Dagur - 03.02.1998, Side 4

Dagur - 03.02.1998, Side 4
4-ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 1998 Tkypr FRÉTTIR L. Ahaldahúsið á Suðnreyri endurbyggt Bæjarráð Isafjarðarbæj- ar hefur samþykkt að ganga til samninga við Arna Arnason á Suður- eyri um endurbyggingu á áhaldahúsi á Suður- eyri. Tilboð Arna var 5.462.704 krónur, sem er 91% af kostnaðará- ætlun. Onnur tilboð voru frá Einari og Vali að upphæð 7,5 milljón- iit króna, frá Agústi og Flosa að upphæð 7,8 milljónir, frá Naglanum að upphæð 8,1 milljón og frá Trésmiðjunni að upphæð 7,8 milljónir króna. Eiríkur og Einar Valur áttu lægsta tilboð í 1. áfanga safna- hússins í Isafjarðarbæ og hefur verið lagt til að því tilboði verði tek- ið. Tilboð þeirra var 34,7 milljónir króna, sem er 94% af kostnaðará- ætlun. Einnig bárust tilboð frá Garðamúr að upphæð 36,9 milljónir króna og frávikstilboð að upphæð 36,5 milljónir króna og frá Tré- smiðjunni og Naglanum að upphæð 38,9 milljónir króna. Frá Suðureyri, en þar stendur til að endurbyggja áhaldahúsið. Þorleifur Pálsson ráðinn hæjarritari Þorleifur Pálsson hefur verið ráðinn bæjarritari á Isafirði en þrjár umsóknir bárust um starfið, en auk Þorleifs sóttu um starfið Agnes Karlsdóttir og Magnús Ólafur Hansson. Þorleifur Pálsson var áður framkvæmdastjóri Hrannar hf. sem gerði út flaggskip ísfirðinga, Guðbjörgu, en útgerðin sameinaðist Samherja á Akureyri sem kunn- ugt er. Rúnar Vifílsson skólafulltrúi, sem sagði upp starfi sínu þegar bæjarstjórn klofnaði í afstöðu sinni til „Norðurtangamálsins", hefur dregið uppsögn sína til baka. ViðhaldskostnaðiiT snjóflóðagarða á Ofanflóðasjóð Umhverfisnefnd ísaljarðarbæjar vill vekja athygli á því að verði stöðug- leiki snjóflóðagarð- anna á Flateyri ekki nægjanlegur megi búast við verulegu viðhaldi á þeim og telur um- hverfisnefnd að viðhaldskostnaður Umhverfisnefnd Isafjarðarbæjar telur að viðhaldskostn- af þessum sökum aður vegna snjóflóðagarða á Flateyr/ eigi að falla á eigi að falla allur á Ofanflóðasjóð. Ofanflóðasjóð. U mhverfisnefnd Ieggur til að óskað verði eftir styrk úr ofanflóðasjóði til styrkingar á þeim húsum sem lenda innan þess svæðis sem þrýsdbylgja hefur áhrif á samkvæmt bréfi Umhverfisráðuneytisins. Nýsmíði fyrir Skagamenn Skipasmíðastöðin hf. á ísafirði hefur gengið frá samningi um smíði á 30 tonna, 15 metra löngu stálskipi fyrir Stapavík á Akranesi og mun báturinn verða gerður út á draganótaveiðar. Skipasmfðastöðin er að ljúka smíði á 18 metra Iöngu skipi fyrir Reykjaborg í Reykjavík sem afhent verður í aprílmánuði. Skaga-skipið er þriðja nýsmíðaverkefni Skipasmíðastöðvarinnar á síðustu tveimur árum. Dægradvöl á Torfnesi Nýr leiKskóli, Dægradvöl á Torfnesi, verður formlega tekinn í notkun 1. febrúar. Húsið er 725 fermetrar að stærð með leikrými á efri hæð. Byggingarkostnaður nemur um 81 milljón króna, þar af nemur kostnaður við lóð 9 milljónum króna. í húsinu verða tvær heilsdags- deildir og tvær hálfsdagsdeildir með sveigjanlegri vistun fyrir allt að 132 börn yfir daginn, en hámark 88 börn samtímis. Við Dægradvöl verða 22 stöðugildi. Opið prófkjör hjá sjálfstæðismönnum FuIItrúaráð sjálfstæðisfélaganna í IsaQarðarbæ hefur ákveðið að frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins við bæjarstjórnarkosningarnar 23. maí nk. verði valdir í opnu prófkjöri laugardaginn 21. febrúar nk. Kjörnefnd flokksins hefur auglýst eftir dllögum til framboðs í próf- kjörinu sem berast þurfa eigi síðar en 7. febrúar nk. Tveir og hálfur ísfirðingur til Nagano Tveir ísfirðingar verða meðal íslensku keppendanna á Vetrarólymp- íuleikunum í Nagano í Japan, sem verða settir 7. febrúar nk. Þetta eru þau Sigríður B. Þorláksdótdr og Arnór Þ. Gunnarsson, sem munu keppa í svigi. Reykvíkingurinn Jóhann Haukur Hafstein er einnig meðal keppenda, og tekur þátt í stórsvigi, en hann hóf sinn skíðaferil á Isafirði. Hann er sonur Péturs Hafstein, forseta Hæsta- réttar og