Dagur - 15.04.1998, Síða 3

Dagur - 15.04.1998, Síða 3
MIÐVIKUDAGUR 1S. APRÍL 1998 - 19 LÍFIÐ í LANDINU Oddi hefurengan bakhjarl eins og t.d. bæjarsjóð sem stendur illa. Geturekki sótt út á hlutabréfamarkað- inn eins og ÚA með 200 milljóna króna útboð og keyptsíðan þorskkílóiðfyrir 680 krónur. Oddi hf. er langstærsta útgerð- ar- og fiskvinnslufyrirtækið á Patreksfirði (raunar Vesturbyggð allri, en Patreksfjörður er hluti af því sveitarfélagi) og gerir út einn 200 tonna beitningavélabát sem heitir Núpur BA-69 með liðlega 1.000 tonna þorskígildis- kvóta í aflamarkskerfinu, þar af 250 tonna steinbítskvóta. Oddi er einnig með tvo smábáta í þorskaflahámarki með samtals 340 tonna kvóta, en bátarnir, Garðar BA-62 og Patrekur BA- 66, voru keyptir haustið 1996. Auk þess gerir Vestri ehf., en eigandi hans Jón Magnússon er stærsti einstaki eigandi Odda, út bátinn Vestra sem landar megn- inu af aflanum til vinnslu hjá Odda. Vestri er með um 400 tonna þorskígildiskvóta. Halldór Leifsson, útgerðar- stjóri og fulltrúi framkvæmda- stjóra Odda hf., segir að undan- farin ár hafi aðeins um þriðjung- ur þess afla sem unninn sé í landi hjá Odda komið frá bátum útgerðarinnar, annar afli komi af fiskmörkuðum og bátum sem séu í viðskiptum við fyrirtækið. Halldór var spurður hvort til stæði að breyta því og minnka vægi fiskmarkaðanna í hráefnis- öfluninni, t.d. með kaupum á bát eða kvóta. Vantar meiri kvóta „Menn hafa verið mjög opnir fyrir því, og í fyrra var ákveðið að fjárfesta í kvóta smábátaút- gerðarinnar en það var kvóti sem kostaði ekki nema sem svarar fimmtungi þess sem hann kostaði í aflamarkskerfinu. Það sem okkur vantar tilfinnanlega í dag er meiri kvóti á Núpinn því þetta er skip sem gæti haldið uppi góðum stöðugleika í fisk- vinnslunni. Smábátarnir geta ekkert sótt ef eitthvað er að veðri, og þá geta dottið niður vinnsludagar vegna hráefnis- skorts þó þeir hafi verið sárafáir í þessu fyrirtæki undanfarin misseri. Núpur er gerður út fyrir Suð- urlandi fimm mánuði ársins á keilu og löngu og Iandar þá í Halldór Leifsson, útgerðarstjóri Odda, við slagæð byggðarlagsins, höfnina. - mynd: gs Þorlákshöfn en hann er með langmesta keilu- og lönguafla allra íslenskra skipa. Yfir sumar- tfmann er mikil samkeppni um hráefnið og það gerir okkur erfitt fyrir að ná aflanum hingað heim því við þurfum að greiða um 10 krónur fyrir hvert kg sem flutt er hingað vestur til Patreks- fjarðar. A móti kemur að hér eru á sama tíma bátar að sunnan sem sjá okkur fyrir nauðsynlegu hráefni," segir Halldór Leifsson. Ráðu ekki við þetta Nií hefur þetta byggðalag tapað tniklum kvóta á undanfömum árum. Er sá straumur ennþá óhagstæður, þ.e. íburtu? „Já, en í miklu minna mæli en áður enda eru ekki orðnir svo margir bátar eftir hérna. En það hafa lfka ýmsir verið að fjárfesta í smábátaútgerðinni svo eitthvað hefur komið til baka af bátum og kvóta.