Dagur - 03.02.1998, Blaðsíða 10
10- ÞRIDJUDAGUR 3. FEBRÚAR 1998
FRÉTTIR
L A
Komst við illan
leik út úr bíflaki
Unglingaklúbbar í íþróttabús
Svo getur farið að unglingar í Kópavogsbæ fái aðstöðu fyrir ýmis-
konar tómstunda- og klúbbastarfsemi í íþróttahúsunum í Digranesi
og Smáranum. I það minnsta hefur bæjarráð samþykkt að fela fram-
kvæmdastjóra Fræðslu- og menningarsviðs að ganga til viðræðna við
Handknattleiksfélags Kópavogs um starfrækslu á klúbbi og tóm-
stundastarfi fyrir unglinga í Digranesi í framhaldi af erindi FIK þar
að lútandi. Sömuleiðis hefur framkvæmdastjóranum verið falið að
ræða samskonar mál við forystumenn Breiðabliks um möguleika og
áhuga þeirra á að reka hliðstaqða starfsemi í Smáranum.
I
Áhugi á héraðsskjalasafni
Bæjarráð hefur samjjykkt að sptt verði um heimild til stjórnarnefnd-
ar Þjóðskjalasafns Islands að koma á fót héraðsskjalasafni í Kópa-
vogi. Jafnframt er lagt til að skjalasafni bæjarins verði breytt í héraðs-
skjalasafn og undirbúin verði reglugerð fyrir safnið.
Kársnesskóli i Kópavogi. Nú er verið að kanna hagkvæmni þess að sameina hann
Þinghólsskóla.
Sameming skóla
Bæjarráð hefur falið framkvæmdastjóra Fræðslu- og menningarsviðs
og fræðslustjóra að ræða við fulltrúa Kennaraháskóla um hagkvæmni
þess að sameina Þinghóls- og Kársnesskóla og gera kostnaðaráætlun.
Bensínstöð í Hagasmára
Byggingarnefnd hefur lagt það til við bæjarstjórn að samþykkt verði
erindi Skeljungs um að byggja bensínstöð á lóð nr. 9 við Hagasmára.
Stærri Nóatúnsverslun í Hamraborg
Byggingarnefnd hefur einnig Iagt til við bæjarstjórn að Nóatúni og ís-
landsbanka verði leyft að stækka verslun og byggja sameiginlega inn-
gang að Hamraborg 14a. Bent er á að engar skriflegar athugasemdir
bárust þegar skipulagsstjóri auglýsti breytinguna á sínum tíma.
- GRH
HÁDEGISVERÐARFUNDUR
„FRAMLÖG RÍKISVALDSINS“
Landsbyggð - höfuðborgarsvæði
Skýrsla Aflvaka hf. og Atvinnu- og ferðamálastofu Reykjavíkur.
Framsögumenn
Þórður H. Hilmarsson rekstrarhagfræðingur
Páll Guðjónsson framkvæmdastjóri Aflvaka hf.
Steingrímur J. Sigfússon alþingismaður
Fundurinn verður haldinn á veitingastaðnum Fiðlaranum, Skipagötu
14, 4. hæð miðvikudaginn 4. febrúar nk. kl. 12.15 - 13.30
Fundurinn er öllum opinn og skráning fer fram á staðnum.
Hádegisverður og fundargjald 1.200 kr.
Að fundinum standa Atvinnumálaskrifstofa Akureyrar,
Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar, Dagur, Svæðisútvarp
Norðurlands, Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri og
Skrifstofa Atvinnulífsins.
Upplýsingar á Atvinnumálaskrifstofu í síma 462 1701.
Væptr
Sýslumaðurinn á Akureyri
Hafnarstræti 107, 600 Akureyri
sími 462 6900
UPPB0Ð
Bifreiðin Þ-3 (fastnr. HP-537), Man
26.361, árg. 1985, verður seld á
uppboði að Tryggvabraut 3-5, Akur-
eyri þriðjudaginn 10. febrúar 1998
kl. 14.00.
Krafist verður greiðslu við hamars-
högg. __
Sýslumaöurinn á Akureyri
2. febrúar 1998.
Harpa Ævarrsdóttir, fulltrúi.
Dagbök lögreglimnar í
Reykjavík 30. janúar
til 2. febrúar 1998.
Klukkan 21 að kvöldi sunnudags
var Iögreglu tilkynnt að ökumaður
hefði misst stjórn á ökutæki sínu
á Vesturlandsvegi við Brynju-
dalsá. Ökutækið bafði farið út af
veginum og hafnað í ánni. Bif-
reiðin fór á kaf en ökumaður
komst við illan leik út um hliðar-
rúðu á bílnum sem bafði brotnað
og varð að synda í land. Ökumað-
urinn sem var orðinn mjög kaldur
gat stöðvað ökutæki á veginum
sem flutti hann á slysadeild. llla
gekk hjá lögreglu að finna öku-
tækið þar sem mjög djúpt er þar
sem bifreiðin hafnaði í ánni.
Um helgina voru höfð afskipti
af 18 ökumönnum vegna gruns
um ölvun við akstur og 34 vegna
hraðaksturs. A fjórða tug umferð-
aróhappa voru tilkynnt lögreglu.
Innbrot - þjófnaðir
A föstudag var brotist inn í versl-
anahúsnæði við Háaleitisbraut og
þaðan stolið tösku með verkfær-
um að verðmæti um eitt hundrað
þúsund.
