Dagur - 09.01.1998, Blaðsíða 6

Dagur - 09.01.1998, Blaðsíða 6
22-FÖSTUDAGUR 9.JANÚAR 19 9 8 LÍF OG FJÖR Vetrarsport ‘98 Áhugamenn um vetrarferðir og útivist geta glaðst um helgina, þótt lítill sé snjórinn enn sem komið er. í íþróttahöllinni á Akur- eyri verður um helgina stórsýn- ingin Vetrarsport ‘98, þar sem sýndar verða allar helstu nýjung- ar tengdar vetrarferðum. Sýndir verða jeppar, vélsleðar, öryggis- tæki, fatnaður og fleira. Á úti- svæði verður markaður með not- aða vélsleða. Sýningin er opin á laugardag frá 10 -17 og á sunnu- dag frá 13-17. Vínartónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar Dagana 8. og 9. janúar kl. 20 og 10. og 11. janúar kl. 17, verða Vínartónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar haldnir í Háskólabíói. Á efnisskrá er Ijúf og létt Vínar- tónlist eftir Johann Strauss, Franz Lehár, Robert Stolz o.fl. Hin glaðværa Vínarborg hefur verið samnefnari tónlistar, fegurðar og yndis- þokka í hugum Evrópubúa um aldaskeið. Á nítjándu öld voru dansleikir borgar- innar þekktir um alla álfuna og í hugum hinna siðavandari þóttu þeir jafnvel jaðra við léttúð og ósiðsiðsemi. Sólrún Bragadóttir er einsöngvari á tónleikun- um og hljómsveitarstjóri er Mika Eichenholz. Leirhestar Laugardaginn 10. janúar opnar Egill Snæ- björnsson sýningu í Galleríi 20 fm. Opnun- in verður kl. 16 og eru allir boðnir velkomn- ir. Boðið verður upp á veitingar. Gallerí 20 fm. er staðsett í kjallaranum að Vesturgötu 10a. Til að finna galleríið, þurfa gestir að ganga inn lítið sund, niður stiga og til hægri. Sýningin verður opin til sunnudags- ins 25. janúar. Opnunartími er frá miðviku- degi til sunnudags frá kl. 15-18. Verkið Leirhestar er margþætt. Það fjallar fyrst og fremst um amatörisma, í öðru lagi um samvinnu og í þriðja lagi um hesta og leir. Bestu blaðaljósmyndirnar 1997 Blaðamannafélag íslands og Blaðaljósmyndarafélag Islands standa fyrir sýningu á þestu blaðaljósmyndum nýliðins árs í Gerðarsafni í Kópavogi. Sýningin verður opnuð formlega laugar- daginn 10. janúar nk. kl. 14 og þá verða veitt verðlaun fyrir bestu myndir í hverjum efnisflokki og jafnframt útnefnd „Blaðaljósmynd ársins 1997". Alls eru um eitt hundrað Ijósmyndir á sýningunni að þessu sinni sem dómnefnd valdi af þeim nær fimm hundruð myndum sem bárust í keppnina. Efnisflokkar á sýningunni eru: Almennar fréttir, íþróttir, daglegt líf, portrait, myndsyrpur, skop og feature. Sýningin í Gerðarsafni verður opnuð fyrir almenníng kl. 15 á laugardag og verður opin daglega nema á mánudögum fram til 25. janúar. Daisy á nýju ári Á ferð með frú Daisy eftir Alfred Uhry er jólaleikrit Leikfélags Akureyrar og verður fyrsta sýningin á nýju ári á laugardagskvöld á Renniverkstæðinu við Strandgötu. í leikritinu segir frá Daisy Werthan, bandarískri konu af gyðingaættum og samskiptum hennar við þeldökkan bílstjóra sinn. Það eru þau Sigurveig Jónsdóttir og Þráinn Karlsson sem fara með aðalhlutverkin í sýningunni. Líkamsnánd á Kjarvalsstöðum Líkamsnánd er heiti sýningar á norrænni samtímalist sem opnuð verður á Kjar- valsstöðum laugardaginn 10. janúar. Á sýningunni eru verk eftir ýmsa viður- kennda norræna listamenn sem eiga það sameiginlegt að hafa fengist við mannslíkamann sem tjáningartæki, benda á hvernig hann kemur upp um bælingar okkar, fjalla um hann sem sam- safn einstakra líkamshluta og nota hans sem tákna. Á meðal þeirra sem eiga verk á sýning- unni eru: Peter Bonde og Cristian Lemmerz frá Danmörku, Elin Wikström og Lars Hammarström frá Svíþjóð, llkka Sariola, Satu Kiljunen, Olli Summanen og Philip von Knorring frá Finnlandi og Marianne Heske frá Noregi. íslensku þátttakendurnir í sýningunni eru Þorvald- ur Þorsteinsson, Helgi Þorgils Friðjóns- son, Hulda