Dagur - 03.02.1998, Blaðsíða 12

Dagur - 03.02.1998, Blaðsíða 12
12- ÞRIDJUDAGUR 3. FEBRÚAR 1998 ÍÞRÓTTIR Xkgpr ÝMISLEGT Martina Hingis vairn aftur Það voru tveir unglingar sem sigr- uðu í keppni kvenna á opna ástr- alska meistaramótinu í tennis um helgina. Það var hin 17 ára Mart- ina Hingis frá SViss sem vann í einliðaleik kvenna á mótinu. Hingis gerði sér svo lítið fyrir og vann einnig í tvíliðaleik kvenna með 15 ára gamalli stúlku frá Króatíu. Þetta er í annað skiptið á jafnmörgum árum sem Hingis vinnur á þessu móti. Petr Korda frá Tékklandi vann auðveldan sigur á Marcelo Riios frá Chile í úrslitaleik karla. Leikurinn tók einungis 85 mínútur og varð aldrei spennandi. Þetta var fyrsti sigur Korda á stórmóti í tennis. Korda hefur verið atvinnumaður í greininni síðustu 11 árin. Stjarnan vann Stjarnan vann IR í Nissan-deild- inni í handknattleik um helgina, 28:25. Þetta var leikur sem var frestað fyrir stuttu þar sem dóm- arar mættu ekki til leiks. Dómar- ar voru hins vegar klárir í slaginn á laugardag og Stjarnan fór með sigur af hólmi. Hinn 19 ára gamli IR-ingur Ragnar Oskarsson átti samt sem áður enn einn stórleik- inn fyrir lið sitt og skoraði 13 mörk. Ragnar þessi er talinn eitt mesta efni í íslenskum hand- knattleik um þessar mundir. Ræddu um GuUit Leikmenn Chelsea í ensku úr- valsdeildinni héldu nokkuð óvenjulegan fund síðasta föstu- dag. Þá hittust leikmennirnir til að ræða málin og kom það kannski mest á óvart að Ruud Gullit, framkvæmdastjóri og Ieik- maður, átti ekki að mæta. Spek- ingar segja að fundurinn hafi ver- ið til þess að ræða um störf Gullit og venjur hans sem framkvæmda- stjóra. Ein sagan er á þá leið að Gullit hafi mjög lítil samskipti við leikmenn sína og er vert að nefna Norðmanninn Tore Andre Flo, sem hefur verið í herbúðum Chelsea frá því í haust. Heyrst hefur að Gullit hafi enn ekki yrt á Flo eftir að hann kom til liðsins fyrir nokkrum mánuðum og þykir þetta nokkuð áhugavert. Onnur saga var þannig að Gullit sagði nýverið að Vialli hafi Iítið fengið að spila vegna flensu sem hrjáði kappann. Vialli hafði þá hins veg- ar nýlega sagt við ítalskt blað að hann væri við hestaheilsu og ávallt tilbúinn í slaginn! Lakers á leiðinni L.A. Lakers unnu Chicago Bulls nokkuð örugglega, 112:87, í stór- leik NBA deildarinnar um helg- ina. Þar með mætast Lakers og Bulls ekki aftur á þessu tímabili nema það verði í úrslitum NBA deildarinnar. Michael Jordan, sem skoraði 31 stig í leiknum, var ekkert að spara stóru orðin eftir leikinn þegar hann var spurður að því hvort hann byggist við að mæta Lakers aftur. „Þetta var ein- ungis einn leikur af 82. Við verð- um pottþétt í úrslitunum í júní en ég er nú ekki alveg viss um að við eigum eft'r að mæta Lakers á þeim vegi“, sagði kóngurinn. Meistaramir lágu á heimavelli Manchester United hefur tapað Iveimur leikjiiin í röð í ensku deildinni og Liver- pool, Blackhum og Chelsea eru öll með 45 stig í öðru sæti, 4 stignm á eftir Manchester. Tony Cottee, leikmaður Leicester, skoraði sitt fyrsta mark á Old Trafford um