Dagur - 28.02.1998, Side 2

Dagur - 28.02.1998, Side 2
II- LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 1997 HÚSIN í BÆNUM FREYJA JÓNSDÓTTIR SKRIFAR í BYRJUN JANÚAR 1902 kaupir Bergur Jónsson byggingarlóð norðan við Laugaveg. Sama ár í september hefur Bergur reist íbúðarhús á Ióðinni, og var húsið þá tekið til brunavirðingar. I skjöl- um virðingamanna er því lýst á eftirfarandi hátt: Ibúðarhús, tvær hæðir og kjallari, byggt af bind- ingi, 6.5 x 5.5 metrar að grunn- fleti. Það er klætt utan með sam- settum borðum, pappa og járni yfir. Þak er járnklætt á súð og með pappa í milli. Á aðalhæðinni eru þrjú íbúðarherbergi og eldhús sem allt er þiljað innan og herbergin með panel og pappa innan á þilj- um og neðan á Ioftum. Allt málað. Á hæðinni er einn ofn og ein elda- vél. Uppi eru fjögur herbergi, þilj- uð og máluð. Þar eru tveir ofnar og tvær eldavélar. Kjallari er undir öllu húsinu með steyptu gólfi. Við norðurhlið hússins er inn og uppgönguskúr byggður af sama efni og húsið sjálft. Allur þiljaður að innan og málaður. Bergur Jónsson átti húsið ekki lengi og 6. febrúar 1905 selur hann eignina í tveimur helming- um, þeim Jóni Þorsteinssyni og Jóni Sigmundssyni. Jón Þorsteins- son var söðlasmiður og ári síðar byggði hann á lóðinni verkstæðis- hús, 7.5 x 3.1 metrar að grunn- fleti, einlyft, byggt af bindingi og með járnklæddu skáþaki. I desember 1905 selur Jón Sig- mundsson Jóni Þorsteinssyni sinn helming eignarinnar. I þrjú næstu ár á eftir rak Jón Þorsteinsson þama söðlasmíði og verslun til ársins 1909 en þá selur hann Þórði Jónssyni alla eignina. Árið 1911 byggði Þórður skúr norður úr íbúðarhúsinu að grunnfleti 7.5 x 3.6 metra. Snemma á árinu 1914 selur Þórður Jónsson firmanu „Von“ alla eignina ásamt lóð. Árið 1908 áttu heima í húsinu: Jón Þorsteinsson söðlasmiður, fæddur 1874; María Guðlaugs- dóttir kona hans, fædd 1885; Is- leifur Þorsteinsson námsmaður, fæddur 1878; Jóhann Isleifsson vinnumaður, fæddur 1885; Óh'na Einarsdóttir vinnukona, fædd 1887; og Ólafur Jónsson, skó- smiður fæddur 1867. Eins og títt var á þessum tíma var búið þröngt og í þessu manntali eru fjögur^ önnur heimili í húsinu með sam- tals sjö manns. Eftir að fírmað Von varð eigandi hússins bjó verslunarstjórinn á efri hæðinni ásamt fjölskyldu sinni og fleira fólki. Hallgrímur Tómasson var þá verslunarstjóri hjá Von. Samkvæmt íbúaskrá 1915 eiga heima í húsinu: Hallgrímur Tóm- asson verslunarstjóri, fæddur 19. desember 1877 að Stærri - Ár- skógum Arnarneshrepp; Hansína Hansdóttir húsfrú, fædd 25. febr- úar 1881 að Stórabergi Vindhæi- ishreppi; Tómas Hallgrímsson, fæddur 24. apríl 1902 að Graf- arósi við Hofsós; Jónas Hallgríms- son, fæddur 12. mars 1910 á Siglufirði; Charl E. Holm verslun- armaður, fæddur 25. desember 1848 að Grafarósi við Hofsós. Ennfremur áttu heima í húsinu: Sigríður Anna Jónsdóttir vinnu- kona, fædd 1899 á Norðfirði; Þór- dís G. Bjarnadóttir húskona, fædd 28. október 1883 í