Dagur - 03.02.1998, Qupperneq 1

Dagur - 03.02.1998, Qupperneq 1
I i- 81. og 82. árgangur - 22. tölublað Léttvín og bjór lækka í verði en sterkt hækkar Verð á léttum víiiiim mun lækka en verð á sterku áfengi hækkar ef stjómarfmmvörp sem em á lokastigi verða samþykkt. Nýtt vímuefnavamarráð í landinu á að taka við hlutverki þeirra sem fyrir em. Gera má ráð fyrir að ríkisstjórnin afgreiði á fundi sínum í dag laga- frumvörp sem snerta verðlagn- ingu á víni, bjór og áfengi í versl- unum ATVR og nýtt vímuefna- varnarráð, sem koma á í stað Afengisvarnarráðs og tóbaks- varnaráðs. Verðlagningu á áfengum drykkjum verður ger- breytt frá því sem nú er. Nú eru áfengir drykkir, sem seldir eru í verslunum ATVR, verðlagðir eftir innihaldi alkó- hólmagns þeirra en að mjög litlu leyti eftir gæðum. Á þessu á að verða breyting, að sögn Friðriks Sophussonar fjármálaráðherra. Gert er ráð fyrir þremur óskyld- um verðflokkum bjórs, víns og eimaðs áfengis. Þetta mun þýða að rauðvín, hvítvín og rósavín mun lækka í verði sem og bjór en áfengi eins og vodka, gin og wisky, svo dæmi séu tekin, hækka í verði. Þessi nýja aðferð við verðlagn- ingu þýðir í raun að hægt verður að hækka eina tegund en láta hinar óhreyfðar en það hefur ekki verið gert í meira en áratug. Verslunarráð Islands hefur sótt nokkuð stíft að leyft verði að selja bjór og vín í matvöruversl- unum og vilji er fyrir þ\T meðal margra sjálfstæðismanna að svo verði gert. Aftur á móti er and- staða við það meðal þingmanna Framsóknarflokksins en þó i munu nokkrir þeirra vera málinu hlynntir. Andstaðan er enn hins vegar það mikil innan Framsókn- arflokksins að ljóst þykir að , breytingar af þessu tagi verða í ekki gerðar að sinni. < Lög um vímuvarnarráð eins og 1 Áfengisvarnarráð og Tóbaks- varnaráð eru orðin gömul og sögð vera börn sfns tíma. Þess , vegna hefur verið ákveðið að leggja fram lagafrumvarp um nýtt vímuefnavarnarráð sem tek- ur við hlutverki þeirra sem og öllum öðrum vímuefnavörnum í landinu. I tengslum við þessi Iagafrum- vörp þarf að breyta fleiri lögum og er það á vegum dómsmála- 1 ráðuneytisins. Samkvæmt heim- ildum Dags er stefnt að því að af- greiða þessi lagafrumvörp frá ríkisstjórninni á ríkisstjórnar- fundi í dag. — S.DÓR Spurtiun fleminál Þorsteinn Pálsson dómsmálaráð- herra sagði í umræðum á Alþingi í gær að hann ætlaði að leita svara við því hjá lögreglustjóra, hvort skjöl og annað er snertir fleiri sakamál en fíkniefnamis- ferli Franklins Steiners, hefðu horfið úr vörslu lögreglunnar. Fram kom í skýrslu Atla Gísla- sonar, setts rannsóknardómara í Steiner málinu, að gögn í málum sem vörðuðu Franklin Steiner höfðu týnst. Lögreglustjórinn í Reykjavík ákvað að hefja innan- hússrannsókn á hvarfinu en nið- urstaða hefur ekki fengist. Miklar umræður og snarpar urðu á Alþingi í gær um skýrslu dómsmálaráðherra um Franklin Steiner-málið og var dómsmál- ráðherra gagnrýndur fyrir að birta ekki skýrslu Atla um málið, en hann sagði það á valdi ríkis- saksóknara. Hörð gagnrýni kom einnig fram á vinnubrögð lögreglunnar í málinu og á reynslulausn Franklins Steiner á sínum tíma. - S.DÓR Guðbergur Bergsson og Guðjón Friðriksson hiutu íslensku bókmenntaverðlaunin árið 1997. Forseti íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, veitti verðlaunin á Bessastöðum í gær. Guðbergur hlaut viðurkenninguna fyrir skáldsöguna „Faðir og móðir og dul- magn bernskunnar“ en Guðjón fyrir ævisögu Einars Benediktssonar, fyrra bindi. - mynd: pjetur Borgarstjóri ræður 9. sætinu „Það er borgar- stjórans að ákveða þetta, hver fer í ní- unda sætið og ekki annarra," segir Árni Þór Sigurðsson. Árni náði ekki inn í sjö manna hópinn sem val- inn var í próf- kjöri Reykjavík- urlistans um helgina, en fékk eigi að síður mjög góða kosn- ingu. Guðrún Ágústsdóttir hefur bent á að hann hljóti að koma sterklega til greina í 9. sæti list- ans, en Árni segir ekki tímabært að ræða það. „Það var um það talað að borg- arstjóri tilnefndi í þetta sæti og það stendur. Hún mun væntan- Iega tala við þá sem hún telur koma til greina, þegar ' henni finnst það tímabært og mér finnst ekki rétt að aðrir séu að tjá sig um það á þessu stigi máls- ins.“ Sjú fréttaskýringu á bls. 8-9. Árni Þór Sigurðsson. mmmmmmmm GabrieMT (höggdeyfar) C) varahlutir Hamarshöfða 1-112 Reykjavík Sími 567 6744-Fax 567 3703 9BIACK&DECKER __Handverkfæri SINDRI -sterkur í verki BORGARTUNI 31 • SIMI 562 7222 • BRÉFASÍMI 562 1024

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.