Dagur - 03.02.1998, Blaðsíða 6

Dagur - 03.02.1998, Blaðsíða 6
6-PRIÐJUDAGUR 3.FEBRÚAR 1998 Tkgpr ÞJÓÐMÁL Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson Ritstjórar: stefán jón hafstein ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Aðstoðarritstjóri: BIRGIR GUÐMUNDSSON Framkvæmdastjóri: marteinn jónasson Skrifstofur: strandgötu si, akureyri, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK ÓG ÞVERHOLTI lii, REYKJAVÍK Símar: 460 6ioo OG soo 7080 Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is Áskriftargjald m. vsk.: 1.680 kr. á mánuði Lausasöluverð: 150 KR. OG 200 KR. helgarblað Grænt númer: 800 7080 Simbréf auglýsingadeildar: 460 6161 Símar auglýsingadeildar: CREYKJAVÍK)563-i6i5 Ámundi Ámundason (AKUREYRD460-6191 G. Ómar Pátursson OG 460-6192 Gráta Björnsdóttir Netfang auglýsingadeildar: omar@dagur.is Simbréf ritstjórnar: 460 6171cakureyri) 551 6270 (REYKJAVÍK) Sjómannadeiía í fyrsta lagi Þegar hvín í fallöxi sjómanna og flotinn stefnir til lands stend- ur þetta uppúr: skaði þjóðarbúsins verður mikill, hann var Iöngu fyrirséður, og deilan verður leyst - einhvern tímann. Spurningin er bara hversu miklu verður að kosta til - loks þá allt er komið í óefni. Og hvers vegna allt verður að fara í óefni? Þriðja verkfall sjómanna á fáum árum vegna kvóta- brasks er vitnisburður um að tiltölulega einföld framkvæmda- stjórn í samfélaginu hefur brugðist. í öðru lagi Sjómenn hafa haft lausa samninga í meira en eitt ár, vandinn hefur verið fyrir allra augum mun lengur. Löngu er ljóst að þessi deila tæki ekki enda við samningaborð útgerðarmanna og sjómanna. Utgerðarmenn eru oft bæði seljendur og kaup- endur afla; stjórnvöld búa fiskveiðum (með réttu) svo stífan laga- og reglugerðaramma að þau eiga beina málsaðild. Að tala um „frjálsa" samninga í þessu samhengi er gjörsamlega út í hött. í Jjriðja lagi Pólitísk forysta hefði þurft að koma til fyrir löngu. Auðvitað er fáránlegt að hlaupa upp til handa og fóta nú fyrst og huga að breyttum lögum. En hjá því verður þó varla komist. Ekki setja lög á verkfallið, heldur tilefni þess. Deilan um kvótabrask nær til dæmis aðeins til lítils hluta allra veiða; það flokkast undir klaufastjórn að láta slíkt mál stöðva fiskveiðar Islendinga, ekki bara einu sinni, ekki tvisvar, heldur þrisvar. Þetta er engin venjuleg kjaradeila og verður að skoðast sem slík - og þó miklu fyrr hefði verið. Stefán Jón Hafstein. Spennandi prófkjör Þá er komin niðurstaða í próf- kjörið hjá R-listanum. F)TÍr prófkjörið var Garri búinn að læra það af stjórnmálaspek- ingunum að það væri óvissan sem einkenndi aðdraganda prófkjörsins. Þess vegna væri það Ifka svona spennandi. Prófkjörsreglurnar þóttu tals- vert flóknar og þess 'eðlis að erfitt væri að spá fyrir um úr- slit. Þegar til kom þótti al- menningi reglurnar þó hreint ekki flóknar, í það minnsta virtust þær ekki fæla menn frá þátttöku. Mistök þeirra Ffeykjavíkur- listamanna gagnvart prófkjörsreglunum lágu í kynningunni á þeim. Hefði það bara verið sagt strax að þetta væru bara sömu reglur og gilda í vali á