Dagur - 01.04.1998, Side 10
26 - MIÐVIKUDAGUR 1. APRlL 1998
LÍFIÐ í LANDINU
Hestanuðstöðin í
Dal heimsótt
Atli Guðmundsson og
Eva Mandal reka
Hestamiðstöðina Dal í
Mosfellsbæ. Dalur er í
eigu Gunnars Dungal
sem býr í Dallandi og
hefur einnig hesthús
þar. Hestasíðan heim-
sótti Atla og Evu og
forvitnaðist um hvað
þar væri á húsi.
Eins og menn ef til vill muna þá var
hitasóttin fyrst greind í þessu hesthúsi.
Hún er nú gengin yfir þar og tamningar
og þjálfun komin á fulla ferð. Hér held-
ur fólk ótrautt áfram að þjálfa fyrir
landsmót og á ekki von á öðru en það
verði haldið á tilsettum stað og tíma. I
hesthúsinu gefur að líta marga stóð-
hesta enda Atli með eftirsóttustu sýn-
ingarmönnum hvort heldur er um kyn-
bótahross eða gæðingasýningar að
ræða.
Fyrsti hesturinn sem fréttamaðurinn
rak augun í Var Hjálmur frá Vatnsleysu,
rauðskjóttur með hvítan haus. Aðspurð-
ur sagði Atli að það væru margir góðir
partar í þessum hesti, mikill fótaburður,
tölt og brokk. Það fer eftir því hvernig
úr þessu spilast hvort hann verður
sýndur í vor. Um þennan hest var stofn-
að hlutafélag í fyrra, en hann hefur ekki
verið sýndur ennþá. Þá er höttóttur
Toppssonur undan dóttur Þokka frá
Steðja. Sá heitir Skrúður og er gott
hestefni, en heldur smár. Eldur frá
Vallanesi er í næstu stíu. Hann fékk
ágætan dóm 4ra vetra en hefur ekki
bætt miklu við síðan. Það er verið að
þjálfa hann fýrir gæðingakeppni og ætl-
unin að byija með hann f því í vor.
Glæsir frá Litlu-Sandvík er sonur Gusts
frá Sauðárkróki. Móðirin er Kátína frá
Stóra-Hofi. Hann fékk 8,03 í aðaleink-
unn í fyrra og ætlunin er að koma hon-
um inn á landsmótið, en til þess þarf
hann að ná 8,15. Hann á að eiga mögu-
leika á því.
Hefur dálæti á Toppi
Spuni frá Miðsitju undan Kötlu frá
Miðsitju og Ofeigi frá Flugumýri er mó-
álóttur. Þessi hestur er mjög spengileg-
ur, hefur aukið viljann mikið frá því
fyrra en hans vandamál hefur verið
brokkið sem tapast öðru hveiju. Tölt og
skeið er hins vegar mjög gott. Þá er röð-
in komin að Geisla Toppssyni frá
Reykjavík en þessi foli fékk góðan dóm í
fyrra. Hann hefur mikið bætt sig síðan
þá og auðheyrt á Atla að hann er
ánægður með þennan hest. Atli er
sannfærður um að Toppur eigi eftir að
gefa mikið af farsælum hestum og gen-
in hans Topps muni margir vilja hafa í
sínu stóði í framtíðinni. Garri frá
Grund er kominn til Atla. Hann sagðist
vera að prófa þennan hest en hann væri
of viljugur eins og væri og þyrfti að ró-
ast svo hægt væri að rekja vel úr hon-
um. Þarna væri á ferðinni mikill hestur.
Þá Iitum við næst á ieirljósan fola á 5. v
undan Stíganda frá Hvolsvelli og Dag-
rúnu frá Dallandi. Þetta er klárhestur
og kemur ansi vel fyrir. Hann verður
sýndur í vor.
