Dagur - 10.01.1998, Side 16
32 - LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 1998
LÍFIÐ í LANDINU
Gunnar Sverrisson
Pistilhöfundur er
einn af þeim sem
liggur löngum
fyrir framan
sjónvarpið þegar
beinar útsend-
ingar eru frá
enska boltanum,
í stað þess að
ryksuga og
þurrka af og
sinna makanum í framhjá-
hlaupi, eins og allt siðmenntað
fólk gerir auðvitað á kvöldum og
um helgar. Því fer ekki hjá því
að „Guðjónarnir bak við tjöldin",
fótboltalýsingameistararnir séu
orðnir góðkunningjar manns og
heimilisvinir, þó konan hafi á
þeim illan bifur.
Þegar þessir snillingar eru að
lýsa erlendum leikjum, þá fáum
við ekki einungis umfjöllum um
það sem er að gerast á vellinum,
heldur einnig greinargóðar upp-
lýsingar um ætterni leikmanna,
áhugamál, hjúskaparstöðu þeirra
og annað smálegt, þannig að við
veréum gjörkunnug persónuleg-
Jófiannes
Sigunjónsson
skrifar
um högum þessara manna og er
auðvitað gaman og forvitnilegt.
Veljum íslenskf!
En hversvegna fáum við ekki
svona upplýsingar þegar verið er
að Iýsa íslenskum leikjum?
Óvíða er áhugi á ættfræði meiri
en á Islandi og forvitni um hagi
náungans. En þegar t.d. Valur
eða KR eru í beinni í sjónvarp-
inu, þá er ekkert minnst á
einkalíf leikmanna, og þeir
verða okkur því jafnvel fjarlæg-
ari en bresku strákarnir og við
vitum miklu minna um okkar
stráka en Bretana. Sennilega
álíta íþróttafréttamenn að hér
þekki hvort sem er allir alla og
því óþarfi að kynna íslenska leik-
menn eins náið og enska. En
óskaplega væri nú gaman ef við
fengjum að heyra í sjónvarpinu
annað veifið Iýsingu á borð við
eftirfarandi af íslenskum fót-
boltaleik:
Hitler litli
„Samúel markvörður - en faðir
hans er pfpulagningmaður og
nýskilinn við eiginkonu sína til
margra ára, móður Samúels -
hendir boltanum út til hægri og
þar tekur Bjarni bakvörður við
honum - en faðir Bjarna var
Iengi starfsmaður hjá Eimskip
og er af Þúfnavallaætt - og
Bjarni brýst upp kantinn fram
hjá Snorra - en Snorri fékk
haustið 1992 einkunnina 7,3 á
miðsvetrarprófi í landafræði f
Miðbæjarskólanum - og boltinn
hrekkur af Snorra og út af.
Ingólfur - sem var tekinn ölvað-
ur undir stýri í Borgarnesi í
febrúar s.l. - tekur innkastið og
kastar beint inn á miðjuna til
Valtýs - en Valtýr er lærður tré-
smiður og missti löngutöng
hægri handar í hjólsög í fyrravor
þegar hann kom timbraður í
vinnuna og ekki tókst að græða
puttann á aftur - og Valtýr skall-
ar boltann áfram á Adolf - en
Adolf er nokkuð uppstökkur
leikmaður sem sálfræðingar
rekja til þess að hann var alltaf
uppnefndur Hitler litli í barna-
skólanum - og Adolf nikkar bolt-
anum inn á Arnar.
Einkíilífið inna n vallar
En Arnar vann um árabil í
snyrtivöruverslun í sinni heima-
byggð - og tekur nú á rás upp
miðjuna - en hann las Basil
fursta í æsku - og hann Ieikur
nú á mann og nálgast markið og
býr sig undir að skjóta - en Arn-
ar er að langfeðgatali kominn af
traustum sjómönnum í Hrísey
og gildum bændum í Gull-
bringusýslu - og hann lætur nú
vaða á markið - en Arnar þykir
hagyrðingur góður og vann m.a.
þriðju verðlaun í vísnasam-
keppni útvarps Austurlands þeg-
ar hann var í menntaskóla og
hann var þá trúlofaður
Dórótheu Dýrleifsdóttur sem nú
starfar sem kjarneðlisfræðingur í
Californíu, en það slitnaði upp
úr sambandi þeirra þegar Arnar
hélt drukkinn framhjá henni
með Bergdísi Sveindóttur frá
Dratthalastöðum, og til gamans
má geta þess að Bergdís er nú
reyndar gift Geir Magnússyni,
vinstri útherja Vals, en Valur á
einmitt að spila í beinni útsend-
ingu hjá okkur eftir hálfan mán-
uð.
Veriði sæl!
Já, Já. Góðir áhorfendur. Meðan
ég var að koma þessum grund-
vallarupplýsingum á framfæri
þá, eins og þið sáuð, skoraði
Arnar. Og bann bætti við öðru
marki skömmu síðar og rétt fyr-
ir leikslok skoraði Bjarni þriðja
markið. Og ég veit að þetta fór
ekki framhjá ykkur því þetta
gerðist allt saman fyrir framan
nefið á ykkur á skjánum, þannig
að þið bljótið að hafa séð þetta
allt saman og óþarfi að vera
nokkuð að lýsa því. Og eins og
þið sjáið er leiknum nú löngu
lokið og leikmenn farnir heim
og við biðjumst afsökunar á því
að aðrir dagskrárliðir hafa færst
aftur um 2 klukkutima og fréttir
heljast því ekki fyrr en kl. hálf