Dagur - 09.01.1998, Blaðsíða 11
Xfc^UT'
FÖSTUDAGUR 9 . JANÚAR 199 8 - 27
LÍFIÐ í LANDINU
;-v: SPJALL ' -j K , , -■ fFFl
™ " jjí'l
„Nýsköpunar- sjóðurEyjafjarð- arverðurstofn- aðurá næstunni y :: -'
ogstefntaðþví v: W
að hlutafé hans
verði um einn 4 | jj gjj|i WfmÉÉ j 1
milljarður
króna. “ :
Hákon Hákonarson, formaður atvinnumálanefndar Akureyrar.
Milljaröur er
draumastaðan
Þessa frétt mátti lesa í Degi
þann 7. jan. og í tilefni hennar
var rætt við Hákon Hákonarson,
formann atvinnumálanefndar
Akureyrar og stjórnarmann í
Iðnþróunarfélaginu.
„Eg vil taka það fram af marg-
gefnu tilefni, að það eru sveita-
stjórnirnar sem taka ákvörðun
um það hversu mikið hlutafé
verður lagt í þetta fyrirtæki, ef
af því verður. Iðnþróunarfélagið
hefur verið að gera marga góða
hluti á undanförnum árum, en
okkur fannst, nokkrum í stjórn-
inni, að það væri kominn tími til
að setjast niður og horfa til
framtíðarinnar,“ segir Hákon
Hákonarson.
„I gamla Dagshúsinu eru sam-
ankomnar fjórar ágætar stofnan-
ir sem vinna að atvinnumálum
og þar er mikið af góðu og vel
menntuðu fólki. Meðal annars
með tilliti til þess, fannst okkur
Atvinnuástand hér
hefurbatnað verulega.
nauðsynlegt að endurskoða
stefnumörkun Iðnþróunarfé-
lagsins og í framhaldi af því var
sett á stofn nefnd, sem skilaði
svo tillögum sínum."
Öflugur atvinuumálasjóður
Niðurstaða úr vinnu nefndar-
innar var í stuttu máli sú, að
settur yrði á stofn öflugur at-
vi n n u m á 1 a sj ó ð u r, hvað hann
héti skipti ekki máli, en að hann
fengi talsvert fé til umráða. Fé
sem hægt væri að ráðstafa til
áhættufjárfestingar og tilrauna-
verkefna ýmiskonar í atvinnu-
þróun.
„Það væri draumastaða ef
slikur sjóður hefði yfir að ráða
milljarði í eigin fé, en það verð-
ur að sjá hvað setur. Ef menn
vilja gera þetta „grand“ og fylgja
eftir þeim hugmyndum sem eru
í stjórn Iðnþróunarfélagsins og
ég tel að séu í stjórn atvinnu-
málanefndar lfka, þá þurfum við
Akureyringar að leggja í þetta
verulegt fé. Við erum hlutfalls-
lega stærstir í félaginu, um 70%
af því og það skiptir verulegu
máli hvernig bæjarstjórnin hér á
Akureyri tekur á málinu, hvort
hún samþykkir þessar tillögur
eða breytir þeim eitthvað. En
meginmarkmiðið er að auka at-
vinnu á Akureyri og í Eyjafirði
og menn eru að horfa til þess
að laða hingað bæði íslenska og
erlenda atvinnustarfsemi. At-
vinnuástand hér hefur batnað
verulega og það er fjarri því að
hér sé eitthvert neyðarástand,
en mér finnst sjálfum að allar
vinnufúsar hendur eigi að geta
haft starf," segir Hákon að lok-
Þjóðhátíðarsteimnmng í hléi
Gleðilegt nýtt bíóár. Ég er mætt-
ur. Myndin sem ég sá þessa vik-
una hefur góða tónlist, frábæran
leik, fallega ástarsenu, ótrúlega
vel gerða leikmynd, frábært hand-
rit, ástarþríhyrning, vonda karl-
inn, góða karlinn, kaldan húmor,
góðan húmor, væmni. Hún er
Iöng, en mér leið ekki eins og
hún væri löng (þarf að skýra það
eitthvað frekar), sýndi okkur enn
og aftur að peningar eru ekki allt
(ég veit allt um það), er hreint
frábær, kom mér skemmtilega á
óvart, meistaraverk.
Þetta er myndin Titanic. Sýnd
í Borgarbíói á Akureyri þar sem
röð er út að dyrum kvöld eftir
kvöld. Búið að vera uppselt frá
fyrsta sýningardegi. Biðröð á sal-
erni í hléi (eins og á góðri þjóð-
hátíð). Heilu saumaklúbbarnir
koma saman á myndina. Fólk
sem sá Dansar við úlfa síðast í
kvikmyndahúsi kemur á Titanic
(sbr. gamall blaðamaður í hett-
unni).
Ég verð að viðurkenna að ég
vissi lítið annað en að Titanic
væri dýrasta mynd sem gerð hef-
ur verið til þessa áður en ég sá
hana. Svo bjóst ég við allt öðru
frá Ieikstjóranum James Camer-
on. Myndin er snilld. Ég fékk á
tilfinninguna að ég væri einn af
farþegunum í þessu sögulega
skipi Titanic (á þriðja farrými).
Myndin náði ótrúlegum tökum á
áhorfandanum. TroðfuIIt Borg-
arbíó og allir mjög sáttir að mér
virtist. Annað er ekki hægt. Auð-
vitað var ástin og afbrýðissemin
í aðalhlutverkum. Ég veit að það
er ekkert nýtt í kvikmyndum. En
hvernig það allt var fléttað sam-
an í aðdragandanum að þessu
hrikalegasta sjóslysi sögunnar
var hrein snilld. Þetta er mynd
sem var löng í mínútum talið en
aldrei Ieiddist manni.