Margt af ungiun efnilcgum
hryssum
Þá er komið að merarstíunum. Fyrst er
að líta á Gnótt frá Dallandi sem sýnd
var í fyrra þá á 5. vetri. Hún er undan
Orra frá Þúfu og Grósku frá Sauðár-
króki. Hún fékk 8.30 fyrir byggingu í
fyrra og 7,89 fyrir hæfileika skeiðlaus
þar af 9,5 fyrir fegurð í reið. Hún kem-
ur í dóm aftur í vor. Þá er Dimma frá
KoIIugerði Toppsdóttir sem sýnd var í
fyrra. Hún fékk 8 fyrir byggingu og 7,71
fyrir hæfileika skeiðlaus. Þá eru nokkr-
ar á 5. vetri. Ein er undan Toppi og
móðirin er undan Hrafnhóla Hrafni. Sú
heitir Hreyfing og er frá Hafnarfirði.
Erla undan Glóð frá Enni og Hrafns-
syni sem er albróðir Tignar frá Enni
sem Gunnar Arnarson sýndi í hitteð
fyrra. Þá er hryssa frá Torfunesi undan
Safír frá Viðvík og Virðingu frá Flugu-
mýri og ein ffá Nýjabæ undan Kjarval,
ein Kraflarsdóttir, Hrafnsdóttir frá Gígj-
arhóli í Biskupstungum. Þá er hryssa
undan Gný frá Hrepphólum og
Dúkkulísu fra Dallandi, efnilegt hross
eins og þær eru yfirleitt allar þessar 5
vetra hryssur. Sú heitir Dögg. Þá er
hryssa sem heitir Vænting úr Hafnar-
firði undan Toppi og Vör frá Reykjum.
Bráð efnilegt hross.
Sonur Topps og Kráku
I hesthúsinu í Dallandi er margt hrossa
og þar var að störfum Halldór Guðjóns-
son tamningamaður frá Hellu. Þar
sýndi Atli 4ra vetra fola brúnan, son
Topps frá Eyjólfsstöðum, afskaplega
rennilegan og að því er virðist vel gerð-
an hest. Þessi foli heitir Kjarkur. Það er
aðeins byrjað að hreyfa hann og lofar
það góðu. Það hefur ekki verið tekin
nein ákvörðun um sýningu á þessum
fola í vor. Móðir hans er Kráka frá
Dallandi. Hér virðist vera á ferðinni
gott stóðhestefni. I þessu húsi eru
nokkrar hryssur. Þar á meðal er Kalta
frá Dallandi sem nú er geld og verður
trúlega í gæðingakeppni í vor. Þá er
Elva frá Sunnuhvoli undan Kjarval og
Tvístjörnu á 6. vetri og fer í dóm í vor.
Þá eru þrjár hryssur á 4. vetri, ein und-
an Kveik frá Miðsitju, önnur undan
Safír frá Viðvík og sú þriðja undan
Svarti. Þær fara allar vel af stað.
1. apríl er nú aþjóðlegur gabbdag- I
ur og er Iíklegast að þau ærsl eigi
uppsprettu sína í nýársgleði í vestanverðri
Evrópu og víðar á miðöldum. Þá var 1.
apríl áttundi og síðasti dagur nýárshátíðar
sem hófst um voijafndægur 25. mars.
Um ærsl þennan dag er ekki vitað fyrr en
seint á 19. öld, en ljóst er að lærðir Is-
lendingar þekktu fyrirbærið „að hlaupa
apríl" á 17. og 18. öld. Fyrsta alkunna
aprílgabb í íslenskum fjölmiðli var frétt
um fljótaskip á Ölfusá frá fréttastofu út-
varps árið 1957. (Saga daganna)
Það gerðist eitt og annað 1. apríl.
• 1578 uppgötvaði William Harvey í
Englandi, blóðrásina.
• 1807 birti F.C. Trampe stiftamtmaður
I auglýsingu um brunavarnir í Rvk.
• 1815 fæddist Otto Von Bismack
í Þýskalandi.
• 1855 var Islendingum Ieyfð fijáls
verslun við þegna allra þjóða.
• 1873 fæddist Sergei Rachmaninoff
tónskáld í Rússlandi.
• 1867 var Heimssýningin í París opnuð.
• 1889 var fyrsta uppþvottavélin sett á
markað.
• 1932 fæddist Debbie Reynolds leik-
kona.