“ Hér hefur ekki verið gerður út togari í mörg ár, hvaða togari var hér síðast gerður út? „Sigurey BA-25 var seld héð- an árið 1989 með öllum kvóta þegar Hraðfrystihús Patreks- fjarðar varð gjaldþrota. Reyndar tók Oddi við rúmlega 200 tonna togbát en hann var seldur burtu 1993, því menn réðu einfaldlega ekkert við þetta, fjármögnunin slæm og lítill kvóti, eða um 500 tonn, enda fengu menn ekki þá aflareynslu sem búist var við. Núpurinn hefur verið á línu- tvöföldun og við afnám hennar töpuðum við sem svaraði 100 tonnum af þorski í afla. Það var röng stjórnvaldsákvörðun að af- nema línutvöföldunina, t.d. fengu þeir sem gerðu út á línu- tvöföldunina aðeins 60% þess afla sem þar fékkst, 40% var dreift meðal allra annarra sem jafnvel voru að síðan að selja sinn hlut, enda fengu þeir þetta sem bónus. Við höfum engan bakhjarl hérna eins og t.d. bæj- arsjóð sem stendur illa, eða get- um sótt út á hlutabréfamarkað- inn eins og t.d. Utgerðarfélag Akureyringa með 200 milljóna króna útboð í haust og keypt síðan þorskkílóið fyrir um 680 krónur." Leita eigin leiða Rekstur Odda gekk alveg þolan- lega rekstrarárin 1995 og 1996, var við núllið, og tap fiskvinnsl- unnar mun minna en í hefð- bundinni bolfiskvinnslu, sem var um 12% á síðasta ári. Veltan 1997 var hins vegar minni en árið 1996 þegar hún var um 580 milljónir króna, aðallega vegna tveggja mánaða verkfalls verka- fólks. Saltfiskvinnsla og frysting er í sama húsinu sem gefur möguleika á að stýra vinnslu hráefnisins eftir mörkuðum. AIl- ar saltfiskafurðir eru seldar af fyrirtækinu sjálfu til Spánar og segir Halldór Leifsson að Oddi sé að fá betra verð fyrir sínar af- urðir en flestir aðrir, enda séu engir milliliðir. Stór sölusamtök eru þó nauð- synleg, en ég held að það sé auðveldara fyrir fyrirtæki af þessari stærðargráðu eins og Oddi er að leita eigin leiða í markaðssetningunni að mörgu leyti. Við erum auk þess ein- göngu með línu- og færafisk, besta hráefnið sem fáanlegt er. Frystar afurðir frá okkur eru hins vegar seldar gegnum SH.“ Halldór segir að það eigi að vera sjálfsagt mál að Patreksfirð- ingar fái sérstakan steinbítskvóta þegar vertíðin stendur sem hæst í mars og apríl, þ.e. þegar steinbít- urinn kemur upp á landgrunnið í skelina, rétt við bæjardymar. Það sé jafn sjálfsagt og að Amfirðing- ar, Skagfirðingar og fleiri fái inn- fjarðarrækjukvóta á hveiju hausti. Settur var kvóti á steinbít í fyrsta skipti á síðasta fiskveiðiári og það breytti veiðimynstrinu auk þess sem hráefnisverð á steinbít hafi hækkað við aukna eftirspurn. Oddi missti hins vegar af síðustu steinbítsvertíð vegna verkfalls, sem orsakaði um 45 milljóna króna veltutap en skip útgerðar- innar lönduðu á meðan á fisk- mörkuðum. Nú er mikil þorskgengd fyrir Vestfjörðum og aflinn allt að helmingi meiri en venjulega. Æti fyrir þorskinn virðist þó vera takmarkað og hefur minni þorskur fundist í maga þess sem stærri er. Óttast var að ef Ioðnan nái ekki að ganga vestur á hefð- bundið hrygningarsvæði við Snæfellsnes yrði erfitt að ná steinbítnum á línu, þorskurinn yrði mun frekari á línuna. Það gekk að nokkru eftir. GG Patró á að sitjafyrir

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.