Leikmyndin er hrikaleg. Ótrú-
lega trúverðug. Endalok þessa
magnaða skips eru svo vel gerð í
myndinni að manni virtist að ver-
ið væri að sýna heimildarmynd.
Kaldur veruleikinn þegar Titanic
er að sökkva náði allri minni at-
hygli. Leikurinn náði algjöru há-
marki og var mjög sannfærandi.
Það er erfitt að setja sig í spor
fólks sem lendir í slíkum hörm-
ungum eins og stærsta sjóslys
sögunnar var. En leikstjórinn nær
beint inn að hjarta áhorfandans
og samúðin er mikil.
ÞM miður hef ég ekki kynnt
mér sögulegar staðreyndir um
Titanic-slysið út í ystu æsar. En
það er ekki óvitlaust að þeir sem
eiga eftir að sjá myndina gerðu
það svona rétt til að fræðast
meira. Sögulegar staðreyndir og
skáldsagan í myndinni trufla
hvort annað neitt. Þetta er
hreint frábær blanda.
SMáTTOGSTÖRT
Sir Ómar
Sjaldan eru menn sammála um hverjir séu verð-
ugir þegar kemur að orðuveitingum forseta Is-
lands á hátíðarstundum. Sennilega eru þó flestir
sammála um að
Ómar Ragnarsson,
skemmtikraftur,
textasmiður, þátta-
gerðarmaður o.fl. hafi átt orðuna,
sem hann fékk um áramótin, skilið.
Hann hefði getað fengið hana hvort
heldur er fyrir að skemmta þjóðinni
í 40 ár, eða hina stórkostlegu þátta-
gerð sína í sjónvarpi. Gárungar eru
samt uppi með skemmtileg heit
vegna orðuveitingarinnar og kalla
Ómar nú sín í milli Sir Ómar Ragn-
arsson.
Samviskubitið
Kolbrún Bergþórsdóttir er sann-
trúaðasti krati sem uppi hefur ver-
ið á þessu Iandi. Hennar menn í
pólitíkinni hafa um árabil verið
þeir Jón Baldvin Hannibalsson og
Össur Skarphéðinsson. Hún hafði
uppi mynd af þeim félögum þegar
hún vann á Alþýðublaðinu og tók
síðan myndina með sér þegar hún
hóf störf á Degi. Hún bað þá fé-
laga að árita fyrir sig myndina.
Össur skrifaði: Til Kolbrúnar,
sannrar samvisku Alþýðuflokksins. Astarkveðja Össur. Síðan var
skorað á Jón Baldvin að gera betur í sinni áritun. Hann skrifaði:
Til Kollu, ævarandi samviskubits Alþýðuflokksins. Astarkveðja
Jón Baldvin.
Vegna flokksms
Við sögðum á dögunum frá yrkingum
á Alþingi millum þeirra séra Hjálm-
ars Jónssonar og Guðrúnar Helga-
dóttur. En það hafa fleiri en séra
Hjálmar ort um Guðrúnu. Þeirra á
meðal snillingurinn Stefán Jónsson
meðan hann var samþingsmaður
Guðrúnar. Hann var þingmaður Al-
þýðubandalagsins eins og Guðrún og
þótti Stefáni hún stundum fyrirferð-
armikil á þingflokksfundum enda
aldrei logn í kringum Guðrúnu
Helgadóttur. Eitt sinn fór Guðrún til útlanda á vegum þingsins
og dvaldi þar nokkurn tíma. Stefáni líkaði vel kyrrðin í þing-
flokksherberginu eftir að Guðrún var farin út og orti:
Það er lán í sjálfu sér,
sérlega vegna flokksins,
að Guðrtín Helga. okkar er
annarsstaðar, loksins.
Kynferðisleg áreitni
I Urvali eru skemmtilegir fróðleiksmolar um salt. Þar segir að fá
efni taki salti fram hvað hjátrú varðar. Salt rotnar ekki og ver
önnur efni rotnun. Þess vegna er það oft látið tákna eilífðina.
Salt var áður fyrr torfengið og dýrmætt og því var komið á þeirri
trú að hver sá sem léti salt fara til spillis ætti eftir að gráta eitt
tár fyrir hvert saltkorn sem hann glataði. En til þess að illspá
rætist ekki á sá sem fyrir spánni verður að taka fáein saltkorn
milli fingra sér og fleygja yfir vinstri öxlina því þar situr Andskot-
inn, sem þá fær saltið í augun og getur ekki staðið í því að láta
illspána rætast meðan hann er að gráta það úr sér. I Egyptalandi
hinu forna var salt talið ör\'a lynhvötina og því var dónaskapur
að bjóða dyggðum prýddum konum salt. Það leiddi til þess að
hver maður, karlkyns eða kvenkyns, átti sinn saltstauk svo engin
hætta væri á að menn væru að ósekju sakaðir um kynferðislega
áreitni við konur með því að rétta þeim saltið.
Grái kötturiim
Steingrímur J. Sigurðsson alþingismaður stóð upp á þingi rétt
fyrir jólaleyfi þingmanna og skammaði Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra fyrir að vera að lesa upp á pöbbnum Gráa kettinum á
sama tíma og atkvæðagreiðsla stóð yfir um fjárlögin á Alþingi.
Forsætisráðherra reiddist athugasemdinni en lofaði þó bót og
betrun. I tilefni þessa orti Sigurður Óskar Pálsson fyrrum kenn-
ari:
Þjóðföður ei þola má
þingstöifum að gleyma,
þótt skemmti góðum gestum á
gráa kettinum breima.
UMSJÓN
Sigurdór
Sigurdórsson