþjónusta á Sjúkrahúsi kl. 16.20.
Gamlársdagur 31. desember:
Aftansöngur kl. 18.00.
Guðmundur Guðinundsson héraðsprestur messar.
Organisti: Pálína Skúladóttir.
Guð gefi okkur gleðileg jól og farsælt koinandi ár.
Sóknarprestur.
Brúnagerdi 9-2. verðlaun.
Öryggi hefur aldrei verið g/æsilegra.
Jólastemmning í glugga Bókaverstunarinnar.
Sendum viðskiptavinum okkarsvo og
Þingeyingum öllum,
bestujóla- og nýárskveðjur.
Þökkum viðskiptin á árinu sem erað líða.
Sjáumst á nýju ári.
Hárgreiðslustofa Hillu og Ellu.
Við óskum öllum vandamönnum og
velunnurum gleðiríkra jóla ogfarsældar á
komandi tímum. Þökkum afalhug allt okkur
gott gert á árínu sem ferað kveðja.
Steinunn og Óskar,
frá Reykjarhóli.
Sendum öllum ættingjum og vinum bestu
jóla- og nýárskveðjur með
þökk fyrír liðna tíð.
Gunsa og Siggi.
Innilegar jóla- og nýárskveðjur til
ættingja og vina.
Þakka hið liðna.
Svanhvít,
Syðrí-Skál.
Óska öllum vinum og vandamönnum
gleðilegra jóla ogfarsældar á nýju ári.
Kærar kveðjur.
Herdís á Búvöllum.
Sendum vinum og ættingjum, staifsfólki
á Bæjarskrífstofu, Tækniþjónustu, Apóteki
og íslenskum sjávarréttum, okkar bestu
jóla- og nýárskveðjur.
Krístbjöm Óskarsson,
Anna María Bjamadóttir.
Gleðilegjól, gott ogfarsælt nýár.
Þakka allt liðið. Guðgeymi ykkuröll.
Laufey Vigfúsdóttir.