Eurovisionlögum. Margir sigurveg- arar En hafi óvissan einkennt að- draganda prófkjörsins þá er óhætt að segja að óvissan ein- kenni ekld síður eftirköstin. Það fer algerlega eftir þ\á við hvern er talað hvaða túlkun fæst á niðurstöðunum. Árni Sigfússon, oddviti sjálfstæðis- manna, og Svavar Gestsson, alþingis- og eiginmaður, eru t.a.m. sammála um að Alþýðu- bandalagið sem flokkur hafi komið út sem sigurvegari próf- kjörsins. Helgi Hjörvar sem flestir segja að hafi komið, séð og sigrað, er lítillátur með per- sónulegan árangur sinn og virðist alls ekki sammála þeim Svavari ogÁrna Sigfússyni um að sigurvegarinn sé Aljiýðu- bandalagið. Þvert á móti virð- ist Helgi telja að það hafi ver- ið kosningabandalagið sjálft, V frekar en einstakir flokkar, sem var sigurvegari. Sigrún Magnúsdóttir hefur líka lýst því yfir að niðurstaðan sé „ák\'eðinn sigur“ fyrir Fram- sóknarflokkinn sem hafi kom- ið út mjög sterkur í prófkjör- inu. Margir sigraðir En þótt ýmsar útgáfur séu til um hverjir séu sigurvegarar prófkjörsins þá eru þær ekki færri útgáf- urnar um hverjir hafi tapað. Árni Sigfús- son hefur þcgar skil- greint Alþýðuflokk- inn og framsókn sem aðila sem töpuðu. Tap Alþýðuflokksins sé að hafa misst Pétur Jóns- son út og fengið í staðinn Helga Pétursson kenndan við RIO, framsókn og Kópavog. Viðbrögð Guðrúnar Ágústs- dóttur benda eindregið til að hún telji sig hafa tapað, úr því hún náði ekki fyrsta sætinu eins og hún vildi. Þá er Árni Þór augljóslega búinn að tapa sínu sæti þótt sumir segi raun- ar að hann hafi Iíka unnið sig- ur af því hann fékk mikið per- sónufylgi. Fjöldi sigurvegara og fjöldi jjeirra sem tapa hafa gert jjað að verkum að Garri er nánast í sömu óvissunni núna og hann var fyrir prófkjörið, ekki síst vegna þess að yfirlýst- ir sigurvegarar eru oftar en eldd jjeir sömu og lýstir eru sigraðir. Ovissan sem ein- kenndi aðdragandann hefur einfaldlega flust yfir á úrslitin. Þetta má j)ví svo sannarlega skilgreina sem sérstaklega spennandi prófkjör. GARRl. JÓHANNES SIGURJÓNS f SON skrifar V'- 5 Pissa þeir enn í skóinn sinn? Ef ekki hefur komið til krafta- verk í gær eða snémma í morg- un, þá stendur nú yfir sjómanna- verkfall þegar og ef þetta er les- ið. Þetta mun vera þriðja sjó- mannaverkfallið á fjórum árum og kröfur nú eru svipaðar og áður, að hlutur sjómanna taki mið af markaðsverði á fiski. Þrátt fyrir að hin fyrri verkföll hafi verið leyst, þá hafa þær lausnir auðsjáanlega verið tíma- bundnar og þar tjaídað til einnar nætur. Það staðfestir verkfallið nú. Það hefur hingað til ekki fundist lausn á þessum málum sem sjómenn sætta sig við til langframa. Bráðabiigðalausnir Það er því alveg ljóst að ef ekki verður gengið betur frá málum nú en í fyrri samningum, heldur enn og aftur blásið til bráða- birgðalausnar, þá horfum við fram á reglubundin sjómanna- verkföll á næstu árum. Það er framtíð- arsýn sem enginn getur búið við. Hvorki sjómenn, útgerðarmenn né heldur þjóðin í heild sem þeir eru hluti af. Til þess er of mikið í húfi. Erlendir kaup- endur íslensks sjávarfangs munu heldur ekld sætta sig