helgina og tryggði þar með Leicester óvæntan útisig- ur á Manchester United. Þetta var fyrsti sigur Leicester í 7 deild- arleikjum og fyrsta tap United á heimavelli í vetur. Lið United átti hreint út sagt afleitan dag og framlínan skipuð þeim Cole, Sheringham og Solskjær misnot- aði hvert færið af öðru. Martin O’Neill, stjóri Leicester, var að vonum kátur eftir leikinn en sagði að eftir markið hefðu þeir pakkað í vörn og beðið en heimamenn voru Iíka vægast sagt óheppnir! Alex Ferguson var á hinn bóginn ekki jafn hress. „Það er hreint út sagt ótrulegt að okkur tókst ekki að skora í síðari hálfleik," sagði Ferguson eftir leikinn. Þrátt íyrir þetta tap United og ósigur þeirra gegn Southampton á dögunum eru liðin þrjú, Liverpool, Black- burn og Chelsea sem veita meist- urunum mikla eftirför í stigatöfl- unni, í basli með að nálgast þá á toppnum. Liverpool og Blackburn mætt- ust á Anfield Road í Liverpool á laugardag og tókst hvorugu liðinu að skora. Glenn Hoddle, lands- Iiðsþjálfari Englands, var á leikn- um og Tim Flowers, markvörður Blackbum, gaf honum góða sýn- ingu. Flowers var frábær í marki gestanna og varði hvað eftir ann- að frá framherjum Liverpool. Liverpool varð fyrir nokkrum áföllum í Ieiknum. Steve Mc- manaman þurfti að yfirgefa völl- inn í hálfleik vegna meiðsla og þegar um klukkustund var liðín af leiknum brákaði Jason Mcateer bein í fótlegg sínum og verður frá keppni næstu tvo mánuðina. Bæði liðin eru nú 4 stigum á eftir Manchester United. Chelsea skaust í annað sætið með 2:0 sigri á Barnsley. Lið Chelsea er samt sem áður ekki að spila vel um þessar mundir og Barnsley var mun betri aðilinn í leiknum á laugardag. Seinna mark Chelsea var ólöglegt en slakur dómari Ieiksins tók ekki eftir því. „Þetta er versta dóm- gæsla sem ég hef séð í allan vet- ur,“ sagði Wilson, stjóri Barnsley, allt annað en sáttur í leikslok. Wenger og félagar komnir á skrið Arsenal vélin virðist vera að ná sér aftur á strik. Það skipti engu máli þó svo Seaman, Wright og Vieira væru ekki með gegn lélegu Sout- hampton Iiði um helgina. Frakk- inn Emanuel Petit var frábær á miðjunni og Arsenal vann auð- veldan 3:0 sigur og eru þeir rétt á eftir toppliðunum. Arsene Wen- ger, stjóri Arsenal, var ánægður með sína menn í Ieikslok. „Við erum að spila vel um þessar mundir og þó svo möguleikar okk- PauI Ince og félagar í Liverpool náðu ekki að nýta sér tap United um helgina. Broddl vann Broddi Kristjánsson úr TBR varð íslandsmeistari í einliðaleik í badminton í 13. skiptið um helgina. Broddi lagði ungan og efnilegan spilara, Svein Sölvason, í úrslitaleik mótsins, 15:3 og 15:6. Broddi vann fyrri hrinuna nokkuð örugglega en í þeirri síðari byrjaði Sveinn vel en náði samt sem áður ekki að halda út alla hrinuna og þar með varð Islandsmeistaratitil) Brodda að veruleika. Sveinn, sem einungis er 19 ára gamall og hefur æft bad- minton frá 9 ára aldri, stóð sig mjög vel um helgina og þar er mikið efni á ferð í badmintoníþróttinni. Elsa Nielsen endurheimti Islandsmeistaratitil sinn í einliðaleik