Dagur - 03.02.1998, Side 3
ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 1998 - 3
FRÉTTIR
Stjómvöld gefa
verkfallinu viku
Þórir Einarsson ríkissáttasemjari hteypir Helga Laxdal inn í Karphúsið eftir hádegi í
gær, þegar lokatilraun til að afstýra verkfalli á fiskiskipaflotanum hófst. Húsinu var
siðan lokað og fréttabann hefur veríð á samninganefndum að ósk ríkissáttasemjara.
Stjómarliðar gefa
verkfalli eina viku en
síðan komi til laga-
setningar. Rætt um
kvótabanka til að upp-
ræta kvótabrask.
Þingmenn stjórnarflokkanna, sem
Dagur hefur rætt við, telja víst að
ríkisstjórnin muni ekki bíða leng-
ur en fram yfir næstu helgi með
að setja lög til lausnar sjómanna-
deilunni, takist sjómönnum og
útgerðarmönnum ekki að semja
fyrir þann tíma.
Við upphaf samningafundar í
deilu sjómanna og útvegsmanna í
Karphúsinu í gær, benti fátt til
annars en að verkfall kæmi til
framkvæmda á fiskiskipaflotanum
á miðnætti sl. nótt. Enginn árang-
ur varð á 12 tíma sáttafundi sl.
sunnudag og ekkert í spilunum
eftir hádegi í gær sem gaf þeim
bjartsýnustu von um að hægt yrði
að afstýra því að fimm þúsund
sjómenn sigldu í land.
KvótabanM og lágmarksverð
Samkvæmt heimildum Dags voru
forystumenn sjómanna að vél-
stjórum meðtöldum komnir á þá
skoðun að kvótabanki og lág-
marksverð á þorsk, ýsu, karfa og
ufsa gæti hugsanlega orðið mögu-
leiki að lausn. Með kvótabanka
yrðu öll viðskipti með aflaheim-
ildir sýnilegar og erfiðara að láta
sjómenn taka þátt í kvótakaupum.
Með tilkomu lágmarksverðs væri
einnig búið að markaðstengja
fiskverð með ákveðnu gólfi.
Hinsvegar höfðu útvegsmenn
hafnað hugmyndum um kvóta-
banka. Sömuleiðis var vilji fyrir
því að hækka veiðiskyldu útgerða
úr 50% í 70%.
Samkvæmt heimildum úr her-
búðum stjórnarliða á Alþingi er
talið að tvö af aðal atriðum laga-
setningar til lausnar sjómanna-
deilunni yrði aukin veiðiskylda
báta af úthlutuðum kvóta. Sú
veiðiskylda yrði 60 til 70%. Þá er
rætt um að stórauka vald hinnar
svo nefndu úrskurðarnefndar. Sú
nefnd á að sjá til þess að lög séu
ekki brotin á sjómönnum með því
að láta þá taka þátt í kvótakaup-
um eða kvótaleigu útgerðar-
manna.
Tímákaup
A sunnudag fór mestur tími
samninganefnda í að ræða hækk-
un á kauptryggingu og tímakaupi.
Utvegsmenn hafa boðið sjómönn-
um að þessir þættir hækki í sam-
ræmi við þær prósentuhækkanir
sem samiö var um í kjarasamn-
ingum verkalýðsfélaga á sl. ári.
Hinsvegar hafa vélstjórar viljað fá
meiri hækkun á sínu tímakaupi.
Þeir rökstyðja það m.a. með því
að járniðnaðarmenn, sem vinna
með vélstjórum þegar sldp er í
slipp, hafi fengið töluvert meira í
upphafshækkunum sínum en aðr-
ir í fyrra.
