Dagur - 03.03.1998, Síða 13

Dagur - 03.03.1998, Síða 13
ÞRIÐJUDAGUR 3 . MARS 19 9 8 - 13 ÍÞRÓTTIR Darryl Wilson rekiim í gær Grindvíkmgar reka einn besta körfubolta- niaiin sem hér hefur leikið. Ástæðumar marg- ar en ekki eitt áfengisbrot. Óánægja leik- maima reið baggamuninn. Stjórn körfuknattleiksdeildar UMFG rak bandaríska snilling- inn Darryl Wilson frá félaginu í gær. Darryl er tvímælalaust einn besti Kani sem hér hefur leikið og margir þakka honum fyrst og fremst glæsilegan sigur á Isfirð- ingum í bikarleiknum á dögun- um. Því kemur þessi ráðstöfun stjórnarinnar mörgum á óvart. „Eins og staðan var orðin var þetta það eina sem \ið gátum gert,“ sagði Guðfinnur Friðjóns- son, stjórnarmaður hjá Grindvfk- ingum. „Eg vil taka það skýrt fram að ástæðan er ekki einstakt áfengisbrot fyrir bikarleikinn eins og margir virðast halda. Eft- ir mjög góða byrjun í haust fór að halla undan fæti hjá Ieikmannin- um. Hann hætti að taka á á æf- ingum og gerði Iítið úr félögum sínum í Iiðinu auk þess sem hann stóð ekki við neitt af því sem hann lofaði, ásamt öðrum leikmönnum og þjálfara, til að Iaga móralinn í Iiðinu,“ sagði Guðfinnur enn fremur. Pétui Guðmimdsson Pétur Guðmundsson, fyrirliði Grindvíkinga, sagðist hafa hlaup- ið fyrir byssukúlu Wilson til bjargar þegar hann kom hér i haust. „Þá var hann mjög já- kvæður og skemmtilegur en eins og staðan var orðin nú var þetta það eina sem hægt var að gera. Þetta er dýr atvinnumaður sem einfaldlega hafði engan áhuga á að vinna fyrir kaupinu sínu. Hann skammaðist bara í öðrum á æfingum og tók aldrei á sjálfur. Benni (þjálfari UMFG) var marg- búinn að reyna að taka á vanda- málinu en hann hlustáði aldréi á það. Hann fékk fleiri tækifæri en nokkur annar hefði fengið ein- göngu vegna snilli sinnar. Hann kunni einfaldlega ekki með það Darryl Wilson. að fara. í Keflavíkurleiknum, sem við lékum án Darryls, kom í ljós hvað við gátum án hans. Leikgleðin blómstraði hjá okkur öllum og við lékum okkar besta leik í vetur. Það segir allt sem segja þarf.“ Helgi Jónas Guðfinnsson Helgi Jónas Guðfinnsson er sá Góður dagur hjá CoUymore Manchester United bætti forskot sitt á toppi deildarinnar. Stan CoUymore sá mn gömlu félagana og C. Palace tapaði enn og aftur á heimaveUi. Manchester United jók forskot sitt úr 9 stigum í 11 í ensku úr- valsdeildinni með 1:0 sigri gegn Chelsea á Stamford Bridge í Lundúnum. Eina markið í gróf- um og slökum leik kom eftir rúmlega hálftíma Ieik og það var enginn annar en Phil Neviile sem skoraði markið. Þetta var jafnframt fyrsta mark Neville í ún'alsdeildinni. Þetta þýðir að þegar 10 leikir eru eftir hjá meisturunum eru þeir komnir með 59 stig og 11 stiga forskot á Blackburn. Blackburn færðist einmitt í annað sætið með 5:3 sigri á Leicester þar sem Chris Sutton skoraði þrennu og heldur áfram að spila eins og engill. Það verður erfitt fyrir Glenn Hoddle, landsliðsþjálfara Englands, að líta framhjá Sutton fyrir HM í sumar í Frakldandi. Liverpooltapaði Liverpool, sem var í öðru sæti, tapaði fýrir Aston Villa þar sem Stan Collymore skoraði bæði