kvenna. Þetta er sjötti Islands- meistaratitill sem Elsa vinnur fyrir TBR en hún háði harða keppni við Brynju Pétursdóttir en vann Ioks sigur í oddalotu. Broddi Kristjánsson og Arni Þór Hallgrímsson unnu Tryggva Nielsen og Njörð Lúðvíksson í tví- liðaleik karla, 15:6 og 15:6. í tvíliðaleik kvenna sigruðu hins vegar Elsa Nielsen og Vigdfs Ásgeirs- dóttir. Þær iögðu Önnu Sigurðardóttir og Söru Jónsdóttir 15:4 og 15:3. Að lokum sigruðu Arni Þór Hallgrímsson og Drífa Harðardóttir í tvenndarleik en þau sigruðu Erlu Hafsteinsdóttir og Þorstein Hængsson í úr- slitaleik, 15:4 og 15:8. Broddi Kristjánsson var frábær á íslandsmótinu í badminton um helg/na. - mynd: bo ar á að ná United séu litlir þá eru þeir til staðar", sagði Wenger. Brian Little, stjóri Aston Villa, er kominn í slæma stöðu með lið sitt. Liðið tapaði fyrir Newcastle á heimavelli á sunnudag og er nú komið í fallhættu. David Batty skoraði sigurmarkið og hefðu gestirnir getað bætt við fleirum. Með svona spilamennsku heima- manna ættu leikmenn Atletico Madrid ekki að hafa áhyggjur af því að mæta Aston Villa í 8 liða úrslitum evrópukeppni félagsliða á næstunni. Crystal Palace hefur spilað 11 leiki á heimavelli í vetur og enn ekki náð að sigra. Með svipaðri spilamennsku og liðið sýndi á laugardag telja spekingar á Bret- Iandseyjum að óvíst sé hvort Palace vinni leik á heimavelli í all- an vetur. Vörn heimamanna þótti hræðileg og það eina sem virðist geta bjargað Palace frá falli er hversu fljótt sjúkraþjálfarar liðs- ins ná að koma Italanum Lombardo í lag. Trevor Sinclair bytjaði feril sinn hjá West Ham með stæl. Sinclair, sem West Ham keypti frá QPR á dögunum, skoraði bæði mörk liðsins í jafntefli gegn Everton á heimavelli. West Ham hefði sigr- að ef hinn ungi Rio Ferdinand hefði ekki gert mistök í vörn heimamanna sem Ieiddu til jöfn- unarmarks Madar. — jj Úrslit helgariimar Sunnudagur: Aston Villa-Newcastle -Batty 55 Laugardagur: Arsenal-Southampton -Bergkamp 62, Adams 67, Anelka 67 Bolton-Coventry -Sellars 22 - Whelan 25, Huckerby 57, 65 Dublin 73, 79 Chelsea-Bamsley -Vialli 22, Hughes 47 C.Palace-Leeds -Wallace 7, Hasselbaink 13 Derby-Tottenham -Sturridge 25, Wanchope 76 - Fox 46 Liverpool-Blackburn Man.Utd-Leicester -Cottee 28 Sheíf.Wed-Wimbledon -Pembridge 14 - Hughes 21 West Ham-Everton -Sinclair 9, 47 - Barmby 25, Madar 58 0:1 3:0 1:5 2:0 0:2 2:1 0:0 0:1 1:1 2:2 Staðan í deildinni eftir leiki helgarinnar: Man Utd 24 15 Chelsea 24 14 Blackburn 24 12 Liverpool 24 13 Arsenal 23 11 Derby 24 11 Leeds 24 11 West Ham 24 11 Leicester 24 8 Newcastle 24 9 Sheff.Wed 24 8 Southampt. 24 8 Coventrj' 24 6 Everton 24 7 Aston Villa 24 7 Wimbledon 23 6 C.Palace 24 5 Tottenham 24 6 Boíton 24 4 Barnsley 24 6 4 5 51:18 49 3 7 52:25 45 9 3 44:24 45 6 5 39:19 45 8 4 42:26 41 6 7 39:30 39 5 8 34:27 38 2 11 36:35 35 9 7 27:22 33 5 10 25:29 32 6 10 37:47 30 4 12 26:33 28 9 9 28:34 27 6 11 28:35 27 6 II 26:34 27 8 9 22:27 26 8 11 21:34 23 5 13 21:41 23 10 10 21:40 22 3 15 20:59 21

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.