Dagur - 20.05.1998, Page 4
20-MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 1990
LÍFIÐ í LANDINU
UMBUÐA-
LAUST
Kolbrún
Bergþórsdóttir
skrifar
Ef andi stjórnarandstöð-
unnar opinberaðist í
einni persónu mætti Iýsa
henni sem fremur vit-
grönnum, sjálfumglöðum
popúlista sem ekkert þekkti til sjálfsgagn-
rýni. Það er íjarri mér að ætla að festa
þessa lýsingu við hvern og einn einstald-
ing í stjórnarandstöðunni, því þar finnast
nothæfir stjórnmálamenn þótt ekki fái
þeir notið sín, en sem heild er stjórnar-
andstaða þessa Iands ónýtt apparat sem
enginn leið er að taka hátíðlega. Eina ráð
stjórnarandstöðunnar til að vekja athygli
á sjálfri sér er að senda einn harðasta
fulltrúa sinn, og þann fanatískasta, í
ræðustól til að mala í fulla tíu tíma yfir
auðum þingsal og sofandi þjóð. „Ekki
orði ofaukið, ofur málefnalegt," fullyrti
formaður Alþýðuflokks við fréttamann
skömmu eftir að maraþonræðunni lauk.
Sighvatur Björgvinsson hefur annað
hvort vondan smekk eða hefur verið í
svefngalsa þegar hann mælti þau orð því
stór hluti ræðu Jóhönnu byggðist á syfju-
legum upplestri úr ræðum gamalla krata.
Ef málsnilld fannst í máli Jóhönnu kom
hún ekki frumsamin úr hennar munni.
Ræðan sem engioo heyrði
Það mun hafa verið ræðusnillingurinn
Winston Churchill sem sagði að það tæki
sig fimm klukkustundir að undirbúa
fimm mínútna ræðu en fimm mínútur að
undirbúa fimm klukkustunda ræðu. Og
óneitanlega hvarflar að manni að það hafi
kostað Jóhönnu Sigurðardóttur meira
álag að halda sér vakandi þessa tíu tíma
en að undirbúa ræðu sem enginn hefur
sennilega heyrt í heild sinni nema forseti
Alþingis sem var bundinn við stól sinn og
komst ekki burt.
Stjórnarandstaðan gumar af frammi-
stöðu sinni. En þjóðin hefur ekki eftir
neinu tekið, öðru en því að Jóhanna Sig-
urðardóttir setti nýtt ræðumet. Hún stóð
í tíu tíma við púlt og virtist allan þann
tíma ekki vera mál að fara á klósettið.
Það þykja vissulega tíðindi á mörgum
bæjum en afrekið nægir þó varla til var-
anlegrar virðingar.
„Eina ráð stjórnar-
andstöðunnar til
að vekja athygli á
sjálfri sér er að
senda einn harð-
asta fulltrúa sinn,
og þann fanatísk-
asta, í ræðustól til
að mala í fulla tíu
tíma yfir auðum
þingsal og sofandi
þjóð.“
A
tossa-
bekk
Nú er rétt að taka fram að ég tel enga
ástæðu til að bera Iof á ríkisstjórn Davíðs
Oddssonar fyrir að ætla að þvinga fram á
mettíma afgreiðslu á stórum og mikilvæg-
um frumvörpum, hálendisfrumvörpum og
húsnæðisfrumvarpi. Það er hins vegar
snautleg stjórnarandstaða sem á engin
önnur svör en þau að tyggja upp gamlar
ræður tímunum saman og vola þess á
milli um vonsku forsætisráðherra.
Duglaus í riMsstjóm?
Stjórnarandstaðan er eins og tossabekk-
ur. Þar kunna menn ekki að bregðast við
á sannfærandi hátt og geta ekki komið
fyrir sig orði svo athygli veki. Eina ráðið
er að benda á manninn sem stendur við
töfluna og segja hann vera harðstjóra.
Síðan er staðið upp á stól og sagt: „Þú
skalt ekki halda að þú getir ráðið yfir
mér!“ Svo er tekið við að mala til þess
eins að mala.
Síðustu dagar hafa leitt í ljós að stjórn-
arandstaðan sameinuð á ekki roð við
Davíð Oddssyni einum. I rauninni þyrfti
ekki nema einn vel upplýstan, málsnjall-
an eldhuga til að vekja þjóðina til meðvit-
undar um hin ólánlegu frumvörp ríkis-
stjórnarinnar og kveða um leið forsætis-
ráðherra í kútinn með ræðu sem ekki
þyrfti að taka margar mínútur í flutningi.
Stjórnarandstaðan virðist ekki eiga slíkan
mann. Það er ekki einungis hennar ólán.
Það er ólán landsmanna allra. Og ráð-
leysi og dugleysi stjórnarandstöðunnar er
slíkt að óneitanlega læðist að manni sú
óþægilega hugsun að sennilega myndi
hún reynast jafn duglaus í verkum sínum
í ríkisstjórn og hún hefur reynst í stjórn-
arandstöðu.
