Dagur - 28.03.1998, Blaðsíða 10

Dagur - 28.03.1998, Blaðsíða 10
10- LAUGARDAGUR 28. MARS 1998 rD^ftr Kjötiðnaðarstöð KEA óskar að ráða starfsmenn í kjötskurð sem allra fyrst. Óskað er eftir duglegum, jákvæðum og reglusömum einstaklingum til framtíðarstarfa. Sóst er eftir reyklausum einstaklingum eldri en 20 ára. Upplýsingar gefur verksmiðjustjóri í síma 463 0360 eða á staðnum. Hjá kjötiðnaði KEA, sem er hluti KEA samstæðunnar, starfa um 90 manns. Um er að ræða eina af stærstu kjötvinnslum landsins ásamt stórgripa- og sauðfjársláturhúsi. RANNÍS Rannsóknarráð íslands Vísindastyrkir Atlantshafsbandalagsins Atlantshafsbandalagið leggur árlega fé af mörkum til að styrkja vís- indamenn til rannsókna eða námsdvalar við erlendar vísindastofnan- ir í aðildarríkjum bandalagsins og samstarfsríkjum þess í Mið- og Austur-Evrópu. Ennfremur er lagt fé af mörkum til að styrkja vísinda- menn frá samstarfsríkjum (Cooperation Partner Countries) í Mið- og Austur-Evrópu til stuttrar dvalar við rannsóknarstofnun á íslandi. Umsóknarfrestur er 1. maí nk. Nánari upplýsingar um styrki þessa og umsóknareyðublöð er að finna á heimasíðu RANNlS http://www.rannis.is og á skrifstofu Rannsóknarráðs (slands, Laugavegi 13, 101 Reykjavík. Sími 562 1320, fax 552 9814. AKUREYRARBÆR Atvinnuveitendur Akureyri Okkur vantar fleiri réttindakennara til starfa við grunnskóla Akureyr- ar. Oft getur skipt sköpum við ráðningu að maki fái einnig vinnu á staðnum. Ef þið hafið möguleika og vilja til þess að aðstoða okkur við slíka atvinnuleit, þá vinsamlegast hafið samband við skólaskrifstofu Akureyrar, Glerárgötu 26, í síma 460 1450 eða með símbréfi 460-1460. Skólanefnd Akureyrar RANNÍS Rannsóknarráð íslands Hlutverk rannsóknanámssjóðs er að veita styrki til rannsókna- tengds framhaldsnáms á grundvelli reglna sem menntamálaráð- herra setur. Sjóðurinn veitir efnilegum stúdentum sem lokið hafa til- skildu grunnnámi í háskóla styrki til meistara- eða doktorsnáms. Sjóðurinn veitir eftirtalda styrki: , Almenna rannsóknanámsstyrki umsóknarfrestur 1. apríl nk. FS (fyrirtækja- og stofnana) námsstyrkir næsti umsóknarfrestur er 15. apríl nk. Nánari upplýsingar um styrki úr Rannsóknanámssjóði og umsókn- areyðublöð er að finna á heimasíðu RANNÍS http://www.rann- is.is og á skrifstofu Rannsóknarráðs (slands, Laugavegi 13, 101 Reykjavík. Sími 562 1320, fax 552 9814. ÞJÓÐMÁL í annars ágætu viðtali, Dags, við Svavar Gestsson, sem m.a. hefur hreyft við tilfinningalífi greinarhöfundar Reykjavíkurbréfs Moggans, hefur Koibrún Bergþórsdóttir uppi rakalausar fullyrðingar um að Framsóknarflokkurinn sé skoðanalaus linkuflokkur sem engin þörfsé fyrir í íslenskum stjórnmálum. PóUtískt einelti í viðtali við Svavar Gestsson um síðustu helgi hefur blaðamaður Dags uppi órökstuddar fullyrð- ingar og sleggjudóma um linkind og skoðanleysi Framsóknar- flokksins auk þess sem hún dreg- ur í efa tilverurétt flokksins. Einu má gilda hvaða skoðun Kolbrún Bergþórsdóttir hefur á Framsóknarflokknum, hitt er öllu alvarlegra ef hún með of- stæki sínu er að kynna ritstjórn- arstefnu Dags. Sögulegur fróðleikur Þrátt fyrir að Alþýðuflokkur og Framsóknarflokkur séu pólitískir hálfbræður í sögulegum skiln- ingi ákvað Jón Baldvin Hanni- balsson þáverandi formaður AI- þýðuflokksins að gera Framsókn- arflokkinn að sínum höfuðóvini. Hann yfirfærði hugtök eins og afturhald, stöðnun, klíkuskap, skoðanaleysi og hentistefnu af Sjálfstæðisflokknum yfir á Fram- sóknarflokkinn og kallaði það hinu einfalda orði, framsóknar- mennsku. Enginn stjórnmála- leiðtogi utan Sjálfstæðisflokksins hefur gert þeim flokki annan eins greiða og Jón Baldvin gerði með framsóknarofstækinu. Und- ir þessum dylgjum hefur forysta Vísbending Lestu bladið og taktu þatt i leiknum! 