Dagur - 03.03.1998, Síða 3
ÞRIÐJUDAGUR 3.MARS 1998 - 3
FRÉTTIR
MUljóna fj árfest-
ingar verda seldar
Öll tæki Bakka í
Ein fullkomnasta rækjuvinnsla lands rifin og seld: Öll tæki og tól íBakka I Hnífdal verða
seld þegar starfsemin hættir um næstu mánaðamót Ekki er ýkja langt siðan þáverandi eig-
endur fjárfestu fyrir mikið fé i nýjum tölvubúnaði og öðrum tækninýjungum. Leitað verður
að vinnu fyrir stafsmenn.
Hnífsdal verða seld.
Rækja ekki á lausu.
Starfsfólki vísað á
önnur fyrirtæki.
Þorbjörn hf. í Grindavík hyggst
selja öll tæki og tól í rækju-
vinnslu Bakka í Hnífsdal þegar
starfsemi hennar hættir um
næstu mánaðamót. Þessi vinnsla
er með þeim tæknivæddustu í
greininni og ekki mörg ár síðan
þáverandi eigendur fjárfestu þar
fyrir milljónir króna til að efla
samkeppnisstöðu fyrirtækisins.
Skortur á hráefni
Eiríkur Tómasson, fram-
kvæmdastjóri Þorbjarnar, segir
að þótt rækjukvótinn hafi aukist
töluvert, þá hafi þeir ekki hráefni
fyrir tvær verksmiðjur. Hann
bendir t.d. á að það sé mjög erfitt
um vik að kaupa rækju frá öðr-
um til að pilla. Það stafar m.a. af
því að verksmiðjur hafa verið að
stækka, auk þess sem mörg skip
séu komin í föst viðskiptasam-
bönd. Af þeim sökum m.a. var
ákveðið að hætta allri \innslu í
Hnífsdal og einbeita sér í stað-
inn að rekstri verksmiðjunnar í
Bolungarvík sem hefur aðgang
að nægu hráefni.
„Menn verða bara að gera það
upp við sjálfa sig. Eg get ekki
svarað því,“ segir Eiríkur að-
spurður út í þá gagnrýni Isfirð-
inga að lokun verksmiðjunnar í
Hnífsdal sé skólabókardæmi um
það þegar ákvörðun um lokun er
tekin af eigendum sem búa í öðr-
um landshluta. Af þeim sökum
þurfa þeir ekki að verja gjörðir
sínir augliti til auglitis við
þolendur sinna ákvarðana. Hann
segir að menn hafi einfaldlega
staðið frammi fyrir vali og því
ákveðið að loka verksmiðjunni í
Hnífsdal og einbeita sér þess í
stað að rekstri vinnslunnar í BoT
ungarvík.
Ahyggjulaust
Framkvæmdastjóri Þorbjarnar
segir að aðrir fiskverkendur í Isa-
fjarðarbæ hafi tekið vel í það að
athuga með vinnu fyrir það fólk
sem brátt missir vinnuna sína
hjá Bakka í Hnífsdal, ef það
bankar upp á. Þarna er um að
ræða 23 starfsmenn sem margir
hverjir hafa unnið í áratugi í
þessari verksmiðju og hafa því
lengri uppsagnarfrest en sem
nemur einum mánuði. Eiríkur
segist ekki hafa neinar áhyggjur
af þvf, enda verður unnið að
lausn þessa máls af stjórnendum
fyrirtækisins. -GRH
Samtök iðnaðarins vilja leyfa yfirtöku Myll-
unnar á Samsölubakaríi og breyta sam-
keppnislögum.
Bákarar
tapa
Breyta á niðurstöðu Samkeppn-
isráðs og leyfa yfirtöku Myllunn-
ar á Samsölubakaríi að mati
Samtaka iðnaðarins. Þau segja
nauðsynlegt að breyta sam-
keppnislögum. Stjórnarmenn
samtakanna segja niðurstöðu
þessa máls geta haft alvarlegar
afleiðingar, og hindrað hagræð-
ingu og samruna hjá fyrirtækj-
um í mörgum greinum iðnaðar-
ins. Til marks um gríðarlega
samkeppni bakaríanna er bent á
að greinin í heild hafi líklega
tapað um helmingi af eigin fé á
síðustu 5-6 árum.
