Dagur - 03.03.1998, Síða 12
12 -ÞRIDJU DAGU R 3 . MARS 19 9 8
Xfc^MT
ÍÞRÓTTIR
Tap gegn sterk-
um Litháum
Dýrmæt reynsla
fékkst í Bosníu og Lit-
háen. Skyttumar
brugðust í Viluius.
Engiun heimsendir
þrátt fyrir stðr töp.
Islenska landsliðið reið ekki feit-
um hesti frá Vilnius. Litháar
sigruðu, 96-71. Guðmundur
Bragason var stigahæsti leikmað-
ur liðsins, með 15 stig sem telst
gott hjá honum á móti risum
heimamanna, sem tefldu fram
218 sentimetra leikmanni. Sá
varði 12 skot í leiknum og það
reyndist okkar mönnum dýr-
keypt.
Jón Kristinn Gíslason lagði
upp með hraðar sóknir og lang-
skot. Það er það sem íslenska
landsliðið þarf enn að treysta á í
Ieikjum sínum, meðan við eigum
ekki hærri leikmenn en við ráð-
um yfir í dag. Teitur Orlygsson,
sem átti mjög góðan leik í Bosn-
íu og skoraði 23 stig þar, náði sér
aldrei á strik í Vilnius og skoraði
ekki stig. Slíkum sveiflum höfum
við ekki efni á gegn bestu Iiðum
álfunnar. Hjá okkur þarf allt að
ganga upp.
„Það gekk margt vel í þessari
ferð,“ sagði Jón Kr. Gíslason
landsliðsþjálfari. Við áttum
ágætan leik í Bosníu fyrir framan
8 þúsund dýrvitlausa stuðnings-
menn heimamanna. Staðan var
33-33 þegar draga fór í sundur
með liðunum. Leikurinn í Lit-
háen var mun erfiðari. Við náð-
um ekki jafn góðri byrjun þar og
í Bosníu og þeir léku mjög góða
vörn á okkur sem við réðum ein-
faldlega ekki við. Bakverðirnir
okkar voru pressaðir stíft og ef
þeir sluppu fram hjá sfnum
mönnum tók risinn í teignum á
móti þeim. Litháar léku þennan
Ieik af mikilli skynsemi og ég tel
þá vera með besta liðið í okkar
riðli.“
Úrslitin eru þó ekld langt frá
því að vera viðunandi í fyrstu úr-
slitakeppni liðsins. Það hefði
verið yfirgengileg bjartsýni að
ætlast til að ná í stig í Bosníu og
Litháen. Þau Iönd eru einfald-
Iega í allt öðrum gæðaflokki í al-
þjóðlegum körfubolta. Island
kemur heldur ekki Iengur á óvart
í körfubolta. Þegar lið eru komin
í undanúrslitariðla eru til upp-
tökur af öllum liðum og því hafa
allir landsliðsþjálfarar greiðan
aðgang að upplýsingum okkar
lið. En hvað tekur nú við?
„Nú er keppnin hálfnuð. Við
eigum eftir að fá Litháen, Bosn-
íu og Eistland heim og við verð-
um að undirbúa okkur vel fyrir
það. Eg tel að við ættum að geta
unnið Eista hér heima ef allt
gengur upp og við eigum einnig
möguleika gegn HoIIendingum
úti. Það værí mjög gott að ná að
vinna þá leiki en þeir verða
næsta vetur. Þetta er okkar fyrsta
keppni og við verðum að nota
tækifærið núna og læra af þessu.
Danir eru í sömu sporum og við
og þeir lita á keppnina núna fyrst
og fremst til að læra af. Þeir ætla
sér að gera alvöru kröfur til sinna
manna í næstu keppni. Það er
það sem við þurfum að gera
líka,“ sagði Jón Kristinn Gísla-
son.
Afturelding steinlá
Afturelding féll út úr Borgakeppni Evrópu í handknattleik um helg-
ina, þegar liðið tapaði fyrir sænska liðinu Skövde með tíu marka
mun, 31:21, í síðari leik liðanna í Svíþjóð. Afturelding sigraði með
sjö marka mun í fyrri leik liðanna í Mosfellsbæ, það veganesti dugði
skammt. Fimm mörkum munaði á liðunum í leikhléi, 15:10, en rot-
höggið greiddu leikmenn Skövde í sfðari hálfleiknum þegar þeir
breyttu stöðunni úr 21:15 í 28:15.
Mörk Aftureldingar: Jason Olafsson 5/2, Gunnar Andrésson 4,
Magnús Már Þórðarson 3, Páll Þórólfsson 3, Einar Gunnar Sigurðs-
son 2, Skúli Gunnsteinsson 2, Einar Einarsson 1, Sigurður Sveins-
son 1.
Tvö jiýsk lið áfram í Borgákeppninni
Tvö þýsK lið komust áfram í undanúrslitin í keppninni. Nettelstedt
lagði ungverska Iiðið Pick Szeged, 29:26, á heimavelli sínum og sam-
tals 54:48 og Wallau Massenheim hafði þegar slegið ítalska liðið
Forst Brixen út úr keppninni, 46:35 samanlagt. Fjórða liðið í undan-
úrslitunum er spænska liðið Academia Octavio Vigo sem sló portúg-
alska Iiðið Benfica út úr keppninni. Portúgalska liðið sigraði í síðari
leiknum í Lissabon, 29:26, en spánska liðið sigraði með tíu marka
mun í fyrri Ieiknum og samanlagt 55:47.