mörk heimamanna gegn sínum gamla klúbbi. Þetta var einnig fyrsti leikur John Gregory sem tók við Villa liðinu eftir að Brian Little sagði af sér í síðustu viku. „Þetta heppnaðist vel hjá Collymore gegn gömlu félögun- um og ef hann spilar svona vel það sem eftir er af tímabilinu erum við með frábæran fram- herja," sagði Gregory eftir leik- inn. Þessi leikur var hins vegar einnig fyrsti leikur Brad Friedel í marki Liverpool. Hann kom í staðinn fjTÍr Davád James sem hafði spilað 212 leiki í röð fyrir félagið. Friedel varði oft vel í leiknum og gat lítið gert í mörk- um Aston ViIIa. Roy Evans, stjóri rauða hersins, var ekki kátur. „Dómari leiksins hefði getað rek- ið 3 leikmenn Villa út af en sleppti því af einhverri ástæðu," sagði Evans eftir leildnn. Héiniaiiii á botninn Hermann Hreiðarsson og félagar í C. Palace eru komnir á botninn í ensku úrv'aldeildinni. Þeir hafa enn ekki unnið á heimavelli og nú voru það Gordon Strachan og lærisveinar hans í Coventry sem sóttu þrjú auðveld stig á Selhurst Park. Þetta var jafnframt sjöundi sigur Coventry í röð í deildinni og er liðið komið í 10. sæti í deildinni. Derby heldur áfram barátt- unnni um sæti í Evrópukeppni félagsliða og þeir unnu auðveld- an sigur á Sheffield Wednesday. Paulo Wanchope, hinn frábæri framherji frá Kosta Ríka, skoraði tvo mörk í leiknum. Southampton vann góðan sig- ur á útivelli gegn Leeds. Sigur- markið kom um miðjan síðari hálfleik og Carlton Palmer kór- ónaði dag heimamanna þegar hann lét reka sig út af stuttu síð- ar. Barnsley lyfti sér af botni deildarinnar í fyrsta skipti frá því 8. desember á síðasta ári með góðum sigri á Wimbledon. Þar með heldur gott gengi þeirra áfram en liðið sló Manchester United út úr bikarnum í síðustu viku. Tottenham og Bolton mættust í botnslag á sunnudaginn. Heimamenn í Spurs skoruðu eina mark leiksins rétt fyrir hlé og dugði það til sigurs. Arnar Gunnlaugsson kom inn á 20 mfnútum fyrir leikslok og stóð sig ágætlega. Staða Bolton er hins vegar allt annað en góð. -JJ Úrslit helgarinnar Sunnudagur: Tottenham-Bolton 1:0 Laugardagur: Aston Villa-Liverpool 2:1 Chelsea-Man.Utd 0:1 C.Palace-Coventry 0:3 Barnsley-Wimbledon 2:1 Blackburn-Leicester 5:3 Derby-Sheff.Wed 3:0 Everton-Newcastle 0:0 Leeds-Southampton 0:1 Staðan í deildinni fýrir Lund- únaslag West Ham og Arsenal í gærkvöld: Man.Utd 28 18 5 5 57:19 59 Blackburn 27 13 9 5 49:33 48 Arsenal 25 13 8 4 45:26 47 Liverpool 28 13 8 7 46:28 47 Chelsea 27 14 3 10 52:30 45 Derby 28 13 6 9 44:34 45 Leicester 28 10 10 8 34:28 40 Leeds 27 11 6 10 35:30 39 West Ham 26 12 3 11 38:36 39 Coventry' 28 10 9 9 35:35 39 Southampt. 28 114 13 34:37 37 Newcastle 27 9 7 11 26:31 34 Sheff.Wed 28 9 7 12 41:54 34 Aston Villa 28 9 6 13 30:39 33 Wimbledon 26 8 8 10 28:30 32 Everton 28 7 9 12 32:40 30 Tottenham 28 8 6 14 26:43 30 Barnsley 27 7 4 16 24:63 25 Bolton 27 4 12 11 23:43 24 C.Palace 27 5 8 14 21:41 23 leikmaður sem stóð lengst með Wilson í baráttunni. „Það er rétt að ég var ekki tilbúinn til þess að Iáta Darryl fara þegar fyrst var talað um það í janúar," sagði Helgi Jónas. „Það fór alltaf vel á með okkur en ég held að þetta hafi verið liðinu fý'rir bestu eins og komið var. Ég virði ákvarðanir þjálfarans og stjórnarinnar. Wil- son er dýr leikmaður sem Iagði sig ekki fram á æfingum og í leikjum þegar við áhugamennirn- ir börðumst eins og við gátum. Svoleiðis eitrar út frá sér.