JC býðtir á kappleik
JC bauð upp á kappleik á íþrótta- og
atrás Stöðvar 2, sem gengur undir nafn-
inu Sýn, á mánudagskvöld.
Kappleikurinn sem Sýn bauð
uppá var ekki Tyson v. Holyfield
að þessu sinni, þótt maður bygg-.
ist jafnvel við að Inga Jóna færi á
eyrun á Helga Hjörvar. Þetta
voru sem sagt frambjóðendurnir
að slást um borgina. Formið: 4
mínútur í inngangserindi, 2x15
í ræður þar sem hvort mátti grípa
frammí fyrir hinu og svo loka-
ræða hjá hvoru upp á 4 aftur.
Inga Jóna er tvímælalaust með
öflugustu, ef ekki öflugasti
stjórnmálamaðurinn á D-lista.
Hún fór heldur hikandi af stað og inn-
gangsræðan Iak ögn út og suður og þeg-
ar tímann þraut var eins og hún hefði
misst andstæðinginn úr fókus. Helgi tók
mun skipulegar á málum, setti sín
áhersluatriði í brennidepil og náði að
festa huga áheyrenda við það sem hann
ætlaði sér. Höggin voru fastari og hnit-
miðaðri. Þegar staðan var metin eftir
fyrstu lotu var Helgi yfir, 1-0.
Inga Jóna sækir
Þegar Sýn hafði mjólkað tækifærið byrj-
aði Inga Jóna og nú hafði Helgi skot-
MENNINGAR
VAKTIN
Stefán Jón
Hafstein
skrifar
leyfi. 15 mínúturnar liðu án þess að
manni fyndist Helgi vera áberandi hitt-
inn í inngripum. Það er mikil
kúnst að velja réttu málin til að
skjóta á móti og ekki alltaf rétt
að taka þau sem liggja beint við.
Helgi flaskaði á því að fara að
ræða hvenær reikningar liggja
fyrir hjá borginni og í heild var
lotan ódramatísk. Inga Jóna kom
hins vegar mun ákveðnari til
Ieiks þegar Helgi hóf mál og hélt
honum upp að köðlunum í
nokkrum málum. Það þýddi hins
vegar að kostir Helga nutu sín
vel, gömlu Morfís-reflexarnir
tóku sig upp. Högg Ingu Jónu
hittu stundum, en stöku sinnum kom
mjög Iævís krókur á móti bragði. Helgi
egndi gildru fyrir Ingu Jónu þegar hún
sakaði hann um að kunna ekki tölur,
sem hann þuldi svo að bragði og litlu
munaði að Inga Jóna færi í gólfið. Hún
uppskar hins vegar fyrir dugnað sinn og
sýndi að hvergi er komið að tómum
kofa. Þannig bar Helga af leið, án þess
þó að missa takt. Þegar hér var komið
sögu voru JC félagar komnir í „Gettu
betur“ stellingar með klappi og látum,
og klapplið Ingu Jónu virtist samhæfð-
ara í bylgjuhreyfingum. Lotunni lauk
með því að Inga Jóna vann á stigum,
naumlega, en Helgi var mjög nærri jafn-
tefli.
Lokalotan
Þegar hugað var að meiðslum áður en
lokaræður hófust kom í Ijós að Inga
Jóna hafði misst meira blóð. Málefna-
iega var staðan í lagi, en hún hafði tekið
of mikla áhættu gagnvart áhorfendum
heima með pirringsfaktornum. Svip-
brigði og raddbeiting Helga voru í full-
komnu Iagi eftir slaginn, og einkunn
9.0, en Inga Jóna ögn völt á fótunum
þegar hún las sig eftir raddböndunum.
Gribbusvipurinn kom of oft upp á þess-
um annars glæsilega frambjóðenda til
að dómnefndin gæti verið sátt um meira
en 7.5 fyrir árásartækni. I virðuleika
fékk hún aðeins 5.5. Hún hélt því að-
eins meidd inn í Iokalotuna og áhorf-
endur gátu eins vel búist við höggi und-
ir beltisstað. Beint í íjármálapung
Helga. Þess í stað kom frekar ómark-
visst klór á þennan viðkvæma stað, sem
áflogasérfræðingar meta á þann hátt að
Inga Jóna hefði átt að ganga hreint til
verks - en sleppa ella. Þar með var Helgi
kominn á auðan sjó með vel undirbúna
ræðu sem reyndist heilsteyptari en þó
annars sæmilegur sprettur lngu Jónu.
Ilann tók frekar mikla áhættu með því
að búa til orðaleik kringum fötlun sína,
sem mörgum kann að þykja full djarft
spilað á samúðarstrengina. En ræðan
fór vel í gegn þótt ekki tækist honum að
koma tæknilegu rothöggi á andstæðing-
inn. Helgi vann á stigum: 2-1 en Inga
Jóna kemst áfram í undanúrslit með
honum.