Dagur - 09.01.1998, Blaðsíða 10
26 - FÖ STUDAGUR 9.JANÚAR 1998
LÍFIÐ í LANDINU
Missum ekki
j ólasveininn
og Vínlands-
farana
Um áramót er gott að
líta um öxl og spá í
spilin. Athuga hvernig
kortin voru gefín á iíð-
andi ári og hvort stokka
þurfi spilin og gefa upp
á nýtt. Fljótt á litið eru
Islendingar að spila af
sér á tveim borðum að
minnsta kosti. Finnar
eru búnir að stela jóla-
sveininum og þúsund ára afmæli Vín-
landsferða er um það bil að ganga ís-
Iendingum úr greipum. Islendingar
geta haft rífandi tekjur af Jólasveinin-
um ef rétt er á spilum haldið og nú
verður að verja ríkisfang Sveinka. Til að
byrja með þarf að reisa myndarlegt
verkstæði og heimili handa stórfjöl-
skyldu Jólasveinsins áfast flugstöð Leifs
Eiríkssonar svo erlendir sem innlendir
biðfarþegar geti eytt þar tímanum. Gott
er að reisa manmirkin um leið og flug-
stöðinni er breytt vegna Schengen sam-
komulags um ytri Iandamæri Evrópu og
þau verði söm að gæðum og mannvirk-
in í Disneylandi.
Aðstaðan verði svo leigð einstakling-
um undir hvers konar rekstur sem teng-
ist jólunum beint eða óbeint og opið
allt árið: Verkstæði, verslanir, veitinga-
sala, minjagripir, fslenska hestinn, jafn-
vel ódýrt jólasveinahótel og annað sem
andríku fólki dettur í hug. Leigunni
verður að stilla í hóf svo rekstur beri sig
enda skilar höfuðstóllinn sér í ríkiskass-
ann eftir öðrum leiðum. Ríkið verður
að eiga mannvirki, vörumerki og önnur
réttindi til að rekstur stöðvist ekki eða
réttindi verði seld úr landi.
Vekja þarf athygli heimsbyggðarinnar
á Iögheimili Jólasveinsins með hvers
konar samvinnu \ið flugfélög og ferða-
þjónustu, framleiðendur leikfanga og
annarrar söluvöru, skemmtigarða í öðr-
um löndum, á veraldarvefnum og eftir
öðrum leiðum. Ef vel gengur draga
Jólasveinaheimarnir fljótt að gesti til
Iandsins upp á eigin spýtur.
Vínlandsferðir þola enga bið og verð-
ur að setja vinnuhópa strax af stað til að
samræma dagskrána og koma öllum
framkvæmdum undir einn hatt. Ilraða
verður að endurbyggja fæðingarbæ
Leifs Eiríkssonar í Dölum og þá er
kominn maklegur staður til að beina
ferðafólki. Gömlu Vínlandsfararnir voru
landkönnuðir en þó fyrst og fremst sjó-
menn og verslunarmenn og því er rétt
að samtök sjómanna og verslunar- og
viðskipta taki þátt í afmælinu. Vín-
landsferðir eru ekki bara íslensk afrek
heldur Iíka sameiginlegur arfur Norður
Evrópu.
Strax má breyta biðsalnum í flugstöð
Leifs Eiríkssonar í eina allsherjar Vín-
landsstofu og bjóða upp á efni til kynn-
ingar og sölu. Enginn farþegi má sleppa
um Keflavíkurvölí án þess að vita und-
an og ofan um ferðir Islendinganna fyr-
ir þúsund árum. Kólumbus er maður-
inn sem fann ekki Ameríku.
Jólasveinninn og Vínlandsfararnir
eru íslenskar þjóðargersemar og ekkert
má til spara að halda ríkisfangi þeirra.
Farsælt komandi árl
Efsti hluti brúðartertu (í mörg-
um enskumælandi löndum)
heitir kaka brúðgumans og er
yfirleitt ávaxtakaka til þess að hún
geymist fram að fyrsta brúðkaupsaf-
mælinu, en þá á að borða hana.
Wilhelm II, Þýskalandskeisari var með
visinn handlegg, og leyndi því með því
að hafa höndina á sverðinu eða halda
á hönskum.
A Galapagoseyjum er skjaldbökuteg-
und sem hefur upplyfta skelina að
framanverðu svo hún eigi auðveldara
með að lyfta höfðinu og borða kaktus-
greinar.
Stefánsdóttir
skrifar
•Ríkin Tennessee og Missouri eru
umkringd fleiri ríkjum en nokkur
önnur. Að Tennessee liggja Kent-
ucky, Missouri, Arkansas, Mississippi,
Alabama, Georgia, Norður Karolína og
Virginia. Að Missouri liggja Iowa,
Nebraska, Kansas, Oklahoma,
Arkansas, Tennesee, Kentucky og Illin-
ois.