við að þurfa að lifa við það óör- yggi sem reglu- bundin verkföll, árlega eða annað hvert ár, skapa. Þeir munu ein- faldlega snúa sér til annarra landa J)ar sem samskipti sjó- manna og útgerðarmanna eru með þeim hætti að ekki þarf að óttast verkföll og brostna sölu- samninga. Tjaldað til einnar nætur? Margir eru svart- sýnir á að deilan leysist á næst- unni. En þó eru ýmsir sem sjá teikn um að þetta verði stutt verk- fall. Og benda í því sambandi á að í málið blandist hagsmunir hóps sem hingað til hefur ekki verið áberandi í fyrri samningum, sem sé hlutabréfaeigendur. Peninga- menn og þar með valdaaðilar í samfélaginu, eiga mikilla hags- muna að gæta ef verkfall dregst á langinn, sem hefur óhjákvæmi- Iega í för með sér að gengi hluta- bréfa í sjávarútvegsfyrirtækjum mun lækka verulega. Þetta geta stórir hluthafar, sem krefjast arðs af sínum bréf- um, ekki sætt sig við. Þannig að þessi öflugi hópur kemur hugs- anlega til með að hafa áhrif á lausn verkfallsins með því að beita sér bak við tjöldin. Það er a.m.k. alveg ljóst að pressan á samningamönnum verður gríðarleg, á þeim standa öll spjót til samninga. Hugsan- Iega láta samningamenn undan pressunni fyrr en síðar. En ef ekki verður búið svo um hnúta að hægt sé að gera jjví skóna að verkföllum á næstu árum hafi einnig verið afstýrt, þá hafa menn aðeins pissað í skóinn sinn, tjaldað einu sinni enn til einnar nætur. Kristján Ragnarsson á leið á samningafund. SDurföw svaurad Erþörfá sérstakri stjómsýslu- og eftirlits- nefnd á vegum Alþingis? Sigurður Gizurarson sýslumaður á Akranesi. „Eg er ekki frá því að slíkt væri vel til fundið. Þó Ríkisendur- skoðun og Umboðs- maður Al- þingis séu sjálfstæðar stofnanir á vegum Alþingis, sem eiga að veita framkvæmdavaldinu að- hald, þá er það Alþingi sjálft sem skal hafa á hendi meginþátt þessa eftirlits og aðhalds. Sú hætta er fyrir hendi að skýrslur fyrrnefndra stofnana fái ekki málefnalega meðferð og um- ræðu á Alþingi, heldur ráði til- finning því hvort einn og einn þingmaður lesi skýrslurnar og taki einstaka þætti þeirra til um- ræðu og meðferðar." Einar Kr. Guðfiunsson þingmaður SjálJ'stæðisflokks. „Já, ég held að það væri mjög til bóta til þess að skýrslur sem að undir- stofnanir AI- þingis, svo sem Rtkis- endurskoð- un og Um- boðsmaður Alþingis, fengju til- hlýðilega, sjálfstæða og efnislega umljöllun í þinginu." Gísli S. Einarsson þingmaður Alþýðufloklts. „Það getur í ákveðnum tilvikum ver- ið gott að hafa sérstaka nefnd sem fjallar um ákveðin mál er Iúta að stjórnsýsl- unni. Um einstök mál leikur stundum vafi á um hvernig með skuli farið, og nefni ég þar hvernig skipta eigi fjármunum til útgáfumála milli flokka. Mörg fleiri mál mætti nefna.“ Ólafur Þ. Harðarson dósent í stjómmálafræði við Háskóla íslands. „Það er mjög mikilvægt að Alþingi hafi öflugt eftirlit með stjórn- sýslunni og fram- kvæmdavald- inu. Ná- kvæmlega hvernig það er gert er tæknilegt útfærsluatriði, en fljótt á litið virðist nefnd af þessu tagi geta hentað prýðilega til þess.“

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.