Dagur - 03.03.1998, Síða 2

Dagur - 03.03.1998, Síða 2
2 —ÞRIÐJUDAGUR 3.MARS 1998 FRÉTTIR f t f jf j : • i j v d 3 f iFi í J % flkf í) í y -M/ j / m , , [4 / j * ; lr- 1 V'íj Frá Höfn. Þar á hótelinu hafa japanskir loðnukaupendur aðstöðu til að elda eigin mat. Þá þykja loðnuréttir þeirra mjög góðir, þótt þeir séu landan- um framandi við fyrstu sýn. rip á aust- hótelum Hóteleigendur fitna á loðnuvertíð. Japanskir setja svip sinn á maimlíí ið. Fjölskrúðugt skemmt- analíf. „Japanarnir hafa aðstöðu hérna til að elda sinn mat sjálfir og m.a. loðnu sem bragðast mjög vel,“ segir Sigurbjörg Arnadóttir á Hótel Höfn í Hornafirði. Austfirskir hóteleigendur bera sig vel þessa dagana enda mikið að gera hjá þeim þegar Ioðnuvertíðin er komin á fulla ferð. Japanskir fulltrúar loðnu- kaupenda setja svip sinn á flest hótel og gistihús íjórðungsins og ekki óal- gengt að þeir komi með hráefni að heiman til matargerðar á meðan þeir dvelja eystra. Mjög gott „Þetta er mjög gott á öllum hótelum hér eystra og alveg klárt að það eru uppgrip," segir Eyþór Þórisson á Hótel Snæfelli á Seyðisfirði. Þar voru menn í gær í óðaönn að gera klárt fyrir heljarmikla afmælis- veislu vegna 50 ára afmælis Stáls í bænum. Reiknað var með hátt í 200 manna veislu um helgina til viðbótar við daglegar annir vegna gesta sem eru í bænum vegna loðnuvertíðarinnar. Dragdrottningar „Mér skilst að það sé mikið að gera miðað við árstíma," segir Guðmundur Gíslason á Hótel Egilsbúð í Neskaup- stað, en þetta er fyrsti veturinn sem hann er í þessum bransa þar eystra. Egilsbúð er aðallega veitinga- og skemmtistaður. Um næstu helgi er fyr- irhugað að halda þar keppni svokall- aðra dragdrottninga með þátttöku heimamanna og útvalinna drottninga frá höfuðborgarsvæðinu. Þá er ekki útilokað að austfirskar fegurðardísir stígi þar á stokk um þá sömu helgi. Guðmundur segir töluverða grósku í skemmtanalífi íjórðungsins þrátt fyrir þá miklu törn sem einkennir allt at- vinnuh'fið þegar Ioðna er annarsvegar,- - GRH Sigurgeir Sigurðsson, bæjar- stjóri á Seltjamarncsi, mun senn bæta íslandsmet Ásgríms Ilartmamissonar í Ólafsfirði, sem sat í 36 ár í bæjarstjóra- stóli. Sigurgeir lilaut blússandi kosningu í fyrsta sæti á lista sjálfstæðismanna á dögunum og nær þvl áreiðan- lega að sitja í 40 ár sem bæjar- stjóri! Þeir sem leið eiga um Nesið segja að ljós logi á bæjarstjóraskrifstof- uimi upp úrklukkan 8 á hverjummorgni. Sigur- gcir er mættur. Byggingameistarar og ýmsir sem þurfa að ná tali af bæjarstjóranum mæta snem- ma, ganga bcint inn og Ijúka sínu erindi. Sigur- geir er af gamla skólanum, - dymar era alltaf opnar upp á gátt... Sigurgeir Sigurðsson. Einn pottverja, úr íþrótta- lu-eyfingunni í Reykjavík, var miður sín í gær. Hann sagðist hafa setið ráðstefnu sem íþróttabandalag Reykjavíkur gekkst fyrir um íþróttamál á laugardaginn. Á ráðstefnuna var boðið einum fulltrúa frá hvorum framboðslistanum til borgarstjórnarkosninganna í vor. Steinunn Óskarsdóttir mætti fyrir R-listann og flutti ræðu þar sein hún skýrði frá því sem R-listinn hefði gert sl. 4 ár í íþróttamálum í horginni og hvað hann ætlaði að gera næstu 4 árin haldi liann meirihlutanum. Frá D-lista mætti Guðlaugur Þór, sem er í 7. sæti listans. Hann kom algerlega óundirbúinn, sagð- ist engu ætla að lofa um íþróttamál í borgmni næði D-listinn meirihluta. Haim skýrði liins vegar frá þvl að hann væri áhugamaður um cnska fótboltann. Sjálfstæðismönnum, sem eru margir innan ÍBR, oíbauö og fékk Guðlaugur Þór orð i cyra frá þehn. V FRÉTTAVIÐ TALIÐ Jón Ásbergsson framkvæmdastjóri Utflutnings- ráðs. ísland tekur þátt í heims- sýningunni EXPO ’98 í Lissabon og erhafið þema sýningarinnar. 