“ Benedikt Guðmundsson „Það gilda sömu reglur fyrir alla í liðinu. Það skiptir engu hvort maðurinn heitir Darryl Wilson eða eitthvað annað. Við héldum fund fyrir bikarleikinn þar sem var ákveðið hvað við ætluðum að gera til að komast í sem best form og ná móralnum upp. Hann braut allar þær reglur sem við settum okkur þá, ekki bara þá að fá sér einu sinni f glas, heldur all- ar. Hann tók út sína refsingu þá í leiknum á móti Keflavík og horfði á strákana blómstra í sín- um besta leik. Eftir það settum við upp plan, fýrir hann, um að koma honum aftur í sem best út- hald, með aukaæfingum, Iyfting- um og fleiru en hann mætti ekki á eina einustu þeirra. Hver mað- ur hefði verið settur út úr hvaða Iiði sem er fyrir slíka framkomu. Darry'I Wilson er of dýr Ieikmað- ur til að geyma oft á bekknum vegna agabrota," sagði Benedikt Guðmundsson. —GÞÖ Menntamálaráðuneytið Staða framkvæmdastjóra íslenska dansflokksins Staða framkvæmdastjóra íslenska dansflokksins er laus til umsóknar. Starfið felur í sér fjármálastjórn, starfsmannahald og yfirumsjón markaðsmála vegna sýninga dansflokksins. Æskilegt er að umsækjendur hafi viðskiptamenntun og áhuga á sviðslistum. Þeir þurfa að hafa gott vald á íslensku og ensku. Menntamálaráðherra skipar í starfið til ákveðins tíma, sbr. lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Um launakjör fer samkvæmt ákvörðun kjaranefndar. Sá sem veitt verður staðan þarf að geta hafið störf 1. maí nk. til að vinna með fráfarandi framkvæmdastjóra, en gert er ráð fyrir að skipað verði í stöðuna frá 1. september nk. Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Áður auglýstur umsóknarfrestur er framlengdur til 20. mars 1998. Menntamálaráðuneytið, 27. febrúar 1998. Menntamálaráðuneytið Kynningarfundur um CEDEFOP - evrópska þróunarmiöstöð á sviði starfsmenntunar - Menntamálaráðuneytið og Rannsóknaþjónusta Háskóla ís- lands boða til kynningarfundar um CEDEFOP og þátttöku ís- lendinga í starfsemi stofnunarinnar í Tæknigarði föstudaginn 6. mars nk. kl. 11.00-13.00. Dagskrá: 1. Almenn kynning á stefnu og starfsemi CEDEFOP (Kristrún ísaksdóttir deildarsérfræðingur). 2. Stutt kynning á verkefnum sem íslendingar taka nú þegar þátt í: • námsheimsóknir (Ásta Erlingsdóttir deildarstjóri), • gagnabanki um starfsmenntarannsóknir (Guðmundur Rúnar Árnason deildarstjóri), • tengslanet um miðlun gagna og upplýsinga (GRÁ), • tengslanet um þjálfun starfsnámskennara (dr. Gunnar Finnbogason dósent). 3. Léttur hádegisverður. 4. Umræður um möguleika íslendinga á frekari þátttöku í verkefnum CEDEFOP. Tekið er á móti skráningu þátttakenda í s. 525 4900 til kl. 16.00 fimmtudaginn 5. mars. Menntamálaráðuneytið, 27. febrúar 1998.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.