Dagur - 20.05.1998, Blaðsíða 11
T
Xfc^ur
LÍFIÐ í LANDINU
FÚLKSIIMS
MEINHORNID
• Það er að hefj-
ast Listahátíð í
Reykjavík. Þá
bregður svo við
að maður hefur
ekki áhuga fyrir
einu einasta at-
riði sem kynnt
hefur verið. Það
hefur ekki komið
fyrir áður að mig
hafi ekki Iangað
til að sjá eitt eða
fleiri atriði. Eg
verð einnig að
játa að ég kann-
ast ekki við þá
listamenn sem
kynntir eru nú til
sögunnar og full-
yrði að enginn
þeirra er ótvírætt
heimsfrægur. Er
þetta vegna
metnaðarleysis
þeirra sem fyrir
hátíðinni standa
eða er verið að
spara peninga?
• Hvers vegna
hefur enginn
sniðugur maður
gefið út leiðbein-
ingabækling um
hvernig best sé
að losna við of
ölvaða menn úr
veislum? Hafiði
verið í veislu þar
sem venjulegt
fólk reynir að
skemmta sér,
syngja, halda
ræður og segja
brandara, en
einn eða tveir
einstaklingar
eyðileggja
stemmninguna
með drykkjulát-
um? Og það eina
sem er gert er að
sussa á viðkom-
andi?
„Hætt er við að einhverjir sem tóku þátt i að samþykkja bygginguna fái bakþanka þegar hún
blasir við þeim í sinni endanlegu mynd.“
Langur skuggi
BRYNJÓLFUR BRYNJÓLFSSON
SKRIFAR
Byggingarleyfi fyrir lóðina sunnan við
Búnaðarbankann er frágengið. Hand-
hafar þess geta byrjað að grafa upp
miðbæinn þegar þeim hentar. Mikil
röskun verður á götumyndinni sem er
nokkuð opin og frjáls eins og er, þegar
búið verður að byggja húsið.
Ekki á allra vitorði
Þegar bæjarfulltrúar réttu upp hönd til
að samþykka byggingarleyfi fyrir lóðina
mun þeim ekki öllum hafa verið Ijós til
fulls sú endanlega mynd sem mundi
verða á húsinu. Þeim t.d. var ekki öll-
um ljóst að turninn á húsinu verður
sjö hæðir samkvæmt samþykktum
teikningum byggingarnefndar. Eg efast
um í framhaldi af þeim upplýsingum
að þeim sé kunnugt um lofthæð í turn-
inum en af lofthæðinni ræðst endanleg
hæð turnsins. Trúlega eru fleiri atriði í
byggingunni sem bæjarfulltrúum hefir
ekki verið alveg Ijós þegar byggingar-
leyfið var samþykkt í bæjarstjórn Akur-
eyrar. Bakþankatíminn er núna.
Hætt er við að einhverjir sem tóku
þátt í að samþykkja bygginguna fái
bakþanka þegar hún blasir við þeim í
sinni endanlegu mynd. Hætt er við að
bæjarbúar fái líka bakþanka þegar hús-
ið fullbyggt sem staðreynd blasir við
þeim. Þessi bakþankatími er ekki rétti
tíminn. Hann er núna. Bæjarfulltrúar
eiga að hafa kjark til að taka út frest í
þessu máli með því að afturkalla bygg-
ingarleyfið og rannsaka betur hvað í
teikningum af byggunni felst.
Reiturinn sem á að byggja á er eng-
inn útnári í bæjarlandinu heldur mið-
punktur í miðbænum. Mikil ábyrgð
fylgir því þess vegna þegar þessum reit
er ráðstafað og hvað er sett á hann.
Mistök í þessari ákvörðun bæjarfull-
trúa verða ekki svo auðveldlega afmáð
þess vegna á að endurskoða það sem
þegar hefir verið ákveðið með því að
taka út þennan frest.
Þegar sólin fer að ganga í kringum
turninn á þessari ónauðsynlegu bygg-
ingu þá er hætt við að nokkuð Iangur
skuggi stafi af honum. Hann leggst yfir
nágrennið með því að kæla umhverfið
og myrkva það. Hvaða nauðsyn ber til
að byggja þetta hús? Eg hefi mikið velt
því fyrir mér. Eg hefí helst komist að
því að tekjumöguleikar bæjarfélagsins
ráði því að húsið er byggt. Lífsgæði í
bæjarfélaginu sem felast í birtu og
rými verði látin fyrir peninga í bæjar-
kassann. Það eru að mínu áliti slæm
skipti.
Lögleysur og óheiðarleiM
Yfirlýsingfrá hollvinum
Glímufélagsins Árnmnns
Miðvikudaginn 29. apríl og fimmtudag-
inn 30. apríl birtust frásagnir um að
borgarráð hafi samþykkt fyrir sitt leyti
drög samnings milli borgarinnar, Knatt-
spyrnufélagsins Þróttar og Glímufé-
lagsins Armanns.