Miuuihlutmn
Þeir sem gerst þekkja til telja að
krafa sjómanna um markaðsteng-
ingu sjávarfangs skipti í raun að-
eins máli fyrir minnihluta flotans,
eða þann sem er í beinum við-
skiptum við vinnslur og/eða veiða
fyrir aðra. Það mun vera um ná-
Iægt þriðjungi flotans, ísfiskskip
og vertíðarbátar, sem á við verð-
myndunarvandamál að stríða í
bolfiski. Meirihluti flotans er með
afla sinn markaðstengdan. Ymist
með því að selja allan sinn afla á
fiskmarkaði eða á heimsmarkaði
eins og t.d. frystitogarar. Sömu-
Ieiðis mun meirihluti loðnuflot-
ans selja afla sinn til óskyldra að-
ila, þótt ávallt séu til dæmi um
það að verksmiðjur greiði lægra
verð til eigin skipa. — GRH
W/Á
Danski sendiherrann mun afhenda Sig-
urði Jóhannessyni Riddarakross
Dannebrogsorðunnar í dag fyrir störf
hans.
Sigurður fær
Riddarakross
Margrét II Danadrottning hefur
sæmt Sigurð Jóhannesson ræð-
ismann Riddarakrossi Danne-
brogsorðunnar fyrir mikið og
gott starf hans í þágu Dana, eins
og segir í frétt frá Danska sendi-
ráðinu. Sigurður sem býr á Ak-
ureyri hefur verið ræðismaður
Dana sl. 9 ár og hefur unnið að
hagsmunamálum Dana á marg-
víslegan hátt. Hann hefur t.d.
aðstoðað sjúklinga frá Austur-
Grænlandi sem lagðir hafa verið
inn á sjúkrahúsið á Akureyri og
komið á mikilvægum sambönd-
um í atvinnu- og útflutnings-
málum. Ennfremur segir sendi-
ráðið að Sigurður hafi lagt sitt af
mörkum til eflingar dönsku-
kennslu og danskrar menningar-
miðlunar á Islandi.
„Þegar tækifæri hefur gefist
hef ég reynt að hljmna að sam-
skiptum þessara landa, en þessi
viðurkenning hefur í sjálfu sér
enga þýðingu fyrir mig. Þetta er
kvittun fyrir störf í þágu danska
ríkisins," sagði Sigurður í sam-
tali við Dag. — Bt>
Nýtr fajífjárfestar í
Frjálsa fj ölmiölim
Gert ráö fyrir fagfjár-
festuin inn í Frjálsa
fjölimðlim og félagið
hugsanlega opnað síð-
ar.
íslenska útvarpsfélagið hefur selt
35% hlut sinn í Frjálsri fjölmiðlun
til feðganna Sveins R. Eyjólfsson-
ar og Eyjólfs Sveinssonar. Hluta-
bréf FF eru nú öll á einni hendi
en kaupverðið færst ekki uppgef-
ið. Eyjólfur Sveinsson, fram-
kvæmdastjóri FF, segir að með
kaupunum sé ákveðnum áfanga
lokið. „Við stöndum frammi fyrir
mjög spennandi tækifærum og
töldum heppilegt að breyta eign-
arhlutnum til að geta horft til
framtíðar. Við gerum ráð fyrir að
einhverjir fagfjárfestar komi að
félaginu í kjölfarið og hugsanlega
Eyjólfur Sveinsson.
verður það opnað síðar.“
Eyjólfur vill engin nöfn nefna í
þessu samhengi, en segir að
ákvörðun muni liggja fyrir á
næstu dögum um hvort eða hverj-
um verði seldur eignarhlutur í fé-
laginu. Hann segir fjölbreytni
nauðsynlega í fjölmiðlaumhverf-
inu og er viss um að dagblöðin lifi
af samkeppni við rafræna miðla,
en Fijáls fjölmiðlun hefur haslað
sér völl á báðum sviðum. „Við
seldum þessi bréf, einfaldlega til
að taka inn hagnaðinn. Avöxtunin
hefur verið mjög viðunandi og nú
er rétti tíminn fyrir okkur að fara
út. Við ætlurn að leggja áherslu á
aðra þætti í rekstrinum en á hinn
bóginn er eðlilegt að feðgamir
haldi áfram með sitt,“ segir Jón
Olafsson, stjórnarformaður Is-
lenska útvarpsfélagsins.