550 oooo Þú greiðir ekkert umfram venjulegt símtal Framsóknarflokksins setið sfðan, án þess að hafa mikið gert til þess bera hönd fyrir höfuð sér. Eftir því sem tíminn líður þá virðist þetta ofstæki gegn Fram- sóknarflokknum heldur vera að færast í aukana og má í raun Iíkja því við einelti í pólitískum skilningi. Oft á tíðum hafa árás- irnar ekki verið svaraverðar en þegar blaðamenn á ritstjórn Dags koma fram sem fulltrúar blaðsins og ausa úr sér ofstækis- fullum fullyrðingum varðandi Framsóknarflokkinn þá er mælirinn einfaldlega fullur. Lýst eftir ritstjómarstefiiu I annars ágætu viðtali, Dags, við Svavar Gestsson, sem m.a. hefur hreyft við tilfinningalífi greinar- Er það skoðun ritstjórnar Dags að Framsóknarflokkiir- iuu sé pólitískur liukuflokkur sem eigi sér ekki tilverurétt í ísleuskum stjómmálum? höfundar Reykjavíkurbréfs Moggans, hefur Kolbrún Berg- þórsdóttir uppi rakalausar full- yrðingar um að Framsóknar- flokkurinn sé skoðanalaus linku- flokkur sem engin þörf sé fyrir í íslenskum stjórnmálum. Þessi skoðun Kolbrúnar kemur fram í spurningu hennar og meira að segja hinn sjóaði Svavar verður hálf klumsa ef marka má svar hans. Að sjálfsögðu er Kolbrún í fullum rétti með að hafa sínar skoðanir á málunum en í hvers nafni og hvaða leyfi hefur hún til að ata Framsóknarflokkinn auri í viðtali þar sem hún kemur fram sem blaðamaður Dags? Er það skoðun ritstjórnar Dags að Framsóknarflokkurinn sé pólit- ískur linkuflokkur sem eigi sér ekki tilverurétt í íslenskum stjórnmálum? Eg lít svo á að Kol- brún komi fram í þessu viðtali við Svavar Gestsson sem blaða- maður Dags, allt annað væri ef hún væri að skrifa grein í blaðið þar sem hún skrifar á eigin ábyrgð. Eg óska eftir því að rit- stjórnin geri grein fyrir málinu. Til Kolbrúnar Við Kolbrúnu Bergþórsdóttur vil ég segja: Framsóknarflokkurinn er ekki skoðanalaus Iinkuflokkur sem á sér ekki tilverurétt. Hann er flokkur sátta, málamiðlunar og vilja til að leysa verkefni Iíð- andi stundar, en það eru gildi sem forystumenn annara flokka mættu tileinka sér í ríkari mæli en þeir hafa gert fram að þessu. Framsóknarflokkurinn er sá flokkur sem vinstri menn vilja vinna með, þótt að þú sjálf hafir ekki áttað þig á þvi. Framsóknar- flokkurinn er einn þeirra flokka sem standa að Reykjavíkurlistan- um og er mikilvægur hlekkur í því samstarfi og ef þú hefur rænu á að kynna þér málið, þá kemstu fljótt að því að fulltrúar Framsóknarflokkins eru ekki skoðanalaust linkulið eins og þú gefur í skyn með skrifum þínum. Athugasemd ritstjóra Ritstjórnarstefna Dags birtist i forystugreinum blaðsins. Ritst. Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma SIGRÚN L. PÉTURSDÓTTIR Stóragerði 17, Reykjavík (áður Helgamagrastræti 5, Akureyri), lóst á Landspítalanum aðfaranótt föstudagsins 27. mars. Unnur Agnarsdóttir, Óskar H. Gunnarsson, Gunnhildur Óskarsdóttir, Agnar Óskarsson.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.