Dagur - 08.01.1998, Page 4

Dagur - 08.01.1998, Page 4
é -FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1998 FRÉTTIR Milljón í hátíðarsýningu Borgarráð hefur samþykkt að veita Leikfélagi Reykjavíkur einnar milljónar króna aukafjárveitingu. Þetta er gert til að standa straum af kostnaði vegna hátíðarsýningar f Iðnó í desember sl. í tilefni af 100 ára afmáeli félagsins. Leiguiithoð á Höllinni Borgin hefur falið Innkaupa- Borgin hefur ákveðið að láta fara fram lokakað útboð á Laugardaishöiiinni vegna Sjávarútvegssýningarinnar. stofnun Reykjavíkurborgar að annast framkvæmd á lokuðu leiguútboði á Laugardalshöll vegna sjávarútvegssýningar í september á næsta ári. Fyrir borgarráði liggja þegar tvær umsóknir og verður hlutaðeig- andi gefinn kostur á að taka þátt í útboðinu. Undirbúningur útboðsskilmála og framkvæmd útboðsins verður unnin í sam- ráði við borgarritara og fram- kvæmdastjórn ITR. ISAFJARÐARBÆR HeHhrigðisstofnun tsafjarðarhæjar Um áramótin voru sex heilbrigðisstofnanir á norðanverðum Vest- fjörðum sameinaðar undir heitinu Heilbrigðisstofnunin, Isafjarðar- bæ. Þetta eru Sjúkraskýlið á Þingeyri, Heilsugæslustöðin Þingeyri, Öldrunarstofnun Önfirðinga, Flateyri, Heilsugæslustöðin á Flateyri, Fjórðungssjúkrahúsið á Isafirði og Heilsugæslustöðin á ísafirði. Ekki er gert ráð fyrir umtalsverðri breytingu á daglegri starfsemi þeirra þjónustueininga sem hér eiga hlut að máli, heldur fyrst og fremst stefnt að stjórnunarlegri hagræðingu og aukinni skilvirkni. Nýr stjórnarformaður er Magdalena Sigurðardóttir. Um áramótin urðu til 17 nýjar stofnanir af þessum toga, t.d. Heilbrigðisstofnunin, Patreks- firði og Heilbrigðisstofnunin, Bolungarvík. Uppkaup á fasteignum á snjóflóða- hættusvæði Umhverfisráðuneytið hefur sam- þykkt að styrkja ísafjarðarbæ til uppkaupa á á fasteignunum Sól- bakka og Sólbakka 6 á Flateyri. Eigandi Sólbakka 6 er reiðubúinn til að selja fasteignina á stað- greiðslumarkaðsvirði en afstaða eiganda Sólbakka liggur ekki fyrir. Bæjarráð hefur einnig samþykkt að ganga til samninga við eigendur fasteignanna Hjallavegur 2, Goða- tún 14, Unnarstígur 6 og Ólafstún 6, 7 og 9 á Flateyri. Allar áður- nefndar fasteignir eru á snjóflóða- hættusvæði. Umfangsmikium snjófióðavörnum hef- ur verið komið upp ofan við Fiateyri en engu að síður hefur reynst þörf á að kaupa upp nokkur hús þar. Rangfærslur, dylgjur og sleggju- dómar Jón Reynir Sigurvinsson, Ragheiður Hákonardóttir, Kristinn Her- mannsson, Magnea Guðmundsdóttir og Eggert Jónsson í fræðslu- nefnd Isafjarðarbæjar hafa Iátið bóka eftirfarandi: „Undirritaðir harma það að núverandi meirihluti varð ekki við beiðni fræðslu- nefndar dags. 25. nóvember sl. um að fresta ákvörðun um valkostþar til skýsla VSÓ um úrbætur í húsnæðismálum Grunnskólans á Isa- fírði hefði verið kynnt fyrir íbúum bæjarfélagins. Núverandi meiri- hluti hefur hvorki rætt né ritað um skýrslu VSÓ og hagstæðustu leið- ina örðuvísi en með rangfærslum, dylgjum og sleggjudómum. Af hálfu núverandi meirihluta hefur hvorki farið fram málefnaleg um- ræða um hagkvæmustu leiðina né haldbær rök verið færð fyrir því hvers vegna þessi leið er talin ófær. Þessi framkoma núverandi meiri- hluta verður ekki skilin á arinan veg en þann að fræðslunefnd, kenn- arar Grunnskólans og bæjarbúar almennt eigi ekki að skipta sér frek- ar af úrbótum í húsnæðismáium Grunnskólans á Isafirði.