Þrátt fyrir þessar frásagnir og birting-
ar í blöðum, reyndist okkur erfitt að fá
um málið staðfestar upplýingar úr
fundargerð. Við urðum að
hóta kærum til að fá þær.
I þessum drögum felst að
Ármann glatar sjálfstæði
sínu og heimilisfestu og
ýmsar íþróttagreinar (8)
eru færðar frá félaginu og
fengnar Þrótti til eflingar.
Borgarráð var með bréfi
(27. apríl) hvatt til að
skoða málið betur áður en
afgreitt yrði.
Vitað er að starfsmenn
borgarinnar knúðu fram þá
pólitísku ákvörðun að fjalla
um málið og afgreiða þessi
samningsdrög á borgarráðs-
fundi þann 28. apríl sl.
Það voru þeir sömu starfsmenn, sem
samið höfðu samninginn, formaður
Strandgötu 31, 600, Akureyri
Þverholti 14,105 Reykjavík
Síminn lesendaþjónustu:
460 6111
Netfang: ritstjori@dagur.is
Símbréf: 460 6171/551 6270
Óskað er eftir að bréf til
blaðsins séu að jafnaði hálf til
ein vélrituð blaðsíða, 1000-1200
tölvuslög. Dagur áskilur sér rétt
til að stytta lengri bréf.
íþrótta- og tómstundaráðs, fram-
kvæmdastjóri ráðsins og borgarlögmaður.
Sömu aðilar veittu formanni Ár-
manns upplýsingar um bréf okkar og
gáfu honum tækifæri til að Ieggja inn á
borgarráðsfundinn bréf dagsett fundar-
dag (28. apríl) borgarráðs. I bréfi því
eru rangar og ósannar upplýsingar.
Þessi vinnubrögð eru ekki samkvæmt
venjum um undirbúning borgarráðs-
fundar.
Samþykkt þessa samnings er út í hött
nema að borgarráð sé með öðrum hætti
formlega búið að svifta Ármann eign-
um sínum og leggja til fjármuni til
kaupa á rishæð í verkstæðishúsi for-
manns Ármanns (fyrir fangbragða-
íþróttir og lyftingar) við Einholt 6 fyrir
um 43 milljónir króna sbr. orðalag
samningsins „í íþróttahúsi á vegum Ár-
manns".
Að sinni verða ekki raktir allir þættir
þessa ódæðis, en við mótmælum af
fullri alvöru og munum með öllum til-
tækum löglegum ráðum afhjúpa lög-
leysur og óheiðarleika við málsmeðferð
þessa.
Es. Yfirlýsing þessi átti að birtast í
blöðum fyrir 7. maí jen fyrir slysni varð
það ekki.
f.h. hollvina Glímufélagsins Ár-
manns,
Sktíli Norðdal
MIÐVIKUDAGUR 20.MAÍ 1998 - 27
Eyjafjarðarsveit
Kjörstaðir við sveitarstjórnarkosningar, sem
fram eiga að fara laugardaginn 23. maí 1998 verða
í Félagsheimilinu Sólgarði og Hrafnagilsskóla.
Kjörfundur hefst kl. 10 og lýkur kl. 22.
Eyjafjarðarsveit er skipt í tvær kjördeildir sem hér segir:
I. kjördeild - Félagsheimilið Sólgarður, fyrir þá íbúa
hreppsins vestan Eyjafjarðarár, sem búsettir eru
sunnan Skjóldalsár að undanskildum Torfum og fyrir
þá íbúa hreppsins austan Eyjafjarðarár, sem búsettir
eru sunnan Sámsstaða.
II. kjördeild - Hrafnagilsskóli, fyrir þá íbúa hreppsins
vestan Eyjafjarðarár, sem búsettir eru norðan
Skjóldalsár, auk Torfna og fyrir þá íbúa hreppsins
austan Eyjafjarðarár, sem búsettir eru norðan
Öxnafells.
Á kjörstað gerir kjósandi grein fyrir sér með framvísun nafn-
skírteinis eða á annan fullnægjandi hátt.
Talning atkvæða fer fram í Hrafnagilsskóla að kjörfundi
loknum.
% Á kjördegi hefir yfirkjörstjórn aðsetur í Hrafnagilsskóla, síma
463 1136.
Yfirkjörstjórn Eyjafjarðarsveitar 20. maí 1998.
Auður Eiríksdóttir, Emilía Baldursdóttir,
Níeis Helgason.
Kjósum rétt
Kjósum úrvalsrétti
úr Hrísolundi
UngnQutQgrillsneidor
1.198,-
Svínolundir
1.298r-
KEA kjötfors
298r-
Svortfuglsegg
99r-
Hrísolundur fyrir þig.