Dagur - 03.03.1998, Side 5

Dagur - 03.03.1998, Side 5
 ÞRIBJUDAGVR 3.MARS 1998 - S FRÉTTIR Verkalýðshreyfíngin vill samráð við Pál Verkalýdshrcyliiigiii vill fá lagfæringar á húsnæðisfnunvarpi félagsmálaráðherra. „Eg held að það sé alveg nauð- synlegt íyrir verkalýðshreyfing- una að fara í viðræður við félags- málaráðherra um húsnæðis- frumvarpið. Eg ætla bara rétt að vona að það verði ekki keyrt yfir okkur einu sinni enn eins og í deilunni um Iögin um stéttarfé- lög og vinnudeilur. Við erum enn með hjólförin eftir okkur endi- löngum eftir þau viðskipti og ég ætla að vona að það verði ekki spólað á okkur núna,“ sagði Kristján Gunnarsson, formaður húsnæðisnefndar Alþýðusam- bands Islands, um frumvarp fé- lagsmálaráðherra. BSRB tekur í sama streng og krefst ítarlegrar umræðu. Krafa ASI númer eitt er að all- ir þeir sem uppfylla í dag skilyrði Byggingasjóðs verkamanna fái 90% lán af kaupverði íbúðar. „Við erum með þessu að tala um að allir sem uppfylla skilyrð- in fái félagslegu aðstoðina sem talað er um í frumvarpinu. Skil- yrðin eru að viðkomandi sé und- ir tekjumörkum og hafi greiðslu- getu. I frumvarpinu er gert ráð fyrir að sveitarfélögin ákveði það hvað þau ábyrgjast mörg viðbót- arlán til þeirra sem þurfa félags- lega aðstoð.“ ASÍ telur reynslu af slíku slæma. Sambandsstjórn ASI vill auk þess að lánin verði til 43ja ára, að vextir hækki og lækki eftir tekjum en verði að öðru leyti svipaðir og nú er auk fleiri til- lagna. Þá er lögð mikil áhersla á að leysa húsnæðisvanda þeirra sem ekki ráða við félagslega eignarí- búðarkerfið. Það verði að gera með því að byggja félagslegar Ieiguíbúðir. Leigjendasamtðktn „Þama vantar nánast allt um leigumarkaðinn," segir Jón frá Pálmholti, formaður Leigjenda- samtakanna. „Það er sama og ekkert tekið á vandamálum hans. Það sem ég sé jákvætt við frumvarpið er að nú getur fólk, sem þarf félagslega aðstoð, ráðið því sjálft hvar það býr. Það þarf ekki lengur að fara í eitthvert ákveðið hverfi.“ Fasteignasalar „Við fögnum þessu frumvarpi," segir Jón Guðmundsson, for- maður Félags fasteignasala. Ég á ekki von á því að þetta nýja kerfi verði til þess að íbúðaverð hækki, þótt það fólk sem fram til þessa hefur fengið félagslegar íbúðir komi nú á hinn almenna markað," Jón Guðmundsson benti á að svo gæti farið að sá íbúðarkaupandi sem nýtur 25% félagslega viðbótarlánsins standi betur að vígi en hinn sem nýtur þess ekki en fær bara 70% af íbúðarverðinu lánað. „Það segir sig sjálft að ef þessi 25% verða greidd út strax, þá stendur sá sem nýtur félagslegr- ar aðstoðar uppi með peninga fyrir allt að 90% af íbúðarverðinu en hinn, sem stenst greiðslumat fær bara 70% lán. Sá sem hefur 90% getur þá fengið betri kjör vegna þess að hann getur greitt meira út. Eg veit ekki hvernig 25% viðbótarlánið verður greitt en þessi staða gæti komið upp verði það allt greitt um Ieið og hitt lánið," segir Jón Guðmunds- son. -S.DÓR Verður Sigurður Sigurgeirsson skipaður í úti- bússtjórastöðu Landsbankans á Akureyri í dag? SMpað í stól Eiríks Samkvæmt heimildum Dags mun banka- stjórn Lands- bankans skipa tímabundið í stöðu útibús- stjóra Lands- bankans í dag eftir að Eiríkur S. Jóhannsson ákvað að taka við kaupfélags- stjórastöðu KEA. Mestar líkur eru á að Sigurður Sigur- geirsson, sem veitt hefur Lands- bréfum á Akureyri forstöðu, muni setjast í stól Eiríks, en síð- ar verður útibússtjórastaðan auglýst með formlegum hætti. Heimildarmenn Dags segja lík- legt að Sigurður sé þar ofarlega á listanum, en ákvörðun um ráðningu mun ekki liggja fyrir fyrr en eftir nokkrar vikur. Sæti beggja megin borðs Sigurður er viðskiptafræðingur að mennt, ættaður frá Olafs- firði. Hann er fæddur árið 1966 og bætist því í hóp „ungu mann- anna" sem hafa fengið toppstöð- ur í peningaheiminum að und- anförnu, ef af ráðningu hans verður. Hann vildi ekki tjá sig í gær um möguleika hans, en Halldór Guðbjarnarson, banka- stjóri Landsbankans, staðfesti að líklega yrði ákvörðun tekin í dag um hver skipaður yrði tíma- bundið í stól Eiríks. Illa fer sam- an, þar sem Landsbankinn er viðskiptabanki