Dagur - 08.01.1998, Page 9
8- FIMMTUDAGUR B. JANÚAR 1998
Thypr.
FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1998 - 9
FRÉTTASKÝRING
FRÉTTIR
Sex freista eiidnrkj örs
í tilefni þess að prdf-
kjðr flokkaima og
óháðra sem standa að
Reykj avikur-listanum
í borgarstjóm fer
fram 31. janúar næst-
komandi leitaði Dagur
til þeirra 6 núverandi
borgarfulltrúa sem
gefa kost á sér í próf-
kjörinu. Spumingin
var aðeins ein, hvers
vegna fólk ætti frekar
að kjósa þá en
einhverja aðra í próf-
kjörinu.
Sameiginlegt prófkjör hjá þeim
flokkum og óháðum, sem standa
að Reykjavíkur-listanum við borg-
arstjórnarkosningarnar í vor, fer
fram laugardaginn 31. janúar.
Prófkjör á borð við þetta hefur
aldrei fyrr verið reynt. Hér verður
um að raeða bæði prófkjör innan
hvers flokks fyrir sig en tengist
samt sem sameiginlegt prófkjör.
Hver flokkanna fjögurra, sem
einnig eru með óháða frambjóð-
endur innan sinna vébanda,
mega tilnefna 7 manns í prófkjör-
ið. Þátttakendur í prófkjörinu
eiga að velja einn flokk og síðan
frambjóðendur. Sá flokkur sem
fær flest atkvæði í prófkjörinu
fær fyrsta sætið á listanum og sá
frambjóðandi innan hans sem
fær flest atkvæði hreppir því efsta
sæti Iistans. Og þannig raðast
síðan í Qögur efstu sætin en byrj-
ar þá aftur á þeim sem næst flest
atkvæði hljóta þar til kemur að 8.
sæti R-listans, það sæti á Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir borgar-
stjóri. Hún tekur ekki þátt í próf-
kjörinu en er sjálfskipuð í 8. sæt-
ið eins og síðast.
Eflaust er þessi prófkjörsaðferð
umdeild en margir halda því þó
fram að aðferðin sé í raun sú eina
sem fær sé í prófkjöri, þegar fjór-
ir flokkar standa að lista eins og
R-listanum. Allir sem flokks-
bundnir eru í flokkunum fjórum
og þeir sem Iýsa yfir stuðningi við
R-listann mega taka þátt í próf-
kjörinu.
Allir núverandi borgarfulltrúar
R-listans, nema einn, gefa kost á
sér í prófkjörinu. Guðrún Og-
mundsdóttir úr Kvennalista verð-
ur ekki með og mun útskiptaregla
Kvennalistans spila þar inn í. Nú
sækja margir að sætum þessara 6
sem setið hafa í borgarstjórn á yf-
irstandandi kjörtímabili og gefa
kost á sér áfram. Dagur spurði
sex-menningana hvers vegna
þátttakendur í prófkjörinu ættu
frekar að kjósa þá en aðra sem
gefa kost á sér.
Pétur Jónsson.
Mörgiun verkefnum ólokið
„I fyrsta Iagi er það svo að Reykja-
víkur-Iistinn hefur gert marga
góða hluti og er byrjaður á mörg-
um öðrum sem ekki verður lokið
við fyrr en á næsta kjörtímabili.
Þess vegna þurfum váð, sem setið
höfum fyrir Reykjavíkur-listann,
að fá tfma til að Ijúka þeim.
Af þeim sem hafa boðið sig
fram í prófkjörinu fyrir Alþýðu-
flokkinn er ég í raun sá eini sem
nú þegar hef reynslu af störfum í
borgarstjórn og borgarráði. Þó
ekki væri fyrir annað tel ég að
fólk eigi að kjósa mig umfram
aðra til að ljúka þeim góðu verk-
um sem Reykjavíkurlistinn hefur
byrjað á og Ijúka mun á næsta
kjörtímabili,“ sagði Pétur Jóns-
son, borgarfulltrúi úr Alþýðu-
flokki.
Sigrún Magnúsdóttir.
