Dagur - 03.01.1998, Blaðsíða 10

Dagur - 03.01.1998, Blaðsíða 10
10- LAUGARDAGUR 3 .JANÚAR 1998 ÞJÓÐMÁL Lög og reglur iiut rafmagnseftirlit ÁSGRÍMUR JÓNSSON RAFMAGNSIÐNFRÆÐINGUR SKRIFAR Undanfarið hafa birst greinar í dagblöðum þar sem breytingar á rafmagnseftirliti eru gagnrýndar. Þessi gagnrýni hefur náð ejrum alþingismanna sem taka undir hana það kröftuglega að farið hefur fram utandagskrárumræða á alþingi um málið. En hvað er það sem gagnrýnt er og hverjir eru það sem mest eru áberandi í þessari gagnrýni? Gagnrýnin Sveinbjörn Guðmundsson fyrrv. umdæmiseftirlitsmaður á Aust- urlandi skrifar grein í Dag reynd- ar undir nokkuð villandi fyrir- sögn, „Eldvarna og slysavarnamál einkavædd". Þar kemur eftirfar- andi kemur fram. 1. Rafmagnseftirlit ríkisins auk rafveitna hefur fram til ársins 1993 haft með höndum raf- magnseftirlit sem hefur reynst bæði skilvirkt og ódýrt. Svar: a) Fram til ársins 1993 unnu raf- magnseftirlitsmenn samkvæmt reglugerð um raforkuvirki. Engar reglur voru settar um túlkun þeirrar reglugerðar. Því varð túlkun þessarar reglu- gerðar oft misvísandi þar sem að í mörgum tilfellum túlkuðu eftir- litsmenn reglugerðina eftir sínu höfði. Samráð var í lágmarki enda erfitt um vik þar sem eftirlits- menn voru dreifðir um landið og höfðu litla möguleika til sam- ráðs. Þetta leiddi af sér margar túlkanir á sömu reglum og í framhaldi af því oft óskilvirkt eft- irlit. Nýtt fyrirkomulag skyldar raf- magnseftirlitsmenn til að vinna samkvæmt verldagsreglum sem túlka reglurnar. Þetta er túlkun Löggildingarstofu sem fer með yfireftirlit í umboði ráðuneytis. Auk þess gerir Löggildingar- stofa kröfu til þess að forstöðu- menn rafskoðunarstofa sitji sam- ráðsfundi til samræmingar á vinnubrögðum, til að taka af- stöðu til breytinga vegna þróunar og til að gera skoðanir eins eins- Ieitar og unnt er. Því fullyrði ég að rafmagnseftirlit er mun skil- \'irkara eftir breytingu en fyrir. Ódýrara áður? b) Odýrt, fullyrðir umdæmiseftir- litsmaðurinn fyrrverandi. Ekki nefnir hann nein dæmi fullyrð- ingu sinni til stuðnings. Þó kem- ur fram hjá honum að fyrir breyt- ingu hafi starfað 40 manns við rafmagnseftirlit á Iandinu. Eitt- hvað hefur það kostað og ekki eru ríkisstofnanir frægar fyrir lágan kostnað við þau störf sem þær hafa með höndum. Hann nefnir dæmi um kostnað sam- kvæmt núverandi kerfi þar sem ein dagsferð kostar að hans sögn kr. 111.000.00 og fimm daga „stofuheimsókn" eins manns til RARIK á Austurlandi sem kost- aði RARIK kr. 956.270.00 Ekki veit ég hvort þessar tölur eru réttar. En sé svo, vil ég benda á að með einkareknum rafskoð- unarstofum er hægt, t.d. með út- boðum, að ná mun hagstæðari samningum en þau dæmi sem fyrrverandi umdæmiseftirlits- maður nefnir. Fjármálastjóm Rarik Ef RARIK greiðir þessar upp- hæðir fyrir skoðanir vil ég meina að fullyrðingar umdæmiseftirlits- mannsins fyrrverandi séu frekar áfellisdómur yfir Qármálastjóm RARIK en nýjum lögum um raf- majgnseftirlit. Eg vil benda fyrrum umdæmis- eftirlitsmanni á gr. 1.6.3. í reglu- gerð um raforkuvirki frá 23.12.1993. Þar segir: Löggiltir rafverktakar skulu fara yfir eigin verk að þeim lokn- um samkvæmt skilgreindum verklagsreglum, sem RER (nú