Dagur - 03.03.1998, Síða 6

Dagur - 03.03.1998, Síða 6
6 -I’RIBJ UDAGUR 3 .UARS 1998 ÞJÓÐMÁL Útgáfufélag: Útgáfustjóri: Ritstjórar: A ðstoðarritstjóri: Framkvæmdastjóri: Skrifstofur: Simar: Netfang ritstjórnar: Áskriftargjald m. vsk.: Lausasöluverð: Grænt númer: Símbréf auglýsingadeildar: Símar auglýsingadeildar: Netfang auglýsingadeildar: Simbréf ritstjórnar: DAGSPRENT EYJÓLFUR SVEINSSON STEFÁN JÓN HAFSTEIN ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON BIRGIR GUBMUNDSSON MARTEINN JÓNASSON STRANDGÖTU 31, AKUREYRI, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK 460 6100 OG 800 7080 ritstjori@dagur.is 1.680 KR. Á MÁNUEJ 150 KR. OG 200 KR. HELGARBLÆ) 800 7080 A60 6161 (REYKJAVÍK)563-1615 Ámundi Ámundason (AKUREYRI)A60-6191 G. Ómar Pétursson OG A60-6192 Gréta Björnsdóttir omar@dagur.is 460 6171 (AKUREYRI) 551 6270 (REYKJAVÍK) 500 Hvergerdingar í fyrsta lagi Ljótur subbuskapur bættist í leikhús fáránleikans í Hveragerði þegar ónefndir huldumenn fóru í pólitískan leðjuslag á kostn- að geðsjúkra. Geðvernd gerði rétt í að krefjast rannsóknar, því bréfaskrif af því tagi sem við kærum okkur ekki um að rekja frekar, eiga ekki heima í siðuðu samfélagi. Nú hafa 500 bæj- arbúar tekið sig til og mótmælt þessu framferði með undir- skriftum sínum. Ekki margt boðlegt hefur hrotið af hinu pólit- íska kræsingaborði Hvergerðinga að undanförnu og því sérstök ástæða til að fagna því að almennir borgarar taki sig til og mót- mæli óþrifum sem setja Ijótan svip á annars ágætan bæ. í öðru lagi Sveitarstjórnarpólitíkusar hingað og þangað um landið hafa því miður ekki staðið undir þeim kröfum sem eðlilegt er að gera til manna sem kjörnir eru til forystu. Nýjasta og allra fá- ránlegasta dæmið er sýndarsveitarfélagið Skorradalur. Ibúa- tölu er haldið uppi með ósvífnum loddaraskap svo örfáir ein- staklingar haldi völdum - ímynduðum mestanpart, en nógu raunverulegum samt til að gera líf granna sinna óbærilegt. Onnur dæmi um tilefnislítil eða jafnvel óskiljanleg upphlaup, illindi og stæla eru ófá, hingað og þangað um landið. Þar er Hveragerði er bara ein bóla og Hafnarfjörður sker sig aðeins úr vegna stærðar sinnar, en ekki vegna þess að pólitísk reisn sé mikið meiri en í Skorradal. í þriðja lagi Von er nú til þess að kjósendur sætti sig ekki lengur við svona fíflapólitík. Fyrr á árum gat hún kraumað og geijast árum sam- an öllum til ama - nii leyfir fjölmiðlun ekki slíkt. Fólk í heima- byggðum áttar sig á að fréttir af asnastrikum í pólitíkinni koma óorði á alla. Hin rökrétta spurning er: Ef kjörnir fulltrúar eru eins og bavíanar, hvers er þá að vænta af þeim sem kjósa þá? Hvergerðingar vilja ekki sitja undir slíku. Og Hafnfirðingar sem heimta alvöru A-flokkapólitík en ekki persónulegar illdeil- ur eru á sama róli. Stefája Jón Hafstein. Þrjú andlit Þórarms Á sokkabandsárum Garra var sýnd mynd sem hét „þrjú and- lit Evu“ og fjallaði um konu eina sem í bjuggu þrjár mann- eskjur og vissi hver lítið af hinni. Ekki veit Garri hvort það er þessari mynd að kenna eða einhverju öðru að Garri hefur alltaf verið mikill áhuga- maður um hreina geðklofa. Geðklofa þar sem ákaflega skýr mörk eru á milli persón- anna sem í sömu manneskju búa. Algengur meðal