Dagur - 23.12.1997, Blaðsíða 7

Dagur - 23.12.1997, Blaðsíða 7
Xfc^MT' ÞRIÐJUDAGUR 2 3 . DE SEMBER 1997 - 23 LÍFIÐ í LANDINU Nýja svínasteiMn Hana er frábært að nýta ofan á brauð. Það er um að gera að smyrja stóra brauðsneið og mælt er með óseyddu rúgbrauði. Yfir sneiðina er gott að setja vænar flísar af steik og þá góða hrúgu af rifnu rauðkáli, niðursoðnum perum fínt sneiddum, sýrðum gúrkum og soðnum sveskjum. Ekki má gleyma að setja svolítið af nýmöluðum, svörtum pipar yfir steikina. Svona sneið er heil máltíð út af fyrir sig. Allra best er að setja stökka puru með en ólík- legt að hún sé til svona daginn eftir. HBG * ” hverju eggi, setja smátt brytjað hangikjötið út í eggjablönduna og fylla tartalettur að %. Síðan skal baka þetta í ofni á vægum hita þar til eggin stífna. Hamborgar- hrygguriim Afgangana af honum má nýta á marga vegu. Það er t.d. sniðugt að sjóða pasta, helst grænt, bræða þá rjómaost og setja brytj- að kjötið út í. Setja skal álíka mikið af osti og kjöti. Gott er að setja smá pipar út í ostinn og nokkrar skeiðar af parmesanosti yfir. Kalkiiiiiiiiiii Við afgangana af kalkúninum er um að gera að búa til kalkún- apæ. Þá er keypt frosið smjör- deig, það flatt út og sett í eldfast mót. Brytjuðu kalkúnakjöti er stráð yfir deigið og þá sósunni þar á eftir. Síðan má setja deig- lok yfir en þá þarf að Idippa gat í miðjuna svo að gufan komist út án þess að gera deigið rakt. Gott er að pensla yfir pæið með slegnu eggi og það þarf að bak- ast við 200°C hita þar til kakan verður gullinbrún. Það erekki ólíklegtað afgangurverði af jólamatnum því gjaman er lagt mikið í hann. Þegar verða afgangar er um að gera að nýta þá vel, gera vel við jólasteikina, svo Margrét Krist- insdóttir, hússtjórnarkennari við Verkmenntaskólann á Akureyri kemur með smá leiðbeiningar um nýtingu afganga. Rjúpa og gæs Það erfrábært að brytja rjúpurn- ar eða gæsirnar í sósuna og hita mjög, mjög hægt. Helst skal hita blönduna í tvöföldum potti þannig að gufan af vatninu sjái um hitunina. Þá er engin hætta á að brenni við. Síðan er upplagt að setja heitar kartöflur út í og bera fram rauðkál með. Ekki er verra að hafa heitar tartalettur til að setja sósublönduna í. Hangi- kjötið Það er alltaf gott kalt en það er líka gott í eggjakökur. Slá saman eggjum og rjóma, 1 msk. rjómi á móti fiokk Rokkferiei rakinn I tónlist Gildrunnar frá Mosfellsbæ má finna allt frá Zeppelin til U2, sykurballaða til sveitarokks. A glæstri tvöfaldri geislaplötu, Gildran í tíu ár, er áratugs ferill sveitarinnar rakinn. Þar er að finna helstu smíðar þeirra félaga en einnig hinar fram- sæknu og umdeildu túlkanir á House of the rising sun og Vorkvöldi í Reykjavík. Það er Undraland - Tónaílóð, sem stendur að þessari útgáfu með sveitinni og er ástæða til að þakka fyrir framtakið. Gildran var ekki vinsælasta sveit landsins, en framlag hennar til íslensks rokks er ótvírætt. Þá var leitun að betri og kraftmeiri sviðsframkomu. Það getur umsjónarmaður síðunnar staðfest eftir að hafa m.a. séð strákana hila upp fyrir eilífðarrokkarana yndislegu, Status Quo, f Reiðhöllinni fyrir hartnær áratug. ;rði garðinn fyrst frægan 30 árum, en hann söng m.a. með hinni vinsælu danshljómsveit Pónik og hefur í seinni tíð verið fastagestur á plötum Geir- mundar Valtýsonar. A vegum Tónaflóðs er nú komin út fyrsta einherjaplata Ara, sem kallast Allt sem þú ert. Er platan óvenjuleg um það að Ari kyrjar við undirleik margra góðra manna lög frá hinum fornfrægu „sænsku víkingum". Utkoman er bara hin bærilegasta enda Ari ekki að leita langt yfir skammt tónlistarlega, því margt er nú líkt með þessum lögum og mörgum sem Geirmundur karl- inn hefur verið að „klambra saman". I þessu er einhvers konar skandinavískur sam- hljómur, þannig að aðdáendur „Geirmundarsveiflunnar'* finna hér sitthvað kunnug- legt. Ari og Vikingalögin Söngvarinn Ari Jónsson g( með Roof tops fyrir um Orkurokk Rokkfjóreykið unga úr Hafnarfirði, Woofer, kom sér vel á framfæri í sumar með útgáfu á þriggja Iaga smáplötu en nú hefur stóra platan litið dags- ins ljós. Það er ljóst að mikil orka er til staðar hjá Woofer og fínn drifkraftur. Minnir áferð tónlistar- innar og stíll á ekki ómerkari sveitir en Smashing Pumpkins og Skunk Anansie. Tíu lög prýða plöt- una og teljast öll býsna góð. Fremst má þó kannski telja Græna tréð, Grimmd og Oðinn, sem að auki hafa hina bærilegustu texta. /6\ /uujifitf/ir. pérint t ffutnimf) okknr þekktmlu wntjvam Ástarinnar vegna Ástarperlur er 18 laga skífa þar sem er að finna margar af vinsælli ástarballöðum sem sungnar hafa verið á íslensku á seinni árum. Þarna eru smellir á borð við Karen með Bjarna Ara, Eg man hverja stund, sem Pálmi Gunnars og Guðrún Gunnars syngja, Engin orð, með Ólafi Þórarins- syni og Aldrei ég gleymi með Ernu Gunnars. Þetta má teljast hið þokkalegasta safn í það heila og ætti að ylja mörgum ástardúfunum og kannski ein- hverjum fleirum um hjartaræturnar.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.