Dagur - 21.03.1998, Side 15
LAUGARDAGUR 21. MARS 1998- 31
LÍFIÐ í LANDINU
Fötin skapa manninn, segir máltækið, ogþví er hún María Ólafsdóttir búningahönnuður alveg sammála. Afföt-
unum má sjá hvermaðurinn erogþað erörugglega hægtað lesapersónuleikann út úr útlitinu. Viðfengumþrjár
konurí myndatöku ogMaría tók að sérað lesa ípersónuleikaþeirra. Það ermesta furða hve velþaðgekk!
Olga Björk Guðmimdsdóttir,
34 ára hjúknmarfræðmgur
Feimin og hlédræg að eðlisfari en það hefur þó breyst
með árunum. Hjúkrunarstarfið hefur þroskað hæfileika
hennar til að umgangast fólk. Er opin og hreinskilin, hlý
og gefur auðveldlega af sér í samskiptum. Aðaláhugamál-
ið er tónlist. Stundar ekki reglulega líkamsrækt en syndir
mikið. Fjölskyldan skiptir miklu máli og barnauppeldið
þjónar ríku hlutverki í lífi hennar. A fáa en góða vini og
er vinur vina sinna. Starfið gefur henni mikið enda er
hún metnaðarfull á því sviði. Vinnur markvisst að því að
þroska sjálfa sig og verða betri manneskja. Utlitið skiptir
máli en fylgir þó ekki tískusveiflum. Vill vera snyrtileg og
hefur gaman að hafa sig til við sérstök tækifæri. Sportleg
en afar hugguleg og smekkleg.
Niðurstaða Mariu
Þessar konur eru allar svolítið svipaðar. Þessi kona er
35-40 ára og vinnur í móttöku á skrifstofu eða í bók-
haldi. Hún er góðleg og Iaðar að sér fólk, hressileg að
sjá. Þetta er kona sem kemur til dyranna eins og hún er
klædd. Hún er mjög smekkleg án þess að vera í beinum
tískufatnaði en hefur einfaldan smekk. Hún tekur sér
ekki heljarinnar tíma á morgnana til að ákveða hvað hún
á að fara í. Hún heldur sig á sama vinnustað þegar hún
er búin að finna sér starf við hæfi ef henni líkar á vinnu-
staðnum og hún er ánægð með samskiptin.
Gróa Friðjónsdóttir,
32ja ára skrifstofumaður
Frekar jákvæð manneskja, mjög róleg og nákvæm í öllu.
Les mikið. Er félagslynd og á mjög auðvelt með að kynn-
ast fólki. A marga vini. Er virk í félagsstarfi og kemur
víða fram en hefur ekki beinlínis mörg áhugamál. Stund-
ar þó reglulega sund. Tekur móðurhlutverkið mjög alvar-
lega. Er öguð og hefur aga á sínum börnum. Er gjarnan
bekkjarfulltrúi í skólanum. Spáir ekki mikið í útlitið en
hefur gaman af að kaupa föt. Getur átt föt í tíu ár og
notað þau. Hefur klassískan smekk.
Niðurstaða Maríu
Þessi kona er 34-35 ára klettur. Hún gæti verið fóstra
eða hjúkrunarkona. Hún er góðleg en ákveðin kringum
andlitið. Hún er með rauðan varalit og lafandi eyrna-
lolvka, sem er karaktereinkenni. Þetta er ákveðin kona
sem hefur gaman af að sýna hve ákveðin hún er. Hún
tekur ákvarðanir í samskiptum sínum við aðra. Klæðist
praktískum og þægilegum fötum. Eltist ekki \ið tísku-
strauma heldur klæðist bara því sem henni finnst fara
henni. Hugsar fyrir öllu.
Guðrúu Benediktsdóttir,
30 ára hársnyrtir
Abyrgðarfull manneskja, glaðlynd, mjög félagslynd og
opin. Vinamörg og dugleg að rækta vinabönd. Hefur
alltaf verið virk á öllum vígstöðvum, bæði í íþróttum og
skóla. Nákvæm í vinnu. Mikið fyrir útivist. Hefur gaman
af börnum og dýrum. Afar hlý manneskja og gefur mikið
af sér. Vill gjarnan hafa öll börnin í fanginu, halda þeim
helst sem næst sér. Stundum of mikil já-manneskja. Velt-
ir útlitinu mikið fyrir sér en kaupir þó sjaldan föt. Er ekki
sama hvernig hún lítur út. Sportleg í klæðaburði og alltaf
vel til höfð en notar skartgripi sjaldan.
Niðurstaða Maríu
Konan er 25-30 ára, gæti verið hárgreiðslukona af hár-
greiðslunni að dæma. Klæðnaðurinn er ekki mjög karakt-
erlýsandi. íþróttatreyjan er út úr kú miðað við rúllukraga-
peysuna, hárgreiðsluna og hálsmenið. Konan getur verið
félagslynd, rómantísk og „sentimentaT í sér. Virkar á mig
eins og hún sé ekki alveg búin að móta sinn stíl. Heildina
vantar í klæðnaðinn. Konan þarf að mótast og finna sína
stefnu í lífinu.