Dagur - 21.03.1998, Síða 19
LÍFIÐ í LANDINU
LAUGARDAGUR 21. MARS 199 8 - 35
Landogþjóð
Ríkisstjórnin. Þó þingmenn og ráðherrar eigi
sæti á Aiþingi fyrir einstök kjördæmi segir það oft
ekki nema hálfa söguna um hvaðan aflandinu
þeirséu. Hvaðan afland/nu er ráðherra Vestlend-
inga, Ingibjörg Pálmadóttir, ráðherra Reykvíkinga,
Finnur Ingólfsson, ráðherra Norðlendinga eystri,
Halldór Blöndal og hvaðan aflandinu er móður-
ætt Þorsteins Pálssonar, ráðherra Sunnlendinga?
Fossinn frægi. Sjálfsagt hafa af fáum fossum
iandsins verið teknarjafn margar myndir og
einmitt afþessum fræga fossi, sem er á Suður-
landi. Hver er hann og hvað segir þjóösagan að
eigi að vera geymt í hylnum undir fossinum?
Við píanóið. Sigfús Halldórsson tónskáld sem
hér sést við píanóið hafði nánast einkarétt tón-
skálda að semja lög við Ijóð eins af þjóðskáldun-
um. Hvert varþað - og í hvaða kvikmynd var lagið
Vegir liggja til allra átta, sem hann samdi við texta
Indriða G. Þorsteinssonar?
Boggan. Á þessari mynd sést hið merka skip ms.
Akraborg, sem i áratugi hefur siglt milli Akraness
og Reykjavíkur. Hvað heitir útgerðarfyrirtæki
skipsins, hvaða annan áætlunarstað til viðbótar
hafði skipið lengi og hvað heitir kappi sá sem
lengst hefur - og allt fram á þennan dag - verið
aðalskipstjóri Akraborgarinnar?
Á elleftu stundu. Hér sjást þeir kumpánar
Ingólfur Margeirsson og Árni Þórarinsson sem sjá
um þáttinn Á elleftu stundu í sjónvarpinu. Hvaða
dagblaði ritstýrði Ingólfur um skeið undir lok síð-
asta áratugar og ævisögu hvaða kvikmyndaleik-
stjóra ritaði Árni, bók sem kom út fyrir nokkrum
árum?
1. Hvar á landinu er Dúfunesfellr1
2. Af hverju dró Möðruvallahreyfing Fram-
sóknarflokksins, þar sem Olafur Ragnar
Grímsson, núverandi forseti Islands var í
forsvari, nafn sitt?
3. Lambavatn, Stakkar, Gröf, Saurbær, Má-
berg og Melanes. Hvar á Vestfjörðum eru
þessir bæir?.
4. Hvar á landinu er Sóleyjarhöfði?
5. Hvað heita skáldsögurnar tvær sem Böðvar
Guðmundsson hefur ritað um íslendigana
sem fluttu til Nýja-íslands í Kanada?
6. Í annálum ársins 1918 standa Ijórir at-
burðir uppúr, öðrum fremur. Hverjir eru
þeir?
7. Hvítá í Arnessýslu er brúuð á þremur stöð-
um. Hverjir eru þeir?
8.Spurt er um mann sem setti svip sinn á
þjóðlífið um miðja þessa öld. Hann fann
m.a. upp sauðfjárveikilyf sem hann kvaðst
reyndar hafa reynt á sjálfum sér með ágæt-
um árangi, fór í steypibað undir Selja-
landsfossi og átti manna stærstan þátt í því
að flytja jarðneskar leifar Jónasar Hall-
grímssonar frá Danmörku og norður í
land, þaðan sem ríkisstjómin flutti þær
síðan suður á Þingvelli. Hver er maðurinn
sem hér er spurt um?
9. Hvaðan er það fólk sem hér að aftan er
nefnt: Sigrún Eva Armannsdóttir, söng-
kona, Baldvin Tryggvason, fv. sparisjóðs-
stjóri, Sævar Gunnarrson, formaður Sjó-
mannasambands Islands, og Bjarni Gríms-
son, fiskimálstjóri?
10. Hvað heitir sá bær í Vestur-Húnvatns-
sýslu sem liggur næst Arnarvatnsheiði?
