Dagur - 03.02.1998, Síða 9
T
8- ÞRIÐJUDAGUR 3.FERRÚAR 1998
FRÉTTASKÝRING
ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 1998 - 9
VALGERÐUR
JÓjlAWS
DOTTIR
Veruleg endumýjim
varð á framboðslista
Reykjavíkurlistans í
prófkjöri um helgina,
en þrátt fyrir það virð-
ast flestir nokkuð
sáttir við niðurstöð-
una.
Niðurstaðan í prófkjöri Reykja-
víkurlistans virðist almennt mæl-
ast vel fyrir innan hans, þótt ekki
séu allir jafn ánægðir.
Þátttakan í prófkjörinu var
meiri en jafnvel þeir bjartsýnustu
höfðu þorað að vona, en alls kusu
tæplega 8600 manns, eða ríflega
helmingi fleiri en eru skráðir í
flokkana fjóra. Liðlega 6500 kusu
í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
nóvember en það var lokað og því
ekki alveg sambærilegt.
Konur hafa oft farið illa út úr
prófkjörum en sú varð ekki raun-
in hjá Reykjavíkurlistanum um
helgina. Hlutfallið getur ekki orð-
ið jafnara en það varð - í sætun-
um sjö eru fjórir karlar og þrjár
konur og Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir borgarstjóri verður sem
kunnugt er í áttunda sæti listans.
Veruleg endumýjun
Vel þykir einnig hafa tekist til \dð
að hlanda saman ungu fólki og
því reyndara. Það varð veruleg
endurnýjun í hópnum. Sex af 7
núverandi borgarfulltrúum gáfu
kost á sér í prófkjörinu, fjórir
halda sæti sínu en tveir falla og
inn koma þrír nýir menn. Unga
fólkið úr Grósku unir vel við sinn
hlut, Helgi Hjörvar, Hrannar Arn-
arsson og Steinunn Oskarsdóttir
hafa öll starfað innan samtak-
anna. Góð útkoma þeirra er einn-
ig túlkuð sem stuðningur við
sameiningu félagshyggjuflokk-
anna sem Gróska berst fyrir.
Þá má nefna að þótt borgarfull-
trúarnir Arni Þór Sigurðsson og
Pétur Jónsson hafi fallið í próf-
kjörinu er tæplega hægt að túlka
það svo að þeim hafi almennt ver-
ið hafnað. Arni Þór er fimmti
stigahæsti frambjóðandinn og
Pétur í tíunda sæti að stigum, en
samkvæmt reglum prófkjörsins
fær hver flokkur aðeins 2 sæti og
þess vegna er t.d. Arni Þór úti.
Óánægðir kratar
Prófkjörið þykir sem sagt um
margt hafa tekist vel til, en það er
ekki þar með sagt að allir uni
glaðir við sitt. Kratar eru sumir
hverjir afar ósáttir við að Pétur
Jónsson, borgarfulltrúi flokksins,
skyldi falla í prófkjörinu, einkum
þeir sem tilheyra hinum harða
kjarna flokksins. Þeir tala um að
Alþýðuflokkurinn eigi í raun eng-
an fulltrúa og vísa þar til þess að
Hrannar er óháður og Helgi Pét-
ursson nýgenginn í flokkinn.
Þetta kann að verða til þess að
kratar snúi baki við Reykjavíkur-
Alls tóku tæplega 8.600 manns þátt iprófkjöri Reykjavíkurlistans. Stuðningskonurnar á myndinni virðast sannfærðar um að þær hafi kosið rétt.
listanum í einhverjum mæli í vor.
Ekki virðist þetta þó valda veru-
legum áhyggum innan listans.
Bent er á að það sé ekki stór hóp-
ur sem teljist til eðalkrata, 2-300
manns, og Hrannar og Helgi séu
báðir líklegir til að laða mun fleiri
kjósendur að Reykjavíkurlistan-
um.