Stórkostlegir hlutir í
fræðslmnálum
„Ég gef kost á mér áfram af
tveimur ástæðum. I fyrsta Iagi vil
ég að passaður verði áfram sam-
eiginlegur sjóður borgarbúa, jafn
vel og gert hefur verið á Iiðnu
kjörtímabili. Ég treysti okkur hjá
Reykjavfkurlistanum best til að
gera það. I öðru lagi býð ég mig
fram til að ljúka því verki í skóla-
málum, sem hafið var á yfirstand-
andi kjörtímabili, og standa uppi
í lok næsta kjörtímabils með alla
skóla einsetna þar sem vinnu
nemenda Iýkur á milli ldukkan
14.00 til 15.00 á daginn. Þegar
maður hefur hafið eitthvert verk
vill maður af eðlilegum ástæðum
Ijúka því.
Ég hef verið formaður skóla-
málaráðs og tel að þar hafi gerst
stórkostlegir hlutir í fræðslumál-
um borgarinnar. Þeim er ekki öll-
um lokið og verður ekki fyrr en í
lok næsta kjörtímabils þegar
komið verður fram á nýja öld. Þá
verður gaman að standa upp og
hætta, enda draumur hvers
stjórnmálamanns að fá að Ijúka
Borgarstjórnarflokkur Reykjavikuriistans ræður ráðum sinum eftir sigurinn 1994. - mynd: gs
þeim verkum sem hann hefur
byrjað á. Þetta er megin forsend-
an fyrir því að ég gef kost á mér í
prófkjörinu og óska eftir endur-
kjöri,“ sagði Sigrún Magnúsdótt-
ir, borgarfulltrúi úr Framsóknar-
flokki.
Kom með nýja sýn
„Mig langar að fá annað kjör-
tímabil til þess að vinna áfram að
þeim málum sem ég hef hafið í
æskulýðs- og íþróttamálum, sem
og í jafnréttismálum. Og þegar
spurt er hvers vegna fólk ætti
frekar að kjósa mig en aðra þá
bendi ég á að ég tel mig hafa
komið með nýja sýn inn í borgar-
fulltrúahópinn, meðal annars
vegna þess að ég er yngsti borgar-
fulltrúinn. Ég tel að ýmislegt,
sem ég hef verið að gera í mínum
málaflokkum, sé eitthvað sem
menn hafa ekki verið að leiða
hugann að hingað til.
Staðreynd er að með nýju fólki
koma nýir siðir. I æskulýðs- og
íþróttamálum hafa verið reyndar
nýjar Ieiðir. Ég tel að borgarfull-
trúi, sem hefði verið búinn að
sitja lengi, hefði ekki komið með
svo nýjar og ferskar hugmyndir,
sem ég tel mig hafa komið með á
því kjörtímabili sem er að Ijúka.
Ég vona að ég fái að vinna að
þessum málum áfram auk þess
sem ég er með margar nýjar hug-
myndir í handraðanum," sagði
Steinunn V. Óskarsdóttir, borgar-
fulltrúi úr Kvennalista.
Ilöfiim náð ótrúlega mikluiii
árangri
„Nú set ég störf mín að borgar-
málum til margra ára undir mæli-
ker stuðningsmanna Reykjavíkur-
listans og vona að fólk vilji veita
mér stuðning til að starfa að þeim
áfram. Saman höfum við náð
ótrúlegum árangri á fjórum árum
og samstaðan hefur verið okkar
leiðarljós. Það sem er stærst eru
straumhvörfin í þróun leikskóla-
og grunnskólamála.
Það sem mér þykir persónulega
vænst um er ný hugsun sem birt-
ist í nýju aðalskipulagi og unnið
hefur verið eftir í umhverfis- og
umferðarmálum. Jafnvægi á milli
allra þátta umferðar. Nú getur
fólk í stórauknum mæli ferðast
um gangandi og hjólandi og að-
gengismál fatlaðra hafa stórbatn-
að. Ég nefni einnig menningar-
borgina Reykjavík árið 2000.
En e.t.v. þykir mér allra vænst
um að okkur tókst að koma á
hverfamiðstöð f Grafarvogi, sem
er stjórn þess hverfis. Hún er
fyrsta skrefið í að færa völdin úr
Ráðhúsinu út í hverfin til fólks-
ins, beint og milliliðalaust. Síðast
en ekki síst tel ég nauðsynlegt að
tryggja það að Sjálfstæðisflokkur-
inn fái a.m.k. annað tækifæri til
að vera í stjórnarandstöðu," sagði
Guðrún Agústsdóttir, horgarfull-
trúi úr Alþýðubandalaginu.