Svör:
[Bpjcjnjsny i j^qjEQy QI
*í9JÍJsJeíO >II9J bqo8 b»dc) qIV 6
•issojbjy b uossjnjaj upfjnÉis •§
•diocjsBjeSnBq q;a
‘uin8unjsdnqsig i riQj b jo bjsqou §o efgucj ns
§o ‘ssojqnQ qia ubqou juiuiBqs ‘uinSunjsdnqsig
i QOjqjBnjg qia J3 Bjsæu ns ‘ijjDJ^EBuSunjsdn
-qsig e sjjajBjg ubqjou jluuib>js jo uinjq Bjsjg
•pjll Bp[BA[[nj 80 jsjbíjj
QJEA pUBJSJ QB 1§UBJB BS JSIQBU J9qUI3S3p [ 8o
Qiso§nj:jo\j'ec] ‘i[[3A pe suispuej iujoq-y\s b sqjpj
pnjpunq !Q§B[ uios uinpnuBuijsnEq B upjiOA
eqsuædg ‘uinjjofg b uinppjssuiuQ b Sps 9£ i
jsoui pjs nuijsojji jeSocj ‘suisjb uinpnuBUJ njsxtíj
b ippui uuigeqBjsojj njo jipjnqje Juofj jissdcJ *9
3jj suisjiq
So BuuepuiA i[AqXj-j Bjjoq jnSospjeqs jæAj jbssocJ £
•QJUjBU
uueq jnSajp iacJ jV ■•iBpuXsjji jnjnSBÍXajos §o
iqia So isbj§ uu!pj§ J3 uujQjojq upjofsjojq jjpun
UUj ‘JJJOJJBEUUBIUBJJOJ-J B JD QBcj ‘jBSJpfcJ B>pjBq
-jn}snB b íQJpq BQ3 E§unqjQq jo jQjoqjBÍXojpg •
• npXsjBpUBJJSBQJBg
-jn^sny i puBSBQnsg qja njo Jiæq Jfssoc] Jijjy '£
ijXojnqy b suBjoqsBiuuojy jsnq
‘uinjjoAnjQOjy b npjoq JBUUUB§ugXojq UU9UISQ}[
uios jpunj jb 35!S ujeu pjp ujSujjXojqBjjBAnjQpjy •£
•JJBUIJBABÍS JIjX Qæq B UI 0£Z. J3 ^O ![[3ABJ0AJJ qja
ubqjou luiuiBqsjp ‘jjojsSjoqoui J9 jjajsounjnQ • j
'ubuibs }5íos uossuubjocJ jujy uios ‘jBUOssSnej
-uunj) sujbjjj b§bs jba qbc] 8o sujsQBjqnQXcj
-jV uofjsju Qioqs uin jba uossjioSjej/Q jnj[o8u[ *
•JSOUBJTJY p SUUBUI
-sj8u{cjjB suoÍQnQ JiQQjq ‘uosspunuiQnQ jnpjBA
-jocj quoa j8uo[ Jnjoq juunSSog 9 uofjsdpjs uo
‘soujeSjog 1 ddn Sjuuio Qjdjqs jpjSis jSuoq ’buj
-SjoqBjqy jn jijoS uios *jq jnuiuSejjBqg jo QBcj *
•lUujQpjs jb jb 6^/ juujpuXuiqiAq
I UIBJJ jsjXj Uioq BJJB BJJJB [{J BföSjJ j}Soy\ Q!§Bq
•jBuosspunuiQnQ jbsbuiqj^ Q9fj QIA §OJ efuios QE
iac] b jjojBqmo jsbubu jQjBq uossj9p[jBjq snjSjg *
•uinSpqs 1 pfq uios bsbjcJ su^suubui
-suieupuBj jjnS 5uiXo§ os Jipun jbc] uinujXq 1
qb jiSos uBSBSQpfcj So ssojBSpqg jo }8æjj uuissog *
•IQJIJBSJ BJJ JO JBUOSSJBg SUIOJSJOcj gæjnQ9j\j
uinuBQjg í jjoas 1 jba uios ‘jnqpjjsjnqiABfqXog
jo jBpuojg jppjJBj-j 80 jepjXjy 1 qiy\ 1 jnjsne ddn
jsjp §0 jsippæj uossjjpSuj jnuujg ‘ijjoasjoajj
b ujjBddn §0 ppaej jo jjgppBUijBg §jpfq{§uj *
Ath: I Landi og þjóð um jiarliðna helgi var spurt
hverjir hafi verið kaupfélagsstjórar KEA í gegnum
tíðina. Þar vantaði nöfn þeirra þriggja fyrstu; jieir
voru Hallgrímur Hallgrímsson, Friðrik Kristjánsson
og sá þriðji Davíð Ketilsson. Þá kom Hallgrímur
Kristinsson og síðan jieir sem á eftir honum voru
réttilega nefndir í þættinum Jjann 7. mars. -SBS.
