Dagur - 01.04.1998, Page 7

Dagur - 01.04.1998, Page 7
X^tir mIÐVIKUDAGUR 1. APRlL 1998 - 23 LÍFIÐ í LANDINU w fólkið Er Albert piins að ganga út? Einn eftirsóknarverðasti pipar- sveinn heims, Albert Móna- kóprins, varð fertugur á dögun- um. Mörgum þykir sem löngu sé orðið tímabært að prinsinn festi ráð sitt og í viðtali á dögunum gaf hann sterklega í skyn að til- kynningar þess efnis væri ekki langt að bíða. „Eg er komninn á þann aldur að ég hef þörf fyrir að finna lífi mínu nýjan farveg, stofna fjöl- skyldu og eignast börn,“ sagði prinsinn. Hann sagðist eiga í ástarsambandi sem væri mun al- varlegra en þau sem hann hefði áður átt í. „Það er ekki tímabært að segja til um það hvort hún muni deila með mér lífinu. Það er möguleiki en það er ekki ég einn sem ræð því,“ sagði prins- inn þegar hann ræddi um kon- una í lífi sínu sem ljölmiðlar hafa ekki enn haft uppi á. I afmælisviðtalinu var prins- inn spurður hvert hefði verið mesta áfall á ævi hans. Hann nefndi dauða móður sinnar, Grace Kelly. „Ég held að faðir minn hafi aldrei komist yfir þann mikla missi. Hann tók dauða hennar afar nærri sér. Ég hugsa oft um hana, en maður þarf að hafa trú á framtíðinni og halda áfram að gera gagn. Ég veit að móðir mín vakir yfir fjöl- skyldunni." Prinsinn segir glaumgosa- stimpilinn sem fest hefur við hann ekki eiga rétt á sér. Hann þykir alúðlegur maður í viðkynn- ingu en segist ekki eiga marga vini. „Ég á nána vini en ég get talið þá á fingrum mér. Flestir þeirra eru vinir mínir frá barn- æsku og koma úr öllum stéttum þjóðfélagsins,11 segir prinsinn. Almennt er gert ráð fyrir að hann verði orðinn þjóðhöfðingi í Mónakó ekki seinna en árið 2000. Þegar hann var spurður hvað hann hefði lagt fyrir sig ef hann hefði ekki fæðst sem ríkis- arfi svaraði hann: „Ef aðstæður væru aðrar hefði ég getað hugs- að mér að verða leikstjóri eða barnakennari.“ Grace Kelly sker afmælisköku fyrir son sinn á eins árs afmæ/i hans. Viktoría Spánardrottning horfir á. Albert prins ásamt föður sínum. Flestir búast við að Albert verði gerður að fursta árið 2000. m „Toldum okkur ekki vera að ana út i brúðkaup í neinu óðagoti enda þekkjumst við vei. Bú/n að vera saman í átján ár, “ segir Helga Helgadóttir á Grenivík, sem hér sést með Sigurgeiri Harðarsyni, eiginmanni sinum. [Ljósm: NORÐURMYND - Ásgrímur.'j Betra er seint en aldrei „Við töldum okkur ekki vera að ana út í brúðkaup í neinu óða- goti enda þekkjumst við vel. Búin að vera saman í átján ár. Presturinn sagði við athöfnina að vissulega væri betra seint en aldrei,“ segir Helga Helgadóttir á Grenivík, en þann 16. ágúst á liðnu sumri voru hún og Sigur- geir Harðarson gefin saman í heilagt hjónaband í Grenivíkur- kirkju af séra Pétri Þórarinssyni í Laufási. „Ég er sjálf fædd og uppalin á Siglufirði en fluttist síðan með foreldrum mínum til Akureyrar. Sigurgeir er hinsvegar innfædd- ur Grenvíkingur - og hér i kaup- túninu hef ég búið síðustu átján ár. Siglufjörður og Grenivík eru ekki svo ólíkir staðir, að minnsta kosti er mannlífið hér afar ró- legt,“ segir Helga, sem síðustu tvö ár hefur verið utan vinnu- markaðar vegna meiðsla sem hún varð fyrir í bílslysi. Sigur- geir starfar hinsvegar sem vél- stjóri á togaranum Frosta ÞH. Saman eiga þau Helga og Sig- urgeir tvær dætur. Sú eldri er Anna Margrét, sextán ára, og Inga Kristín sem er tíu ára. -SBS. HannaBjörk og Andreas Gefin voru saman í hjónaband í Akureyrarkirkju þann 26. júlí á sl. ári, af sr. Svavari Alfreð Jóns- syni, þau Hanna Björk Braga- dóttir og Andreas Nyman. Heim- ili þeirra er Oppegardsveien 233b í Langhus í Noregi. (Ljósm: NORÐURMYND - Ásgrímur.) Drífa og Jón Sverrir Gefin voru saman í hjónaband í Akureyrarkirkju þann 5. júlí á sl. ári, af Verði Traustasyni, þau Drífa Steindórsdóttir og Jón Sverrir Friðriksson. Heimili þeirra er að Engimýri 5 á Akur- eyri. (Ljósm: NORÐURMYND - Ásgrímur.) Pl RT ÁN ABYRGÐAR Banvæn kynni í górillubúrinu Górilla nokkur í Japan, sem gekk undir nafninu Soldán, lét kyn- hvötina heldur betur hlaupa með sig í gönur og greiddi það dýru verði. Honum er kannski vor- kunn, því vikum saman mátti hann hírast einn í búri horfandi upp á þrjár girnilegar kvengórill- ur í næsta búri við hliðina. Þegar Soldán fékk svo loksins að kom- ast inn til draumadísanna þriggja hafði hann enga stjórn á sér. Eft- ir aðeins nokkurra mínútna æðiskast gaf hjartað sig og hann datt niður dauður á staðnum. Gleymdi að þefa af sönnunargagninu Afrýjunarréttur f New York þarf að skera úr um það hvor málsað- ila í nauðgunarmáli segir satt um það hvar sakborningurinn fór úr nærbuxunum sínum. Maðurinn segist hafa farið úr þeim í svefn- herberginu, en konan segir það hafa verið í eldhúsinu, þar sem nauðgunin átti sér stað. Lögfræð- ingur konunnar segir að hún hefði getað sannað mál sitt því nærbuxumar hafi lyktað af kryddi. Hins vegar hafi dómarinn gert afdrifarík mistök, því hann hafi ekki þefað af nærbuxunum né heldur Iátið kríðdóminn þefa af þeim, sem hefði verið nauðsyn- legt til þess að vita hvort það væri í raun kryddlykt af þeim. Velkomin í Villta vestrið eftir Ingibjörgu Hjartardóttur. Leikstjóri Helga E. Jónsdóttir. ATH. breyttan sýningartíma 7. sýning. iöstud. 3. apríl kl. 20.30 8. sýning. laugard. 4. apríl kl. 20.30 9. sýning. mið. 8. apríl kl. 20.30 10. sýning. fimmtud. 10. apríl kl. 20.30 ATH. breyttan sýningartíma Miðapantanir í síma 463 1195 irá kl. 17.00. - 19.00. Gisting og matur fyrir hópa að Öngulsstöðum í Eyjafjarðarsveit. HLAÐAN er opin eftir sýningar upplýsingar í síma 463 1380 Freyvangs- leikhúsið

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.