Dagur - 03.03.1998, Page 4

Dagur - 03.03.1998, Page 4
4 -ÞRIDJUDAGVR 3. MARS 1998 FRÉTTIR D^tr Stjómarliðar takast á um innheimtulðg Frumvarp til innheimtulaga hefur setid fast vegna deilna. Deilur milli og iimmi þingflokka stjómar- flokkanna valda því að frumvarpið um iuu- heimtulög situr fast hjá þeim. Frumvarp til innheimtulaga - þeirra fyrstu á Islandi - hefur ver- ið til meðferðar hjá ríkistjórn og stjórnarflokkunum. Frumvarpið hefur setið fast hjá þingflokkum stjórnarflokkanna í nokkrar vikur vegna deilna bæði á milli og ekki síður innan þingflokka stjórnar- flokkanna. Samkvæmt heimildum Dags er helsta deiluefnið að margir stjórnarþingmenn vilja að inn- heimtukostnaður lækki frá þvi sem nú er, en ekki sé gert ráð fyr- ir því í frumvarpinu. Eins finnst mönnum ýmislegt vanta í frum- varpið sem þar ætti að vera til að taka á mörgu sem nú þykir vera aðfinnsluvert varðandi inn- heimtu. Lögmenn eru einnig þessarar skoðunar. Lögmenn sem Dagur ræddi við segja lög um innheimtu bæði nauðsynleg og tímabær. En ýmis- Iegt vanti í frumvarpið svo fremur lítilla breytinga virðist raunveru- Iega að vænta. Tíl hagsbóta fyrir neytendur „Markmiðið með frumvarpinu er einkum að setja ákveðnar megin- reglur um innheimtu til hagsbóta fyrir neytendur, m.a. ákvæði um góða innheimtuhætti og inn- heimtuviðvörun, og draga úr óeðlilegum kostnaði skuldara vegna innheimtuaðgerða á frum- stigi, t.d. með því að takamarka í reglugerð hámarksfjárhæð inn- heimtukostnaðar, m.a. þóknunar, sem heimilt er að krefja hann um,“ segir í greinargerð. Með viðvörun væri stefnt að því að skuldarar almennt ættu kost á að greiða skuld sína innan stutts frests (minnst 10 daga) með lágmarkskostnaði áður en gripið yrði til innheimtuaðgerða á grundvelli réttarfarslaga. Akvæði um lágmarkskostnað miðast ein- göngu við greiðslu innan þessa frests. Þá er gert ráð fyrir að aðr- ir lögfræðingar og fjármálastofn- anir þurfi ráðherraleyfi til að stunda innheimtu fyrri aðra. Meðal skilyrðanna er að hafa næstu fimm ár á undan hvorki farið fram á eða Ient í greiðslu- stöð\oin eða gjaldþrotaskiptum og jafnframt að hafa starfsá- byrgðartryggingu (16,5 milljónir) til tryggingar fyrir kröfuhafa gegn fjárhagstjóni sem Ieyfishafinn ber ábyrgð á. Nauðsynleg lög Jón Magnússon, hrl. og varafor- maður Neytendasamtakanna, segir í sjálfu sér alveg nauðsyn- legt að setja slík lög, en líka æski- legt að þau gengju lengra en marka má af frumvarpinu. Jón saknar þess að sjá ekki mun nán- ara ákvæði um það hvað felst í góðum innheimtusiðum. Einnig þyrfti ákvæði um persónuvernd skuldara gagnvart óeðlilegum þvingunum. Þau þurfi beinh'nis að koma fram í Iagatextanum til þess að hafa eitthvert persónu- legt vægi. Jón telur að taka ætti dönsku innheimtulögin til enn frekari fyrirmyndar en gert hefur verið. - HEI /s.DÓR Þarfasti þjónninn fær sprautu gegn sóttinni. Svo virðist sem reglugerð vegna hrossasóttar sé ekki virt sem skyldi. Hestasóttin breiðist eim út Hrossasóttin geisar en er ennþá staðbundin við Suður-, Suðvest- ur- og Vesturland. Landbúnaðar- ráðuneytið gaf út reglugerð um helgina um varnir gegn hitasótt- inni og er þar allur flutningur hrossa milli hesthúsa, Iögbýla og landshluta bannaður. Hins vegar virðist sem varúðarreglum hafi ekki verið fylgt til hins ýtrasta. „Þetta er enn að breiðast út á þessum sömu svæðum og breiðist heilmikið út innan þeirra hest- húsahverfa sem sjúkdómurinn hafði áður greinst í. Hins vegar er veikin líka að stinga sér niður í nýjum hesthúsum og því er ástæða til að brýna enn frekar fyrir mönnum að fara varlega," segir Sigríður Björnsdóttir dýra- Iæknir. Ekki