for- ystu- inaima Eftir þeim upplýs- ingum sem Garri hefur aflað sér er þetta ástand frem- ur sjaldgæft. Þess vegna kemur það Garra sífellt á óvart hversu algengt þetta heilkenni virðist vera meðal forystumanna ýmis konar og stjórnmálamanna. Alla vega koma menn sem gegna ýmsum embættum fram og gefa út yfirlýsingar þar sem þeir segjast ekki tala sem þessi eða hinn sem öllum er ljóst að eru líka þeir. Þórarinn E. Sveinsson, mjólkurbússtjóri KEA, er einn þeirra sem er ófeiminn við þá fordóma sem kunna að beinast gegn þeim sem í búa fleiri en einn maður. Hann er sem fyrr segir mjólkurbússtjóri, stjórn- armaður í Osta- og smjörsöl- unni og umsækjandi um starf forstjóra þess sama fyrirtækis. Þannig búa í það minnsta þrír i í Þórarni og virðast lítið vita hver af öðrum. Vera kann að vandi Osta- og smjörsölunnar hafi einkum falist í því að þeir hafi ekki ver- ið vissir um það hvaða Þórar- inn þeir ættu að ráða, þar sem allir þrír bera sama nafn og hafa sömu kennitölu. Hver er ég? Mjólurbússtjórinn og fyrrver- andi stjórnarmaður Osta- og smjör, Þórarinn E. Sveinsson, er að sjálfsögðu óhress með það að stjórn Osta- og smjör- sölunnar skuli ekki hafa ráðið umsækjandann Þórarinn E. Sveinsson til starfans. Um- sækjandinn Þór- arinn E. Sveins- son hefur hins vegar enga opin- bera skoðun á því að hafa ekki verið ráðinn í stöðuna. Garra er hins vegar ekki Ijóst hvaða Þórarinn það var sem sagði: „Eg hef menntun á þessu sviði og hefi setið í fjölmörgum nefndum fyrir hönd mjólkuriðnaðarins og verið einn af forystumönn- um hans í 15 ár. Eg tel mig því hafa allt til brunns að bera.“ Mönnum má vera það ljóst hvað sem öðru líður að þetta „ég“ getur alls ekki verið Þór- arinn E. Sveinsson, umsækj- andi um starf forstjóra Osta- og smjörsölunnar. GARRI Þórarinn E Sveinsson. JÓHANNES SIGURJÓNS- SON skrifar Hlutskipti foreldra er yfirleitt ekki öfundsvert þó auðvitað sé oftast yndislegt að eiga ástkæra afkomendur. Vandamál allra for- eldra er að það -virðist aungvu skipta hvernig þeir haga sér í uppeldismálum, þeir fara alltaf rangt að. Menn gera sér e.t.v. ekki grein fyrir þessu meðan á uppeldinu stendur, en það kem- ur örugglega í Ijós síðar. Síðasta dæmið um þetta eru niðurstöður breskrar rannsóknar um áhrif hreinlætis á heilbrigði barna. Sú leiddi sem sé í ljós að skítug börn og illa þrifin eru mun heilbrigðari og hraustari en hrein börn og hvítþvegin. For- eldrar sem í tíma og ótíma eru að þvo börn sín eru með því að veikja ónæmiskerfi þeirra. Hæfi- legur subbuskapur styrkir aftur á móti þetta sama ónæmiskerfi. Fátt hoHara Sannast þar hið fornkveðna að á * Ohremu hömin hennarEvu misjöfnu þrífast börnin best. Og einnig skýtur þetta stoðum undir þá kenningu að við séum afkom- endur óhreinu barnanna hennar Evu, fremur en þeirra hreinu, því þau síðarnefndu hafa líkast til ekki lifað hreinlætið af tilþess að geta af- komendur. Þetta minnir líka á þá kunnu og kaldhæðnislegu kenningu Kiljans heitins í Brekku- kotsannál að „næst því að missa móður sína sé fátt hollara úngum börnum en missa föður sinn.