Löggildingarstofan) samþykkir og tilkynna þau til rafveitu. Þetta gildir bæði um nýjar veitur og breytingar á veitum í rekstri. VERKMENNTASKÓLINN Á AKUREYRI Öldungadeild: Innritun í öldungadeild skólans verður dagana 5. og 6. janúar frá kl. 8.15 til 19.00 á skrifstofu skólans. Fjarkennsla: Innritun í fjarkennslu skólans verður dagana 5., 6. og 7. janúar frá kl. 8.15 til 15.00. Innritun í fjarkennslu er í gegnum síma 461 1710. Fyrirvari verður um fjölda í fjarkennslu. Nánari upplýsingar eru gefnar í síma 461 1710. Kennslustjóri öldungadeildar og fjarkennslu VMA. Námskeið í svæðameðferð verður haldið á Akureyri 5.-23. janúar. Fullt nám sem allir geta lært. Mæting að Geislagötu 12b uppi, kl. 10.00 f.h. mánudaginn 5. janúar. Kennari: Sigurður Guðleifsson, sími 587 1164. „Það að láta að þvi liggja að þeir ræki ekki skyldur sinar er hreinn atvinnurógur I garð rafverktaka. Ef það er hinsvegar rétt að þetta eftirlit rafverktaka sé ekki fram- kvæmt eða rafveitur skili ekki niðurstöðum rafverktaka til Löggildingarstofu þá er það lögbrot, “ segir Ásgrimur Jónsson m.a. í grein sinni. Hvað þýðir þetta? Þetta þýðir að allir rafverktakar á landinu eru rafmagnseftirlitsmenn, þ.e.a.s., sinni þeir faglegum skyldum sínum. Þeir yfirfara verk sín og sann- prófa með skoðun og mælingum að þau séu í fullkomnu lagi. Að því loknu skila þeir niðurstöðum eftirlits síns til rafveitu sem sendir þær til Löggildingarstofu. Atvinnurógur Það að Iáta að því Iiggja að þeir ræki ekki skyldur sínar er hreinn atvinnurógur í garð rafverktaka. Ef það er hinsvegar rétt að þetta eftirlit rafverktaka sé ekki fram- kvæmt eða rafveitur skili ekki niðurstöðum rafverktaka til Lög- gildingarstofu þá er það lögbrot. Tilgangurinn með úrtaksskoð- un er m.a. að tryggja það að eft- irlit rafverktaka með eigin verk- um sé skilvirkt. 100% skoðun á neysluveitum eins og gagnrýnendur krefjast er bæði mjög dýr og einnig van- traust á löggilta rafverktaka. Það er í raun lítillækkandi fyrir raf- verktaka að láta opinberan emb- ættismann koma og skoða ein- falda raflögn að t.d. kæliskáp eða fjölgun tengla um einn. Grein í Degi miðvikudaginn 17. des. s.l. er mér alveg óskiljan- leg. Samkvæmt undirfyrirsögn er það minn skilningur að greinin sé byggð á skoðun Ogmundar Jónassonar alþingismanns og for- manns B.S.R.B. Þar er haft eftir rafverktaka að allt sé f upplausn. Hvað er í upp- lausn og hvers vegna? Meira fúsk og brunahætta vaxandi. Hvernig er hægt að staðhæfa þetta? Hver eru rökin? Eða er verið að hræða fólk vísviandi til að ná fram vilja rökþrota minnihluta? Faglcg vituml Sannleikurinn er sá að virði raf- verktakar og rafveitur lög og reglugerð sem byggð er á lögum, eykst fagleg vitund rafiðnaðar- manna. Skoðun leiðir í Ijós hverj- ir eru hæfir til að taka að sér og bera ábyrgð á rafverktöku og hverjir ekki. Þeir sem ekki eru hæfir skríða í felur. Þeir tilkynna ekki verk sín. Það hefur reyndar alltaf verið hegðun þeirra sem vanhæfir eru. Gagnrýni þeirra sem ekki fara að lögum er reynd- ar ekki svara verð. Þetta ættu þingmenn að vita manna best. Þeim rafverktökum sem ekki treysta sér til að vinna í þessu nýja starfsumhverfi má benda á endurmenntunarnámskeið sem haldin eru á vegum