Að morgni laugardags var lög-
reglu tilkynnt að hraðbanki hefði
verið Ijarlægður úr anddyri Kenn-
araháskólans. Af verksummerkj-
um á vettvangi hafði hraðbankinn
Hraðbanka var stol/ð I Reykjavík um
helgina.
verið losaður af festingum og
færður í ökutæki. Beindist grunur
lögreglu að ákveðnum einstakl-
ingum og voru tveir karlmenn
handteknir. Ökutækið fannst síð-
an að kvöldi laugardags með
hraðabankanum og öllum fjár-
munum skammt frá brotavett-
vangi. Krafist hefur verið gæslu-
varðhalds yfir einum karlmanni
vegna málsins.
A sunnudag var brotist inn í
geymslu í Breiðholti og þaðan
stolið hljóðfærum að verðmæti
um tvö hundruð þúsund.
L£kamsmeiðmgar
Aðfaranótt laugardags kom á lög-
reglustöðina í miðbænum kona
sem orðið hafði fyTÍr Iíkamsáras á
veitingahúsi. Hún hafði fengið
skurð á höfuðið og ætlaði sjálf að
leita sér aðhlynningar á slysa-
deild.
Þá var ráðist að karlmanni
klukkan hálf fjögur að morgni
laugardags á Suðurlandsbraut. A
hann hafði verið ráðist og hann
rændur seðlaveski. Maðurinn
hlaut áverka á hendi og höfði og
var fluttur á slysadeild, en ekki
vitað hversu miklum ljármunum
maðurinn var rændur né heldur
hveijir árásarmaður eða -menn
voru.
Annaö
Karlmaður var handtekinn í mið-
bænum er hann hafði brotið rúðu
í Landsbankanum í Austurstræti.
Hann hafði skorið sig við athæfi
sitt og var því fluttur á slysadeild
til aðhlynningar.
Lögreglu var að morgni sunnu-
dags tilkynnt um karlmenn sem
væru að brjótast inn í ökutæki í
Þingholtunum. Tveir karlmenn
17 og 19 ára voru handteknir og
hafði annar þeirra seðlaveski á sér
sem hann hafði stolið úr ökutæki.
Mennirnir voru fluttir í fanga-
geymslu.
Harður árekstnr á
Eyj afj arðar braut
Ef til viH þess vegna stigu margir ökumenn full þungt á bensíngjöfina þvi alls voru
20 kærðir fyrir of hraðan akstur á Akureyri i sfðustu viku.
Úr dagbók lögregluim-
ar á Akureyri vikuua
26.01.- 01.02.1998 .
Veður og færð voru góð í vikunni
og skilyrði til aksturs eins og best
gerist miðað við árstíma. Ef til vill
þess vegna stigu margir ökumenn
full þungt á bensíngjöfina því alls
voru 20 kærðir fyrir of hraðan
akstur. Þá virtu 11 ekki stöðvun-
arskyldu og fjórir voru kærðir fyr-
ir meinta ölvun við akstur, 10 not-
uðu ekki öryggisbelti og 11 höfðu
ekki ökuskírteini meðferðis. Þá
urðu 12 umferðaróhöpp og
minniháttar slys í tveimur
þeirra. Laust fyrir hádegi á Iaug-
ardaginn varð harður árekstur á
Eyjafjarðarbraut vestri skammt
sunnan Akureyrar. Fjórir voru
fluttir á slysadeild en meiðsl
munu ekki hafa verið stórvægileg
og öryggisbeltin bjargað því að
ekki fór verr.
Klippux á lofti
Tekin voru skráningarmerki af 9
bifreiðum sem ekki höfðu verið
færðar til endurskoðunar á síð-
asta ári. Þar sem nú er mánuður
Iiðinn af nýju ári ættu allir að vera
búnir að færa bifreiðar sínar tii
aðalskoðunar fyrir síðasta ár. Er
ástæða til að hvetja þá sem ekki
eru þegar búnir að láta skoða bif-
reiðar sínar að gera það strax því
lögreglan mun nú fara að huga að
því að taka óskoðaðar bifreiðar úr
umferð.
Loftsteinu eltki neyöaxblys
Á föstudagsköldið um kl. 20:21
bárust allmargar tilkynningar um
neyðarblys á lofti í austri. Við eft-
irgrennslan kom ekkert í ljós sem
benti til að neinn væri í nauðum
staddur. Síðar kom í ljós að hér
hafi að líkindum verið um loft-
stein að ræða sem sást víða að af
landinu. KI. 13:30 á laugardaginn
var svo einnig tilkynnt um neyðar-
blys á lofti og var staðsetning tal-
in beint austur af lögreglustöð-
inni. Engin skýring hefur fengist
á því og er rétt að benda fólki á að
áramótin eru löngu liðin og með
öllu óheimilt að skjóta á loft neyð-
arblysum að ástæðulausu.
Eldur í söluturni
Kl. 01:56 var tilkynnt um eld í
söluturninum Messanum, Móa-
síðu 1. Greiðlega tókst að slökkva
eldinn en mikið tjón varð af eldi
og revk. Við rannsókn kom í ljós
að svo virtist sem brotist bafi ver-
ið inn og ýmislegt sem benti til að
um íkveikju gæti verið að ræða.
Útivistaxrcglur
Helgin var með rólegra móti.
Hefðbundið eftirlit var með sam-
komustöðum og fylgst með ungl-
ingum undir aldri í miðbænum og
nokkrum komið til síns heima.
Ánægjulegt er til þess að vita að
nú finnst öllum sjálfsagt að ungl-
ingar virði þær útivistarreglur sem
settar voru fyrir nokkrum árum
þótt þá hafi þær verið umdeildar
og er það dæmi um að ýmsu góðu
er hægt að koma til leiðar ef
margir leggjast á eitt og eru sam-
taka um að ná settu marki. Sam-
komugestir höguðu sér að mestu
skikkanlega en þó fara oftast ein-
hverjir yfir strikið og 4 máttu dúsa
í fangagevmslum sökum ölvunar
þessa helgi og teljast það ekki tíð-
indi. - DG