Vondar reglur
En eðalkratar eru ekki einir um
að vera óánægðir. Guðrún
Agústsdóttir hefur Ifka sitt hvað
við prófkjörið að athuga. Hún
segist himinsæl og stolt yfir þeim
stuðningi sem hún hafi fengið og
telur listann mjög sigurstrangleg-
an. Guðrún er hins vegar gagn-
rýnin á prófkjörsreglurnar og seg-
ir þær andsnúnar sitjandi borgar-
fulltrúum. Hún hefur einnig
gagnrýnt Guðrúnu Jónsdóttir,
frambjóðanda Framsóknarflokks-
ins, fyrir að vinna gegn sér í próf-
kjörinu. Guðrún Jónsdóttir kann-
ast hins vegar ekki við það og hef-
ur krafið nöfnu sína um nánari
skýringar.
Kusu hreint
Eins og fram hefur komið voru
reglurnar í prófkjöri Reykjavíkur-
Iistans óvenjulegar og úr tölunum
má ýmislegt forvitnilegt lesa.
Atkvæðaseðlarnir voru tveir,
frambjóðenda- og flokkaseðill.
Sex hundruð og þrjátíu manns,
eða rúm 7%, skiluðu auðu í
flokkakjörinu, merktu við fram-
bjóðendur en engan flokls.. Kjör-
nefndarmenn sem rætt var við
um helgina töldu sig hafa séð að
stuðningsmenn Framsóknar og
Alþýðubandalags hefðu kosið
„hreint" í ríkari mæli en kjósend-
ur annarra flokka, það er að segja
kosið eingöngu fólk í sínum
flokki. Um það er útilokað að
fullyrða en ákveðnar vísbending-
ar að finna.
Frambjóðendur Framsóknar-
flokksins fá samanlagt nærri jafn-
mörg atkvæði og flokkurinn fékk,
sem bendir til þess að stuðnings-
menn flokksins hafi kosið fram-
sóknarmenn í ríkum mæli. Sömu
sögu er reyndar að segja af
Kvennalistanum, en hins vegar er
ljóst að mjög margir stuðnings-
menn annarra flokka hafa kosið
Steinunni Óskarsdóttur. Hún fær
nærri 2900 atkvæði eða 55%
meira en Kvennalistinn sem fékk
tæplega 1300.
Fleiri atkvæði en flokkurinn
Frambjóðendur Alþýðubanda-
lagsins fá samanlagt nærri 400
atvæðum fleira en flokkurinn
sem sýnir að kjósendur annarra
flokka og/eða fólk sem ekki
merkti við flokka hefur í einhverj-
um mæli fallið fyrir frambjóðend-
um Alþýðubandalagsins.
Það á reyndar augljóslega við
um þau Helga Hjörvar og Guð-
rúnu Agústsdóttur. Þau fá miklu
fleiri atkvæði en flokkurinn. Rétt
liðlega 4300 kjósendur hafa
merkt \4ð Helga eða um helming-
ur allra sem þátt tóku í prófkjör-
inu og helmingi fleiri en kusu AI-
þýðubandalagið. Guðrún fær
líka a.m.k. þriðjung atkvæða frá
öðrum en stuðningsmönnum
flokksins.
Kratar skera sig úr í þessum
efnum. Frambjóðendur flokksins
fá heldur færri atkvæði saman-
lagt en flokkurinn, af þeim 1900
sem settu x við A voru um 100
sem ekki leist á neinn af fram-
bjóðendum Alþýðuflokksins.
Hins vegar er ljóst að Hrannar B.
Arnarsson hefur fengið stuðning
frá fleirum en kjósendum Alþýðu-
flokksins því hann fékk liðlega
2200 atkvæði.
Hvað ef
Það var fyrirfram ákveðið að fylgi
flokkanna ætti að ráða röð fram-
bjóðenda. Rökin eru þau að
Reykjavíkurlistinn sé kosninga-
bandalag og þess vegna verði að
tryggja jafnræði flokkanna sem að
honum standa. Þá má hins vegar
leika sér að tölunum og skoða
hver hefði orðið niðurstaðan ef
fylgi frambjóðendanna hefði ráð-
ið.
Ef heildarstigafjöldi frambjóð-
endanna hefði ráðið röðinni hefði
Alþýðubandalagið fengið þrjá
menn, Framsókn tvo og kratar og
Kvennalisti einn mann hvor.
