Dagur - 05.02.1998, Side 11
FIMMTUDAGUR 5 . FEBRÚ A R 1998 - 27
Ðagur.
BÍLALÍFIÐ í LANDINU
af sæmilegum launum. Aðstæður breytt-
ust hjá Jóhanni Ólafssyni og Sigurgesti
og fleirum var boðið að vinna fyrir krónu
og fímmtíu á tímann. Sá galli var þó á
gjöf Njarðar að ef ekkert var að gera, þá
fengu drengirnir ekkert kaup. Og sú varð
raunin stundum að þeir sátu heilu dag-
ana, - kauplausir, því ekki var alltaf mikið
að gera.
Smám saman lærði Sigurgestur á við-
gerðir á bílum. Hann þótti afar næmur og
góður fagmaður og varð þegar tímar liðu
sérfróður um bíla General Motors, og þá
sérstaklega Chevrolet. Jóhann Ólafsson
hækkaði smám saman kaupið. „Já, það
teygðist á þessu, ég vann hjá fyrirtækinu í
27 ár,“ segir Sigurgestur. Chevrolet var
uppáhaldsþíll Sigurgests, - hann varð
sérfróður um bílvélarnar, fagið þótti hon-
um alla tíð skemmtilegt. Fyrsti bíll hans
var auðvitað - Chevrolet!
Bílabransinn í gömlu Reykjavík
Bílaverkstæði borgarinnar voru í mið-
bænum á þessum bernskuárum bílsins. I
Kolasundi var Páll Stefánsson, Jóhann
Ólafsson við Hverfisgötu. Egill Vilhjálms-
son settist að inn við Rauðará, en beint á
móti honum var Sveinn Egilssons
með sfna starfsemi, og seinna hóf
Ræsir að selja Benzana. Hjá P.
Stefánssyni kom fyrsta gryfjan,
afar mikil nýjung fyrir bifvéla-
virkja. Hún kom ekki til af góðu.
Danskur bifvélavirki á verkstæð-
inu var svo feitur að hann komst
ekki undir bílana með öðru móti!
Bensínafgreiðslur komu fljótlega.
Þær voru á vegum Hins íslenska
steinolíufélags, síðar ESSO og
DDPA, sem almenningur kallaði
ævinlega Danskur djöfullinn pínir
alþýðuna. Bíla“brask“ hófst mjög
snemma og framsýnir menn sáu
mikla framtíð í bílnum, þrátt fyrir
að vegir væru slæmir og bílar
fengju herfilega útreið.
meira á bílana en gefið var upp,“ segir
Sigurgestur. Hann segir að algengt hafi
verið að setja 3 tonn á bíla sem skráðir
voru fyrir helmingi minna. Menn voru í
akkorði við ýmsan akstur og tóku áhætt-
una.
Sigurgestur segir að algengt hafi verið
í utanbæjarbíltúrum að hafa varaöxul
með sér. Það gat komið sér vel. Sjálfur
þurfti hann að skipta í eitt skiptið. Vanur
maður með réttu verkfærin var hálftíma
til klukkutíma að vinna verkið.
Bifvélavirkjun varð ekki iðngrein á Is-
landi fyrr en 1935, og fyrstu bifvéla-
virkjarnir fengu ekki iðnréttindi fyrr en
árið eftir. Þá gekkst hópur ungra manna
undir próf. Einn í þeim hópi var einmitt
Sigurgestur Guðjónsson, og honum gekk
prýðilega á prófinu. Hann átti eftir að
starfa í stjórn Félags bifvélavirkja um ára-
tuga skeið sem ritari í 25 ár og formaður £
16 ár. Þá voru tímar harðra vinnudeilna
og bifvélavirkjar háðu 72 daga verkfail
um miðja öldina til að knýja fram kaup-
kröfur sínar. Það var við hæfi að Vigdís,
kona Sigurgests, var heiðruð með fögru
armbandsúri, þegar Sigurgestur lét af
starfi í félaginu, „fyrir að lána manninn
nokkra
áratugi.
Chevrolet sér-
fræðingur
hefur átt 17
Toyotur!
„Eg smíðaði
mér skemmti-
Iegan bíl,
hálfkassabíl,
sem var sér-
lega góður
ferðabíll.
Það byrjaði
með því að
mér var gef-
in Chevro-
let-grind.
Síðan fór ég
±„ a hh‘t .
og grúska. Þetta
var bráð-
skemmtilegur 5
manna bíll og
góður kassi á
pallinum. Eg
™22jj™svo,engi, WM hann fyrir Al árs
Hinn rennilegasti bíll eins og sjá má.