Mótherjar KA í imdanúrslit
Liðin sem komust upp úr KA-riðlinum í Meistarakeppninni komust
þæði áfram í keppninni Um helgina. Slóveriska liðið Celjé Lasko sigr-
aði Prosesa Ademar Leon frá Spáni með níu marka mun í síðari leik
liðanna, 35:26, og samtals 61:50. Badel Zagreb frá Króatíu sló út
svissneska liðið-Pfadi Winterthur, 51:45, en síðari leikliðanna í Sviss
lauk með 24:21 sigri gestanna. Mesta spennan var á Spáni þar sem
Barcelona sigraði Fotex Vesprém, 32:27. Fyrri leiknum Iyktaði með
sigri ungverska liðsins ,33:28. Bæði liðin skoruðu því sextíu mörk, en
Barcelona kemst áfram á fleiri mörkum á útivelli. Þá varð jafntefli í
síðari viðureign Lemgo og ABC Braga, 26:26, en fyrri leiknum Iyk-
taði með fjögurra marka sigri þýska liðins sem hafði vinninginn,
55:51 samanlagt.
KA marði sigur á Haukiim
KA og Haukar léku mikinn baráttuleik i KA-heimiiinu i gærkvöid þar sem liðin skiptust á um að hafa forystu i síðari hálfleik.
Þegar tvær mínútur voru eftir skoraði KA 28. markið og tók forystua. Haukar reyndu hvað þeir gátu til að jafna það sem eftir
iifði leiksins en sterk vörn KA halaði inn sigurinn. Lokatölur urðu 28:27. Markahæstur hjá KA var Yaia með 7 mörk. Fjórir leikir
fóru fram um helgina og unnust þrír þeirra á útivetti. ÍBV sigraði Fram i Safamýri, 23:24, og sömu lokatölur urðu i viðureign
Stjörnunnar og Vals i Ásgarði þar sem gestirnir fóru með sigur af hólmi. Víkingar sigruðu HK, 25:26, í Kópavoginum og FH
sigraði Breiðablik, 24:19.
Brons hjá Völu-
methjá Jónl
Vala Flosadóttir fór yfir 4,40
metra í stangarstökkinu, en mátti
sjá á bak heimsmeti sínu innan-
húss, því Anzhela Balakhonova
frá Úkraníu fór yfir 4,45 metra
og tryggði sér þar með sigur í
greininni. Vala náði að stökkva
yfir 4,40 metra, eins og Daniela
Bartova frá Tékklandi, en sú síð-
arnefnda notaði færri tilraunir og
fékk því silfurverðlaunin.
Keppnin í stangarstökki er án
efa besta keppni stangarstökks-
ins innanhúss, en byrjað var að
keppa í greininni íyrir aðeins
tveimur árum. Heimsmet Balak-
honovu er fimmta heimsmetið
sem sett er í greininni á árinu og
er það til vitnis um mikla fram-
þróun í greininni. Þess má geta
að Vala Flosadóttir fær tækifæri
til að ná metinu að nýju á
fimmtudaginn, þegar hún mætir
hinum nýja heimsmethafa í
Laugardalshöllinni.
Þórey Edda Elíasdóttir tók
einnig þátt í stangarstökkskeppn-
inni. Hún stökk 3,90 metra í
undankeppninni, en það dugði
henni ekki til að komast í úrslit-
in.
Metið dugði ekki
Jón Arnar Magnússon bætti Is-
lands- og Norðurlandamet sitt í
sjöþraut, en það dugði honum
ekki til að komast á verðlauna-
pall. Úrslitin réðust í lokagrein-
inni, 1000 metra hlaupi, þar sem
Jón Arnar datt snemma í hlaup-
inu. Hann náði að komast fram-
arlega í hlaupið, en úthaldið
Vala Flosadóttir.
þraut á Iokahringnum og hann
varð að sætta sig við 9. sætið í
hlaupinu og 5. sætið samanlagt.
Sigurvegari í þrautinni varð
Sebastian Chmara frá Póllandi,
sem sýndi fádæma öryggi í há-
stökld þar sem hann fór yfir 2,17
m og var ofarlega á blaði í fimm
greinum af sjö. Chmara fékk
6415 stig en Ungverjinn Dezso
Szabo var með 6249. Lev Lobod-
in frá Rússlandi várð þriðji með
6249 stig og Tomas Dvorak,
Tékklandi, hlaut 6175, fimm
stigum fleira en Jón Arnar.
Árangur Jóns Arnars
Óhætt er að segja að fyrri dagur-
inn hafi orðið Jóni Arnari að falli.
Jón hljóp 60 m grindahlaup á
6,90 sek, stökk 7,48 í langstökki,
varpaði kúlunni 15,19 metra og
stökk 1,99 í hástökki. Allt er
þetta lakari árangur hjá honum
en í þrautinni á EM í Stokkhólmi
fyrir tveimur árum, þó litlu muni
í sumum greinunum. Jón Arnar
náði hins vegar að bæta árangur
sinn síðari daginn frá þ\'í í Stokk-
hólmi fyrir tveimur árum. Hæst
ber 5,10 m í stangarstökki sem er
hans besti árangur í greininni. Þá
hljóp hann 60 m grindahlaup á
8,03 sekúndum og hljóp 1000
metrana á 2:46,65, sem hlýtur að
teljast góður árangur, þegar mið-
að er við fallið í upphafi hlaups-
ins.