Skoreyjum TrT’fj 1 ÍL I ■m m : p*; M \i 'fl! | ■ ■ n H 0 I B | 1 Eftir að Gunnar i Von keypti húsið um 1920 lét hann hækka það um eina hæð og er myndin tekin er þær framkvæmdir stóðu yfir. Laugavegur 5 5 Von húsið og meðal annars lét hann lyfta því og gerði steinsteypuhæð á milli kjallara gamla hússins. Þá var gerð viðbygging úr stein- steyjru, 32.37 fermetrar, við vest- urenda hússins og gluggum á framhlið breytt. Ilúsinu v'ar lyft um 2.3 metra og þótti mörgum Helgafellssveit; Marta Lárusdóttir húskona, fædd 9. september 1853 að Innra - Hólmi á Akranesi; Sig- urður Sigurðsson daglaunamaður, fæddur 14. júlí 1876 að Ystakoti í Vestur - Landeyjum; Báðhildur Jónsdóttir húsfrú, fædd 5. október 1876 á Svalbarði í Bessastaðar- hreppi; og dætur þeirra, Kristjana, fædd 5. apríl 1903 að Ystakoti og Guðlaug, fædd 15.nóvember 1906 á Selsskarðí í Garðahreppi. 1915 fær I lallgrímur Tómasson að breyta götuhlið hússins, þannig að í stað glugga á kjallara voru gerðar útidyr. Leyfið var veitt með þeim skilyrðum að tröppugangur næði ekki Iengra út að götu en hálfan metra. Ári síðar fær Hall- grímur að breyta gluggum á út- byggingu við húsið. Árið 1920 er Gunnar Sigurðs- son kaupmaður búin að eignast húsið. Ekki er vitað með vissu hvað ár hann kom þangað en það mun hafa verið laust fyrir 1920. Hann kaupir alla eignina ásamt þcim rekstri scm í húsinu var, fir- manu Von. Fljótlega hóf hann að stækka nýstárleg framkvæmd. Ári síðar var gerð viðbygging við austurend- ann og viðbygging sem var þar fyr- ir rifín. Á svipuðum tíma fær Gunnar keypta lóðarræmu til við- bótar lóð sinni, að norðanverðu við húsið. Vorið 1927 er byggt á lóðinni tvílyft geymsluhús (pakkhús) úr steinsteypu. Ilúsið var oftast kall- að Svarta-húsið. Á fyrstu árum Gunnars á Laugavegi 55 hefur varla liðið meira en ár á milli stórfram- kvæmda við stækkun og endur- bætur á húsakynnum þar. I brunaviröingu sem gerð var í okóber 1924 eftir að búið er að lyfta húsinu, eru á fyrstu hæð tvær sölubúðir með borðum, skúffum, skápum og hillum og tvö skrifstofuherbergi. Á gólfum búð- anna eru leirflísar og innan á veggjum eru Iagðar postulínsflísar. Að öðru leyti er hæðin þiljuð inn- an og ýmist veggfóðruð eða mál- uð. Á efri hæð eru Ijögur íbúðar- herbergi, eldhús, baðherbergi með klósetti og anddyri. I risi eru þrjú íbúðarherbergi, eldhús og gangur. Kjallari er undir öllu húsinu, hólfaður í fímm geymsluklefa. Inn- og uppgönguskúr er \ið norðurhlið, byggður eins og eldri hluti hússins. Hér að framan hef- ur verið getið um verslunarhús sem var rifið, þegar þessi virðing Systurnar Guðriður og Gyða í Dömu & herrabúðinni. Dóttir Guðríðar er með þeim á myndinni. Margrét og Gunnar í stofunni á Laugavegi 55. var gerð stóð það enn. Þá er getið um viðbyggingu tvílyfta, við vest- urgafl hússins, úr steinsteypu á þrjá vegu, en Ijórða hliðin er gafl eldra hússins. Þakið er úr borða- súð með pappa og járni yfir. Á neðri hæðinni eru tvö lítil