KEA, að Eiríkur sitji þar lengur og segir Ragnar Hafliðason, aðstoðarforstöðu- maður Bankaeftirlitsins, að ef Eiríkur hætti ekki strax gæti ver- ið ástæða til að skoða það sér- staklega. — Bt> „Við höfum ekki sett nein skilyrði fyrir þvi að Árni fái 10. sætið en við þrýstum fast á um að svo verði, “ sagði einn af toppunum í Alþýðubandalaginu, í samtali við Dag. Ingibjörg Sólrún kannar ýmsa kosti í níunda sætið í kjöifar prófkjörsins. Alþýðubandalagsmeim vilja Ama í 9. eða 10. sætið Kvennalistiim haíiiar þeirri krðfu Alþýðu bandalagsins að Ami Þór Sigurðsson fái 10. sæti listans í stað- inn fyrir hið 11. Sum- ir alþýðubandalags- menn vilja að borgar- stjóri sMpi hann í 9. sætið. Uppstillingarnefnd Reykjavíkur- listans lauk ekki störfum um síð- ustu helgi eins og til stóð. Og það eru átök um 9., 10. og 11. sæti listans sem tefja fyrir. Nú er talið fullvíst að nefndin ljúki ekki störfum í þessari viku enda þótt boðaður sé fundur á morgun, miðvikudag. Sem kunnugt er á Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri ein að skipa í 9. sæti listans, samkvæmt samkomulagi. Hún hefur verið og er enn, að leita að þekktu andliti í það sæti og hafa ýmis nöfn verið nefnd í því sam- bandi. Arni Þór Sigurðsson, borgar- fulltrúi Alþýðubandalagsins, hafnaði í 11. sæti í prófkjörinu, þrátt fyrir mikið fylgi. Kvenna- listinn á, samkvæmt samkomu- lagi að fá 10. sætið en nú þrýstir Alþýðubandalagið á um að Arni Þór fái það. Og þeir eru til inn- an Alþýðubandalagsins, sem vilja að borgarstjóri velji hann í 9. sætið. Kvennalistinn vill að ekki ;gefa 10. sætið eftir ogþess vegna ;situr allt fast. „Við höfum ekki sett nein skil- yrði fyrir því að Arni fái 10. sæt- ið en við þrýstum fast á um að svo verði,“ sagði einn af toppun- um í Alþýðubandalaginu í Reykjavík, í samtali við Dag í gær og er þar skírskotað til góðrar út- komu hans í prófkjörinu. S/gurjón Bene- diktsson, horfir tii Akureyrar. Sameinað Norður- land eystra? Glöggt kom fram á fræðslu- fundi á Húsavík um sameiningu sveitarfélaga að skoðanir þing- eyskra sveitar- stjómarmanna eru mjög skipt- ar um efnið. Heildarsamein- ing Þingeyjar- sýslu var m.a. til umræðu og óaði ýmsum við svo víðtækri sameiningu og bentu m.a. á að frá Þórshöfn og inn í Fnjóskadal er sama vega- lengd og frá Akureyri í Borgar- fjörð. Hjörleifur Sigurðarson, hreppsnefndarmaður úr Skútu- staðahreppi sagði um þetta mál að ef hugmyndin væri að sam- eina báðar sýslurnar, þá mætti hugsa sér að stíga skrefið til fulls og sameina allt kjördæmið. Skoraði hann á menn að loka ekki á umræðuna um slíka stór- eflissameiningu. Reyndar lokaði Sigurjón Bene- diktsson, bæjarfulltrúi á Húsa- vík, ekki á þetta. Hann sagði að fátt benti til að af víðtækri þing- eyskri sameiningu yrði. Húsvík- ingar gætu þá farið að horfa í aðrar áttir og hann sæi ekkert því til fyrirstöðu að Húsvíkingar hugleiddu sameiningu með Ak- ureyri, ef enginn vildi sameinast þeim heima í héraði. — JS Fimm þúsund fá bók Fyrsta eintakið af bókinni Meðganga, fæðing, ungbarnið, afhent heilbrigðis- ráðherra. Á myndinni, talið frá vinstri: Ástþóra Kr/stinsdóttir, formaður Ljós- mæðrafélags ísiands, Óskar Hansen, forstjóri Kaupsels, Ingibjörg Páimadótt- ir, heilbrigðisráðherra og Uiia Rade, hjúkrunarfræðingur og kynningarstjóri SCA Mölnlycke A/S. Verðandi mæður á íslandi fá bókargjöf á komandi mánuðum og árum, bókina Meðganga, fæðing, ungbarnið, sem gefin er út af danska fyrirtækinu SCA Mölnlycke A/S í samvinnu við Kaupsel hf. og Ljósmæðrafélag Islands. Bókin er dönsk að upp- runa en íslenskar ljósmæður hafa staðfært efni hennar. Að mati Ljósmæðrafélags Islands bætir bókin mjög úr brýnni þörf fyrir aðgengilegt lesefni um mánuðina fýrir og eftir fæðingu barnsins. Bókin hefur verið gefin út árlega í 27 ár í Danmörku með ýmsum breytingum og not- ið vinsælda þar og reyndar víðar. Bókin er gefin út í 5.000 eintök- um á íslandi. Bókina þýddi Bogi Arnar Finnbogason, en Ástþóra Kristinsdóttir, formaður Ljós- mæðrafélags íslands, hafði um- sjón með útgáfunni

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.