Dagur - 03.01.1998, Blaðsíða 1

Dagur - 03.01.1998, Blaðsíða 1
Gagnrýna eftírlit með flugeldum Lðgreglan sinnir ekki eftirliti sem skyldi, enda annar einn mað- ur því varla, að mati framkvæmdastj óra Landsbjargar. Rakin orsök fjöldaslysa vegna blysa? Vafi með tryggingar. Meira seldist af flugeldum um áramótin en nokkru sinni fyrr að talið er. Þannig segir Björn Her- mannsson, framkvæmdastjóri Landsbjargar, að nánast alls stað- ar á landinu hafi orðið metsala hjá Landssambandi björgunar- sveita, en afkoman er að veru- legu leyti háð flugeldasölu. Björn gagnrýnir hins vegar harðlega hve lítið eftirlit er með flugelda- innflutningi og vottun sprengigóss sem landsmenn kveikja í. „Blys sprungu út um allt land“ Fjöldi fólks slasaðist á gamlárs- kvöld og leitaði sér Iæknisaðstoð- ar þegar blys reyndust gölluð og sprungu £ höndum manna. Björn segir að Landsbjörg hafi ekki selt gallaða vöru heldur hafi gölluðu hlysin annars vegar verið seld í skúr í Skeifunni og hins vegar við Umferðarmiðstöð BSI. Rann- sókn hafi leitt í ljós að svo virðist sem kínverjar hafi verið settir á prik vegna mistaka framleiðenda í Kína. „Maður hefur heyrt sögur út um allt land af gölluðum blys- um. Þetta sprakk allt meira og minna og það er skrýtið að mis- tökin uppgötvist ekki fyrr en búið er að selja þúsundir stykkja af þessum blysum,“ segir Björn. Óviðuuandi eftirlit Að líkindum er ekki við innflytj- endur að sakast í þessum efnum en brýnt er að efla eftirlitið frá því sem nú er, að sögn Björns. „Menn geta flutt eins mikið inn af flugeldum og þeir vilja, en eft- irlitið er sáralítið. Það þarf bara að fara með pappíra inn á löggu- stöð og svo er þetta stimplað af manni sem e.t.v hefur lítið vit á búnaðinum. Það er einn lög- reglumaður í þessu starfi og Birna Ýr Magnúsdóttir, eitt fjölmargra fórnariamba frá gamlárskvöld/, sem slasaðist á hendi eftir að gallað blys sprakk i höndunum á henni. hann þarf einnig að sjá um allar brennurnar. Hvernig í ósköpun- um á hann að komast yfir þetta allt?“ Kemur á óvart Skarphéðinn Njálsson, varðstjóri hjá lögreglunni í Reykjavík, sagði í gær að hann ætlaði ekki að rökræða eitt né neitt að sinni við Björn Hermannsson, enda ætti eftir að ræða niðurstöður eftirlits með flugeldum á sam- ráðsfundi. „Við höfum m.a. leitað til Landsbjargar um hvað við Ieyfum og hvað ekki. Eftir hverja vertíð höldum við samráðfund, þar sem Qórir stærstu innflytj- endurnir eru kallaðir til og þekk- ing og reynsla þeirra lögð til grundvallar fyrir afgreiðslu mála. Við erum einnig f góðu samstarfi við eldvarnaeftirlitið. Þetta er í fyrsta skipti sem mér berst til eyrna frá Landsbjörg að menn séu óánægðir með eftirlitið," sagði Skarphéðinn. Vafi með tryggingar Skarphéðinn sagði að rannsókn á gölluðu blysunum væri ekki lokið en í gær beindist grunurinn sér- staklega að því hvort raki hefði komist í blysin með fyrrgreindum afleiðingum. Oljóst er hvort selj- endur eru tryggðir fyrir tjóninu, en Skarphéðinn sagði að trygg- inga væri ekki sérstaklega krafist þegar leyfí væru veitt. — Bt> Heilsugæsla í uppnámi Ófremdarástand blasir við í heilsugæslumálum Rangárvalla- sýslu eftir að tveir af þremur heilsugæslulæknum sýslunnar hafa sagt upp störfum. Þórir B. Kolbeinsson, heilsugæslulæknir á Hellu, segir að enginn hafi sótt um þessar tvær stöður. Hann segir að það haldist í hendur við þá óvissu sem ríkir í kjaramálum heilsugæslulækna sem bíða eftir úrskurði kjaranefndar. Guðrún Zöega, formaður kjaranefndar, sagði að það stytt- ist í úrskurð nefndarinnar í kjaramálum lækna og annarra sem heyra undir nefndina. Hún vildi hinsvegar ekki nefna neina tímasetningu um það hvenær úr- skurðir nefndarinnar muni sjá dagsins ljós. Fyrr í vetur hafði hún opinberlega gefið í skyn að kjaranefnd mundi birta úrskurði sína um áramótin. — GRH Hr. Ólafur Skúlason, biskup íslands, afhend/r eftirmanni sínum, Karli Sigurbjörnssyni, lyklavöldin að Biskupsstofu í gærmorgun. Sr. Karl sagði m.a. við það tækifæri að höfuðverkefni hans á næstunni yrði að vinna að innri uppbyggingu kirkjunnar. - gg/mvnd: pjetur Ólafur Ragnar Grimsson, nýr banda- maður i tóbaksvörnum. Vonbrigði með tóbaks- veróhækkun Reykingamenn verða frá og með gærdeginum að borga rúmum 10% meira til að iðka Iöst sinn, eftir hækkun ÁTVR á tóbaki. Verðbreytingin er fyrst og fremst vegna ákvörðunar ríkisstjórnar- innar að hækka verð á tóbaki en Þorsteinn Njálsson, formaður Tóbaksvarnanefndar, var von- svikinn í gær. ,,Við bjuggumst við miklu meiri hækkun enda brýnt að draga úr tóbaksneyslu ungs fólks. Eg hefði viljað sjá pakkann fara í 500 krónur.“ Algengt verð á vindlingapökkunum verður um 350 kr. eftir hækkunina. Reykingar eru á hraðri uppleið hjá ungmennum og þeir sem leiðast út í fíkniefni byrja undan- tekningalítið á tóbaksreykingum skv. könnunum. „Við vonum að ríkisstjórnin komi á móts við okkur en \'ið erum afskaplega ánægð með að hafa eignast jafn öflugan bandamann og forseti Islands er. Vonandi tekur stjórn- in hann sér til fyrirmyndar,11 seg- ir Þorsteinn. — Bt> Unglæknadeil- an að leysast? Lækningaforstjórar stóru spítal- anna hafa nú til skoðunar tillög- ur ungra lækna og er líklegt að senn náist samkomulag sem bætir unglæknum lækkun á yfir- vinnuprósentunni. Að sögn Birgis Jóhannssonar, varaformanns ungra lækna, var á félagsfundinum í gær einhug- ur um að reyna leið sem felur í sér að unglæknar ná fram göml- um baráttumálum er lúta að meðal annars vinnutilhögun, ritun læknabréfa, fræðslustörf- um og frágangi á vöktum. „Það hefur fundist flötur sem byggja má á,“ segir Birgir. — FÞG Ólikar áherslur Bls. Premium miðlarar Wmmmmm Alfa Laval Vflrmnskiptar SINDRI Vv, -sterkur í verki I 31 • SÍMI 562 7222 • BRÉFASÍMI

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.