Dagur - 17.12.1997, Blaðsíða 4
4 - MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 1997
rD^ftr
VÍKURBLAÐIÐ
Fræknir frændur á ferð
Frændumir Sigurður
Hallmarsson og
Bjami Hafþór Helga-
son vom áberandi í
menningarlífi Húsa-
víkur um helgina.
Fjöliistamðurinn Sigurður Hall-
marsson opnaði sýningu á vatns-
litamyndum í Safnahúsinu á
föstudag og voru þar mörg mjög
skemmtileg verk og menn voru
varla komnir inn fyrir dyr þegar
þeir voru byrjaðir að fjárfesta.
A sama tíma sat frændi hans
Bjarni Hafþór í Bókaverslun
Þórarins Stefánssonar og áritaði
nýja diskinn sinn og varð vel
ágengt í sölumálum ekki síður
en Sigurði.
Sýning Sigurðar stóð aðeins í
3 daga en þegar upp var staðið
höfðu flest verkin á sýningunni
selst og verða væntanlega ekki
dónalegar jólagjafir ef kaupend-
ur ætla ekki sjálfir að sitja að
þeim.
Bjarni Hafþór skemmti svo
gestum í Hlöðufelli á föstudags-
kvöldið, og greinilegt að lögin
hans um Láru ljúfu Láru, og
fleiri gullmolar eru farnir að
klingja í hausum manna, því við-
staddir tóku vel undir í fjölda-
söng, enda lögin hvert öðru
skemmtilegra og vinna á við
frekari hlustun.
Þeir frændur Sigurður og Haf-
þór áttu hreinlega staðinn s.l.
föstudag. — JS
Stulknakóriim syngur jóla-
lögin í Húsavíkurldrkju
Hólmfríður Benediktsdóttir hefur unnið frábært starfmeð Stúiknakór Húsavíkur sem
hefur borið hróður bæjarins vfða.
Hiiui magnaði
StúLknákór Húsavík
ur býður Þingeying-
um upp á eyma-
konfekt á tónleikum
nk. sunnudag.
Stúlknakór Húsavíkur verður
með tónleika í Húsavíkurkirkju
nk. sunnudag 21. desember kl.
17.00. Kórinn hefur verið að
æfa jólaprógramm að undaförnu
sem verður uppistaðan á tón-
leikunum. Þetta eru Ijáröflunar-
tónleikar og aðgangseyrir er kr.
500.
Þetta er 5. starfsár Stúlkna-
kórsins sem skipaður er 30
stúlkum. Kórinn gerði garðinn
frægan á erlendri grund sl. sum-
ar og hefur margoft glatt tón-
elska Þingeyinga með söng sín-
um. Nokkur endurnýjun hefur
verið í kórnum að undanförnu,
13 stúlkur eru hættar en 1 1 nýj-
ar hafa komið inn.
Að sögn Hólmfríðar Bene-
diktsdóttur, stjórnanda kórsins,
verða töluverðar breytingar á
honum næsta vor, en þá hætta
nokkrar stúlkur sem hafa verið
burðarásar kórsins frá upphafi.
En maður kæmi í manns stað og
hún kvaðst bjartsýn á framtíð-
ina. Að gefnu tilefni vildi hún
taka það fram að ekki væri ósk-
að eftir því að áheyrendur
ldöppuðu í kirkjunni á tónleik-
unum. — JS
Miðnætur-
messa á að-
fangadag
M i öiiæturgu ðsþ j ón-
usta, sú fyrsta í sög-
mmi, verður haldin
í Húsavíkurkirkju á
aðfangadag.
Sú nýbreytni verður í helgi-
haldi á Húsavík um jólin að
auk hefðbundins aftansöng kl.
18 á aðfangadag, verður efnt
til miðnæturmessu í kirkjunni
kl. 23.30 og hefur þetta ekki
áður verið gert á Húsavík.
Séra Sighvatur Karlsson,
sóknarprestur, kveðst vonast
til að Húsvíkingar kunni vel
að meta þetta framtak og fjöl-
menni í miðnæturmessuna og
hún festi sig í sessi sem annar
tveggja góðra valkosta fyrir
sóknarbörn sem hafa áhuga á
að sækja guðsþjónustu á að-
fangadag.
1 þessari guðsþjónustu verð-
ur ekki um hefðbundið
messutón að ræða. Þess í stað
verður lögð áhersla á almenn-
an söng kirkjugesta við hljóð-
færaundirleik. Auk organist-
ans Pálínu Skúladóttur munu
þeir feðgar Lazlo og Marton
Czenek leika á horn og Lára
Sóley Jóhannsdóttir á fiðlu.