“ Og af sama tilefni sagði Laxness reyndar: „...börn eru nú einu sinni þarfari foreldrum en foreldrar börnum..." Doktor Spock Þessi breska skítastuðulsrann- sókn er ekki fyrsta dæmið um fjördjörfun uppeldiskenn- inga. I áratugi voru velflest börn í Bandaríkjunum uppalin í anda kenninga Dr. Benjamíns Spock. Spock þessi þótti ógur- legur gúrú og æðsti dómstóll þar ytra í þessum efnum. Og af- rakstur uppeldis- fræðanna sá að nú er ekki þver- fótaðfyrir fjöldamorðingjum og mannæt- um í Vesturheimi. Enda fór það svo að eftir að hafa skrifað Ianga doðranta um uppeldismál um árabil, dró Doktor Spock allar sínar kenningar til baka og sagði að foreldrar yrðu bara að gera sitt besta. Það væri skásta ráð- legging sem hann gæti gefið í uppeldismálum. Börn Spocks hafa svo á undan- förnum árum verið að tjá sig um föður sinn í fjölmiðlum og hafa borið honum illa söguna. Heima fyrir var hann sem sé strangur og kuldalegur einræð- isherra sem börn hans óttuðust og forðuðust. Óþarft er að taka það fram að bækur eftir Spock voru þýddar á íslensku um það leyti sem hann hóf að afneita þeim, þannig að- fjölmargir foreldrar hafa ugg- laust alið sín börn upp undir leiðsögn þessa misheppnaða föð- ur og uppeldisfræðings. Halldór Laxness sagði: „...börn eru nú e/nusinn/ þarfari foreldrum en foretdr- ar börnum..." Ætlíirþú að gefa peti- inga til að koma upp minnisvarða um Fjalla- Eyvind og Höllu á Hveravöllum? Sigrún Ámadóttir framkvæmdastjóri Rauða kross íslands. „Ég reikna ekki með að Bauði krossinn myndi styrkja þetta, enda er þetta ekki beint á verksviði hans. En mér finnst hugmyndin ágæt og ég væri alveg til £ að gefa til þessa sjálf, ef eftir því væri Ieitað." Loftur Þorsteinsson oddviti Hrunamannahrepps. „Já, það ætla ég að gera og sveit- arfélagið einnig. Mér finnst mjög merkilegt fram- tak að Fjalla-Ey- vindi sé reistur minnisvarði og ég vil að bæði Árnesingar og Húnvetningar taki myndarlega á málinu - og reynd- ar aðrir Iandsmenn sem eru sama sinnis. Fjalla-Eyvindur var fædd- ur á eyðibýlinu Hlíð hér í Hruna- mannahreppi og við sveitungar hans höfum reyndar heilmikinn áhuga á að reisa honum fræða- setur, þá sennilega hér á Flúð- um. Fyrir því máli er almennur áhugi hér í uppsveitum Árnes- sýslu.“ Jónas Þórisson framkvæmdastjóriHjálparstofnunar kirkjunnar. „Nei, mér finnst það nú frekar ótrúlegt og ef er- indi til okkar um slíkt myndi ber- ast teldist það sennilega ekki vera neyðarað- stoð. Persónu- lega finnst mér meiru máli skipta að hjálpa þeim sem lifa - fremur en að peningum sé varið til þeirra sem látnir eru þó minning þeirra sé alls góðs makleg. Hins- vegar vil ég ekki vera neikvæður gagnvart því að Fjalla-Eyvindi sé reistur minnisvarði, ef það er hugsjón einhverra manna." Grimur Gíslason fréttaritari á Blönduósi. „Það hefur ekk- ert komið til að ég leggi peninga til þessa, en við Guðni Ágústs- son höfum spjallað saman um þetta mál og eitthvað fjallaði ég um þetta í fréttum Útvarps í fyrrasumar. Um dóm sögunnar yfir þeim Höllu og Eyvindi - þá þykir mér hafa hallað á hlut hennar, það er að hún hafi verið blendin og hafi farið frá börnum sínum ungum vestur á Hrafns- eyri við Arnarfjörð á vald ævintýr- anna með Eyvindi. Hann hefur verið geysilega mikilhæfur maður hvað varðar líkamlegan og and- legan þrótt - þó þeir hæfileikar hafi beinst í óheppilegan farveg."

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.