Rafiðnaðar- skólans. Öryggiseftirlit hlýtur alltaf að vera í þróun. Fái Löggildingar- stofan, rafskoðunarstofur, Sam- orka og Landssamband Islenskra Rafverktaka frið til að þróa skoð- anir samkvæmt þessum nýju lög- um er ég viss um að fyrirtæki í rafiðnaði stækka og verða þar með hæfari til að fást við flókin verkefni sem nútíma tækni krefst. Það minkar hættu á því að erlend fyrirtæki hasli sér völl í þessu fagi hér á landi. Stefna nú- verandi ríkisstjórnar er því bæði þjóðhagslega hagkvæm og hvetj- andi til aukinnar fagmennsku. Hvernig geta virtir þingmenn haldið því fram að kerfi sem byggt er á útboðsstefnu ríkis- stjórnarinnar og úrtaksskoðun- um sé dýrara en ríkisrekið kerfi þar sem embættismenn skoða hvert einasta viðvik rafverktaka, kanske allt niður í minnstu smá- atriði? AUir rafverktakar vita að raf- skoðunarstofur útdeila ekki refsi- punktum. Rafskoðunarstofur skoða á hlutlausan hátt sam- kvæmt verklagsreglum sem Lög- gildingarstofa semur. Rafverktak- ar sem ekki skila af sér verkefn- um sem standast reglugerð fá refsistig f hlutfalli við galla á verkefninu. Refsingin er fólgin í auknu eftirliti með verktakanum. Reglugerðin gerir ekki ráð fyrir því að rafverktaki sem skilar vandaðri vinnu sé undir stöðugu eftirliti. Löggildingarstofan hefur reyndar ekki tekið þetta kerfi í notkun ennþá. Áfrýjimarmögiileiki Ef rafverktaki er ósáttur við nið- urstöður rafskoðunarstofa er honum í Iófa lagið að áfrýja til Löggildingarstofu sem úrskurðar í ágreiningsmálum. Rafskoðun- arstofa þarf að vinna samkvæmt faggiltu gæðakerfi og vinni hún ekki samkvæmt því á hún á hættu að missa starfsleyfi sitt. Hvernig geta menn fullyrt að meirihluti rafverktaka hafi mót- mælt þessari laga- og reglugerð- arbreytingu? Hafa menn spurt Landssamband Islenskra Raf- verktaka? Hafa þeir spurt Sam- orku? Meira uni Skátagilið BRYNJÓLFUR ' BRYNJÓLFS- j SON w' SKRIFAR I Degi þann 13. desember skrif- ar Sólveig Baldursdóttir mynd- höggvari um Skátagilið sem grænt svæði og þó hún nefni ekki mftt nafn í greininni er hún samt að mótmæla hugmynd minni um bílastæði í Skátagil- inu. Hún hefir ákveðnar óskir uppi um þetta svæði í tengslum við göngugötuna og birtu í henni. Eg held að óskir okkar beggja rúmist ágætlega í Skáta- gilinu vegna þess hvað það er langt. Efrihluti þess getur mjög vel farið undir bílastæði án þess að skyggja á birtuna í göngugöt- unni og neðri hluti þess sem nær alveg að Göngugötunni gæti rúmað óskir Sólveigar um grænt svæði. Þörfin fyrir bílastæði á því svæði sem ég skrifaði um í Degi þann 2. desember sl. er augljós og þarf því að bregðast við henni. Byggingar þær sem þarna hafa verið byggðar kalla á umferð fólks um þær og slíkri umferð fólks fylgir þetta bílastæðavanda- mál.“ Að setja fleiri bílastæði inn í miðbæ er að fara aftur til fortíð- ar og við megum ekki við slíku,“ segir Sólveig að lokum í grein sinni. Eg veit ekki til hvaða for- tíðar hún er að vísa því slíkar framkvæmdir eru stöðugt á döf- inni og þykja nauðsynlegar. í því sem ég kalla fortíð voru engin bílastæði því svo fáir áttu bíla að ekki var til vandræða. Þarna kemur líklega til aldursmunur á okkur tveimur sem þessi skrif eiga.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.