I enskri tungu eru sex orð þar sem tvö
u koma fyrir saman. Þau eru:
Muumuu, vacuum, continuum, duum-
virate, duum\dr og residuum.
HVAÐ A E G A Ð GERA
Vandræðaleg staða
Sæl Vigdís.
Astæðan fyrir því að ég hef samband
við þig er sú að ég er í heldur vandræða-
legri stöðu. Þannig er, að ég sendi auglýs-
ingu í einkamáladálk ónefnds dagblaðs og
fékk nokkur svör. Einn þeirra sem svaraði
reyndist vera alveg yndislegur maður og
nú erum \að saman. En ég skammaðist
mín fyrir að hafa verið svo örvæntingar-
full að nota einkamáladálka, svo að ég
sagði vinum mínum að ég hefði hitt hann
á blindu stefnumóti sem vinkona mín
hefði sett upp fyrir mig. Og svo beit ég
höfuðið af skömminni með því að segja
ættingjunum að ég hefði hitt hann í vinn-
unni. Nú líður mér illa yfir því að hafa
skrökvað, fyrir utan hvað það væri vand-
ræðalegt ef það kæmist upp.
Gott að þú skulir sjá að þér, þó ekki sé
nema vegna þess hve óþægilegt er að
Iáta standa sig að því að skrökva. Þó
það sé óþægilegt, þá er sennilegt best
fyrir þig að tala við þá sem þú
skrökvaðir að og segja satt. Það er eins
og að fara til tannlæknis, maður kvíðir
því oft mikið en svo er það ekkert vont.
Það er engin skömm að því að kynnast
fólki í gegnum einkamáladálka, það
gera margir og vertu endilega ekki að
biðjast afsökunar á því.
Vigdís svarar í símaun!
Ertu með ráð, þarftu að spyrja,
viltu gefa eða skipta?
Vigdís svarar í símann kl. 9-12.
Síminn er 563 1626 (beint)
eða 800 7080
Póstfang: Þverholt 11 Rvk.
eða Strandgata 31 Ak.
Netfang: ritstjori@dagur.is
Grænt er gott!
Flestir hafa heyrt eitthvað um húsasótt
og þau vandamál sem skapast af henni.
NASA, geimferðastofnun Bandarfkjanna,
hefur undanfarin tvö ár rannsakað nýjar
leiðir til að laga húsasótt og eins og svo
oft vill verða, þá er Iausnin afar einföld.
Stofujurtir. Venjulegar grænar stofujurtir,
svo sem Gerbera, lilja, bergflétta, presta-
fífill og fleiri reyndust taka til sín ýmis
eiturefni í talsverðum mæli. Þetta hefur
verið rannsakað kerfisbundið með því að
setja hverja plöntu fyrir sig í glerbúr og
dæla inn ákveðnum skammti af viðkom-
andi efni. Eftir nokkurn tíma var svo
magn efnisins mælt aftur í andrúmsloft-
inu og það kom í ljós að það hafði minnk-
að umtalsvert. Þau efni sem helst hafa
verið rannsökuð eru Benzene, sem m.a.
ertir augu og húð, formalín, sem ertir
slímhúð augna, nefs og háls og tríklóríð.
Þegar svo geimfarar fara að ferðast
Iangar vegalengdir í geimnum og settar
verða upp geimstöðvar með varanlegum
bústöðum manna, þá má búast við því að
plöntur verði notaðar þar í miklum mæli
til að halda loftinu hreinu og súrefnis-
ríku. En þangað til getur mannfólkið ein-
faldlega ræktað garðinn sinn og reynt að
hafa mikið af plöntum heima hjá sér til
að minnka mengun.
Lesandi hringdi og kvaðst
sakna mjög rakspíra sem
hann hefði notað um árabil
en fengi ekki lengur. Hann
vildi vita hvort það væri möguleiki á því
að finna út hvort þessi rakspíri kæmi til
með að fást hér aftur.
Hann heitir Noxima og er frá Proctor
og Gamble.
Dagur hafði samband \áð íslensk Am-
eríska verslunarfélagið, sem er umboðs-
aðili Proctor & Gamble og fékk þær
upplýsingar að ekki væri á döfinni að
flytja inn þennan ákveðna rakspíra, m.a.
vegna óhagstæðra tolla.
Þannig að viðkomandi lesandi og aðr-
ir sem vilja nota þennan rakspíra, fá
hann ekki hérlendis á næstunni a.m.k.