Fluguveiðar að vetri (62)
Nýi bækiingur „ Borgarveiðimannsins “ snertir
græjukarlinn í hverjum fluguveiðimanni.
Græjukarlar eru miklir í fluguveiðum.
Þetta er eiginlega verra en jeppa- og ann-
að ljórhjólasport. Alltaf að koma nýjar
stangir. Ný og betri hjól. Línur. Tauma-
efni. Og svo þessar auglýsingar um vesti
sem maður getur ekki án verið, og svo allt
sem þarf að vera í því.
Það var því með nokkurri eftirvæntingu
að ég reif upp umslag í vikunni:
nýr bældingur frá gömlum kunn-
ingjum í New York. Kunningjar er
kannski full mikið. Góðir sölu-
menn væri betra. Eg hitti á þessa
búð einu sinni í NewYork og sæki
hana alltaf heim þegar ég á leið
um Stóra eplið. „Borgarveiðimað-
urinn“ heitir hún á okkar ylhýra,
„Urban Angler“ á þeirra eigin.
Þetta er vinaleg búð uppi á 3.
hæð £ húsi sem virðist vera byggt
utan um álnavörugeymslur. Náungar sem
afgreiða og hafa vit á hlutum, hundur
sem heitir Sachs og er alveg rosalega stór,
og svo hellingur af græjum sem maður
freistast til að kaupa. Og flugum. En ekk-
ert óskaplega stór búð, þeir segjast leggja
meira upp úr gæðum en magni, og fáist
varan hjá þeim sé það viðurkenningar-
vottur af þeirra hálfu. Sem sagt: ekkert
drasl. Eg hef aldrei veitt á flugu frá þeim.
Alltaf gaman að fá bæklinginn þeirra
og athuga hvað þeir telja merkilegast í
græjum. Eg er reyndar ekki mikill græju-
karl sjálfur. Eg á bara tvær stangir, og tvö
hjól. Reyndar góðar stangir sem mér þyk-
ir mjög vænt um, svo mjög að mig langar
eiginlega ekkert í nýja stöng. Onnur er
orðin eins og gamall hermaður, búin að
landa þeim nokkrum, og mér finnst alveg
sérlega gaman að nota hana þegar storm-
urinn er í fangið. Hjólið við hana er
klunnalegt járn. Hún er fyrir línu átta,
hin er fyrir línu sex, nýlegri, en hefur
sýnt alveg einstaka hæfileika til að láta
mér þykja vænt um sig. Eg er með Iétt
grafíthjól á henni.
I fluguveiðinni gildir lögmálið: Iéttara
er betra. Aristókratískara. Því fíngerðari
sem stöngin er, og léttari línan, því erfið-
ara verður að landa fiskum með henni.
Og eins og innvígðir vita eru línur og
stangir merktar saman með númerum,
því lægra númer því léttari búnaður og
fínni. Upp á síðkastið hef ég verið að
velta því fyrir mér að fá mér stöng fyrir
mjög létta línu. Var kominn á fremsta
hlunn með að fá mér „fjarka" í fyrra (#4).
Meistari minn tekur jafnvel laxa á slíka
stöng. Þelcki nokkra sem eiga svona léttar
stangir fyrir fínar línur. Maður er eigin-
lega komin í „léttfluguveiði" með svona
stangir. Ekki held ég að maður þori að
fara niður í #3 eða #2 fyrir íslenskar að-
stæður. Og þó, þeir eru til sem frílista sig
á bökkum með svona stangir. Úti í Amer-
íku byrja menn yfirleitt með línu #5, og
færa sig niður; hér í rokrassgatinu myndi
ég ekki ráðleggja byrjanda að fara niður
fyrir #8. Þá er maður líka til í alit.