Hákon, Daði Guðbjörnsson og Birgir Snæbjörn Birgisson. Sýningin verður opin frá 10. janúar til 1. mars 1998. mælir með... ... Heita matnum í matvörubúðinni í Mjóddinni. Þarna eru úrvals steikur, fiskur og kjöt, frábær matur. ... Bókinni um Einar Ben. Allir eru að tala um hana, allir eru að lesa hana, ef þú ert ekki nú þegar í þeim hópi þarftu að verða það svo þú sért viðræðuhæf/ur. Helgin er góð til að byrja! ... Kokkabók Sigga Hall sem kom út hjá Stöð 2 fyrir jól og seld er í Sjónvarpskringlunni. Frábær kokkabók fyrir þá sem vilja prófa létta og góða rétti - nú eða halda veislu. Þetta er auðveld og góð matreiðslubók. ... ferð í sundlaugarnar í kvöld og þá sérstaklega í gufuna. Hitinn tekur streituna úr líkamanum og hressir andann. Góður sundsprettur í köldu vatninu teygir vel á öllum vöðvum. Ómetanlegt að byrja helgina í sundi. Þá nýtist tíminn svo vel um helgina. NORDURLAND Pollurinn Akureyri Nú um helgina mun hljómsveitin SÍN leika á veitingastaðnum „Við Pollinn" á Akureyri. Hljómsveitin leikur létta tónlist sem allir geta sveifiað tánum með. HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Listasafn Kópavogs •Mánudaginn 12. janúar hefst síðari hluti tónleikaraðar þessa vetrar í Listasafni Kópavogs. Sópransöng- konan Auður Gunnarsdóttir og Jónas Ingimundarson píanóleikari eru með alíslenska efnisskrá á þess- um tónleikum, lög eftir nokkra af okkar fremstu tónskáldum. Vin, athvarf Rauöa kross íslands Rauði kross (slands hefur rekið Vin, athvarf fyrir geðfatlaða í tæp 5 ár á Hverfisgötu 47. Athvarfið er opið virka daga frá kl. 9.30-16.30 og býð- ur gestum upp á margvíslega þjón- ustu og stuðning. Hópur gesta vinn- ur að myndlist og kallar sig listaaka- demíu Vinjar. Þau opna myndlista- sýningu á verkum sínum í Ráðhúsi Reykjavíkur, föstudaginn 9. janúar kl. 15. Sýningin stendurtil 20. janúar. Hitt húsiö í tilefni afhendingar íslensku tónlist- arverðlaunanna 1998 var efnt til verðlaunasamkeppni um hönnun á verðlaunagrip. Verðlaunin eru 250.000 kr. sem Landsbanki Islands veitir. Fjöldi skemmtilegra tillagna hefur nú borist og verður opnuð sýn- ing á þeim í Gallerí Geysi, Hinu hús- inu við Ingólfstorg, laugardaginn 10. jan. kl. 16. Verður dómnefnd þá búin að kveða upp úrskurð sinn og við- komandi listamanni veitt vinnings- upphæðin væna. Þar sem þátttak- endur senda inn tillögur sínar undir dulnefni og þeirra rétta nafn er í lok- HVAÐ ER A SEYÐI uðum umslögum, sem verða ekki opnuð fyrr en við verðlaunaafnhend- inguna, verður ekki hægt að hafa samband við þáttakendur fyrir opn- un sýningarinnar og eru þvi hér með hvattir til að mæta á opnunina. Jónas Viöar sýnir í Gailerí Fold Laugardaginn 10. jan. kl. 15. opnar Jónas Viðar Sveinsson sýningu á olíumálverkum í baksal Gallerís Foldar við Rauðarárstíg. Sýninguna nefnir listamaðurinn ÍMYNDIR. Hún stendur til 25. janúar. Gallerí Fold er opið daglega frá kl. 10 - 18, laugardaga frá kl. 10-17 og sunnudaga frá kl. 14-17. Kínaklúbbur Unnar Kynning á ferð til Kína 15. mai - 5. júní verður haldin á veitingahúsiriu Sjanghæ, Laugavegi 28, sunnudag- inn 11. janúar kl. 19. Félag eldri borgara Félagsvist í Risinu kl. 14 i dag, allir velkomnir. Göngu Hrólfar fara í venjubundna göngu um borgina kl. 10 á laugardag, frá Risinu. Lögfræð- ingurinn er til viðtals á þriðjudag, panta þarf tíma á skrifstofu félags- ins, síma 552 8812. Nýlistasafniö Laugardaginn 10. janúar verða nokkrar sýningar opnaðar. Pálína Guðmundsdóttir sýnir nýleg málverk í forsal. Hildur Bjarnadóttir sýnir verk unnin í textil og Einar Garibaldi Eiríksson sýnir nýleg landslagsmálverk í Súm- sal. Sýningarnar eru opnar daglega nema mánudaga frá kl. 14 -18 og þeim lýkur 25. janúar.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.