Bæði Jón Ólafsson og Eyjólfur
Sveinsson sögðu samskipti
Frjálsrar fjölmiðlunar og íslenska
útvarpsfélagsins hafa verið á mjög
jákvæðum nótunum og allir væru
sáttir með málalok. - BÞ
Framkvæmdastjóri Sæplasts hættir
Kristján Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Sæplasts á
Dalvík, hefur sagt starfi sínu lausu og það orðið að
samkomulagi milli hans og stjómar félagsins að hann
láti þegar af störfum. Kristján hefur starfað hjá
Sæplasti frá árinu 1987, fyrst sem sölu- og markaðs-
stjóri og síðar sem framkvæmdastjóri. Hann segir það
vega þyngst í þessari ákvörðun sinni að hann hafi ekki
náð viðunandi árangri í rekstri félagsins og því sé rétt
að gefa öðrum tækifæri.
Pétur Reimarsson, forveri Kristjáns í starfi fram-
kvæmdastjóra og fyrrverandi framkvæmdastjóri Ár-
vers í Þorlákshöfn, verður félaginu til aðstoðar næstu
vikur, eða þar til gengið hefur verið frá ráðningu nýs framkvæmdastjóra.
íkveikja á Akureyri?
Þrír brunar hafa orðið á Akureyri, þrjár helgar í röð. Sá síðasti varð í
söluturninum Messanum aðfaranótt sunnudags. Mjög mikill reykur og
hiti var f versluninni þegar slökkviliðið kom á vettvang en reykkafarar
réðu niðurlögum eldsins á skömmum tíma. Töluvert tjón varð í brun-
anum og leikur grunur á íkveikju, þar sem búið var að brjóta rúðu í
versluninni þegar slökkviliðið kom á vettvang. .Mlt gekk að óskum hjá
slökkviliðinu um helgina en viku áður komu upp vandræði í stórbruna
á Dverghóli, m.a. vegna þess að ekki náðist í menn við upphaf brunans.
Kærir bæiidasamtokm
Þorsteinn H. Gunnarsson, bóndi
á Reykjum í Húnavatnssýslu,
hefur kært fyrirkomulag það sem
Bændasamtök Islands hafa
ákveðið að viðhafa við atkvæða-
greiðslu um nýjan búvörusamn-
ing og samstarfssamning bænda-
samtakanna og landssambands
kúabænda. Þátttaka í atkvæða-
greiðslunni er bundin við þá sem
eiga kvóta og það telur Þorsteinn
eltki standast.
I yfirlýsingu frá honum segir
m.a. að þessi hugmyndafræði sé
ekki ný í sögu þjóðarinnar þ\a' í
kosningum 1834 hafi kosning og
atkvæðagreiðsla verði bundin við
eignamenn. Hins vegar sé ekkert
ákvæði í samþykktum bænda-
samtakanna um að félagsréttindi
séu bundin \dð að eiga kvóta.
Þorsteinn bendir á að í Vatnsdal
í A-Húnavatnssýslu séu 22
bændur en aðeins 3 komi til með
að hafa atkvæðisrétt um nýjan
búvörusamning.
Kærði fyrir Visa en ekki Verslunarráð
„Jú, ég gerði það í aukastarfi sem lögmaður - en ekki fyrir hönd Versl-
unarráðsins," svaraðijónas Friðrik Jónsson, starfsmaður Verslunarráðs-
ins, spurður hvort rétt væri hermt að það hefði verið hann sem kærði
nýlegan úrskurð samkeppnisráðs varðandi kreditkortaviðskipti til áfrýj-
unamefndar samkeppnismála. Heyrst hefur af nokkurri óánægju með-
al kaupmanna yfir því að lögmaður Verslunarráðs skyldi kæra fyrir Visa,
þar sem það. gengi gegn hagsmunum þeirra.
„Eg er bara óháður lögmaður og hef ekki afstöðu í þessu máli,“ sagði
Jónas, sem kærði málið fyrir Visa-Island.
I kjölfar kærunnar ákvað nefndin að að verða við beiðni Visa um að
fresta banni við að hækka verð á vöru ef hún er greidd með kreditkorti.