Helgi Hjörvar fékk Iangflest stig
og hefði því haldið fyrsta sætinu,
þá kemur Guðrún Agústsdóttir
Flokkur atkvæði %
Alþýðubandalag 2462 28,7
Framsóknarflokkur 2201 25,6
Alþýðuflokkur 1991 23,2
Kvennalisti 1269 14,8
Auðir 630 7,3
sem hefði verið í 2.
sæti en ekki því 5.
Steinunn Óskars-
dóttir hefði hreppt 3.
sætið, Sigrún Magn-
úsdóttir það 4., Arni
Þór Sigurðsson það
5., Alfreð Þorsteins-
son 6. sætið og
Hrannar Arnarsson
það 7.
I hefðbundnu
prófkjöri hefði Guð-
rún Agústsdóltir ver-
ið efst því hún fékk
flest atkvæði í fyrsta
sætið. Helgi Hjörvar
hefði verið í 2. sæti,
Steinunn í 3., Arni
Þór í 4. og Hrannar í
5. Kjósendur merktu
aðeins við 5 fram-
bjóðendur svo ekki
er hægt að sjá hverjir
fengu flest atkvæði í
6. og 7. sæti en Ifk-
Iegt verður að telja
að Sigrún og Alfreð
hefðu lent þar.
Það má því segja
að að það hefði ekki
breytt stórkostlega
miklu þótt aðrar og
hefðbundnari reglur
hefðu verið notaðar í
prófkjörinu.
Frambjóðendur Alþýðubandalag stig eftir flokkum og stigum
Helgi Hjörvar 26751 (1. sæti)
Guðrún Ágústsdóttir 23476 (5. sæti)
Árni Þór Sigurðsson 14169
Sigrún Elsa Smáradóttir 6909
Guðrún Kr. Óladóttir 6515
Einar Valur Ingimundarson 3675
Kolbeinn Óttarsson Proppé 3599
Framsóknarflokkur
Sigrún Magnúsdóttir 14311 (2. sæti)
Alfreð Þorsteinsson 13778 (6. sæti)
Guðrún Jónsdóttir 11954
Óskar Bergsson 8462
Þuríður I. Jónsdóttir 6413
Sigfús Ægir Árnason 5674
Alþýðuflokkur
Hrannar B. Arnarsson 13518 (3. sæti)
Helgi Pétursson 12043 (7. sæti)
Pétur Jónsson 11583
Stefán Jóhann Stefánsson 5786
Bryndís Kristjánsdóttir 5701
Magnea Marínósdóttir 4632
Rúnar Geirmundsson 3373
Kvennalisti
Steinunn V. Óskarsdóttir 16923 (4. sæti)
Kristín Blöndal 5434
Guðrún Erla Geirsdóttir 3870
Sólveig Jónsdóttir 3253
Ragnhildur Helgadóttir 2996
Kolbrún Jónsdóttir 2583
Drífa Snædal 2407
Eins og best
varð á kosið
Ungt fólk kom mjög sterkt út úr prófkjöri Reykjavíkurlistans, segir Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, sem hér fagnar úrslitunum með nýjum manni á listanum, Helga Hjörvar.
Borgarstjóri segír
prófkjör Reykjavíkur
listans hafa skilað
sterkuin framboðs-
lista, bar sem endur-
nýjun og reynsla fari
sainan og jafnræði
ríki milli karla og
kvenna.
„Ég er mjög ánægð með þessa
miklu þátttöku sem sýnir þann
mikla styrk sem býr að baki
Reykjavíkurlistanum," segir
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri um úrslitin í próf-
kjöri Reykjavíkurlistans. „I öðru
Iagi er ég ánægð með að það
helst í hendur á íistanum reynsla
og þekking þeirra sem hafa verið
í borgarstjórn á síðasta kjörtíma-
bili og ákveðin endurnýjun.
Ungt fólk kemur mjög sterkt inn
í þetta prófkjör, bæði sem fram-
bjóðendur og þátttakendur. Það
má segja að það sé ný kynslóð að
kveða sér hljóðs í stjórnmálum
og er auðvitað tímabært, en á
sama tíma er mikil eftirsjá í Arna
og Pétri. Mér er engin Iaunung
á því,“ segir Ingibjörg.
