Dagur - 21.03.1998, Qupperneq 15

Dagur - 21.03.1998, Qupperneq 15
 LAUGARDAGUR 21. MARS 1998- 31 LÍFIÐ í LANDINU Fötin skapa manninn, segir máltækið, ogþví er hún María Ólafsdóttir búningahönnuður alveg sammála. Afföt- unum má sjá hvermaðurinn erogþað erörugglega hægtað lesapersónuleikann út úr útlitinu. Viðfengumþrjár konurí myndatöku ogMaría tók að sérað lesa ípersónuleikaþeirra. Það ermesta furða hve velþaðgekk! Olga Björk Guðmimdsdóttir, 34 ára hjúknmarfræðmgur Feimin og hlédræg að eðlisfari en það hefur þó breyst með árunum. Hjúkrunarstarfið hefur þroskað hæfileika hennar til að umgangast fólk. Er opin og hreinskilin, hlý og gefur auðveldlega af sér í samskiptum. Aðaláhugamál- ið er tónlist. Stundar ekki reglulega líkamsrækt en syndir mikið. Fjölskyldan skiptir miklu máli og barnauppeldið þjónar ríku hlutverki í lífi hennar. A fáa en góða vini og er vinur vina sinna. Starfið gefur henni mikið enda er hún metnaðarfull á því sviði. Vinnur markvisst að því að þroska sjálfa sig og verða betri manneskja. Utlitið skiptir máli en fylgir þó ekki tískusveiflum. Vill vera snyrtileg og hefur gaman að hafa sig til við sérstök tækifæri. Sportleg en afar hugguleg og smekkleg. Niðurstaða Mariu Þessar konur eru allar svolítið svipaðar. Þessi kona er 35-40 ára og vinnur í móttöku á skrifstofu eða í bók- haldi. Hún er góðleg og Iaðar að sér fólk, hressileg að sjá. Þetta er kona sem kemur til dyranna eins og hún er klædd. Hún er mjög smekkleg án þess að vera í beinum tískufatnaði en hefur einfaldan smekk. Hún tekur sér ekki heljarinnar tíma á morgnana til að ákveða hvað hún á að fara í. Hún heldur sig á sama vinnustað þegar hún er búin að finna sér starf við hæfi ef henni líkar á vinnu- staðnum og hún er ánægð með samskiptin. Gróa Friðjónsdóttir, 32ja ára skrifstofumaður Frekar jákvæð manneskja, mjög róleg og nákvæm í öllu. Les mikið. Er félagslynd og á mjög auðvelt með að kynn- ast fólki. A marga vini. Er virk í félagsstarfi og kemur víða fram en hefur ekki beinlínis mörg áhugamál. Stund- ar þó reglulega sund. Tekur móðurhlutverkið mjög alvar- lega. Er öguð og hefur aga á sínum börnum. Er gjarnan bekkjarfulltrúi í skólanum. Spáir ekki mikið í útlitið en hefur gaman af að kaupa föt. Getur átt föt í tíu ár og notað þau. Hefur klassískan smekk. Niðurstaða Maríu Þessi kona er 34-35 ára klettur. Hún gæti verið fóstra eða hjúkrunarkona. Hún er góðleg en ákveðin kringum andlitið. Hún er með rauðan varalit og lafandi eyrna- lolvka, sem er karaktereinkenni. Þetta er ákveðin kona sem hefur gaman af að sýna hve ákveðin hún er. Hún tekur ákvarðanir í samskiptum sínum við aðra. Klæðist praktískum og þægilegum fötum. Eltist ekki \ið tísku- strauma heldur klæðist bara því sem henni finnst fara henni. Hugsar fyrir öllu. Guðrúu Benediktsdóttir, 30 ára hársnyrtir Abyrgðarfull manneskja, glaðlynd, mjög félagslynd og opin. Vinamörg og dugleg að rækta vinabönd. Hefur alltaf verið virk á öllum vígstöðvum, bæði í íþróttum og skóla. Nákvæm í vinnu. Mikið fyrir útivist. Hefur gaman af börnum og dýrum. Afar hlý manneskja og gefur mikið af sér. Vill gjarnan hafa öll börnin í fanginu, halda þeim helst sem næst sér. Stundum of mikil já-manneskja. Velt- ir útlitinu mikið fyrir sér en kaupir þó sjaldan föt. Er ekki sama hvernig hún lítur út. Sportleg í klæðaburði og alltaf vel til höfð en notar skartgripi sjaldan. Niðurstaða Maríu Konan er 25-30 ára, gæti verið hárgreiðslukona af hár- greiðslunni að dæma. Klæðnaðurinn er ekki mjög karakt- erlýsandi. íþróttatreyjan er út úr kú miðað við rúllukraga- peysuna, hárgreiðsluna og hálsmenið. Konan getur verið félagslynd, rómantísk og „sentimentaT í sér. Virkar á mig eins og hún sé ekki alveg búin að móta sinn stíl. Heildina vantar í klæðnaðinn. Konan þarf að mótast og finna sína stefnu í lífinu.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.