Dagur - 20.05.1998, Side 6

Dagur - 20.05.1998, Side 6
22 - MIBVIKUDAGUR 20.MAÍ 199 8 LÍFIÐ í LANDINU Díg^ttr MiMu betri en „þorramaturinn“! í Skálholtsskóla er boðið upp á máltfðir sem eiga engan sinn líka. Þar er borinn fram sams- konar matur og til var í biskups- tíð Þórðar Þorlákssonar árin 1674 til 1697. Málsverður þessi er mjög fjölbreyttur og góður og slær út allar viðteknar hug- myndir um gamlan og vondan íslenskan mat. Heiðurinn af þessu 17. aldar hlaðborði eiga þeir félagar Jón K. B. Sigfússon, kokkur í Ara- tungu, og Ingólfur Guðnason, garðyrkjubóndi á Engi. Val á matvöru í þessari máltíð byggir á heimildaöflun þeirra um hvað var til á þessum tíma og hvernig var matreitt. Byggt er á innflutn- ingsskýrslum, Islandslýsingum, margvíslegum frásögnum og fornleifarannsóknum. Sagan gefur mafitum nýjan keim „Landslag væri Iítils virði ef það héti ekki neitt“. Svipað má segja um mat. Þó maturinn leiki vel á tungu, gefur það honum nýjan keim að njóta hans í sögulegu umhverfi. Biskupamáltíð frá 17. öld á ekki heima á veitingahúsi í Reykjavík, heldur í Skálholti. Máltíðin byrjar þegar menn koma inn í sveitina í nágrenni Skálholts og rifja upp harna- skólalærdóm sinn í Islandssögu. Þar næst á að ganga til Skál- holtsdómkirkju og hlýða á kirkjutónlist og síðan að skoða fornminjar í kjallara kirkjunnar og loks að ganga þaðan út um aldagömul göng. Þá eru menn þess andlega reiðubúnir að njóta matar síns. Aðal imatreiðslumeistarans er að vera trúr hráefninu, nota ein- ungis það hráefni sem vitað er að var til á þessum tfma. Næst kemur að byggja á þeim vinnslu- og matreiðsluaðferðum sem kunnar eru og loks að blanda saman hráefni eftir eigin hug- myndum. Þórður biskup „gourmet“ Þórður biskup var sigldur maður Snættað hætti 17. aldar manna. Nútímamanninum finnst kræsingarnar merkiiega góðar. og mun hafa komið víða við í Evrópu. Hann var „gourmet" á síns tíma vísu í matreiðslu og ræktun. Biskup réð til sín danskan matreiðslumeistara og evrópskir straumar í matreiðslu blönduðust innlendri matar- hefð. Grænmeti og krydd var rækt- að í Skálholti frá öndverðu. Kartöflur fengust ekki á þessum tíma. Rófur, gulrætur, næpur, radísur, hvítkál og salat voru komin í ræktun. Síðan bættist furðu lítið við grænmetisbúskap- inn næstu 300 árin, eða þar til á allra síðustu árum. Þar til við- bótar voru flutt inn korn og krydd. Engifer er innflutt krydd sem virðist hafa verið mikið not- að í Skálholti fyrir 300 árum, en kom aftur inn á markað sem framandi krydd fyrir fáum ára- tugum. Kúmen var ræktað í Skálholti og mikið notað, en fer ekki mikið fyrir því nú. Pottatímabilið Matreiðsla á 17. öld var f pottum; steikingar byija síð- ar. Nautakjötið er soðið í jurtaseyði og soðið síað og notað í dágóða grænmetis- súpu. Saltkjöt og hangikjöt er þurr- saltað og ekki notað- ur saltpétur og nítrat. Hangikjötið er síðan taðreykt og saltkjötið lagt í pækil. Kjötið heldur sínum brúna Iit og enginn sjónarmun- ur var á saltkjöti og súpukjöti. Saltkjöt verkað með þessum hætti er einstaklega gott, ekki eins öfgafullt bragð af því og maður á að venjast. Boðið upp á silung matreiddan í njólablaði. Með er borin Jon K. d- Diy j r frarn. Guömundsdottirjemoe__—. skyrsósa bragðbætt með hun- angi og graslauk. Mysa og mjöður Kaffi og te voru ekki komin til landsins á þessum tíma. Jurta- seyði var unnið úr íslenskum villijurtum. Mysa var mjög mikið notuð og drukkin blönduð vatni. Ö1 var almennur drykkur, en vín aðeins hjá höfðingjum. Fluttir voru inn humlar til bjórfram- leiðslu. I Skálholti er nú borinn fram mjöður þar sem hráefnið er framleitt hjá Agli Skalla, en blandað og kryddað á staðnum að hætti hússins. Skálholtsskjóður I eftirrétt eru bornar fram Skál- holtsskjóður. Rjómi er bættur með koníaki og hnetum, settur á miðja pönnukökuna og hún tek- in saman eins og skjóða og bundið um. Hunang var sætu- efni þessa tíma og sykur dýr og sjaldséður. Boðið er upp á rúsín- ur, gráfíkjur og sveskjur með hunangssósu og svo auðvitað skyr. Allt brauð er heimabakað og boðið upp á margar sortir. Landuám í nútímanum Ferðaskrifstofan Landnáma verður með daglegar ferðir fyrir útlendinga í allt sumar þar sem m.a. verður boðið í 17. aldar kvöldverð í Skálholti. Þá geta hópar pantað hjá Landnámu eða beint á staðnum. Hægt er að fá misjafnlega mikið í lagt f mat og tilstandi. Mikið tónlistarlíf er í Skálholti og hægt er að tengja þetta tónleikahaldi í kirkjunni eða fá tónlistarfólk til söngs og hljóðfæraleiks undir borðhaldi. Starfsfólk klæðist viðeigandi búningum og er húsfreyjan klædd búningi sniðnum eftir mynd af Ragnheiði biskupsdótt- ur. Það er enginn skyndibiti að snæða í Skálholti og þaðan fara gestir mettir í anda og maga. 1 I SUZUKI BÍLAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 00. C?T T^ZT jtt^t u U mLa U ISlI BALENO WAGON GLX OG GLX 4X4 Góður í ferðalagið Baleno Wagon er einstaklega rúmgóður og þægilegur í akstri, hagkvæmur í rekstri og hefur allt að 1.377 lítra farangursrými. Baleno Wagon gerir ferðalagið enn ánægjulegra. Baleno Wagon GLX 4X4: 1.595.000 kr. Baleno Wagon GLX: s'uzuki" AFL OG ÖRVGGI SUZUKI SÖLUUMB0Ð: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf.( Laufásgötu 9, sími 462 63 00. Egilsstaðir: Bíla- og búvélasalan hf., Miðási 19, sími 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, sími 555 15 50. isafjörður: Bílagarður ehf., Grænagarði, sími 456 30 95. Keflavík: BG bílakringlan, Grófinni 8, sími 421 12 00. Selfoss: Bilasala Suðurlands, Hrísmýri 5, sími 482 37 00. ALLIR SUZUKI BítAR ERU MEO 2 0RYGGIS- lOFIPÚÐUM.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.