var í gær búið að greina sjúkdóminn, en hægt er að úti- loka hestainflúensu. — BÞ Dýpkimarheimild fengin Samgönguráðuneytið hefur veitt heimild til fram- kvæmda við dýpkun í Húsa- víkurhöfn á árinu. Um er að ræða dýpkun á rennu inn og með Norðurgarði. Þá hefur hafnarstjórn Húsavíkur fallið frá fyrri áformum um byggingu brimvarnargarðs við Norður- garðinn og stefnir þess í stað að gerð brimvarnargarðs lengra úti þar sem dýpi er 9- 11 metrar. Innan á þennan garð er fyrirhugað að komi viðlegukantur þar sem stærri skip geta lagst að. Frá Húsavíkurhöfn. Virkustu neytendurnir voru eins og Moskvubúar á miðvikudegi um helgina. Biöraöir og hamstur. - mynd: pjetur Deilt um lóðaveitingar Deilur hafa sprottið upp í kjölfar loðaveitingar á hafnarsvæðinu á dögunum. Auglýstar voru tvær lóðir og sóttu þrír aðilar um stærri lóðina, meðal annarra bæði hvalaskoðunarfyrirtækin á Flúsavík. Hafnarstjórn ákvað á fundi sínum að veita öðru lyrirtækinu, Norður- siglingu ehf., stærri lóðina en hét því að reyna að leysa úr málum annarra umsækjenda. Ymsir þeirra munu heldur ókátir með lyktir málsins, telja að óeðlilega hafi verið að því staðið og hafa ekki sagt sitt síðasta orð í málinu. Þegar málið var til umfjöllunar í bæjarstjórn í vikunni, þar sem lóðaveiting hafnarstjórnar var staðfest, mættu um 25 trillukarlar og aðrir neðanbakkamenn til að fylgjast með umræðum, sem er harla fá- títt á bæjarstjórnarfundum. Veðurguðir gegn sameinmgu og forvömum? Síðastliðinn miðvikudag var haldinn fundur á Húsavík um samein- ingarmál sveitarfélaga. Fundurinn átti upphaflega að vera í fyrri viku, en var frestað vegna veðurs. A tfmabili var útlit fyrir að aftur þyrfti að fresta þessum fundi, þar sem veður var enn rysjótt en það slapp til. Voru menn að velta því fyrir sér hvort veðurguðirnir væru á móti sameiningu Þingeyinga. Daginn eftir var fyrirhugð mikil ráðstefna á Húsavík um forvarnir gegn vímuefnanotkun ungmenna á Norðurlandi eystra. Þeirri ráð- stefnu þurfti að fresta vegna veðurs. Og þá vaknaði auðvitað spurn- ingin hvort veðurguðimir væru bæði á móti sameiningu Þingeyinga og forvörnum á Norðurlandi! Raftækj aveislan lækkar vísitölu Raftækjakaup eru 1% heimilisútgj aldanua svo 10% verðlækkun muudi lækka vísitöl- unaum 0,1% og skuldir heimilauua um 350 milljónir. Reynist raftækjaverð að jafnaði 10% eða 20% lægra núna í byrj- un mars en í febrúarbyrjun mundi það leiða til 0,1% eða 0,2% lækkunar á vísitölu neyslu- verðs. Vísitölulækkun á þessu bili mundi Iækka skuldir heimil- anna frá 350 til 700 milljóna króna - þ.e. nema að bakaríis- brauðin tækju upp á að hækka í staðinn. Vísitölufjölskyldan fer jafnaðarlega með þriðjungi meiri peninga í brauð heldur en raf- tækjakaup. Sjö prósenta hækk- un, eða lækkun á brauði, hefur álíka áhrif á vísitölu og skuldir eins og 10% hækkun eða lækkun á raftækjum. Raftæktn venjulega keypt fyrir jólin Meðalfjölskyldan (sem nú telur bara 2,8 manns) fer með 1% heimilisútgjaldanna í raftækja- kaup, eða um 24 þús.kr. á ári, samkvæmt neyslukönnun Hag- stofunnar. 10% til 20% verð- lækkun mundi spara henni 2-4 þúsund krónur á ári - þ.e.a.s. Ieiði lækkunin ekld til þess að fjölskyldan kaupi bara miklu fleiri tæki fyrir bragðið. Neyslukönnunin Ieiddi nefni- lega í ljóst að næstum helmingur raftækjanna (42%) eru keypt á síðasta ársfjórðungi, þ.e. fyrir jólin. Spurningin er því sú, hvort verðstríð í kringum opnun ELKO færir jólainnkaupin fram í mars þetta árið, eða hvort þetta verða bara „aukajól" og fólk kaupi síðan „jólatækin" eftir sem áður fyrir jólin eins og venjulega. - HEI

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.