fyrrverandi sýslumanns og forsetaframbjóðanda. — GG Fá áramótáheit gegn reykLngiun Lítið selst af nikótín- lyfjum í apótekum. Lyf á síðasta snúningi send frá Akureyri á útsölur í Reykjavík. Ef marka má Iitla sölu á nikótín- lyfjum í janúar, hafa fáir reyk- ingamenn strengt þess heit að hætta um síðustu áramót eða a.m.k. fáir staðið við það. Böðv- arjónsson, lyfsali hjá Akureyrar- apóteki, segist ekki geta greint meiri sölu í janúar en í desember á nikótínlyfjurri. „Kannski eru menn enn minna áhugsamir um þetta en endranær. Til dæmis var mjög lítil aðsókn á námskeið hjá krabbameinsfélaginu og það stóð jafnvel til að fella það niður vegna dræmrar þátttöku,“ segir Böðvar. Oftar en ekki hefur verið tölu- verð sala á nikótínlyljum í janú- ar en nú hafa lyfsalar verið með ýmis tilboð fyrir reykingamenn. „Við vorum að senda frá okkur nikótínlyf sem voru komin á síð- asta snúning og áttu að fyrnast í næsta mánuði. Þetta fór á af- sláttarprís fyrir sunnan og það segir manni að meira hefur verið pantað inn í Iandið en seldist. Það er ekkert tilkynnt þegar að nikótínplásturinn er hættur að hanga á þegar tilboð eru annars vegar,“ segir Böðvar. Vímulaust land hvað? Böðvar segir að þjóðin haldi kol- vitlaust á málunum í tengslum við reykingavarnir. Allt miðist við að bjarga mönnum upp úr brunninum í stað þess að byrgja hann í upphafi. Fræðslu í skóla- starfi sé ábótavant. „Það gildir um þessi fíkniefnamál öll að menn verða að byija neðar í kerfinu, allt niður í 8 ára aldur. Það er t.d. nánast ekkert fjallað um þetta Lion Quest fræðslu- efni sem er mikið þarfaþing. Svo hefur maður verið að bíða eftir því að heyra hvernig menn ætli sér að standa við markmiðið Vímulaust land árið 2002. Það bólar ekki beint á því,“ segir Böðvar. — BÞ Báðir aðilar kaimast við orðrom um sameiningu Þvi er haldið fram að á bak við tjöldin sé uiinið að því að reyna að sameina sjávarút- vegssýningamar sem eiga að fara fram á sama tíma hér á landi á næsta ári. Fullyrt er að aðeins önnur þeirra lifi af. „Ég hef heyrt þennan orðróm eins og þú en kannast ekki við að nokkrar viðræður séu í gangi um að sameina sjávarútvegssýning- arnar. Ef slíkar viðræður væru í gangi mýndi ég vita af þeim,“ sagði Ellen Ingvadóttir, fulltrúi Nexus fyrirtækisins, sem ætlar að halda sjávarútvegssýningu í Kópavogi á næsta ári. Fyrirtækið hefur verið með sjávarútvegssýn- ingarnar hér á landi sl. 15 ár. Jón Hákon Magnússon hjá KOM, sem er í forsvari fyrir þá aðila sem fengu LaugardalshöII- ina undir sjávarútvegssýningu á Ellen Ingvadóttir kannast við orðróm um sameiningu en kannast ekki við viðræður. næsta ári, tók undir með Ellen hvað orðróminn varðar. „Ég hef heyrt hann en get full- yrt að engar viðræður eru í gangi. Við buðum samstarf strax í upphafi og buðumst líka til að kaupa Nexus út úr sýningarhaldi hér á landi en því var hafnað," sagði Jón Hákon. Eins og komið hefur fram í fréttum hafa allir stærstu sjávar- útvegssýningaraðilar á íslandi Iýst yfir stuðningi við Nexus og sýninguna í Kópavogi. Ellen Ingvadóttir sagði að hún fyndi fyrir miklum meðb)T við sýningu þeirra og þá ekki bara hjá stærstu sýningaraðilunum held- ur þeim minni líka sem og al- menningi. Mörgum í Reykjavík þætti súrt í broti að fyrirtækið skyldi þurfa að leita út íyrir borg- ina eftir sýningarstað eftir 15 ára uppbyggingarstarf í þessum mál- um hér á Iandi. Jón Hákon og félagar buðu sem kunnugt er 24 milljónir í leigu fyrir Éaugardalshöllina og yfirbuðu þar með Nexus, sem bauð 14 milljónir. Nú um mán- aðamótin eiga þeir að greiða helminginn af þessari upphæð, samkvæmt útboðsskilmálum. Jón Hákon sagði í gær að við það yrði staðið. Þess má að lokum geta að Nexus hefur þegar tryggt sér um 600 hótelherbergi í Reykjavík meðan á sýningunum stendur og veldur það samkeppnisaðilanum nokkrum erfiðleikum en Ieitað er leiða til úrlausnar þeim vanda. — S.DÓR

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.