Guðrún Ágústsdóttir.
Árni Þór Sigurðsson.
MiMl breyting til hins betra
„A yfirstandandi kjörtímabili hef
ég verið í forsvari fyrir nokkra
stóra málaflokka í borgarstjórn,
meðal annars dagvistarmálin, sem
var oddamál Reykjavíkurlistans
fyrir síðustu kosningar. Ég hygg að
flestir séu sammála um að þar hafí
orðið mikil breyting á til hins
betra. Ég tel mig hafa skilað góðu
starfi þar, sem og í hafnarmálum.
Eins hjá Strætisvögnum Reykja-
víkur en ég tók þar við stjórn 1996
af Arthuri Morthens.
Þegar á allt er litið tel ég að störf
mín í borgarstjórn á þessu kjör-
tímabili gefí tilefni til að veita mér
brautargengi áfram í borgarstjórn
Reykjavakur. Ég tel að ég hafi sýnt
að ég á erindi þangað," sagði Arni
Þór Sigurðsson, borgarfulltrúi úr
Alþýðubandalagi.
Alfreð Þorsteinsson.
Bera verk sín undir kjósendur
„Ég svara spurningunni þannig að
fólk sem tekur þátt í prófkjörinu
hefur möguleika á að kjósa fimm
af þeim sem gefa kost á sér en ekki
bara einn.
I prófkjörinu bera borgarfulltrú-
ar, sem gefa kost á sér áfram, verk
sín undir kjósendur. Vonandi hef
ég afrekað eitthvað á kjörtímabil-
inu, sem skilar mér árangri í próf-
kjörinu," sagði Alfreð Þorsteins-
son, borgarfulltrúi úr Framsóknar-
flokki.
Göngubrautir opnar
Enn er ekki nægur skíðasnjór í
Hlíðarfjalli við Akureyri frekar
en á öðrum skíðasvæðum lands-
ins, en hins vegar er nægur snjór
í göngubrautinni, sem nýlega
hefur verið flóðlýst og hún lögð
spori daglega.
Skíðaskólinn fer af stað um
leið og nægjanlegur snjór kemur,
undir slagorðinu: „Það geta allir
lært á skíðum.“ Bílastæðin í
Hlíðarfjalli hafa verið stækkuð
um helming og um miðjan janú-
armánuð kemur nýr troðari á
svæðið. Miklar breytingar verða
á gjaldskrá skíðasvæða á kom-
andi vetri, þ.e. það kostar nú
600 krónur fyrir fullorðna og
300 krónur fyrir börn, burtséð
frá tímalengd. Ekkert kostar í
barnalyftur en 200 krónur fyrir
fullorðna. Vetrarkort kostar
9.000 krónur en 4.500 fyrir
börn, en engir hópafslættir verða
veittir. Opnunartímar verða
rýmkaðir, m.a. meira opið á
kv'öldin.
I Bláfjöllum er nánast enginn
snjór en spáð er kólnandi veðri
og því kann að snjóa þar á næstu
dögum. Nýr troðari er væntan-
legur þangað í upphafi „skíða-
vertíðarinnar", en sá eldri fer á
Hengilssvæðið. Troðarinn af
Hengilssvæðinu fer hins vegar
austur í Vík, þar sem sett hefur
verið upp ný lyfta. Fyrir þá sem
ekki hafa biðlund eftir snjónum
má geta þess að sett hefur verið
upp toglyfta á Snæfellsjökli.
Einar Sveinbjörnsson veður-
fræðingur segir að búast megi
við kólnandi veðri um allt iand
og snjómuggu á Vestfjörðum og
á annesjum Norðurlands. — GG
Gleðilegt
nýtLár
þökkum viðskiptin
á liðnum árum
Við hjá KEA Byggingavörum
höfum á liðnum árum leitast við
að veita viðskiptavinum okkar sem
besta þjónustu með aukinni áherslu
á vöruúrval og gæði.
Við höldum ótrauð áfram á sömu
braut og munum kynna fjölda
nýjunga á þessu ári.
Gerðu þér ferð - þaö borgar sig
Sími: 460 3500