Dagur - 01.04.1998, Blaðsíða 1

Dagur - 01.04.1998, Blaðsíða 1
Gríðarleg vakning hef- urverið meðalforeldra vegna áfengis- og tóhaksnotkunar hama og vaxandi eiturlyjja- neyslu unglinga. Hrundið hefur verið af stað átaki til að virkja foreldra í baráttunni, Effin þrjú — Framtak foreldra gegn fíktiiefnum. „Það er auðvelt að sofna á verðinum, sérstaklega þegar við vitum ekki hversu sterk öfl eru að reyna að ná til barnanna okkar. Þau eru sterkari en nokkru sinni fyrr. Þetta eru eitilhörð öfl sem eru að markaðssetja fíkniefni og ýmislegt annað. Ef við fáum ekki sem flesta foreldra til að koma með í þetta starf eru meiri líkur á því að eiturlyljaskrattinn skaði einhvcrn," segir Unnur Halldórs- dóttir, framkvæmdastjóri for- eldrasamtakanna Heimili og skóli. Er á borð við náttúru- hamfarir Gríðarleg vinna hefur átt sér stað síðustu misseri og vakning orðið meðal foreldra, sérstaklega í framhaldi af ráðstefnu í haust, Frá foreldrum til foreldra, þar sem bandarísk kona kynnti for- eldrasamtök sem komið var af stað í framhaldi af atburðum tengdum eiturlyljum í Bandaríkj- unum fyrir nokkrum árum. Eftir ráðstefnuna hér var ákveðið að láta þar ekki staðar numið heldur reyna að virkja foreldra í frekara starf. Foreldrar eru nú meðal annars farnir að vinna skipulega að forvarnarstarfi, ekki síst í tengslum og samvinnu við Island án eiturlyfja 2002, á vegum Reykjavíkurborgar, rfkisstjórnar- innar og ECAD, European Cities Against Drugs. Foreldrar i baráttunni. Auður Rafnsdóttir, Unnur Halldórsdóttir og Elín Eiríksdóttir tilbúnar að bretta upp ermar ásamt fjölmörgum öðrum og taka til hendinni. mynd: e.ól. Foreldrarnir hafa aðsetur hjá Heimili og skóla og Vímulausri æsku og þar hittast hóparnir, meðal annars hópur um sam- ræmdu prófin og hópur um áfengis- og tóbakssölu. Unnur Halldórsdóttir, er í kynningarhóp 3F ásamt Auði Rafnsdóttur og Elínu Eirfksdóttur og fleirum. Unnur vitnar í orð Guðjóns Pet- ersens, bæjarstjóra í Snæfellsbæ, sem sagði nýlega að það mætti líkja eiturlyfjaógninni við nátt- úruhamfarir, slík væri hættan sem steðjaði af fíkniefnunum. Það ætti sér stað jarðskjálfti eða gos með áratuga millibili og þess vegna hefðum við almannavarnir til að bregðast við því og vara við. Það yrðu allir að koma að vinn- unni gegn eiturlyfjunum. For- eldrar vilji vímuefnalausan grunnskóla. Enginn krakki eigi að vera í dópi, brennivíni eða reykingum. „Ef við værum með stríð þá væri hér her; sjóher, Iofther, landher. Ef fólkið í landinu myrkvaði ekki hjá sér húsin þá verða þau skotmörk. Það verða allir að koma að þessari vinnu á sinn hátt. Við foreldrar verðum allir að vera með og ná til hóps- ins, það má enginn vera stikkfrí. Þetta þýðir auðvitað að við meg- um ekki kaupa vín fyrir börnin og leyfum ekki foreldralaus partí. Við viljum vímuefnalausan grunnskóla og teljum að það sé hægt. Því fleiri sem ánetjast því fleiri dragast með,“ segir hún. Foreldravefur Framtak foreldra nær meðal ann- ars til vefsins og er nú búið að koma upp Foreldravefnum, upp- lýsingavef fyrir foreldra um vímuefnamál, fjölskyldurækt og fleira á vegum Upplýsingaþjón- ustu Háskóla Islands. Vefurinn var hugsaður sem framlag Upp- lýsingaþjónustu háskólans til styrktar starfi foreldranna. Um- fang vefsins hefur verið aukið verulega og gagnast vefurinn því foreldrum sem vilja efla þekk- ingu sína á fjölskyldumálum og menntun barna. Uppistaðan í efninu eru upplýsingar sem finna má á vefum foreldrasamtaka, stofnana og samtaka víða um heim. Vefurinn er öllum opinn og er heimasíða hans http://www.hi.is/~joner/br/

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.