30 áreru frá því ísland var síðast með. Rödd okkar brýn á ári hafsins - Hvers vegna þetta 30 ára sýningarhlé og hvers vegna er það rofið núna? „Tilefnið núna er auðvitað að þema sýn- ingarinnar er hafið. Það er ár hafsins og ís- lensk stjórnvöld gátu þess vegna illa setið hjá. Fram að þessu hefur þetta verið spurn- ing um umstang og kostnað." - Hvað munu stjórnvöld og fyrirtæki sýna á EXPO? „Þetta er ekki vörusýning og fyrirtæki koma því ekki inn i þetta. Samningarnir eru milli ríkisstjórna og það eru þjóðlönd sem taka þátt. Við kynnum þarna eins og aðrir ýmislegt sem snýr að hafínu og við leggjum áherslu á að Island eigi allt undir auðlind- um hafsins og sé þess vegna nauðsynlegt að umgangast hafið af virðingu. Við verðum vitaskuld með almennar upplýsingar um Is- land, en það er hafið og sjávarafurðirnar sem eru í forgrunni." - Fer sýning Islands eitthvað vtðar eftir EXPO í Lissabon? „Disney-world hefur boðið sýningaraðil- um að setja þessa sýningu upp á Florida, í skemmtigarðinum í Epcot center. Það hefur engin afstaða verið tekin til þess ennþá og ég held að það sé best að sjá til hvernig þetta gengur fyrir sig í Lissabon áður en maður tekur afstöðu til framhaldsins." - Hver er kostnaðurinn fyrir ísland vegna EXPO ’98? „Kostnaðaráætlun er upp á 75 milljónir króna og þar í er innrétting á 640 fermetra sýningarsvæði, með öllu kynningarefni og rekstri í fjóra mánuði. Það verða 12 starfs- menn úti sýningartímann, en núna eru að fara út 5 smiðir til að byggja skálann og síð- ar fara tæknimenn til að setja upp ýmsar vélar og slíkt.“ - Hverju vonast tnenn síðan að þetta skili þjóðarbúinu? „Við vonumst til að þetta festi okkur í sessi meðal þeirra þjóða þar sem hafið skipt- ir verulegu máli, að við séum með þessari sýningu að tryggja að rödd okkar heyrist alltaf þegar fjallað er um málefni hafsins og nýtingu auðlinda j>ess.“ - Það þýðir væntanlega að stjórnvöldum finnst eitthvað skorta þarna á? „Eg vil ekki leggja mat á það, en allavega fannst mönnum að við gætum ekki setið hjá þegar þessi sýning var lögð fyrir þá með þessu móti. Og sjálfsagt má alltaf gera bet- ur í að kynna málstað Islendinga." - Hvar voruttt við tneð siðast og hverju skilaði það? „Við vorum með í Montreal 1967 síðast og hættum reyndar við að vera með í SeviIIa 1992 þegar Ijósl þótti að kostnaðurinn yrði um 300 milljónir á núvirði. í Montreal vor- um við í samfloti með Norðuriöndunum og ég skal ekkert segja um árangurinn, en þá vakti sýning Islands þó verulega athygli og feikilega margir sem komu að skoða það sem við höfðum upp á að bjóða. Þá var þem- að orkan og við sýndum veitur og vatnsföll svo eitthvað sé nefnt.“ - FÞG

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.