Bifvélavirkjar Jóhanns Ólafssonará fjórda áratugnum, Þjóðleikhúsið errisið.
Það gamla er ekki alltaf gott
Mörgum hættir til að telja aö
samasemmerki sé ævinlega milli
gamals og góðs. En voru hílamir ú
jjórða áratugnum sterkari og betri
en þeir eru í dag?
„Nei, nei. Það er nú langt frá
því. Þeir slitnuðu illa bílarnir og
gera enn, en enn verr í gamla
daga. Og þess vegna hafði maður
nú vinnu af þessu. Þetta var mjög
frumstætt og einfalt á þessum
árum. Núna rekur maður upp stór
augu þegar maður lítur undir
húddið á nýjum bílum með öllu
þessu dóti undir. Þróunin er gífur-
lega hröð frá því ég byrjaði fyrir
næstum 70 árum á bílaverkstæði,
komin bein innspýting og mikið af
rafeindabúnaði. Endingin á
hemlabúnaði og fjöðrum var h'til.
Vegirnir afleitir og mönnum hætti
oft á tíðum til að leggja helmingi
NÍUNDA VELTAN. Balinn var hann kallaður þessi bíll, sem varýmist á hjólunum eða
þakinu. Sagt er að Balanum hafi verið hvolft 9 sinnum, aðrir segja reyndar 10 sinnum.
Hér er hann oltinn á móts við Laugabrekku við Suðurlandsbraut. Eigandi bílsins var
Siggi i Bransanum sem kallaður var. Síðar var bíllinn seldur nýjum eiganda, - og enn
síðar keypti Sigurgestur hann.
átti hann í ein 7 ár áður
en ég seldi hann. Þetta
var allt original Chevro-
let. Eg verð að segja að
þessi bíll, R-605, var
minn uppáhaldsbíll," seg-
ir Sigurgestur.
„Eg er steinhættur að
snerta á bílnum mínum,
skipti ekki einu sinni um
peru,“ segir Sigurgestur
og hlær. „En oft var þetta
þannig meðan ég átti bíla
sem voru nokkurra ára
gamlir að ef maður ætl-
aði að gera við eitthvað
smávegis, þá leiddi eitt af
öðru, alltaf var hægt að
dytta að einhverju, og
kvöldið búið áður en
maður vissi af.“
Sigurgestur átti líka
bíl sem var talsvert fræg-
ur í bænum og menn
kölluð „Balann", Chevro-
let af ‘29 árgerð. Þeir
töldu að hann væri ekki nógu merkilegur
til að kallast „car“ eins og flottir bílar
voru kallaðir. Balinn var frægur fyrir það
að hafa oltið 9 sinnum. Eftir að Sigur-
gestur eignaðist hann valt hann ekki,
enda var ökumannsferill hans góður.
Fleiri bíla átti Sigurgestur, bíla sem hann
Iagði hæfileika og sál í. Hann keypti
gjarnan notaða bíla, gjarnan frá sölu-
nefnd varnarliðseigna og þá oftast Chevr-
olet, - gerði þá Iistilega upp þannig að
engu var líkara en að þeir væru nýkomnir
úr „kassanum".
En hvaða bíl ekur hann f dag? Chevro-
let auðvitað? Nei, Toyota. Hann segir
þessa amerísku of stóra fyrir sig. Síðustu
sautján bílar (!) í hans eigu hafa allir
verið frá Toyota. Manni dettur í hug að
svona kúnni fái ríflegan afslátt.
„Nei, nei, það er nú öðru nær,“ segir
Sigurgestur og hlær við. Hann segist
varla þora að koma í umboðið lengur, -
þeim takist að selja honum nýjan bíl
nærri alltaf þegar hann birtist!
-JBP
Kynnstu töfrum Suzuki
tihndu hve rytnio er gott
Baleno Wagon er aflmikill og hagkvæmur í rekstri,
hefur einstaklega góða aksturseiginleika
og býður uppá allt að 1.377 lítra farangursrýmil
ALLIR
SUZUKI BlLAK
ERU MEÐ 2 ÖRYGGIS-
LOFIPÚÐUM.
SUZUKI
Al’L OG
ÖRYCGl
SUZUKI BILAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
SUZUKI
BALENO WAGON GLX: 1.445.000 KR. • WAGON (il X 4x4; 1.505.000 KR