herbergí, stigagangur og opin gangur. Á efri hæðinni eru tvö íbúðarherbergi og gangur. Allt þiljað innan og ýmist veggfóðrað eða málað. Kjallari er undir allri viðbyggingunni með steinsteypu- gólfi sem notaður er til geymslu. Þá var einnig búið að byggja þvottahús úr steinsteypu á lóð- inni, með járnþaki á borðasúð, 2.6 x 3.0 metrar að grunnfleti. Á neðri hæð hússins hafa alltaf verið verslanir. En lengst af var í húsinu verslunin Von, sem Gunn- ar Sigurðsson rak ásamt frjöl- skyldu sinni. Nýlenduvöruverslun var í við- byggingunni \ið austurenda húss- ins sem Páll Hallbjörnsson rak. Næsti kaupmaður á eftir honum var Ásgeir Ingimarsson. Eftir að Ásgeir hætti að versla 1945 settu dætur Gunnars, Gyða og Guðríð- ur, á stofn Dömu & herrabúðina og ráku hana sjálfar þar til fyrir fáum árum að aðrir tóku við rek- stri hennar. Fyrir um átta árum var skipt um innréttingar í versl- uninni. Verslunina Von rak Gunnar Sig- urðsson í þrjá og hálfan áratug og verslaði bæði með unnar og fer- skar kjötvörur. Einnig lagði hann kapp á að vera með fjölbreytt úrval af grænmeti og ávöxtum. Kjötbúð- in Von var á sínum tíma mjög þekkt nafn í heimi viðskiptanna. Eftir að verslunin hætti var G.B. Silfurbúðin í plássinu sem Von hafði verið. Amatör, verslun með fílmur og myndavélar var í vestari viðbyggingunni og einnig var Guð- mundur Hannar úrsmiður um árabil með verslun og verkstæði í húsinu. Ljósmyndastofa var í mörg ár á efri hæð hússins. Gunnar Sigurðsson, sem oftast var kallaður Gunnar í Von, var einn af kunnustu athafnamönn- um Reykjavíkur. Hann var fæddur á Fossi á Skaga. Olst upp í stórum systkinahóp og þóttí heimili for- eldra hans bera af í myndarskap. Kona hans var Margrét Gunnars- dóttir frá Ysta - Gili í Langadal og er henni lýst sem mikilli gáfu og mannkostakonu. Faðir hennar var Gunnar Jónsson frá Glaumbæ í Skagafirði og móðir hennar Guð- ríður Einarsdóttir frá Bólu í Skagafírði. Margrét var kvenna- skólagengin frá Húsmæðraskólan- um á Blönduósi. Hún þótti með afbrigðum myndarleg húsmóðir og var oft gestkvæmt á heimili þeirra hjóna. Þau eignuðust fimm dætur sem allar tóku drjúgan þátt í rekstri búðarinnar og einnig við rekstur búsins á Gunnarshólma. Það má með sanni segja að til- vera Gunnarshólma sé ævintýri ungra hjóna. En þau Gunnar og Margrét reistu sér sumarbústað rétt utan við borgina 1928. En bú- staöurinn varð að stórbýlinu Gunnarshólma sem blasir við þeg- ar er ekið um Suðurlandsveg. Laugavegur 55 er reisulegt hús með milda sögu sem hér að fram- an hefur verið sagt ágrip af. Núna eru í húsinu þrjár verslanir: Dömu & herrabúðin, Carl A. Bergmann úra og skartgripaverslun og Straumar, tískuverslun með dömufatnað. Á efri hæð er stór og glæsileg íbúð og einnig er íbúð í risi. Hús- inu hefur alltaf verið sýndur sómi og verið vel um það hugsað. Það er nú í eigu afkomenda Gunnars og Margrétar. Helstu heimilciir eru frá Borgarskjalasafni.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.