Sigurður Hallmarsson mun
lesa ljóð og jólasögu og sókn-
arprestur les jólaguðspjallið
og llytur hugvekju og bæna-
gjörð. -JS
Blesswiarbið ég öllumfyrrverandi söfnuðum
mínum og öðrum vinum og kunningjum um leið og
ég óska ykkur gleðilegra jóla ogfarsæls komandi
árs. Hafið þökk fyrirþau liðnu. Megi Guðfarsæla
ykkurbæði í nútíð ogframtíð.
Bjöm H. Jónsson
Égsendi vinum og kunningjum óskir um gleðileg
jól ogfarsælt komandi ár. Þakka liðin ár. Einnig
þakka ég vináttu og hlýhug í haust.
Jólakveðja.
Hermann íHátúni.
Sí ðasta tölublað 1997
Þetta tölublað Víkurblaðsins,
númer 48, er jafnframt síðasta
blaðið á þessu ári. Við höldum
sem sé áfram þeim gamla skikk
okkar að hvíla lesendur á Víkur-
blaðinu (og Víkurblaðið á les-
endum) yfir hátíðarnar, svo
hvorir tveggja fái ráðrúm til að
lyfta anda sínum á ögn hærra
plan um tíma. Eftir sem áður
verður blaðamaður á vaktinni
yfir hátíðarnar og kemur þvf sem
rosalega fréttnæmt kann að
þykja á þrykk í Degi.
Fyrsta tölublað Víkurblaðsins
á nýju ári mun koma út mið-
vikudaginn 7. janúar 1998 ef
Guð (og Stefán Jón) lofa.
Þangað til - lifið heil.
Ritstj.
Ársloka-N aggar
Þetta eru síðustu Naggar árs-
ins því nú fer hátíð í hönd.
KÞ-Naggar eru auðvitað góm-
sæti hversdags en ekki bein-
línis hannaðir sem hátíðar-
matur. Og því eðlilegt að þeir
séu lagðir til hliðar yfir jólin á
meðan við gæðum okkur á
rjúpum og hamborgarhrygg og
hangikjöti.
Og hið sama gildir um Vík-
urblaðs-Naggana, þeir eru
fyrst og fremst ætlaðir til
hverdagsbrúks, en í ritlistar-
legu tilliti teljast þeir tæplega
Nóbelsverðlaunastöff. Því er
líka eðlilegt að þeir séu lagðir
tímabundið á hilluna á meðan
við gæðum okkur á afurðum
Einars Más, Péturs Gunnars-
sonar og annarra ritlistar-
meistarakokka.
Ár samemingar
Arið sem nú er senn Iiðið og
hverfur brátt í aldanna skaut
eins og títt er um ár sem
runnið hafa sitt skeið á enda,
hefur um margt að meðaltali
verið upp og ofan, aftur á bak
og út á hlið og er einstaklings-
hundið hvort við teljum okkur
hafa „miðað annað hvort aft-
urábak, ellegar nokkuð á Ieið.“
A Húsavík eiga menn ugg-
laust eftir að minnast ársins
1987 sem árs hvalsins, eða árs
rækjunnar eða árs hinna
óseldu hlutabrófe. Víða verður
þess sennilega minnst sem árs
sameiningar, t.d. í Skagafirði
og á Austfjörðum. Og senni-
legt að sú þróun haldi áfram
og næsta ár verði ár samein-
ingar í öðrum landshlutum.
Eins og gráir kettir
Steigrímur Sigfússon ávítaði
Davíð fyrir þá óvirðingu sem
hann sýndi Alþingi. Meðan
þingmenn fjölluðu um Ijár-
lagafrumvarpið, sæti Davíð og
læsi úr bók sinni á kaffihúsinu
„Grái kisi“, eða eitthvað í þá
veru. Eða saman dregið af hk:
Steingrímur vissi ekki gjörla,
hvað ætti að kall’ann
og kröftuglega ofan í við hann
setti.
Meðan Alþingi fæst við
fjárlagahallann,
forsætisráðherra situr á Gráum
ketti.
Víkurblaðið á eftir sjálfu sér
Víkurblaðið er ekki þekkt fyrir
að vera fyrst með fréttirnar.
En stundum ofbýður mönn-
um þó hægagangur þess.
Þannig stefndi í það nú í árs-
lok að það yrði tveim tölublöð-
um á eftir sjálfu sér. Tölu-
blaðaskráning hefur eitthvað
ruglast á árinu, eins og glögg-
ur Iesandi tók eftir og benti
okkur á. Síðasta tölublað var í
haus skráð það 45. á árinu en
átti að vera númer 47. Blaðið
í dag, sem er síðasta Víkur-
hlað ársins er því 48. tölublað
en ekki 46. tölublað eins og
allt stefndi í.