Ingibjörg viðurkennir að hafa
haft áhyggjur af því að konum
gengi illa í prófkjörinu, enda sé
reynslan sú. Það sé fagnaðarefni
að jafnræði kynjanna hafi orðið
niðurstaðan í prófkjörinu um
helgina en það geti að hluta til
stafað af því að konur voru sterk-
ar fyrir í Reykjavíkurlistanum.
Reglumar hlutlausar
Ingibjörg er ekki sammála því að
prófkjörsreglurnar hafi unnið
gegn sitjandi borgarfulltrúum,
eins og Guðrún Agústsdóttir
hefur haldið fram. „Ég er hins
vegar þeirrar skoðunar að þær
tryggi ákveðið jafnræði milli sitj-
andi borgarfulltrúa og þeirra
sem sækja á. Þær gefa sitjandi
borgarfulltrúum ekki forskot,
eins og hefðbundin prófkjör.
Þeir hafa alltaf það forskot að
vera þekktari af verkum sínum
en reglurnar eru hlutlausar
gagnvart nýjum frambjóðendum
og þeim sem fyrir eru.“
Borgarstjóri vill lítið tjá sig um
gagnrýni Guðrúnar Agústsdóttur
á nöfnu hennar Jónsdóttur.
„Niðurstaðan er sú að Guðrún
Agústsdóttir er inni, en Guðrún
Jónsdóttir ekki og mér finnst
engin ástæða til að velta vöngum
yfir þessu. Prófkjörið er að baki
og þetta er niðurstaðan," segir
Ingibjörg.
Ekki áhyggjur af krötum
Hún hefur heldur ekki áhyggjur
af því að kratar hlaupist undan
merkjum vegna þess að Pétur
féll. „Alþýðuflokkurinn sem slík-
ur kemur vel út úr þessu, fær tvo
börgarfulltrúa en var með einn.
Alþýðuflokkurinn hefur aldrei
verið sterkur í borgarstjórn
Reykjavíkur og kemur þarna inn
af meiri styrk en áður og það
hlýtur að einhverju leyti að mega
þakka því fólki sem var í fram-
boði fyrir flokkinn. Flokksmenn
völdu þessa frambjóðendur til
þess að taka þátt í prófkjörinu og
þeir hljóta að hafa gert sér grein
fyrir því að þetta gæti farið á
ýmsa vegu.“
Ferö út í óvissuna
Ingibjörg viðurkennir að Sjálf-
stæðisflokkurinn sé að græða á
óánægju innan Reykjavíkurlist-
ans með niðurstöður prófkjörs-
ins. „Andstæðingar hafa alltaf
tilefni til að kætast ef hægt er að
efna til óvinafagnaðar meðal
samherja, en hann er svo lítill í
þessu tilviki að mér finnst það
ekkert sem orð er á gerandi. Nið-
urstaðan er í aðalatriðum mjög
góð. Allir flokkar eru sáttir við
sína niðurstöðu. Styrkleiki Al-
þýðubandalags, Alþýðuflokks og
Framsóknarflokks er mjög jafn.
Kvennalistinn er minni eins og
var vitað en þó hálfdrættingur á
við Alþýðubandalagið," segir hún
að bætir við að niðurstaðan sé
góð hvort heldur Iitið sé á flokk-
ana eða einstaklinga. „Þetta var
ferð út í óvissuna. Við gerðum
okkur grein fyrir því að þetta gat
farið á jbnsa vegu, en ég held að
það hafi varla geta farið betur en
raun varð á í heildina tekið."
Neðri sætin óklár
Það var keppt um sjö sæti í próf-
kjörinu og niðurstaðan bind-
andi. Sérstakri uppstillingar-
nefnd hefur verið falið að raða í
neðri sætin og væntanlega ntun
hún taka eitthvert mið af gengi
manna í prófkjörinu.
Það var hins vegar fyrirfram
ákveðið að borgarstjóri réði því
hver færi í níunda sætið. Ingi-
björg segist hafa áskilið sér rétt
til þess, til dæmis til að geta rétt
hlut kvenna ef á þyrfti að halda.
Hún hefur hins vegar enga
ákvörðun tekið í þeim efnum og
segir ótímabært að ræða um ní-
unda sæti að svo stöddu.
*r