„Ef samkeppnisráð óttast nei-
kvæð áhrif af samþjöppum í röð-
um framleiðenda væri þeim þá
ekki í lófa lagið að setja mark-
aðsráðandi fyrirtækjum á smá-
söluhliðinni skilyrði um úthlut-
un á hilluplássi á tilteknum
sviðum,“ segir í greinargerð
Samtaka iðnaðarins. -HEi
Jóna Dóra í prófkjör
en Valgerður hættir
Jóna Dóra Karlsdóttir,
eiginkona Guðmund-
ar Ama Stefánssonar
þingmanns, tilkynnti
þátttöku í prófkjöri
Alþýðufiokksins í
Hafnarfirði. Fundað
um bréf „samfylking-
arhópsins“.
Jóna Dóra Karlsdóttir, eiginkona
Guðmundar Arna Stefánssonar
þingmanns og fyrrum bæjarfull-
trúa, hefur tilkynnt þátttöku í
prófkjöri Alþýðuflokksins í Hafn-
arfirði. Valgerður Guðmunds-
dóttir er eini núverandi bæjar-
fulltrúinn sem ekki gaf kost á sér
áður en frestur rann út til að til-
kynna þátttöku í prófkjörinu.
FuIItrúaráð Alþýðuflokksfélag-
anna í Hafnarfirði funduðu í
gærkvöld um framboð í prófkjör
flokksins fyrir komandi bæjar-
stjórnarkosningar, en 14 til-
kynntu þátttöku, fjórar konur og
tíu karlar. Einnig var fjallað um
bréf frá „30 manna hópnum",
samfylkingarhópi félagshyggju-
fólks sem vill ltnýja á um samein-
að framboð til vinstri.
Gestur Gestsson ekki með
Ekki fékkst uppgefið í gærkvöld
hvaða einstaklingar hefðu til-
kynnt þátttöku sína í prófkjör-
inu, nema að Valgerður Guð-
mundsdóttir er eini núverandi
bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins
sem býður sig ekki fram. Það
þýðir að Ingvar Viktorsson bæj-
arstjóri, Tryggvi Harðarson, Arni
Hjörleifsson og Omar Smári Ar-
mannsson bjóða sig fram. Þá
staðfestir Jóna Dóra Karlsdóttir í
samtali við Dag að hún hafi til-
kynnt þátttöku sína. Af öðrum
sem bjóða sig fram má nefna
Eyjólf Sæmundsson, Hafrúnu
Dóru Júlíusdóttur, Unni Hauks-
dóttur og Jón Kr. Oskarsson.
Gestur Gestsson, formaður full-
trúaráðs Alþýðuflokksfélaganna,
tilkynnti ekki þátttöku, en hann
var efstur á lista í tillögum upp-
stillingarnefndar þegar sameinað
framboð var enn uppi á borðinu.
Kratar vörðust allra frétta um
prófkjörið og bréf samfylkingar-
hópsins fyrir fundinn. „Það er
ekki búið að ræða þetta,“ segir
Hörður Zophaníasson, formaður
prófkjörsnefndar. „Eg hugsa að
menn taki þó frekar vinsamlega
við efni bréfsins. Það er spurn-
ing hvort undirbúningurinn fyrir
prófkjörið sé ekki kominn of
langt til að hætta við allt og að
menn horfi þá frekar til þessa
hóps sem fyrsta kost í samstarfi
eftir kosningar, bjóði hann þá
fram með þessum hætti,“ segir
Hörður. - FÞG
AfJjreyingarsj ónvarp
íslenska sjónvarpsfélagið áætlar
að hefja útsendingar eftir rúm-
Iega tvo mánuði, í fyrstunni sjást
aðeins merki félagsins og stöku
tilraunasendingar, en dagskráin
hefst fyrir alvöru í ágúst eða
september.