Ofurléttvigt
Allar þessar vangaveltur spunnust í fram-
haldi af bæklingnum frá Borgarveiði-
Græju
karlar
manninum. Þeir eru að kynna nýjar
stangir númer núll! Sage er komið með
stangir sem sprengja sem sagt skalann
niður á við. Þessar stangir eru til muna
fínlegri en fyrri stangir, og þeim fylgir of-
urlétt hjól, með sérstakri línu sem hæfir
svo fínum búnaði. Þeir fullyrða að maður
veiði fiska á þetta. Þessar ofurléttu stang-
ir eru fyrir „ultra small streams“ sem við
héma á túndrunni myndum kalla læki. I
þeim eru fiskar sem við myndum ekki
ferðast fyrir, 6-8 þumlunga silungar, en
þykja mikið sport á austurströnd Banda-
ríkjanna. Svona fiskar ná ekki að beygja
stangir okkar. Hvorki í bókstaflegum né
óeiginlegum skilningi.
Þessar ofurléttu stangir eru auðvitað
áhugaverðar fyrir hin kyrru íslensku vor-
kvöld, heiðavötnin og árnar mjóu sem lið-
ast milli grasbakka. Ofurléttstöng
frá Sage #0 er hins vegar ekki gef-
in. Stöng, með Iínu og hjóli kostar
rúmar 60 þúsund krónur. Lífstíð-
areign. Takmörkuð not, en von
um ógleymanlegar stundir.
Vöðlur
Hér á landi eru nokkrir búnir að
koma sér upp gore-tex vöðlum, úr
næfurþunnu efni sem andar. Yðar
einlægur er einn af þeim. Þetta er
bylting í fluguveiðum og „metsöluvara“ á
veiðimarkaðnum á síðasta ári. I Banda-
ríkjunum fást gæðavöðlur af þessum toga
á ca. 25 þúsund, hér nálgast þær 40 þús-
und! Þetta eru vöðlur fyrir heita sumar-
daga og miklar göngur, þegar neoprenið
sýður mann í eigin svita. Miklir peningar
eru í húfi, en þetta er þægindabylting á
heimsmælikvarða.
Bambusstaugir
Nú erum við komnir í ævintýralandið. Eg
sé í bókalista Borgarveiðimannsins að
þeir eru með á lager nokkrar bækur eftir
John Gierach, sem er einn alvinsælasti
rithöfundur fluguveiðimanna þessi árin.
(Sex, death, and flyfishing; Trout bum;
Even brook trout gets the blues). I þeirri
síðastnefndu segir Gierach skemmtilega
frá bambusstangahátíð sem hann og fé-
lagar héldu. Handsmíðuð bambusstöng
er lokadraumur fluguveiðimannsins. Fyr-
ir utan aðra handsmíðaða bambusstöng.
Þeir safna þessu eins og breska krúnan
demöntum þarna í Ameríku, og borga of
fjár fyrir. Nú sé ég að Borgarveiðimaður-
inn er að kynna (áritaða, fyrir þá sem
koma til New York á næstum dögum)
nýja bók eftir kappann, Fishing bamboo.
Eg þykist vita um hvað hún er. Kaninn er
vitlaus f þessar stangir sem ég spái að séu
að verða ein helsta tískubylgjan í flugu-
veiðum þessi árin. Og hvað kostar svo
dýrðin? Handsmíðuð stöng, tvískipt, með
tveimur mismunandi stífum toppum og
silfur hjólsæti kostar 150 þúsund kall.
Menn eyða öðru eins í vitleysu. Alveg
eins gott að fá sér þá þrískipta stöng með
tveimur mismunandi toppum á 190 þús-
und. Fínast er auðvitað antík. „The sky is
the limit" segir Kaninn um verðið á þeim.
Eins og kerlingin sagði: Það eru engin
takmörk.
Ekki þegar ánægja er annars vegar.
Slóðin hjá Borgarveiðimanninum er
www.urban-angler.com, fyrir þá sem nenna.
Fjöldi þátttakenda á fluguhnýtinganámskeið-
inu á Akureyri (Einar Long, Byggingavöru-
deild KEA) var talsverður, tvö námskeið fyllt-
ust. Syðra er Kolbeinn Grímsson að kenna
fram á vor. Aldrei of seint að byija.