“ Mál forstöðiunanns Hlífar til rairn- sóknar Mál forstöðukonu Dvalarheimilisins Hlífar er nú til umfjöllunar hjá bæjarlögmanni og líkur á að óskað verði eftir opinberri rannsókn málsins. Forstöðukonan sagði upp störfum eftir að hafa verið ásökuð um að hafa dregið sér fé frá verslun dvalarheimilisins. - GG Sex hásetum á Helgafellinu var sagt upp störfum vegna þess að þeir neituðu að standa vaktir um borð um jólin. Nú hefur fjórum verið boðin vinna. Fjónun boðin vinna Sjómaimafélagið vill að ðlliun sem sagt var upp af Helgafellinu verði boðin vinna „Það hefur fjórum af þeim sex, sem sagt var upp störfum, verið boðin vinna aftur. Eg veit ekki hvað verður en okkur þykir þetta ósanngjarnt og viljum að öllum verði boðin vinna. Ég veit að strákarnir eru á sama máli,“ sagði Jónas Garðarsson, formað- ur Sjómannafélags Reykjavíkur, um stöðuna í máli sex-menning- anna, sem reknir voru af Helga- fellinu milli jóla og nýárs. Hann segist hafa litið á það sem sameiginlegt hagsmunamál Sjómannafélags Reykjavíkur og Samskipa að fá hina dönsku út- gerð Helgafellsins til að ráða alla mennina aftur. „Hins vegar er staða Samskipa þröng þar sem fyrirtækið er að- eins með tvö leiguskip, frá þessu danska fyrirtæki, og síðan eitt skip á ströndinni," sagði Jónas. Hann sagði að málið væri ekki útrætt og að fundur sé boðaður í deilunni, sem forsvarsmenn Sjó- mannafélags Reykjavíkur Iíta mjög alvarlegum augum. - S.DÓR Sameming í A - Húnavatnssýslu Sameiginlegur fundiir 10 sveitarstjórna í Austiir-HiLiiavatns sýslu hefur samþykkt að skoða frekar kosti sameingar sveitarfé- laganna. Boðað hefur verið til fundar 20. janúar nk., en fyrir þann fund eiga sveitarstjórnirnar að hafa tekið afstöðu til þess hvort þær eru reiðubúnar til frekari um- ræðna um sameiningu sveitarfé- laga í héraðinu. Þrátt fyrir það hafa sveitarstjórnir Svínavatns- hrepps, Sveinsstaðahrepps og Bólstaðarhlíðarhrepps þegar lýst því yfir að þær séu ekki fylgjandi sameiningu í Austur-Húnavatns- sýslu að sinni. Eitt sveitarfélaganna, Vind- hælishreppur, telur aðeins 32 íbúa, og verður ekki kosin ný sveitarstjórn í þeim hreppi í vor, áður mun fara fram sameining að boði félagsmálaráðuneytis við annað eða önnur sveitarfélög. Oddvitinn, Jakob H. Guð- mundsson á Arbakka, segir að sameiningarviðræður hafi farið fram í fyrra \dð Engihlíðarhrepp og Skagahrepp en á nýbyrjuðu ári standi þær aðeins yfir við Skagahrepp og verður ramma- samningur Iagður fram á fundi nk. föstudag. Ekki hafi verið grundvöllur fyrir frekari viðræð- um við Engihlíðarhrepp, oddviti þeirra hafi slegið þær af. Vind- hælishreppur og Skagahreppur liggí3 þó ekki saman, á milli kemur Höfðahreppur (Skaga- strönd). Fram til ársins 1939 voru Skagahreppur, Vindhælis- hreppur og Höfðahreppur eitt sveitarfélag. Það ræðst því síðar í mánuðinum hvort sveitarfélög- um í Austur-Húnavatnssýslu fækkar aðeins um eitt fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar, eða hvort sameiningin verður mun víðfeðmari. Sameining austan og vestan við Austur- Húnvetninga, þ.e. í Skagafirði og Vestur-Húnavatnssýslu kann að virka sem hvati á það en einn- ig á það sjónarmið fylgi að rétt sé að bíða og læra af þeirri reynslu sem fæst af áðurnefndum sam- einingum. — GG Meðaltekjur eim hæstar á Vestfjörðum Medal atvimmtekjiir hækkuðu nær þrefalt meira á Austfjörðum en Vestfjörðum árið 1996, þar sem tekjur eru samt ennþá hæst- ar á landinu. Miklu minni hækkun á tekjum sjómanna en Iandkrabba á síð- asta ári er ekki síst um það kennt að atvinnutekjur Vestfirðinga hækkuðu helmingi minna (4,5%) en landsmeðaltal og ein- ungis þriðjung á við tekjur á Austurlandi, sem hækkuðu um 11,5% að meðaltali. Ennþá voru framtaldar meðaltekjur samt hæstar á Vestljörðum árið 1996, rúmlega 150 þús. kr. á mánuði, samkvæmt úrvinnslu Þjóðhags- stofnunar. En Iægstar voru þær hjá grönnum þeirra á Norður- Iandi vestra, um 131 þúsund. Munurinn var rúmlega 14%, eða hátt í 230 þúsund á árinu 1996. Tekjur Vestfirðinga voru nær 7% yfír iandsmeðaltali í fyrra, samanborið við 11% árið áður. Reyknesingar fylgja fast á eftir og rífleg tekjuhækkun á árinu fleytti Austfirðingum 2% yfir landsmeðaltalið. Reykvíkingar eru með atvinnutekjur á lands- meðaltalinu en launþega á Norðurlandi eystra vantar næst- um 7% upp á að ná því. — HEI

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.