Félagið hefur fengið úthlutaða
örbylgjurás og hyggst fyrst og
fremst sjónvarpa afþreyingarefni.
„Við verðum á léttari nótunum,
afþreyingarstöð með áherslu á
gamanþætti, skemmtiþætti og
kvikmyndir," segir Hólmgeir
Baldursson kaupmaður. Engin
fréttastofa eða eigin framleiðsla
verður. Framsetningin á efninu
„verður sjónrænt öðru \Tsi en
aðrir eru með,“ segir Hólmgeir
og bætir við að Póstur og sími
hafi gefið langt nef með því að
fara í eigin dreifingu á breið-
bandinu. Hann vildi ekki upplýsa
hvernig neytendur fengju aðgang
að stöðinni. „Eg verð að hafa
eitthvað eftir,“ segir Hólmgeir.
- FÞG
Framsókn aimað kvöld, Akureyrar-
listi næstu helgi
Framsóknarmenn á Akureyri hafa boðað til fundar
annað kvöld og er reiknað með að lagður verði fram
fullbúinn framboðslisti. Akureyrarlisti verður kynnt-
ur formlega um næstu helgi. A-flokkarnir og
Kvennalisti hafa náð samstöðu um framboð, og sam-
kvæmt heimildum Dags verða fjögur efstu sæti skip-
uð þeim Asgeiri Magnússyni, Oktavíu Jóhannsdótt-
ur, Þresti Asmundssyni og Sigrúnu Stefánsdóttur. Asgeir Magnús-
Um neðri sætin er enn rætt og er búið að ákveða að son' etsture ™k-
botn fáist í það mál fyrir næstu helgi. ureyradista.
Hörður efstur í Griudavík
Hörður Guðbrandsson verkstjóri varð efstur í prófkjöri Bæjarmálafé-
Iags jafnaðar-, félagshyggjufólks og óháðra í Grindavák nú um helg-
ina. 229 kjósendur tóku þátt í prófkjörinu.
Að listanum standa A-flokkarnir og óháðir og buðu átta einstakl-
ingar sig fram í prófkjörinu. Hörður fékk 99 atkvæði í fyrsta sætið og
það eina sem er bindandi. I öðru sæti lenti Pálmi Ingólfsson kennari
og bæjarfulitrúi. I næstu sætum komu Garðar Vignisson kennari,
Magnús A. Hjaltason sölumaður, Jón Gröndal kennari, Jóna H. Sig-
urjónsdóttir skrifstofumaður, Anna Schmidt verkakona og Trausti
Harðarson forstöðumaður.
Rýr hlutur kvenna vekur athygli og segist Áslaug Kjartansdóttir,
varaformaður stjórnar Grindavíkurlistans, vera óánægð með þennan
rýra hlut. „Það gekk reyndar illa að fá konur til að taka þátt í þessu,
en við erum mjög ósátt með útkomuna og þykjumst fullviss um að
bætt verði úr þessu við uppstillingu, því við látum konur ekki vanta í
efstu sætin,“ segir Aslaug. - FÞG
líankur með Liverpool
Keflvíkingurinn Haukur Ingi Guðnason hefur verið valinn í leik-
mannahóp Liverpool sem mætir Glasgow Rangers, á Ibrox í Glasgow,
í kvöld. Liverpool og Rangers leika þá minningarleik um Walther
Smith sem lengi hélt um stjórnartaumana hjá Skotlandsmeisturun-
um í Rangers. Haukur Ingi hefur fengið treyju númer 30 og kemur
inn í liðið fyrir Norðmanninn Övind Leonhardsen sein meiddist í
Ieiknum við Aston Villa á laugardaginn.
Kjaranefnd úrskurðar vlð lækna
Heimilislæknar fá „glaðning" í dag þegar úrskurður Kjaranefndar um
kjör þeirra verður kynntur. Læknar hafa ekki mikla trú á róttækum
úrbótum fyrirfram og hafa þegar kallað saman blaðamannafund,
nánast um leið og úrskurður birtist.