Dagur - 23.12.1997, Page 1
„Jólinfara íþað að
hugsa umfrú Daisy.
Hún tekurallan minn
tíma, “ segir Sigurveig
Jónsdóttir leikkona.
Veiga Ieikur aðalhlutverkið í jóla-
verkefni Leikfélags Akureyrar, A
ferð með frú Daisy, sem frumsýnt
verður á annan í jólum. Frú
Daisy mun eiga hug hennar allan
yfir jóladagana og kemst Veiga
ekki heim til að halda jólin hátíð-
leg með fjölskyldunni að þessu
sinni. „Eg hef ekki tíma til að spá
í það núna að ég komist ekki
heim. Frú Daisy er svo tímafrek."
Bakkar á innkeyrsluna í
næsta húsi
„Daisy er afskaplega ákveðin og
veit hvað hún vill,“ segir Veiga.
„Hún er ekkja, þýskur Gyðingur,
búsett í Atlanta í suðurríkjum
Bandaríkjanna. Hún er 72 ára
þegar verkið byrjar en þá hendir
það hana að hún bakkar á inn-
keyrsluna í næsta húsi. Þá tekur
sonur hennar í taumana og vill
að hún fái sér bílstjóra en það er
hún aldeilis ekki ánægð með.“
Veiga segir að Daisy kæri sig alls
ekki um einhvern ókunnugan
inn á heimilið og hún vilji geta
farið sinna ferða sjálf. „Leikritið
Qallar um það hvernig samband
frúarinnar og bílstjórans þróast.
Hún er orðin fjörgömul þegar
verkinu Iýkur.“
Daisy ekki ólik ömmu minni
Frú Daisy er skemmtilegur
karakter að sögn Veigu og hún á
sér margar hliðar. Hún segir for-
tíðina móta hana, Daisy sé alin
upp við fátækt og henni finnist
hún alltaf þurfa að spara og fara
sérlega vel með peningana sína.
Hún sé þó stolt og ágætis mann-
eskja undir niðri. „Mér finnst
hún ansi Iík ömmu minni sem ég
er skírð í höfuðið á. Ég sé þetta
núna. Hún gekk alltaf teinrétt og
sparaði virkilega. Það er gaman
að þeirri samlíkingu og mér þyk-
ir vænt um þær báðar.“ Veiga
segir að frú Daisy og hún sjálf
eigi eitt sammerkt. „Ég hef alltaf
sagt það að fyrr seldi ég af mér
kofann en selja bílinn. Þannig að
ég ætla rétt að vona að ég fái að
keyra nánast fram í andlátið. Það
er hræðilegt að vera bíllaus. En
enn sem komið er hef ég ekki
lent í neinum vandræðum
þannig að börnin mín taki af mér
öll völd.“
Vil gera hlutina sjálf
Kvikmyndin Driving Miss Daisy,
sem á sínum tíma vann til ijölda
Óskarsverðlauna, er upphaflega
unnin upp úr leikritinu um frú
Daisy eftir Alfred Uhry. Veiga
segir að hún hafi heillast af bíó-
myndinni en sem betur fer muni
hún lítið eftir henni. „Þegar þetta
hlutverk kom til þá rauk ég ekki
út og Ieigði mér myndbandið. Ég
hreinlega vildi það ekki, enda er
allt annað að leika á sviði en í
bíómynd. Mér finnst betra að
vinna þetta sjálf og hafa ekki
horft á einhvern gera þetta svona
eða svona. Hvað þá Jessicu
Tandy sem hlaut Óskarinn fyrir
hlutverk Daisyar.“ Veiga talar um
að í upphafi æfingatímabilsins
hafi leikurum sýningarinnar Iiðið
eins og þeir væru sestir á skóla-
bekk. Leikstjórinn, Asdís Skúla-
dóttir, hafi verið dugleg að viða
að þeim efni til að kynnast bak-
grunni sögupersónanna, þ.e. um
Gyðinga og trú þeirra, og einnig
um baráttu blökkumanna, en bíl-
stjóri frú Daisyar er svartur.
Veiga er Daisy um jólin og hefur í nógu að snúast. mynd: brink.
Sákna mins gamla Leikhúss
Veiga bjó lengi á Akureyri. „Hér
var ég til ársinsl980. En það er
hins vegar þannig að margt af því
fólki sem ég þekkti hér áður fyrr
er hér ekki Iengur. Það er því oft
óskapleg gleði þegar ég hitti ein-
hvern á götu sem ég þekki en þá
er faðmast og kysst. „I hennar
huga er það hlý tilfinning að
koma norður, sérstaklega þegar
veðrið er jafn fallegt og það hef-
ur verið. „Það er ótrúlegt að jólin
skuli vera að koma. Þegar ég var
hér síðast, að leika í Djöflaeyj-
unni, þá voru húsin að sligast
undan snjóþunga. Þannig að
þetta er ótrúlegur munur. En það
sem er skemmtilegast er að geta
unnið með gömlu vinnufélögun-
um, Alla og Þráni. Við erum bara
þrjú sem leikum í sýningunni og
gjörþekkjum hvert annað. „Það
er þó eitt sem Veiga saknar sér-
staklega á Akureyri að þessu
sinni. „Það er gamla Leikhúsið.
Á ferð með frú Daisy er sett upp
á Renniverkstæðinu, sem er að
vísu skemmtilegt að mörgu leyti,
en mér þykir vænna um Leikhús-
ið sjálft. Það er miklu skemmti-
legra f mínu gamla húsi.“ HBG
i Veitum hagstæð
1 lán til kaupa á
1 landbúnaðarvélum , .7
' SP-FJARMÖGNUN HF
Vegmúli 3 • 108 Reykjavik • Simi 588-7200 • Fax 588-7201
Það lekur aðeins
einn
■virkan
dag
aö korna póstinum
þínum til skila
SPARISJÓÐUR NORÐLENDINGA