Dagur - 08.01.1998, Page 13

Dagur - 08.01.1998, Page 13
FIMMTUDAGVR 8.JANÚAR 1 998 - 13 ÍÞR Ó T TIR Ásgeir Már á leiðinni til KA Mike Tyson var ekki í neinu jólaskapi, eftir að hafa bitið Evander Hofyfieid, en sá síðarnefndi segist reiðubúinn tii að mæta Tyson að nýju. Ásgeir Már Ásgeirsson, miðvall- arleikmaður Fram í úrvalsdeild- inni í knattspyrnu, hefur í hyggju að ganga til liðs við 1. deildarlið KA. Ásgeir hefur átt í viðræðum við KA-menn að und- anförnu og aðilarnir hafa komist að munnlegu samkomulagi, að- eins á eftir að skrifa undir. Ásgeir Már er 25 ára gamall og vann sér fast sæti í Framliðinu um mitt sl. sumar og hefur leik- ið með því undanfarin ár. Hann hefur hins vegar dvalist í Banda- ríkjunum í vetur, þar sem hann er við nám. Ljóst er að KA-menn ætla sér stóra hluti í 1. deildinni næsta sumar, en fyrr í vikunni gekk knattspyrnudeild félagsins frá samningi við Patrick Fel- Ásgeir Már Ásgeirsson. tendahl, 23 ára gamlan varnar- mann frá sænska liðinu Vester- ás. Svo gæti farið að annar Svíi gangi frá samningi við KA-menn í dag. Sá er framlínumaður og einnig frá Vesterás, en nafn hans fékkst ekki uppgefið í gærdag. Tveir til Everton Tveir af yngri leikmönnum KA- liðsins halda um næstu mánaða- mót til Englands, þar sem þeir munu æfa með varaliði Everton, en vonir standa til að þeir fái einnig að spreyta sig á æfingum aðalliðsins. Þetta eru þeir Atli Þórarinsson og Jóhann Trausta- son, sem báðir hlutu eldskírn sína með meistaraflokki KA í fyrra. Holyfield er tilbúiiiii að slást við Tyson Bandaríski hnefaleikarinn Evander Holyfield, sem er viður- kenndur heimsmeistari af IBF og WBA sambandinu, hefur lýst þ\a' yfir að hann sé tilbúinn til að fara í hringinn að nýju og mæta Mike Tyson, þrátt fyrir að Tyson hafi bitið hluta af eyra hans, þegar þeir áttust við í Las Vegas lokjúní á síðasta ári. „Eg hef fyrirgefið honum og er reiðubúinn til að gefa honum annað tækifæri," sagði Holyfield í spjalli við þýska fréttamenn í vikunni. Flolyfield sagði þó að hann hefði meiri áhuga á að mæta Lennox Lewis, meistara WBC-sambandsins, en með því að sigra Lewis, gætu öll þrjú meistarabeltin verið á einni hendi. Hins vegar hefur gengið illa að fjármagna bardagann því bæði Lennox og Holyfield vilja fá drjúgan skilding í sinn hlut, en búast má við því að það yrði létt verk af fjármagna bardaga á milli Tyson og Holyfield ef þeir mættust að nýju. „Eg hef mun meiri áhuga á að berjast við Lewis og mig langar til að sjá hvor okkar sé sá besti í heiminum. Þriðji bardaginn við Tyson yrði hins vegar einnig gríðarlega stór,“ sagði Holyfield. Til þess að af bardaga Holyfi- eld gegn Tyson geti orðið, þá þarf sá síðarnefndi að fá aflétt keppnisbanni, sem hann var dæmdur í, fyrir að bíta stykki úr eyranu á Holyfield. Tyson var dæmdur í bann í ótiltekinn tíma í júlí sl., en hann getur farið fram á að refsingu sinni verði aflétt í júlí. Ragnar Þór til Vals Ragnar Þór Jónsson, sem verið hefur besti maður Vals á undan- förnum árum, mun reima á sig körfuboltaskóna aftur og leika með Val á næstunni. Ragnar stundar nám í Boston í vetur en er heima í löngu jólafríi um þessar mundir. Eftir að hafa mætt á æfingar hjá Val fyrir jól þar sem hann æfði með Warren Peeples, sagðist hann ekki halda aftur vestur um haf fyrr en hann hefði fengið tækifæri til að leika með þeim manni. Ragnar mun leika með Val á móti Grindavík og Þór og næsta víst er að hann mun styrkja Valsliðið mikið í botnbaráttunni. — GÞÖ I 1 AKUREYRARBÆR Viðtalstímar bæjarfulltrúa Mánudaginn 12. janúar 1998 kl. 20-22 verða bæjarfulltrú- arnir Jakob Björnsson og Heimir Ingimarsson til viðtals á skrifstofu bæjarstjóra að Geislagötu 9, 2. hæð. Bœjarfulltrúarnir munu svara símaviðtölum eftir því sem aðstœður leyfa. Síminn er 462 1000. Veitingahúsið Greifinn óskar eftir framreiðslunemum á Fosshótel KEA. Nánari upplýsingar og umsóknir teknar niður mánudaginn 12. janúar frá kl. 9.00-12.00 á Hótel KEA. Framsóknarflokkurinn Viðtalstímar Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra og Magnús Stefánsson alþingismaður verða til viðtals í Dalabúð í Búðardal fimmtudaginn 8. janúar kl. 17.00-19.00. Allir velkomnir Framsóknarflokkurinn Sýslumaðurinn á Húsavfk Útgarði 1, 641 Húsavík, s. 464 1300 UPPBOÐ Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Útgarði 1, Húsavík, þriðjudaginn 13. janúar 1998 kl. 10.00 á eftirfarandi eignum: Austurvegur 18, Þórshöfn, þingl. eig. Jóna Birna Þóroddsdóttir, Gunnlaugur Snorrason og Þórs- hafnarhreppur, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna. Álftanes, Aðaldælahreppi, þingl. eig. Völundur Hermóðsson, gerðar- beiðendur Kristján Stefánsson, Lögrún sf., Sparisjóður Svarfdæla og Vátryggingfélag íslands hf. Brúnagerði 1, Húsavík (neðri hæð), þingl. eig. Meindýravarrnir íslands ehf., gerðarbeiðandi Iðnlánasjóður. Einarsstaðir, Reykjahreppi, þingl. eig. Páll Helgi J. Buch, Guðrún Benediktsdóttir og Guðný J. Buch, gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins og Stofnlánadeild landbún- aðarins. Garðarsbraut 13, Húsavík (efri hæð og ris), þingl. eig. Svavar Krist- mundsson, gerðarbeiðendur Sam- skip hf., Sýslumaðurinn á Húsavík, Tryggingamiðstöðin hf. og Vátrygg- ingafélag (slands hf. Garðarsbraut 81, Húsavík, íb. 0301 50%, þingl. eig Jónas Sigmarsson, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Húsavík. Hamrar, 2.000 fm. lóð ásamt húsi, Reykjadal, þingl. eig. Valgerður Jónsdóttir, gerðarbeiðandi Sýslu- maðurinn á Húsavík. Smiðjuteigur 7b, Reykjahverfi, þingl. eig. Stöplar hf., gerðarbeið- endur íslandsbanki hf. höfuðst. 500 og Sýslumaðurinn á Húsavík. Stórhóll 77, Húsavík, þingl. eig. Guðrún Sigríður Gunnarsdóttir og Sigurður Helgi lllugason, gerðar- beiðandi Byggingarsjóður verka- manna. Sýslumaðurinn á Húsavík, 7. janúar 1988. Halla Bergþóra Björnsdóttir, ftr.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.