Dagur - 21.03.1998, Side 13
LAUGARDAGUR 2 1. MARS 199 8 - 29
Ttoptr-
fiskinn. Rétturinn er bakaður í
ofni í 30 mín. á 180°C hita.
Nautakjöt með
jurtum og appel-
sínusinnepi
3 appelsínur
3 msk. olía
675 g nautakjöt að vild
2 laukar, saxaðir
1 marið hvítlauksrif
2 msk. hveiti
300 ml kjötsoð
1 msk. tómatpúrra
3 msk. Grand marnier líkjör
1 msk. maplesíróp
1 bolli sneiddir sveppir
2 msk. smátt saxaðar jurtir að
vild, mælt með timían
og graslauk
3 msk. dijonsinnep
salt og svartur pipar
Ein appelsínan er skorin í
tvennt, annar helmingurinn er
sneiddur fínt en úr hinum er
safinn kreistur. Hinar tvær app-
elsínurnar eru afhýddar og
skornar í þunnar sneiðar sem
settar eru í sósuna. Kjötið er
steikt á pönnu, bara þar til það
lokast, og kryddað, þegar það er
tilbúið er það tekið af pönnunni
en safinn á henni notaður áfram
og Iaukur og hvítlaukur steiktur.
Hveitinu er bætt út í þegar Iauk-
urinn er farinn að mýkjast og þá
kjötsoðinu. Allt hrært vandlega
saman. Blandan er látin sjóða
þar til hún þykknar en þá er
appelsínusneiðunum og safan-
um, ásamt tómatpúrrunni,
Iíkjörnum og sírópinu hrært
saman við sósuna. Salt og pipar
notað til að bragðbæta sósuna á
eftir. Kjötið er sett í eldfast mót
og sósunni helt vandlega yfir
það, stungið inn í ofn í l'A klst.
á 180°C hita. Þá eru sveppirnir
settir í sósuna og aftur fer þetta
í ofn í 30 mín. Með þessu er
borin fram jurtasinnepsblanda
sem er búin til úr sinnepinu,
jurtunum og safa úr hálfri app-
elsínu, gott er einnig að hafa
með kartöflustöppu eða hrís-
grjón.
Grænmetisréttur
með osti og
steinselju
stór, græn paprika,
skorin í teninga
1 msk. sólblómaolía
225 g brie ostur
30 ml sýrður rjómi
1 tsk. sítrónusafi
4 msk. mjólk
2 tsk. nýmulinn svartur pipar
2 msk. söxuð steinselja
6 kúrbítar
6 gulrætur
Paprikan er steikt á pönnu í olí-
unni þar til hún er mjúk. Allt
hráefnið, fyrir utan kúrbít og
gulrætur, er sett í matvinnsluvél,
sú blanda er síðan sett á pönn-
una og paprikunni hrært saman
við. Kúrbítinn og gulræturnar
þarf að hreinsa vel, afhýða og
skera í strimla. Sett í pott með
smá vatni og látið sjóða í 3 mín.
þá þurrkað vel. Grænmetið er
sett f skál og sósan hrærð vel
saman við. Skreytt með stein-
selju.
Bollur með dilli og
kartöflum
2 bollar hveiti
3 msk. mjúkt smjör
salt
1 msk. ferskt dill
1 bolli stappaðar, soðnar
kartöflur
3 msk. mjólk
Hveiti, smjöri, salti og dilli er
öllu blandað vel saman. Kartöfl-
urnar settar út í deigið og mjólk-
in notuð til að fá deigið í rétta
þykkt. Hnoðað örlítið. Deigið er
flatt út, þar til það er um 2 sm
að þykkt, og skorið nokkuð
hringlaga. Bollurnar bakaðar í
20-25 mín. á 230°C hita. Bom-
ar fram með smjöri.
ískaka með jarðar-
berjum og mintu
6-10 mintulauf
175 gsykur
175 g smjör
3 hrærð egg
17 5 g hveiti
1,2 1 jarðarbeijaís, mjúkur
600 ml ijómi
2 msk. mintulíkjör
350 gjarðarber
Mintublöðin eru skorin niður og
lögð í sykurinn yfir nótt, þannig
kemst mintubragð í sykurinn
sem er notaður í kökuna. Dag-
inn eftir er sykurinn, mintan
tekin úr, hrærður vel með smjör-
inu og eggjunum, hveitinu er þá
bætt út í. Sett í hringlaga form
og bakað í 30-40 mín. á 190°C
hita. Látin kólna og skorin
þannig að úr verði tveir botnar.
Hringform af sömu stærð er
klætt að innan með plastfilmu.
Neðri botninn settur ofan í
formið og ísinn, sem á að vera
vel mjúkur, er smurður ofan á
botninn. Þá er efri botninum
smellt ofan á og kakan fryst í 3-
4 klst. Rjóminn er þeyttur ásamt
líkjörnum og smurður ofan á
frosna kökuna. Kakan sett aftur
í frost en tekin út um 15 mín.
áður en hún er borin fram.
Skreytt með berjum og mintu-
laufum.
Bf Frostlög
Ef Þurrkublöð
IH Ljósaperur
EÖT Rafgeymi
Ef Smurolíu
© Rúðuvökva
Vetrarvörur í úrvali
á góðu verði.
olis
léffir þér lífið
Rúðusköfur, rúðuvökvi,
frostlögur, ísvari, lásaolía,
hrímeyðir og siiikon.
ir
meðbórgarstjóra
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri
heldur hverfafund með íbúum Grafarvogshverfa.
Hamra-,
’ í
■t
Folda-, Húsa-, J
Rima-, Borga-, ‘
Víkur- og
Engjahverfi.
Fundurinn verður haldinn mánudaginn
23. mars íFjörgyn kl. 20.00.
Á fundunum mun borgarstjóri m.a. kynna áætlanir og
framkvæmdir í hverfunum. Síðan verða opnar umræður og
fyrirspurnir með þátttöku fundarmanna og embættismanna
borgarinnar. Sýndar verða teikningar og myndir af
fyrirhuguðum framkvæmdum í hverfunum ásamt öðru
fróðlegu og myndrænu efni.
Mánudaginn 30. mars kl. 20.00 verður ungu fólki
boðið til fundar í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Sjá hverfafundi á heimasíðu Reykjavíkurborgar:
www.reykjavik.is
Allir velkomnir.
Skrifstofa borgarstjóra.