• 1946 fóru 400.000 námuverkamenn í
verkfall í Bandaríkjunum.
• 1964 sættist John Lennon við föður
sinn Freddie eftir 17 ár.
• 1986 féll olíuverð niður fyrir 10$ á
tunnu.
HVAÐ Á É G A Ð GERA
Alltaf að rífast!
Sæl Vigdís. Yngri sonur minn trúlofaðist í
vetur. Bæði hann og unnustan eru mjög
indæl, þ.e. hvort í sínu lagi, en saman eru
þau óþolandi, svo undarlega sem það nú
hljómar. Anægjulegu stundirnar sem fjöl-
skyldan átti saman í viku hverri við kvöld-
verðarborðið hjá okkur hjónunum eru
orðnar kvíðvænlegar. Unga parið kýtir lát-
laust, hann stríðir, hún fer í fylu, þau ríf-
ast og fara bæði í fýlu og andrúmsloftið
er meira og minna rafmagnað. Ég ræddi
þetta við hann fyrir nokkru og tók hann
vel í að þessu yrði að breyta en eina
breytingin varð sú að kærastan fór í fylu
út í mig fyrir „afskiptasemina". Ég hafði
haft mjög jákvæða reynslu af eldri börn-
um „ungum og ástföngnum" svo ég veit
eiginlega ekki hvað ég á að gera og leita
þess vegna til þín með von um að þú hafi
einhver ráð handa mér.
Það er von að þú sért leið yfir þessu.
Þetta er þó fyrst og fremst vandamál
unga parsins sem þú ert að taka yfir á
þínar herðar. Margir temja sér slfka
framkomu og þarf hún ekki að þýða
neitt, er aðeins ákveðinn vani. Svo
þrífast sumir ekki nema í einskonar
ástar- haturssamböndum og elskast
heitt á milli hávaðasamra rifrilda.
Hvað þig varðar hefurðu þá möguleika
opna að sleppa því að bjóða þeim heim
og útskýra fyrir þeim að þið sættið ykk-
ur ekki við þessa framkomu á ykkar
heimili og geti þau ekki stillt sig heima
hjá ykkur, verði þau að vera án matar-
boðanna ykkar. Því það er sá hluti
málsins sem að ykkur snýr. Þeirra mál
er svo hvemig þau Ieysa úr sínum rifr-
ildum, það er nokkuð sem þú getur
ekki haft nokkur áhrif á og mátt helst
ekki að skipta þér af, þó það sé erfitt
fyrir foreldra að sleppa því að leið-
beina börnum sínum. Eg get líka full-
vissað þig um að þú ert ekki ein um
þetta vandamál, því í síðustu viku fékk
ég símtal frá ungum manni sem yildi
vita hvort hann og kærastan gætu elsk-
að hvort annað þegar þau rifust stans-
laust. En það bíður næsta dálks.
Vigdís svarar í símaim!
Ertu með ráð, þarftu að spyrja,
viltu gefa eða skipta?
Vigdís svarar í símauu kl. 9-12.
Símiun er 563 1626 (beint)
eða 800 7080
Póstfang: Þverholt 14 Rvk.
eða Strandgata 31 Ak.
Netfang: ritstjori@dagur.is
Öiyggið fyrir öllu
Heldur þættu þessir „örygg-
p ishjálmar" lítið öruggir í dag,
» ■ en 27. maí 1931 voru þeir
Auguste Piccard (kannski
forfaðir Picards skipherra í Star Trek?)
og Paul Kipfer með þessa hjálma þeg-
ar þeir fóru upp í einskonar loftbelg
eða kúlu úr áli til þess að rannsaka
geimgeisla. Þeir fóru upp í 10 mílna
hæð yfir Augsburg í Þýskalandi og
hitastigið var um 37°C inni í kúlunni
og lentu um kvöldið á jökli í Austur-
ríki eftir mjög árangursríka ferð. Þeir
höfðu áður gert tilraun í þessa veru en
í það skiptið fór belgurinn aðeins 3
metra upp og í tilefni af því var gert
mikið grín að þeim.